Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Tímabært að skoða og breyta þessari blessaðri neysluvísitölu ...

og vægi þeirra hluta, sem teknir eru inn í reiknisdæmi hennar. Sem stýra og stjórna lífsafkomu og kaupmætti þjóðarinnar hverju sinni, frá degi til dags.

Það gengur ekki öllu lengur að láta allar þessar tölur og aðra hagfræðilega útrekninga ráða för. Eða er þetta kerfi (system) allt svona háalvarlega heilagt !

hagstofa_islands_logo

Spurningar og svör um vísitölu neysluverðs (Hagstofa Íslands)

Samrænd vísitala neysluverðs (Hagstofa Íslands)

Hvað er vísitala ? (Vísindavefurinn) http://visindavefur.hi.is/svar.asp?id=1698

Og nú þegar eldsneytisdropinn er kominn í sögulegt hámark, vel yfir 260 krónurnar líterinn, er þá ekki unnt að taka t.d. þann kosnaðarlið út úr allri þessari reiknisformúlu ? Hvað skeður við það ? spyr sú, sem lítið hefur vit á allri þessari talnaspeki hagfræðinnar...

fuel

josira


mbl.is Bensínið þyngir íbúðarlán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kreppan er ekki búin ...

á því Íslandi, sem ég bý og telst til almúgans þar. Þannig að við og hin annars ágæta, Ólína Þorvarðardóttir þingmaður hljótum að búa á sitthvoru Íslandinu, svona miðað við sýn (sjón) okkar á þjóðfélagsástandinu.

Já, sitt sýnist hverjum ... 

imagesCAKKBEOO

 

hrunid

 

hlekkir

island

 

josira

 


mbl.is „Kreppan er nefnilega búin“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Arionbanki greiðir smáaura fyrir milljónirnar ...

shake-down-money

... sem teknar hafa verið af eignarhluta íbúða, þeirra skilvísu hin síðustu ár.

Er vart að trúa því að aðeins 1 blogg er að hér finna um þessa frétt.

Stór hluti þeirra er tóku íbúðarlán hér á árum áður, hvort sem var hjá bönkum eða íbúðarlánasjóði og lögðu fjármagn sitt á móti lánunum og eða áttu kannski 50-80% í íbúðunum (húsunum) hafa tapað að miklu leyti eignarhluta sínum.

Mér finnst það EKKI Í LAGI, að hægt sé að kalla það að bjóða “afslátt” eða “veita verðlaun”  líkt og Arionbanki vill kalla gjafmildi sína, kannski með um + - 100.þús. lækkun til þeirra er náð hafa, að sýna skilvísi á lánum sínum hin síðustu ár.

Og svo á viðtakandi gjafarinnar góðu (sem er þessi líka góði afsláttur vegna skilvísinnar) að taka á móti henni með bros á vör í auðmýkt og þakka fyrir gjafmildina í skiptum fyrir eignamissinn (áður eignarhluti - peningur í fasteigninni)

LÁNA-stofnanir allar hafa eignað sér það fjármagn (milljónir) sem kaupendur íbúða áttu til og lögðu á móti lánunum og segja má að eignarhluti þessa fólks, sé horfinn, týndur og tröllum gefin eða réttara sagt hefur verið færður á silfurfati til lánadrottnanna í dulbúnum gjafaumbúðum tölulegra útreikninga þeirra.

Sögur af viðskiptum við lánastofnanir  (hagsmunasamtök heimilanna)

Hversu lengi og hversu langt ætla bankarnir og aðrar lánastofnanir að ganga í að mergsjúga almenning í þessu blessaða landi. Er ekki tími til komin, kæra fólk, að við sjálf fólkið í landinu spornum við fótum og snúum vörn í sókn og förum að sýna samstöðu með því að vera samtaka og sjánleg með mótmælum.

Ekki eðlilegt hve bankakerfið – hagkerfið hefur ráðið för ...

Erum föst enn í sömu dellunni ... ( skítnum )

Enn eiga bankar og stofnanir landann

Byrjum á því að fara fram á breytingar á þessum hagkerfis útreikningum sem öllu stjórna og stýra hér. NÚNA STRAX.

Og að stjórnvöld sýni sóma sinn í, allavega eftir öll sín sviknu loforð um SKJALDBORG UM HEIMILIN um að setja lög NÚNA um leiðréttingu lána. Lækkun á höfuðstól, lækkun á vöxtum og verðtrygginguna af.

Og ekki gengur þetta öllu lengur með allar þessar hækkanir, sem dynja hér yfir látlaust. Fólk er bara orðið dofið, heyrist varla orðið neitt í neinum, t.d. í sambandi við hinar ýmsu hækkanir; s.b.r. Hiti, rafmagn, eldsneyti, fasteignagjöld og listinn er svo endalaust langur ...

bigstockphoto_heavy_question_thoughts_2558783

  

Ég má til með að setja hér fram frásögn manns, sem ég rakst á hjá öðrum bloggara og ég er nokkuð viss um að margir munu kannast við að einhverju leiti af eigin raun.

21.5.2011 Í hvaða heimi lifir Steingrímur? - Ekki mikil eignabruni hjá venjulegu fólki!

(fengið af bloggsíðu Marinós G.Njálssonar)

Sæll Marinó og þakka þér fyrir ávallt góð skrif. Þegar ég les kommentinn frá sumumu af þínum gestum, hugsa ég til þess hvort þessir ágætu menn hafa bara yfirleitt verið á Íslandi seinustu árin. Það er með eindæmum að það skuli ávallt vera til fólk sem er tilbúið að halda því fram að hinn venjulegi Íslendingur skuli hafa eitt svo um efni fram að hann missti allt sitt í vitleysu annarra. Ef ég, samkvæmt því sem " sannur íslendingur" segir, væri í efrihluta milli-stéttarinnar svokölluðu, þá langar mig að rifja upp fyrir honum og Andrési Kristjánssyni hvernig mín upplifun á því að hafa verið í þessari millistétt.

Ég hef alltaf þurft að vinna eftirvinnu og helgarvinnu fram í eitt til að geta haft í mig og á. Þegar ég keypti mína fyrstu íbúð 1979, með víxillánum, uppáskriftum  og öðru tilheyrandi stóð ég í þeirri trú að það sem ég væri að gera, væri samkvæmt mínum efnum. Myntbreytingin 1980/81 kom svo á stað óðaverðbólgu (150%) og viti menn, þessi litla 70fm íbúð (ábyggilega stórhýsi á þeirra mælikvarða) hvarf á tveimur árum. Ég stóð ekki með neitt eftir nema skuldir og fór í þrot. Ekki gafst ég upp. Árin liðu og ég náði að koma undir mig fótunum á ný og keypti annað stórhýsi uppá litlar 85fm árið 1988.

Árið 1991, kom aftur óðaverðbólga, og viti menn. Aftur var allt af mér hirt.

Árið 1997 keypti ég mér aftur íbúð. Nú var reysnin minni og hún bara 68fm. Alltaf átti ég fyrir því sem ég var að gera samkvæmt útreikningum míns banka. Allt gekk vel og árið 2004, lét ég verða af því að kaupa mér einbýlishús, sem ég meira og minna kom upp sjálfur. Nú var ég séður og keypti fyri utan borgina. Nánr tiltekið á Reykjanesinu. Eignarhlutinn minn í húsinu var næstum því 50% eftir að ég seldi íbúðina. Þess ber að gæta að ég var ekki að taka erlent lán, heldur aðeins 17.milljónir, sem mér fannst bara nokkuð hátt. Árið 2004 voru fasteignagjöl hjá mer aðeins tæp 140.000. Fasteignafjöldin fyrir árið í fyrra voru 267.000 og höfðu hækkað um 78% á aðeins 6 árum. Launin mín höfðu staðið í stað vegna þess að í góðærinu svokallaða mátti ekk hækka eitt né neitt vegna verðbólguáhrifa.

Nú er svo komið, að ég, sem er greinilega ekki sannur Íslendingur, er að missa allt eina ferðina einn. Samt átti ég fyrir þessu öllu samkvæmt bankanum. Eina lánið sem ég tók 17. milljónir og átti að vera ekkert mál fyrir mig að standa við það. Búin að borga tæpar 8 milljónir af láninu en eftir stendur 27 milljónir. Eignarhlutinn minn úr íbúðinni sem ég seldi, 9 milljónir er horfin og bankinn að taka húsið. Ég spyr mig í dag, af hverju var ég ekki bara " sannur íslendingur"  og fór bara á féló og heimtaði styrki til að geta veirð til eins og þessir mætu menn eru að leggja til að "sannir Íslengar" séu, því greinilegt er, að þeim er illa við fólk sem vill reyna að hafa í sig og á með sómasamlegum hætti. 

Það er andskoti hart að lesa svona fullyrðingar og mér er næst því að líkja svona fólki við, eins og flestir í ríksistjórninni eru, fólk sem aldrei hafa farið út fyrir garðinn sinn og unnið ærlegt handtak, heldur setið á jötunni á meðan almenningur í þessu landi þarf að blæða út. Það er engin afsökun að hafa verið á bleyju eða pela, það er nefnilega til nóg af okkar kynslóð í þessum hremmingum án þess að teljast " sannir íslendingar" samkvæmt ofangeindum kommentum. Reynslan mín í dag er sú, að það borgar sig að eiga ekki neitt og vera bara sem mest á styrkjum frá hinu opinbera, því greinilegt er að hér má engin eiga eitt né neitt nema örfáir.  

Kveðja.  

Sigurdur Hjaltested

Hvað ætli bankarnir, séu búnir að græða á vöxtum, verðbótum og verðtrygginga lána um áraraðir. ?

því blessuð hliðarsambúðin við bankanna byrjar strax í æsku og fylgir hún víst manni lífið allt.

Nýju bankarnir fengu lánin okkar með miklum afföllum við yfirtöku þeirra. !  

Arion banki verðlaunar skilvísa (visir)

Arion banki tekur yfir íbúðalánasafn þrotabús Kaupþings (mbl)

"Íbúðalánasafnið, sem Arion banki yfirtekur, er metið á um 120 milljarða króna. Með yfirtökunni eflir Arion banki stöðu sína á íbúðalánamarkaði með íbúðalánasafn sem nemur um 200 milljörðum króna. Heildareignir bankans eftir yfirtökun nema rúmlega 900 milljörðum króna.

Samkomulagið felur í sér að Arion banki verður útgefandi sértryggðra skuldabréfa í stað Kaupþings. Sértryggðu skuldabréfin voru gefin út á árunum 2006-2008 til fjármögnunar á íbúðalánum. Arion banki mun þannig auka langtíma fjármögnun sína um rúma 120 milljarða króna. Sértryggðu skuldabréfin verða skráð í kauphöll síðar á þessu ári.

Við yfirtöku Arion banka á íbúðalánum frá Kaupþingi í október 2008 og í janúar 2010 var veittur að meðaltali 21% afsláttur af verðtryggðum lánum sem endurspeglaði meðal annars stöðu lánasafnsins og væntingar um þær afskriftir sem framkvæma þyrfti."

Lán ÍLS til heimilanna nema tæpum 600 milljörðum (vísir)

"Hefur sú fjárhæð hækkað úr rétt tæpum 380 milljörðum kr. frá árslokum 2007 eða um 220 milljarða króna á fjórum árum"

Kallar enn eftir upplýsingum um uppgjör bankanna (visir) 

“Ég hef núna fengið upplýsingar um það að það er búið að fjölga um níu þúsund á vanskilaskrá frá árinu 2008," segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins”

 

Já og enn og aftur ...

Hver á hvað og hvað er hvurs ...

Maggi þeysari með sína mögnuðu rödd, hefur sitthvað um þessi mál að segja.

Eina jákvæða frétt var ég þó að lesa;

Bjartsýni landsmanna eykst; (mbl)

Já við erum sannarlega merkilega samsett þessi þjóð.

Ekki skil ég hvernig hægt er að vera bjartsýn í

allri þessari hringavitleysu og óstjórn

sem hér viðgengst.

Og

við ætlum seint að sjá að við sitjum á gulleggi.

Guðdómlegri gjöf, sem arfleifð okkar er.

Ísland hið góða og fallega

sem allt hefur að gefa okkur.

josira

   

 

(p.s er enn og aftur í veseni með línubil, buin að sitja hér um allt of langan tima opg reyna að laga - gefst upp vona að þetta sé læsilegt, þó allt sé í belg og biðu)


mbl.is 33.000 viðskiptavinir fá afslátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það snjóar ... og snjóar

Mikil og langvarandi fannkoma hefur hjúpað landið hvítum vetrarfeldi undanfarnar vikur og ekki er enn vitað fyrir víst, hversu lengi það mun vara.

TERRA_090202_1255

Hér er að sjá uppl. um veður og færð um landið ;

Sjálfvirkar veðurstöðvar Vegagerðarinnar

Vefmyndavélar Vegagerðarinnar

Færð um land allt

Snjódýpt

Ýtrustu aðgát þarf að sýna víða nú um landið vegna aðstæðna.

Biðjum máttarvöld og landsins verndarvætti um vernd fyrir byggðir þær og íbúa, sem eru á hættusvæðum snjóflóða, sem og annars staðar.  

 á veðurstofu Íslands er;

  • Óvissustig vegna snjóflóða - Norðanverðir Vestfirðir, Norðurland.

  • Hættustig vegna snjóflóða - Ísafjörður.

  • Viðvörun - Búist er við stormi (meira en 20 m/s) á NV-verðu landinu. Gildir til 26.01.2012 18:00 Meira

  •  

    snjomokstur_kop

    Búum okkur vel og förum eins gætilega og unnt er á ferðum okkar á þessum erfiðu vetrarfærðar dögum. 

    Nokkrar glugga myndir mínar er hér að sjá, en þær tók ég nú um hádegisbil í Kópavoginum.

    25jan2012 002

    25jan2012 003

    25jan2012 005

    25jan2012 010

    25jan2012 013

    25jan2012 009

    25jan2012_7

    25jan2012_11

    25jan2012_13

     Öll él styttir upp um síðir.

     

    josira

     


Ægifegurð norðurljósanna ...

með dansandi litadýrð sinni, heilla og fanga manns hug og hjarta. Við Íslendingar erum ein af þeim þjóðum, sem svo lánsöm eru að fá að líta augum þessa dásamlegu dýrð himinhvolfsins við rétt skilyrði náttúrulögmálanna.

Og ekki laust við að sál manns fyllist af lotningu við andartaksins sjón og skynjun á síbreytilegri lögun og litum þessara fögru sköpunarkrafta náttúruljósanna í hvert skipti, sem maður fær að njóta þeirra.

article-1387993-0C1D1CEC00000578-655_964x525

Þessi einstaka mynd hér að ofan er tekin við Jökulsárlón af Stephane Vetter.

Myndin var valin í fyrsta sæti hjá

National Geographic 2011 í flokki "Beauty of the Night Sky"

Fegurð næturhimisins (mbl)

Nordurljos_OA_251011

Þessa sérstöku mynd tók Olgeir Andrésson við Reykjanes

Af hverju stafa norður- og suðurljósin? (vísindavefurinn)

Sjást norðurljós í kvöld ? (stjörnufræðivefurinn)

Aurora Borealis (wikipedia)

Northern lights (myndir af vefnum)

Norðurljósamyndir (af vefnum)

Norðurljósa - upplýsingavefur

Beautiful Arora

Northern Lights, Galena , Alaska. Aurora Borealis

200px-Aurora_australis_20050911

og ekki má gleyma suðurljósunum, sem minna er talað um.

Fegurð lands, ljóss og lita er allsstaðar að finna.

Hér er að sjá fallegt myndband frá Djúpavogi. 

Sólroði við Djúpavog (Andrés Skúlason)

 

595Ranga_ljos

Norðurljós á Rangárvöllum við Hótel Rangá

Litadýrð norður-og suðurljósana minna einnig á litróf regnbogans.

Regnboginn ... og lífsins verkefni (eldri bloggfærsla mín)

Hvernig myndast regnboginn ? (vísindavefurinn)

Mikið megum við, sem höfum sjón vera þakklát fyrir og að geta notið þess.

 

josira

(er búin að vera í smá veseni með línubil, hætt við að reyna fleiri lagfæringar) 


Víða liggja leiðir forsetahjónanna ...

Það hefði eflaust verið gaman, fyrir Ólaf og Doritt að enda Kaupmannahafnar - hátíðarhaldanna saman.

Olafur_Ragnar_og__Dorrit

En stundum þarf að skipta liði, því oft er forseta – dagskráin ansi þétt.

Forsetahjónin Ólafur og Doritt hafa vel verið landi og þjóð til sóma í forsetatíð sinni. Hérlendis, sem og erlendis, alþýðleg, yndisleg og víðsýn ásamt því, að hafa staðið við hlið fólksins í landinu á ögurstundum.

Góðar manneskjur, verðugir þjóðhöfðingar, sem gjarnan mættu áfram sitja í forsetastól næsta kjörtímabil. En segja má þó, að viss eigingirni felist í þeirri ósk, því þau eru jú venjulegt fólk, sem eflaust hafa löngun til, að geta verið bara þau sjálf og notið meiri tíma saman með fjölskyldum sínum, en þau hafa getað leyft sér hin síðustu ár.

Og þegar þau hjón væru ekki lengur bundin skyldum og hefðum forsetaembættisins, myndi t.d. starfsorka og geta þeirra beggja til að sinna ýmsum málefnum í þágu þjóðarinnar nýtast enn betur ef hugur þeirra og vilji lægi í þá átt.

Ýmsir atburðir úr dagskrá forseta; http://www.forseti.is/Dagskraforseta/Urdagskra2012/

josira 


mbl.is Þurfti að sleppa hátíðarkvöldverði til að mæta á heimsþing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Megi það byrja með mér – Myndbandið

 

3416

Okkar einlægi Páll Óskar, samdi lag fyrir UNICEF ásamt lagahöfundunum í Redd Lights eftir dvöl hans í Afríku.

Mynd_1077610

 

 

AFRIKA_BEGGI_047_1_JPG_800x1200_sharpen_q95

Páll Óskar annar maður eftir Afríku (viðtal-Fréttatíminn)

Páll Óskar; ég er breyttur maður ( viðtal- DV)

Kvartar aldrei framar (viðtal-DV)

Við getum breytt heiminum; Páll Óskar og Halldóra (viðtal-Visir)

Unicef (fréttir um rauða nefið)

 

m_and_d

 

 Framlag Páls Óskars og hugsun til hjálparstarfs Unicef er virðingaverð.

Og texti hans við lagið " Megi það byrja með mér " 

finnst mér vera tímalaus og eiga við á öllum sviðum lífsins í bráð og lengd.

 

m_butterfly

 

Að læra að þekkja sjálfan sig og takast á við kosti og galla sjálfs síns í gleði og sorg lífsins er mesta verkefni sérhvers manns.

 

josira

 


Janúar og þrettándagleðin ...

 

Threttandagledi-Reykjanesb09

3659_master

Síðasti dagur jóla eða þréttándin eins og við köllum hann, verður nú eitt árið enn, kvaddur í dag og í kvöld víða um land með tilheyrandi blysförum, álfabrennum, tónlist, söng, álfakóngum og drottningum ásamt álfum, púkum og jafnvel einstaka trölli, ásamt Grýlu, Leppalúða og jólasveinum.

threttandi_2001_(60)

Threttandi

Threttandinn_640_01

troll

Sagnir, þjóðtrú og siðir um þrettándann og nýjársnótt svipar oft saman, sagnir eins og að kýr öðlist mannamál og um vistaskipti álfa og huldufólks.

Threttandinn_7

trettgledi8

ff63d3d4-e5e0-4bea-891c-9197f2290a4d_MS

20110105130822650158Alfagledi3

Og llitfagrir flugeldar lýsa upp skammdegið.

Mynd_1113036

flugeldar

Og á meðan öll þessi gleði okkar fer fram, megum við ekki gleyma að gæta varúðar í meðferð flugelda og blysa, fara gætilega í hálkunni, athuga með færð og veður og alls ekki gleyma að huga að dýrunum okkar stóru og smáu líkt og á við um sérhver áramót. Flest þeirra hræðast ýlurnar og sprengingarnar í flugeldunum.

  farm-animal-set

þrettándagleði 2012 ; Dagskrá víða um land

 

Þjóðsögur og ævintýri í stafrófsröð ( af síðu snerpu)

 

regnbogalitir tunglssins

Jólatunglið er tunglið sem er í sama tunglmánuði og þrettándinn.

Það er gömul trú að sé tunglið vaxandi á jólum verði næsta ár gott en sé þessu öfugt farið og tunglið sé þverrandi megi búast við slæmu ári. Um slíka hjátrú vitna þessar gömlu vísur:


Hátíð jóla hygg þú að;
hljóðar svo gamall texti:
Ársins gróða þýðir það,
ef þá er tungl í vexti.

En ef máni er þá skerður,
önnur fylgir gáta,
árið nýja oftast verður
í harðari máta.

Saga dagana- Þjóðminjasafnið

Ferlir/Veðursteinn

"Veður hefur alltaf verið til, a.m.k. hér á landi. Forfeðurnir voru fljótir að læra á veðrið. Til eru fjölmargar sagnir af veðurlýsingum, veðurnefnum, þjóðtrú og hjátrú tengdri veðrinu, viðureignasögum, óveðurssögnum og veðrahörkum, en einnig góðviðrislýsingum, breyttu veðurfari og áhrif þess á mannlífsgróandann."

Veðursteininn á Sólheimum í Grímsnesi 

um januarmánuð á wikipediu

Mörsugur var janúar nefndur, að hluta til í gamla íslenska tímatalinu

 January-The Month of Janus

Í fornri rómverskri trú og goðafræði er Janus guð upphafs og umbreytinga. Einnig hurða, hliða, endingar og tíma.

Janus-Vatican 

 "Nú er janúar, fyrsti mánuður ársins, genginn í garð. Hann hófst með nýársdegi sem til forna var stundum kallaður áttidagur en það þýðir einfaldlega að hann er áttundi dagur jóla.

Janúarmánuður heitir eftir Janusi, rómverskum guði, sem var sérstakur fyrir þá sök að hann hafði tvö andlit. Sneri annað fram og hitt aftur en það er hagnýtt fyrir heimilisguð og vísar til þess að hann sér um heima alla og ekkert kemur honum á óvart.

Hann táknar þannig upphaf og endi alls, nútíð, fortíð og framtíð. Janus gætti dyra á híbýlum fólks og af nafni hans er enska orðið „janitor“ dregið eða dyravörður. " (af síðu námsgagnastofnunar)

Gaman er að geta þess að hér á landi er öflug og breiðvirk starfsemi til uppbyggingar og endurhæfingu með nafni Janusar.

27d983df805c02fcff4d713ee05ffd92

Hugmyndafræði merkis Janusar endurhæfingar

Fróðlegt er að vita eitthvað um aðra mánuði árssins. 

 horoscopewheel

Mánaðarnöfnin

mánuður

 hin gömlu mánaðarnöfn,

og að endingu sitthvað um stjörnumerkin

josira


Æskuljómar lands og þjóðar ...

með Ísold Ylfu í broddi fylkingar toppuðu áramótaskaupið 2011, með kraftmiklu og grípandi lokalagi sínu.

 

Texti lagsins er stórgóður og kallar á að draumurinn um hið nýja Ísland, fari að rætast. sem byggist á góðum mannlegum grunni, með kærleik í hjarta og framtíð bjarta þar sem raunsæ stjórnun, samkennd, mannfrelsi, friður og réttlæti á að ríkja, en óstjórn og svik að víkja.

Og munum eftir, að það er ungu afkomendurnir okkar og landsins æskuljómar, sem síðar munu halda um  stjórnartauma lands og lýðs.

Eldri skrif mín um litlu afleggjarana okkar

Christmas-2011-New-Year  Surprising-New-Year-2012-Wallpapers-to-Make-Awesome-Christmas-Celebration_5

Lokalagið 2011 ásamt áramótaskaupinu og eldri skaupum er hér að finna.

josira


mbl.is Leikkona, söngkona og dansari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

josira
josira

Orðin... Pára með penna á óskrifað blað, orðin um hugann renna. Með suð í eyra ég skrifa það, sem ég fæ að heyra. Hvaðan þau koma veit ég ei, en í höfði mínu óma. Líkt og eilífðin, sem gefur frá sér tóna og um himnasali hljóma.

Lítil síða lítur dagssins ljós... Hér hef ég hugsað mér að skrifa um allt og ekkert ... eða bara það sem mig langar til hverju sinni ... Vertu velkomin(n) kæri ferðalangur... í heimsókn hingað, þar sem þú hefur nú fundið vegaslóðan minn litla, í netheiminum stóra ...

 

Lyngrósin Ljóðin mín

Josiraice youtube ljóð og tónlist

Rósin Eldri heimasíða, sem ég get ekki uppfært lengur, en læt hana fylgja hér með.  (Hún virkar einungis í gegnum Internet Explorer)

Light Bearer -poem - josira 

Guðrún Lilja; mánadísin, mín eldri dóttir og Ljóðin hennar

Nýjustu myndböndin

Movie

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 122255

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband