Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Kjaramál

Tímabært að skoða og breyta þessari blessaðri neysluvísitölu ...

og vægi þeirra hluta, sem teknir eru inn í reiknisdæmi hennar. Sem stýra og stjórna lífsafkomu og kaupmætti þjóðarinnar hverju sinni, frá degi til dags.

Það gengur ekki öllu lengur að láta allar þessar tölur og aðra hagfræðilega útrekninga ráða för. Eða er þetta kerfi (system) allt svona háalvarlega heilagt !

hagstofa_islands_logo

Spurningar og svör um vísitölu neysluverðs (Hagstofa Íslands)

Samrænd vísitala neysluverðs (Hagstofa Íslands)

Hvað er vísitala ? (Vísindavefurinn) http://visindavefur.hi.is/svar.asp?id=1698

Og nú þegar eldsneytisdropinn er kominn í sögulegt hámark, vel yfir 260 krónurnar líterinn, er þá ekki unnt að taka t.d. þann kosnaðarlið út úr allri þessari reiknisformúlu ? Hvað skeður við það ? spyr sú, sem lítið hefur vit á allri þessari talnaspeki hagfræðinnar...

fuel

josira


mbl.is Bensínið þyngir íbúðarlán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eldsneytishækkun - Eldsneytislækkun

eldsneyti

Tímarnir breytast og mennirnir með, stendur víst einhversstaðar. Það er af sem áður var, þegar mikil samstaða hins almenna borgara var t.d. gagnvart eldsneytishækkunum, sem og sýndi sig í mótmælum.

Við erum orðin eitthvað svo dofin og viljalaus þegar allskonar verðhækkanir og skattaálögur dynja yfir okkur. sbr;  

Alveg magnað að enginn skuli vera búin að tjá sig t.d. hér á blogginu um síðustu eldneytishækkun, sem Shell setti fram í gær. 

Nema hvað 64 manns eru búnir að merkja við að þeim líki þessi frétt ! á facebook ! Held það vanti takka, þar sem hægt sé að merkja við líkar ekki

Shell hækkaði í dag verð á eldsneyti. Bensínið hækkaði um 3 krónur lítrinn og dísilolían og vélaolía um 4 krónur lítrinn. Nú kostar lítri af 98 oktana bensíni í sjálfsafgreiðslu 247,80, V-Power bensíni 235,90 kr. og af dísilolíu í sjálfsafgreiðslu 239,50 kr.

Ég er ekki að grínast !  Bensínlíterinn er að nálgast 250 kr. pr.líter !!!

Heimsmarkaðsverð lækkar (4okt) Verðlækkun á eldsneyti hjá Orkunni og Atlantsolíu „ 

G1QBK5IQ

Ríkisstjórnin ásamt Jóhönnu Sigurðardóttir sjálfri, ætti kannski að skoða vel orð Jóhönnu, sem hún setti fram, reynar árið 2005 gagnvart eldsneytisverði !

„Lækkum eldsneytisverð hafa jákvæð áhrif á kjarasamninga og verðbógluþróun“

Rammasamningur_Eldsneyti2011

Og held ég að margir séu sammála um að;

Alloft virðist vera að eldsneytið hækkar á Íslandi á meðan heimsmarkaðsverð lækkar (eldri frétt)

Gott og athyglisvert væri t.d. að fá samanburð um hver álagningin sé á eldsneyti hér á landi í dag, miðað við hin norðurlöndin.?

Og þá í hverju landi fyrir sig í þeirra krónum, en ekki umreikna í ísl.kr.

(kemur ekki bensínverð inn í allan útreikningarpakkann sbr. kjaramál, kaupmátt, vísitolu og fl. hjá okkur)

Hér má lesa um viðmiðun frá Svíþjóð, (reyndar ársgamla)

og þessa ágætisgrein hjá Haraldi Haraldssyni bloggara

josira

 


mbl.is Eldsneyti hækkar hjá Shell
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn einir kjarasamningar í höfn ...

Vona þó að ekki munu fylgja allsskonar verðhækkanir á vöru og þjónustu i kjölfarð, líkt og ætíð hefur verið. Og kaupmáttur rýrni um leið.

Einnig á að fylgja 50 þús. kr. eingreiðasla á árinu ef um semst. (meiriháttar uppbót – jöfnun ) á t.d. húsalánin, sem hækka um hundruð þúsunda á ári hverju, sí hækkandi orkuverði, eldneytishækkana og lengi má áfram telja.

Og ekki má gleyma 38.000.- eingreiðslu þann 1. mars 2014 fyrir þá sem eru í fullu starfi í janúar 2014 og hlutfallslega fyrir þá sem eru í hlutastarfi. (eða þannig)

Talað er um að kjarasamningar almennt nú séu nokkuð góðir, en

hefði ekki verið meira vit, að í eitt skipti fyrir öll að semja á öðrum grunni, t.d. að;

Fyrst_samningar_i_hofn

Lágmarks mánaðarlaun yrðu 200.000 þús.

Skattleysimörkin í 200.000 þús. þau eru nú kr. 123.419 (tala tekin á rsk.)

Afnema tekjutengingar á miðjuvæginn og þar undir.

Verðstöðvun í einhverri mynd um ákveðin tíma.

Lækka bankavexti.

Afnema verðtrygginguna.

Allavega finnst mér nú og til margra ára að þessi úrræði yrðu til bóta með afkomu og kaupmátt almennings og myndi vera góð spor í átt að útrýma fátækaragildrum, sem hér hefur varað um of langan tíma. (einnig fyrir hrun)

familylivingpicture_1038916 

Læt fylgja hér með stórgóða grein, sem ég var að rekast á, eftir Ævar Rafn Kjartansson (áhugaverð skrifin, þessa kjarnyrta manns,)

josira

 


mbl.is SFR og ríkið sömdu í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öryrkjamál ... ríkisstjórnin ræðst á garðinn, þar sem hann er lægstur ...

obi

Stjórn Öryrkjabandalags Íslands mótmælir harðlega að ríkisstjórnin áformi að halda áfram að skerða kjör öryrkja umfram aðra landsmenn, að því er segir í yfirlýsingu frá ÖBÍ, undir yfirskriftinni ekki meir, ekki meir! ...  vísa ég á þessa grein í dv.is ÖBÍ krefst endurskoðunnar á fjárlögum...

Baráttuspor öryrkja hafa oft verð löng og ströng við ráðamenn og ríkisstjórnir ólíkra tímabila...Margir sigrar smáir og örlítið stærri hafa unnist í gegnum baráttudansinn...En ekki enn að fullu tekist að samstilla sporin eftir allan þennan tíma. Og virðist vera að aukin ójöfnuður sé í sjónmáli í takti og ritma danssins...Tökum saman höndum og reynum að kenna ríkisstjórninni að finna hin mannlegu spor...

Gömul grein frá mér síðan janúar 2001;

  greinin í D.V

josira


Kominn tími til þó fyrr hefði verið...

 

moneypensiondrawou2

shake-down-money

Annars er ég fyrir löngu hætt að skilja allt báknið með lífeyrissjóðina...Og ekki kæmi mér á óvart einhverjir maðkar í mysunni þar...sem væntanlega eiga þá eftir að koma upp á yfirborðið með nýjum stjórnendum úr röðum launafólksins sjálfs þegar atvinnurekendurnir víkja...

Úr gömlum hugleiðingum mínum ;

Öllum er skylt að borga í lífeyrissjóði landssins. Og sjóðirnir þá væntanlega fyrir fólkið sem í þá borgar skyldi maður ætla, en með síbreytilegum lögum, sjóðana er passað að ekki of mikið megi greiða og komið hefur fyrir að launþegar hafa staðið nær réttindalausir vegna nýrra reglugerða og eða of fárra punktaútreikninga. Og sjóðirnir gildna og gildna af allskonar verðbréfaviðskiptum ásamt ávöxtun af peningum þegnanna, sem þeir eigi fá notið...

josira 


mbl.is Launafólk taki yfir sjóðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

josira
josira

Orðin... Pára með penna á óskrifað blað, orðin um hugann renna. Með suð í eyra ég skrifa það, sem ég fæ að heyra. Hvaðan þau koma veit ég ei, en í höfði mínu óma. Líkt og eilífðin, sem gefur frá sér tóna og um himnasali hljóma.

Lítil síða lítur dagssins ljós... Hér hef ég hugsað mér að skrifa um allt og ekkert ... eða bara það sem mig langar til hverju sinni ... Vertu velkomin(n) kæri ferðalangur... í heimsókn hingað, þar sem þú hefur nú fundið vegaslóðan minn litla, í netheiminum stóra ...

 

Lyngrósin Ljóðin mín

Josiraice youtube ljóð og tónlist

Rósin Eldri heimasíða, sem ég get ekki uppfært lengur, en læt hana fylgja hér með.  (Hún virkar einungis í gegnum Internet Explorer)

Light Bearer -poem - josira 

Guðrún Lilja; mánadísin, mín eldri dóttir og Ljóðin hennar

Nýjustu myndböndin

Movie

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 122225

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband