Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Umhverfismál

Pæling ... dæling ... mæling ...

Nokkur þankabrot um óróa á jarðskjálftamælum þessa dagana.

Eru niðurdælingar í gangi í Hellisheiðavirkjun ?  

Ef svo er vitum við fyrir víst, hvort þessir manngerðu skjálftar geti ekki kallað á eitthvað meir, en við óskum eftir ?   

Og er öruggt að niðurdæling brennisteinsvetnissins og annara efna komist ekki í tæri við það vatn, sem safnast síðan saman og nýtist sem neysluvatn ?

 485357

Hér er ýtarlegt yfirlit um grunnvatn á höfuðborgarsvæðinu.

water-supply

eldri bloggfærsla mín;

16 okt. 2011; Manngerðir jarðskjálftar hérlendis og erlendis

111217_2105
 
111217_2105_

Af vef veðurstofunnar;

 

Í september mældust margar skjálftahrinur við Hellisheiðarvirkjun í kjölfar þess að teknar voru í notkun nýjar niðurdælingarholur við virkjunina. Um 1500 skjálftar mældust, flestir litlir, um og innan við einn, en stærri skjálftar mældust einnig. Stærstu skjálftarnir fundust í Hveragerði og sá stærsti, 3,4 stig, sem varð 23. september, fannst einnig á höfuðborgarsvæðinu. Frumniðurstöður úrvinnslu benda til þess að skjálftarnir raðist á a.m.k. 2-3 sprungur og að stefna þeirra sé austan við norður. Skjálftar hafa áður mælst við borun og prófun á borholum síðustu misseri en aldrei annar eins fjöldi og nú. Fáir jarðskjálftar mældust úti á Reykjaneshrygg. Á Reykjanesskaga var mesta virkni á Krýsuvíkursvæðinu, yfir hundrað skjálftar, og aðallega fyrstu vikur mánaðarins.”

HELLIS~1

kps06088019

 

Í október við Húsmúla í Henglinum mældust tæplega eitt þúsund jarðskjálftar. Flestir þeirra komu fram í skjálftahrinum dagana 2.-9., 15.-16. og 25.-26. október. Tveir stærstu jarðskjálftarnir þar voru að stærð 4 þann 15. október kl. 09:03 og kl. 09:45 og fundust þeir vel víða um sunnan- og vestanvert landið. Nokkrir aðrir skjálftar í þessum hrinum fundust einnig, aðallega í Hveragerði. Meginþorri jarðskjálftanna núna hefur framkallast vegna niðurrennslis á affallsvatni úr Hellisheiðarvirkjun í borholur á svæðinu.”

imagesCAO4UYAN

Í nóvember (reyndar í síðustu viku, áður en hrinan i gær og dag koma fram) Á Suðurlandsundirlendi mældust þrír smáskjálftar og sex við Ingólfsfjall. Átta smáskjálftar mældust á Krosssprungunni, einn við Geitarfell og tveir við Hengil. Við Húsmúla voru staðsettir 128 skjálftar, allir undir Ml 2 að stærð.

Nýr upplýsingavefur Orkustofnunar um smáskjálfta vegna niðurdælingar ( hér er t.d. ekki að sjá neinar dagsetningar á niðurdælingu á affallsvatni !)

Talsmaður neytenda; Bótaábyrgð vegna „ótímabærra“ jarðskjálfta 

 

Ég vona að ráðamenn hér séu með á hreinu, að það sé og verði í lagi með þessar blessaðar niðurdælingar og að þær séu ekki að hrófla við náttúruöflum eða eyðileggingu vatns.

 

 

 

josira

 


Léttir dansskjálftar að sjá kringum Hellisheiðavirkjun og nágrenni ...

hvort ætli skjálftadansinn sé samin af manna- eða náttúruvöldum, í þetta skiptið ?.

111117_0955 

111117_0955_

Ef um manngerð skjálftaspor er um að ræða, þá langar mig að fá að vita hversu lengi þessi blessuð niðurdæling jarðhitavatnsins mun standa yfir við Hellisheiðarvirkjun ! tímabundið ? eða svo lengi sem virkjunin er starfrækt ?

(lyktin er einnig alloft farin að verða hvimleið, er hana leggur frá heiðinni.)

Er vitað fyrir víst hvort manngerðir skjálftar þarna á heiðinni séu að létta á spennu í jarðsprungum (til góða) eða geta þeir triggerað eitthvað meira, en við óskum eftir eða munum ráða við. Ef skjálftadansinn ýtir við og eða vekur t.d. náttúruöflin að óþörfu !

111117_0950 

111117_0950_

Er ekki yfirmáta nóg að læra að virða og lifa við hlið okkar lifandi náttúru, heldur en að auki, að þurfa takast á við það, sem mannvit/vald skapar og getur jafnvel skaðað að óþörfu. Ég get ekki neitað því, að pínu uggur sækir að mér varðandi þessi mál.

Erum við kannski farin að ganga full nálægt náttúrinni með yfirráðum okkar og við að reyna að halda og valda stjórnartaumum á hennar mikla afli. Kannski er tímabært að staldra aðeins við og fara að skoða þessi mál ofan í kjöl ... 

önnur skrif mín um jarðakjálfta á Hellisheiði má finna annarsstaðar hér á bloggsíðunni. (get hvorki gert copy-paste eða sett slóðir inn á þessari tölvu)

josira


Manngerðir jarðskjálftar hérlendis og erlendis ! ...

Ég fór að kanna á Google hvort einhverjar umræður væru í gangi um hvort boranir í jörðina gætu komið af stað jarðhræringum og eru hugleiðingar um þau málefni greinilega mikið í gangi og það til margra ára. Hér neðar á síðunni má lesa um og sjá nokkrar slóðir ... 

Ég held að mjög gaumgæfilega þurfi nú t.d. að skoða allar þær framkvæmdir sem standa yfir í Hellisheiðarvirkjun frá öllum hliðum þar, sem vitað er um og viðurkennt að jarðskjálftar eru þar tíðum af mannavöldum og fara hægt og sígandi stækkandi og vekur það virkilega orðið óhug margra.

Vitum við hvað getur farið í gang þarna niður í iðrum jarðar við þessi mannanna verk í okkar  virka landi ! Einnig þarf að skoða hinar jarðvarmavirkjanirnar á landinu.

jardhitavirkjanir jarðvarmavirkjanir á Íslandi

brotabelti_island jarðflekaskilin á Íslandi

Manngerðir jarðskjálftar: "Það er alls ekki í lagi“  (visir.is)

Geta ekki hætt að dæla niður vatni ; (ruv.is)

Boranir eftir jarðefnum og ýmsar afleiðingar ...

http://www.youtube.com/watch?v=uzdLhAsuBQ

http://www.scientificamerican.com/article.cfm?id=geothermal-drilling-earthquakes

http://www.nytimes.com/2011/10/11/science/11qna.html?_r=3&ref=science

jarðskjálftar af mannavöldum ? Haiti

http://open.salon.com/blog/ezili_danto/2010/01/22/did_mining_and_oil_drilling_trigger_the_haiti_earthquake

jarðskjálftar af mannavöldum ? Blackpool

http://www.dailymail.co.uk/news/article-1393033/Man-earthquake-strikes-Blackpool--consequences-severe-UKs-gas-drilling-industry.html

josira

(p.s. eitthvað er nú skrítið bloggið núna, get ekki tengt linkana-slóðirnar þar sem ég vil hafa þá og stafagerðin hér er mjög sjálfstæð, breytir um gerð meðan ég er að pikka orðin inn ! ) nenni ekki að eltast við lengur að reyna að laga. 


Lifandi land

11453_195815389506_195763969506_2778671_8185415_a

Vaknaði snemma í morgun með einhvern óróleikahnút í maganum. All oft nú undanfarið hefur mér verið hugsað til elskulegaa fallega landssins okkar, sem hefur verið að minna á sig, með titringi og skjálftum víða um land sérstaklega á síðustu vikum og mánuðum og fundið eiginlega til með því, sérstaklega varðandi Hellisheiði.

Mér líkar ekki sum þau mannanna verk, sem unnin eru þar. Mín tilfinning er að það er eitthvað ekki rétt við það. Í gegnum árin hef ég t.d oft hugsað um efnasamsetningu gufunnar, sem hleyft er þar út í andrúmsloftið og t.d. þá hvort einhver áhrif verða í samsetningu skýjafars.Og einnig hvernig jörðin er að bregðast við vatninu, sem hleypt er í borholurnar.  

En væntanlega vita fræðingarnir betur; eins og segir í tilkynningu frá Orkuveitunni  (vika 37 ) "  Holur eru boraðar til að skila vatni frá Hellisheiðarvirkjun aftur ofan í jarðlögin. Vatnið virkar þá eins og smurning og dregur þá úr viðnámi í berginu sem getur þá komið á hreyfingu með tilheyrandi smáskjálftum (úr fréttatilkynningu frá Orkuveitu Reykjavíkur 13. september).

og vika 40 http://hraun.vedur.is/ja/viku/sidasta/ ; " Yfir 1500 jarðskjálftar voru staðsettir sjálfvirkt í vikunni, lang flestir við Hellisheiðarvirkjun "

Auðvitað veit ég að þarna er verið að beisla óhemju orku frá iðrum jarðar, sem eiga að vera okkur til góða á margvíslegan máta.

En varðandi þetta með vatnið á Heiðinni, þá líður mér á einhvern hátt svipað og þegar ég fékk að sjá sýn fyrir tæpum 20 árum í sambandi við olíu jarðarinnar. Fannst mér ég sjá jörðina vera líkt og gatasigti að innan eftir að þykkri olíunni er dælt upp á yfirborð hennar. og jarð- og berglög hrynja í kjölfarið saman og sú breyting og hreyfing kemur af stað neðanjarðarjarðskjálftum með víðtækum áhrifum. Finnst þetta hafa með jafnvægi jarðarinnar að gera. Þó sjó sé dælt ofan í borholurnar er það ekki sami eðlismassi.  

En hvað veit ég svosum um þessi mál.

Töluverðan fiðring í jörðinni hef ég bæði skynjað og fundið í morgun.

111015_1005 111015_1005_

og fór að skoða stöðuna á vedur.is 

111015_1140 111015_1140_

og örlitlu síðar.

Og eins og sjá má eru hreyfingar í kortunum. Vona ég að ekki sé í aðsigi stórar hamfarir. Við búum jú í lifandi landi, en reynum eftir fremsta megni, að hrófla ekki að óþorfu við líkama þess.

Við skulum vona og biðja þess að þetta sé einungis góð spennulosun í jarðflekunum.

Um daginn var ég eitthvað að hugsa um jarðhræringar- og eða eldgos og kom þá talan 20 upp í höfði mér. Hvað hún þýðir veit ég eigi.

Biðjum um ljóssins vernd og að landið okkar sé umvafið með heilunar-og kærleiksorku þess.

josira


mbl.is Jarðskjálftar upp á 3,8 stig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fann jarðskjálftann, ónotalegur dynkur ...

527100A

Er í Kópavoginum.

Vona að stillt veður og fallegt gos, séu ekki að fara að breytast.

 josira


mbl.is Jarðskjálfti við gosstöðvarnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjávarins svarta gull...

 

492092 

...Í samskiptum við þau olíuleitarfyrirtæki sem sýndu útboðinu áhuga, en sóttu hins vegar ekki um sérleyfi, kom fram að helstu ástæður fyrir því að þau sátu hjá að þessu sinni voru m.a. bágt efnahagsástand á útboðstímabilinu með tilheyrandi skorti á nýju fjármagni og mikil áhætta sem fylgir því að hefja rannsóknir á nýju svæði eins og Drekasvæðið er.

Mig minnir endilega, að olíuleitarfyrirtækjunum hafi fundist full háir skattar og gjöld vera grunnorsök minnkandi áhuga þeirra á ... ?

1975_north_sea_oil

Einhverra hluta finnst mér þó að svarta gullið okkar sé frekar að finna neðar en Drekasvæðið og nær Færeyjum...

 

josira

 


mbl.is Engin sérleyfi á Drekasvæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rafmengun...rafsegulsvið

 

Rafsól

Þegar ég fór að leita mér upplýsinga um rafsegulóþol,

fann ég ekki svo mikið um það á íslensku...

en þó ...hér fann ég

grein um Jón Borgarsson í Höfnum,

en hann býr til mælingar-prjóna  

og flottar upplýsingar frá Garðai Bergendal  

síðan rakst ég á virkilega áhugaverða vefsíðu...

( sem er reyndar á aðallega á ensku +

pínu á íslensku, sé maður þolinmóður að leita...)

en vefsíðan er frá  frá Valdimar Gísla Valdimarssyni...

hann er rafeindavirkjameistari

en hér er á íslensku; einnig frá Valdimar...

grein sem birtist í tímariti Heilsuhringsins vor '96.

Vefsíðurnar fjalla um rafsegulsvið og hugsanleg

áhrif þess á heilsufar manna og dýra...

og hér má finna fleirri síður á íslensku...

fyrirlestur í norræna húsinu...

Tillaga til þingsályktunar

 

Eflaust væri hægt að fá svör við þessum spurningum:

 sem hér eru fyrir neðan, hjá þessum mönnum,

sem hér eru nefndir að ofan, hafi fólk áhuga...

Veldur rafsegulsvið krabbameini?

 

Hvað er jarðára?

Er hægt að mæla
rafsegulsvið með prjónum?

Hvaðan kemur rafsegulgeislun og hvað ber að varast?
Eru farsímar varasamir?

Hefurðu látið mæla rafsegulsvið heima hjá þér?

Hvað er
rafsegul-óþol?

Getur rafsegulsvið haft áhrif á heilsu manna?

 

sæl að sinni...josira


Höfundur

josira
josira

Orðin... Pára með penna á óskrifað blað, orðin um hugann renna. Með suð í eyra ég skrifa það, sem ég fæ að heyra. Hvaðan þau koma veit ég ei, en í höfði mínu óma. Líkt og eilífðin, sem gefur frá sér tóna og um himnasali hljóma.

Lítil síða lítur dagssins ljós... Hér hef ég hugsað mér að skrifa um allt og ekkert ... eða bara það sem mig langar til hverju sinni ... Vertu velkomin(n) kæri ferðalangur... í heimsókn hingað, þar sem þú hefur nú fundið vegaslóðan minn litla, í netheiminum stóra ...

 

Lyngrósin Ljóðin mín

Josiraice youtube ljóð og tónlist

Rósin Eldri heimasíða, sem ég get ekki uppfært lengur, en læt hana fylgja hér með.  (Hún virkar einungis í gegnum Internet Explorer)

Light Bearer -poem - josira 

Guðrún Lilja; mánadísin, mín eldri dóttir og Ljóðin hennar

Nýjustu myndböndin

Movie

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband