Leita í fréttum mbl.is

Frábært framtak til atvinnusköpunar á Vestfjörðum ...

 

hjá framsýnum og stórhuga mönnum, sem hönd vilja leggja á plóg við eflingu atvinnutækifæra fyrir vestan.

 

ARNARF~2

 

Nú er komið að stjórnvöldum að sýna vilja sinn til framkvæmda og þá við að drífa sig til að gefa tilskilin leyfi svo hægt sé að koma verkefnunum af stað.

 

"Íslendingur, sem rekur matvælafyrirtæki í Noregi, vill leggja þrjá milljarða króna í laxeldi í Arnarfirði og fiskréttaverksmiðju á Bíldudal og skapa þannig yfir fimmtíu ný störf á Vestfjörðum. Félagið Arnarlax hefur undirbúið verkefnið í þrjú ár en aðalfjárfestirinn á bak við áformin fæddist og ólst upp á Bíldudal og heitir Matthías Garðarsson. Sem ungur maður á háskólaárum í fiskvinnslunámi settist Matthías að í Noregi og hefur síðan byggt upp stærsta fyrirtækið í sveitarfélaginu Leirfjord, með um áttatíu manns í vinnu.

bildeCA52HH7N

 

Nú vill hann gera það sama á sínum æskuslóðum. Hann segist hafa verið í Noregi í 34 ár og kunna orðið talsvert í laxeldi og rekstri matvælavinnslu og hann vilji nú nýta þessa kunnáttu í þágu Bíldudals og Arnarfjarðar. " (úr frétt á visi.is; Vestfirðingur í Noregi vill reisa laxaréttaverksmiðju á Bíldudal

 

g_petra_oliuhreinsisto_var_arnarfjor_ur-1

 

Mikið er gaman og jákvætt, að heyra af hugsjónum sem þessum. Nú þarf að hjálpast að og gera að drauminn að veruleika.

Um daginn var ég einmitt að skrifa um nauðsyn þess, að koma atvinnuhjólunum í auknum mæli af stað og láta bæði hugvit og verkvit berast og gerast á jákvæðan hátt fyrir land og þjóð.

Og þar á meðal, að efla þyrfti til muna, fiskeldi á hinum ýmsu fiskitegundum og hafa þar fjölbreytni í tegundavali, að leiðarljósi við strendur landssins og firði. Náttúrugjafir góðar ... til sjávar og sveita ...

Reynum að finna og sjá alla þá möguleika, sem hægt er að nýta eða útbúa til atvinnusköpunar um allt land.

Hér má skoða áhugaverðar síður; Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Landsbyggðin lifi.

 

josira

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

josira
josira

Orðin... Pára með penna á óskrifað blað, orðin um hugann renna. Með suð í eyra ég skrifa það, sem ég fæ að heyra. Hvaðan þau koma veit ég ei, en í höfði mínu óma. Líkt og eilífðin, sem gefur frá sér tóna og um himnasali hljóma.

Lítil síða lítur dagssins ljós... Hér hef ég hugsað mér að skrifa um allt og ekkert ... eða bara það sem mig langar til hverju sinni ... Vertu velkomin(n) kæri ferðalangur... í heimsókn hingað, þar sem þú hefur nú fundið vegaslóðan minn litla, í netheiminum stóra ...

 

Lyngrósin Ljóðin mín

Josiraice youtube ljóð og tónlist

Rósin Eldri heimasíða, sem ég get ekki uppfært lengur, en læt hana fylgja hér með.  (Hún virkar einungis í gegnum Internet Explorer)

Light Bearer -poem - josira 

Guðrún Lilja; mánadísin, mín eldri dóttir og Ljóðin hennar

Nýjustu myndböndin

Movie

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband