Leita í fréttum mbl.is

Eiga bankar og stofnanir-félög orðið landann...?

 

peningar

Mál, sem ég hef verið að velta vöngum yfir...í dag sé ég ekki betur en að stór hluti þjóðarinnar sé að festast í einhverjum blekkingum og hlekkjum í ólgandi hafi talnanna sem öllu stjórna...

Skyldi samráð vera banka í millum ? Ég hef heyrt þess dæmi að t.d. við íbúðarkaup þar sem bankalán hvíla á ( burtséð hvaða banki ) sem voru tekin þegar einkavæðing bankana hóf innreið sína með nýju íbúðalánin sín, að ef íbúðin er síðan seld fær nýr eigandi ekki að yfirtaka lánin, nema hann sé í viðskiptum í viðkomandi banka ( sem á lánið ) eða þá færi sig þangað og það er auðvitað miklu meir sem hangir á spítunni, því nánast allir bankar eru komnir í visst samstarf við hinar og þessar stofnir og allskonar félög.

Og ef kaupandi íbúðarinnar er ekki tilbúinn að ganga inná þá skilmála, sem bankinn setur upp fær hann höfnun eða reynist jafnvel ekki hafa greiðslumat til íbúðarkaupana !... En kaupandinn hefur það í gamla bankanum sínum!...já margt er skrítið í kýrhausnum og erfitt fyrir meðalmanninn að skilja... 

 

Bæði seljandi íbúðarinnar og kaupandinn tapa...Því seljandinn þarf að borga aukagreiðslu til bankans síns fyrir að borga upp lánið !...og kaupandi að borga gjöld fyrir nýja lánið í gamla bankanum sínum...Og báðir bankar græða hundruð þúsunda á einni íbúðarsölu...

Og ekki eru nú allir tilbúnir að hafa þá kvöð að þurfa að velja kannski t.d. þetta eða hitt tryggingarfélagið gegn því að vera viðskiptavinur í þeim banka, sem valinn er... 

 

Og ekki má gleyma öllum gylli-og velmegunartilboðunum sem sífellt rignir yfir landann frá öllum bönkunum og samstarfsaðilum þeirra ( sjóðir-ýmsar stofnanir-félög...)

Sem byrjar með krakkaþjónustu bankanna yfirleitt undir 11 ára, síðan með gjafainneignum í viðkomandi bönkum...þegar blessuð fermingarbörnin fá flottu umslögin inn um bréfalúguna þegar líður að fermingu...Auðvitað er sjálfsagt að kenna-leiðbeina börnunum okkar með sparnað til framtíðar, en fyrr má nú öllu nafn gefa og og þau týnast í ólgandi hafi talna og orða, sem öllu stjórna líkt og mörg okkar þau fullorðnu, sem ekkert skiljum í öllu þessu orðskrúði...  

nafnávöxtun, meðalraunávöxtun, raunávöxtun, allrahanda  ávöxtun, verðtrygging, vaxtakjör, greiðslubyrði, endurfjármögnun, uppgreiðslukosnaður, greiðslustaða, stimpilgjöld, fjármagnskosnaður, vísitölutrygging, vísitöluhækkun-lækkun, eignarstýring, fjárfesting í sjóðum, fjármálamarkaðir, áhættuþol, áhættustýringasvið, innherjar, fruminnherjar, gengisþróun...

omy,my og lengi mætti áfram upp telja .....algjör hebreska fyrir mér...og hvað þá að reyna að útskýra skilmerkilega hvernig blessuð framtíðin tekur á móti þeim yngri inn i þetta blessa sam- þjóðfélag okkar og hvað bíði þeirra...Hrikalegt held ég að sé vera ungur í dag og vera að koma sér fyrir í þessu VELMEGUNAR-OG VELFERÐARÞJÓÐF'ELAGI hvort sem er á leigumarkaðinum eða kaupa íbúð..

og skuldbinda sig áratugum saman fyrir vexti , vaxtavexti og vísitölutryggingu...ekki skrítið að orðið uppgjöf heyrist sífellt oftar...

Og ekki má gleyma hversu margir lenda þessum ótrúlega FIT kosnaði með öllum þessum síhringikortum...bankarnir vísa á verslanirnar og þær aftur á bankana...!

josira 

p.s. Og ekki má gleyma blessuðu lífeyrissjóðunum okkar, sem allir eru skyldugir að borga í allt sitt starfslíf og að ég held sem fæstir fá til baka óskert vegna allskonar ( sífellt nýrra ) reglna. En sjóðirnir blessuðu gildna og gildna vegna ávaxtna peningana...

http://www.ll.is/?i=13

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

josira
josira

Orðin... Pára með penna á óskrifað blað, orðin um hugann renna. Með suð í eyra ég skrifa það, sem ég fæ að heyra. Hvaðan þau koma veit ég ei, en í höfði mínu óma. Líkt og eilífðin, sem gefur frá sér tóna og um himnasali hljóma.

Lítil síða lítur dagssins ljós... Hér hef ég hugsað mér að skrifa um allt og ekkert ... eða bara það sem mig langar til hverju sinni ... Vertu velkomin(n) kæri ferðalangur... í heimsókn hingað, þar sem þú hefur nú fundið vegaslóðan minn litla, í netheiminum stóra ...

 

Lyngrósin Ljóðin mín

Josiraice youtube ljóð og tónlist

Rósin Eldri heimasíða, sem ég get ekki uppfært lengur, en læt hana fylgja hér með.  (Hún virkar einungis í gegnum Internet Explorer)

Light Bearer -poem - josira 

Guðrún Lilja; mánadísin, mín eldri dóttir og Ljóðin hennar

Nýjustu myndböndin

Movie

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 122257

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband