Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, október 2009

Skaparans sköpunarverk...

cosmos
600px-Milky_Way_2005

Mín skynjun og skilningur er, að Lögmálum lífssins stýrir og stjórnar Skaparinn, Almættið, æðri máttur, orka, kraftur, kærleikur. Allt er svo fullkomið, sem smurð vél í eilífðar lífssins hringrás, sem gengur í raun svo áreynslulaust. Og innan alls þessa rúmast sköpunin í heild sinni, þannig að hver agnarögn hefur sínu hlutverki að gegna og áhrif hefur á vöxt og þroska sjálfs síns, sem og annara agna í takti endalausrar endurnýjunar. Þar sem hver agnarögn færist í sífelldri leit sinni, nær uppruna sínum.

dn9824-1_831
 

Hljómkviða alheims í öllu er, litirnir líka tengjast hér. Átakalaust fuglinn flýgur, frjókorn upp úr moldu smýgur. Hlutverkin eru, að snúa lífshjólin, lífsorku í té lætur, sjálf sólin. Sálarljós í kjarna alls býr og kærleiksaflið öllu snýr.

hs-1994-02-c-web

Himinhvolfið með sínum fullkomnu brautum himintunglanna, sólanna og stjarnanna, sem áhrif hafa á hringrás sinni á okkar litlu jörð og öllu hennar lífríki þar á meðal okkur mannkynið, sem er fullkomið í ófullkomnleika okkar sjálfs. 

Solar-system_500

Þar af leiðandi hlýtur hver hugsun, hvert orð og hver gjörð að hafa áhrif á himinn og jörð. Og þessvegna er í raun þau mannanna neikvæðu og jákvæðu verk og öfl, sem stjórna og stýra hér á móðir jörð því lífi og þeim aðstæðum, sem við mannkyn búum við hverju sinni því við erum öll sköpunin, samtengd í samvitundinni. 

Hér á jörðu eru í raun hin bestu skilyrði til vaxtar og þroska, því hér er nóg
til alls fyrir alla og hver maður á sinn tilverurétt. Í gegnum frið og sameind mannkærleikans liggur leiðin. 

Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna

solarlagsstrakur

human-space-universe-cosmos

Magnaðar myndir að sjá, Skaparans sköpunarverk...

http://hubblesite.org/gallery/album/

og ýmis hljóð alheimssins,

Hjartsláttur sólarinnarHljóð jarðar frá gervihnetti  Hljóð Júpíters

Hljóð Neptúnusar  1ár jarðar á 40 sek. andardráttur jarðar

og The Om  Hinn titrandi ómur tilverunnar

josira


Næring...

 

gledi

Næring.

Lífsnæringin í því felst,
öðlast sálarfriðinn helst.
Í honum felast lífsins gildi
gleði, ást og hugarmildi

josira


Þögnin...

 

 Meditation 

Þögnin.

Í vöggugjöf, þú mikið hlaust
leyndardóma , lífsins traust.
Ef lærir þú að njóta þagnar
þráður sálarþroska dafnar.

Ef heimsins glaumi, víkur frá,
frelsi og fegurð upplifir þá.
Í sjálfsíns, andartaksins tómi,
tendrast sálinni, sá ljómi.

josira

natures image_035


Yndisleg frétt um náungakærleikann...

„Settu vatn í skál og kertið ofan í, sestu svo niður á rólegum stað og tendraðu ljósið, fyrir vonina, trúna og kærleikann,“ segir í bréfi kærleikshópsins dularfulla á Patreksfirði...

84-0507-floating-candles-1-s  white-gold-faith-hope-charity-pendant

  

light_fantasy

Við gleymum svo oft hversu gott er að geta leitað, innra með okkur að ljósi hjartans sem þar býr. Fyrir okkur sjálf og gefið af til annara.

Ljósið sem gefur trú, von og kærleik og tengist einhverju æðra og meira, en við getum skilgreint eða skilið fullkomlega, nema hver fyrir sig...

(tekið af öðrum bloggfærslum mínum;)

Að vakna...

Verndarengillinn sem færði mér vonina...

b6eb7b52617caf18

Orð mín tengd kærleikanum;

Í orðunum Trú Von og Kærleikur felst meiri sannleikur, en nokkurn grunar…

Lát trú, von og kærleik kenna þér, að lifa og njóta í lífsgleði hér…

Kærleikurinn opnar allar leiðir...

Innst í hjörtum allra það býr kærleiksaflið, sem öllu snýr...

Umvefðu aðra í kærleik og stráðu fegurð í kringum þig,

í formi hugsana og gjörða. Því orka býr í öllum hlutum !

Láttu það neikvæða hörfa undan og víkja fyrir því jákvæða...

Mikilvægi mannúðar, er menntun mannkyns...

Ást og kærleikur hafa þann mátt meir

en nokkurn mun gruna.

Græðandi, umvefur, alla í sátt

og eftir því skulum við muna.

Þegar orðin fóru að berast mér fyrir mörgum árum, stundum í formi ljóða eða...var ég ekki viss um hvernig ég ætti að skilgreina þau, lífsspeki - heilræði - spakmæli. ( en þau koma til mín sem lífsspeki ljósbera )

Ég kalla þau heilræði Hönnu hér...

Isle%20of%20Avalon

Er ekki orðið tímabært að við virkjum ljóskraft samvitundarinnar. Að við biðjum þess að heilunar-og kærleiksorka umvefji okkar fagra land, náttúru þess og þjóðina alla.

Og að ráðamenn upplifi hana og eða uppgvöti í hjörtum sínum, ásamt ráðamönnum erlendis, sem þó hafa brugðist okkur á óverðskuldugan máta, enn sem komið er. Svo allir munu finna fyrir kærleiksloganum, sem guðdómleikan geymir, sem hafin er yfir öll trúarbrögð og trúarstefnur, þar sem hann er þó að finna undir mismunandi túlkun mannanna.

Sú reiði er réttlát, sem hér hefur ríkt, hún hefur hjálpað til með hreinsun og kallað á umbreytingar í þjóðfélaginu, sem þurftu að gerast á öllum sviðum. Og við skulum öll eftir bestu getu og aðstæðum hlúa að þeim, sem minna mega sín og styrkja fjölskyldu-og vinatengsl á þessum umbrotatímum.

Og stöndum vörð um arfleifð okkar og auðlindir. 

SoulSisters

Hér má lesa um hugleiðingar mínar um komu sporðdrekamóðurinnar Náttúrunnar tal og val... og virðist sem hægt sé að lesa hér heilmikið og tengja við líðandi stund í sambandi við margt sem gerðist í þjóðfélaginu áður sem og núna. Sem og úti í hinum stóra heimi. Mannkyn allt stendur á þröskuldi nýrra tíma með breyttum áherslum á lífsgildum, lífsháttum og lífsviðhorfum.

Og hvert við stefnum í átt til breytingana, sem við þurfum að takast á við, bæði ytra sem og hið innra. Hvert um sig og í sameiningu...

Í þessum skrifuðu orðum mínum fékk ég símtal frá systir minni sem býr í Noregi. Hafði hún rekist á gamlar hugleiðingar um blekkingar í þjóðfélaginu, sem ég hafði skrifað og ákvað að hringja um leið í mig, fyrst ég kom í huga hennar. Og spjölluðum við aðeins saman um lífið og tilveruna. Spurði hún mig síðan hvort ég hefði fest á blað eitthvað nýlega tengdu tilverunni. Þannig að ég ákvað eftir ýtni hennar til að setja hér orð niður, sem komu til mín 16 september s.l. og tengjast því sem ég var að skrifa um hér að ofan þ.e. kærleikanum. ! Það er svo margt óútskýranlegt sem gerist í þessu blessaða lífi. Þarna tengdust hugar okkar systranna yfir hafið og hefði ég ekki sett þessi skilaboð hingað ef hún hefði ekki hringt...

Mannkyn stendur á þröskuldi nýrra tíma, sem birtast sem ný lífsgildi, er standa þó á fornum meiði. Dyrnar standa opnar þeim er tilbúnir eru að stíga skrefin til fulls til vitneskju sannrar tilveru þeirra, í alheimslífi. Að uppgvöta og upplifa sitt innra líf. Skuggi ytra lífs mun víkja. Hulunni verður svipt af innri sýn. Og stöðvar í heilanum verða virkjaðar að nýju Og óvirkir lyklar í DNA erfðarkeðjunni verða virkir. Og opinberast þá sannleikur týndra kynslóða, sem reynt hefur verið að dylja. Og kærleiksljósið tendrast á ný. Og í loga þess er ekkert myrkur eða skuggar ótta, sem viðhalda hinum andlegu fjötrum mannsins. Kærleikurinn er aflið, orkan, krafturinn og ljósið, sem sameinar og upplýsir tilveru og markmið Almættisins, sem öllu snýr í óendanleikanum, því hann er í okkur og við í honum.

josira

Bæti hér við nokkrum kærleiksríkum slóðum;

 

Kærleiksvefur Júlla  

Kærleikssetrið 

íslensk fræði-kærleikur frá Árnastofnun,

Kærleikssamtökin fyrir börn 

Liljan, hvað er kærleikur

 


mbl.is Gáfu kærleikskerti í skjóli nætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mátti til með að færa hér inn raddir fólksins, hjartslátt samfélagsins, þverskurð skoðana,á öllum sviðum,frá öllum hliðum...um icesave

Get ekki neitað því að blendnar tilfinningar um framtíð landssins okkar fagra þjaka hug minn og hjarta...

island

Icesave-samningarnir undirritaðir - tók hálftíma að ganga frá pappírsvinnuUndirritunin fór fram í fundarherbergi í fjármálaráðuneytinu. Hún markar kaflaskil í einhverri mestu milliríkjadeilu sem Íslendingar hafi staðið í frá lýðveldisstofnun

D.V. frétt; Hætta á þjóðargjaldþroti, segir Gunnar Tómasson hagfræðingur

Gunnars segir jafnframt að skuldahlutfall íslensku þjóðarinnar sé nánast fordæmalaust í nútímasögunni...

Practice-rm-101751-14-2

Tjáning bloggara á mbl. og vísi...um...

253 milljarða skuldbinding og Kvittað fyrir Icesave fréttir á mbl.is

Búið að undirrita Icesave samkomulagið frétt á vísir.is

Árni B. Steinarsson Norðfjörð Höfum við einhver tromp í hendi? 

Jón Snæbjörnsson Krónur. Tvöhundruðfimmtíuogþrjúsþúsundmilljónir

Páll Blöndal Á hraunið 

Baldvin Jónsson Framkvæmdavaldið sýnir vald sitt með sanni -…

Haraldur Haraldsson Kvittað fyrir Icesave/með fyrirvara um samþykki…

Bjarni Þór Sigurbjörnsson Ég míg stjórnlaust í buxurnar...

Sigurður Jónsson Kennarar á námskeið í Icesavefræðum? Hvernig á að…

Páll Vilhjálmsson Ríkisstjórnin minna virði en…

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir Núna reynir á ALÞINGI landsmanna...

Halldóra Hjaltadóttir 5.Ríkisstjórnin er samansafn þjóðníðinga!

Kolbrún Hilmars Ber er hver að baki nema staðgengil sér eigi.

Ómar Geirsson Guð fyrirgefi þeim því þeir vita ekki hvað þeir…

Gerður Pálma Hvers vegna var ekki samábyrgð valin ?

Agnar Bragi Íslendingar í lélegasta liðinu !

Jóhann Elíasson EINS OG ANNAÐ HJÁ "RÍKISSTJÓRN FÓLKSINS"..........…

Lúðvík Lúðvíksson Stjórnmálaklanið eru raunverulegir hreppa ómagar…

Óðinn Þórisson 19.10.2009

Asdis Sig Ég set því hérna smá brosefni til að létta lundina…

Birgir Viðar Halldórsson Sorglegt...

Guðmundur Jónas Kristjánsson Vinstrimenn kvítta fyrir stórkjaraskerðingu næstu…

johanna_882645 

Gunnar Waage Á mörkum hins byggilega heims

Bjarni Kristjánsson Af hverju liggur svona ofboðslega mikið á að…

Gunnar Kristinn Þórðarson Verðbætur okkar í vasa breskra skattgreiðenda

Magnús Orri Einarsson Allt upp á borði!!!!! NEI...

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir Álaug Árnadóttir gleymdi að innleiða varnir við…

molta Leiðréttum stefnuna

Egill Jón Kristjánsson Skítlegt eðli, gungur og druslur.

Sveinbjörn Ragnar Árnason Til hamingju Íslendingar=aumingjaskapur.

Benedikta E Steingrímur Joð lætur þjón sinn kvitta fyrir…

 Frederick_Hagan_Janitors_Talking_5218_38

Gunnar Th. Gunnarsson Skoðanakönnun

Ægir Óskar Hallgrímsson Kvittað fyrir ESB!!

Einar B Bragason Er þá Ísland komið á kaldan klakann ? Hvernig er… 

Sigurður Þórðarson Ólína Þorvarðar: "Þjóðinni hollt að taka að sér… 

Jóhann Pétur Pétursson Með öðrum orðum þetta gengur af Íslandi dauðu. 

Páll Blöndal Treysta ekki íhaldinu 

ÞJÓÐARSÁLIN We admit that this will kill you 

Guðmundur Friðrik Matthíasson Allir sem vettlingi geta valtið 

Haraldur Hansson Hin meðvirka Jóka Steingarms 

Þorsteinn Sverrisson Spurningar um IceSave - og ef til vill svör.... 

Björn Birgisson Nú sjá fótgönguliðar Bláhersins vonandi fram á… 

Árni B. Steinarsson Norðfjörð Verða laun opinberra starfsmanna, örorku- og… 

Halldór Örn Egilson Áskorun fremur en ósigur

saxi Ha! Hagsmunir þjóðarinnar hvað???

blommi Handleggurinn rumpaður á aftur   

peturh Að kasta frá sér    

Kristbjörn Árnason Hugmyndir að nýjum sköttum í felulitum

Erling Ólafsson Lífsgæði næstu árin. Einhver??? 

eos1944 Þar brast vonin.

annaola Ég hef tröllatrú á þessari þjóð ef hún stendur saman. :) 

  

FamilyLivingPicture

Ég langaði bara að hafa hér raddir fólksins, hinna almennu borgara...

Hef ekki enn lesið nema lítinn hluta þessara tjáningabræðra og systra minna...

En allavega má finna hér undirtón samfélagssins, gagnvart undirritun icesave samningsins...

josira 


mbl.is Kvittað fyrir Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hrunadans í orðum...peningar...krosstengsl...ýmiss konar

collapse-of-iceland-in-10-easy-steps1

Maðkar í mysunni ?  Hvað er í gangi ?

Úppsss og ég sem var búin að heita sjálfri mér að hætta að hugsa um þessi flóknu og jafnvel svikulu mál, sem þessir viðskipta, fjármála-og jafnvel stjórnmála heimar virðist snúast svo mikið um og vekur orðið ælubragð í munninum...

æji, ákvað að henda þessum pælingum mínum hingað nú, er að hreinsa til í tölvunni minni og henda ruglinu mínu...var búin að skrifa þetta niður um s.l. mánaðarmót og átti að vera á annari bloggpælingu minni en fannst hún vera svo löng...og mér virðist illa ganga að hætta þessu peningapári mínu...

En eflaust er það réttlætishvötin mín sem ruglar í mér að svo stöddu...

Mig óar við, hve heimurinn allur virðist svo spilltur sem hann og eflaust er og á svo mörgum sviðum.

Og þeir sem minna mega sín lenda á óréttlátan og óraunsæjan hátt svo oftast undir...

Undanfari hrunssins á fjármálaheiminum... ? 

Sannleikur svikins samspils...?

money-main_Full

( hér er reyndar ýmislegt gamalt...)  

sló upp JP Morgan -  Lehman Brothers

Hvað ætli sé að frétta af öllu þessum málum, sem hér er stiklað á stóru fyrir neðan... 

Hvernig er hægt að glata gögnum um 25 millóna manna ...???

Tveir tölvudískar, sem innihalda perónulegar upplýsingar allra fjöldskyldna, sem eiga 16 ára börn og yngri TÝNAST...

Two CDs containing personal details of 25 mill. people have been lost by HM Revenue and Customs. Here is how the crisis unfolded. 

Bresks stjórnvöld hafa enn og aftur týnt persónuupplýsingum en að þessu sinni týndust gögn um hátt í 95 þúsund fanga í fangelsum á Englandi og í Wales.

Og svo er lykilorðum stolið í hrönnum !

Og enn um gögnum 1/2 milljón manna ?

Og ásamt öllu hinu sem týndist ?...

Ég bara spyr, hvernig er þetta hægt ?  aftur og aftur og ekkert finnst ?

Hverjir áttu þegar upp var staðið, að sjá um flutningana ? Bar TNT eða pósturinn ábyrðina ?Afhverju fundust ekki neinir pappírar um þessa flutninga hjá hvorugum ? Týndust diskarnir yfir höfuð ? Höfðu þessar fréttir áhrif á stöðu fyrirtækjana gagnvart t.d. eins og Wall Street...Féllu þau ? Höfðu einhverjir hag af minnkandi trúgverðugleika þessara fyrirtækja...? Hvað breyttist hjá þeim á komandi vikum og mánuðum eftir þessar ásakanir...!

Eða er þessi vitleysa samsuða og samkrull fárra manna að komast yfir slík gögn til framtíðar til að geta stjórnað ýmsu ferli til framapots og mikilla yfirráða...

Hverjir halda utan um eða sjá um tölvukerfin ?

_44252739_childbenefit_flo416 

Það sem Alistar Darling sagði að hefði skeð ; 

18 October - Junior official from HMRC in Washington, Tyne and Wear, sends two CDs containing password-protected records to audit office in London through courier TNT, neither recorded nor registered. (TNT disputes this saying there is no evidence it was ever given the discs)

24 October - When package fails to arrive, second one is sent by registered post and arrives safely

3 November - Senior managers are told first package has been lost

10 November - Prime minister and other ministers are informed

12 November - HMRC tell ministers CDs will probably be found 
14 November - When HMRC searches fail, Metropolitan Police are called in

15 November- Richard Thomas, Information Commissioner, says remedial action must be taken before public is informed
20 November -
HMRC Chairman Paul Gray resigns; Chancellor Alistair Darling makes announcement to House of Commons

21 November - Prime Minister Gordon Brown apologises and orders security checks

Sjaldan er ein báran stök ( Marínó G. Njálsson ) 

bigstockphoto_heavy_question_thoughts_2558783

Spurningar í kolli mér... Hvernig skyldu öll þessi mál hafa endað ?

Lögsóttu Darling eða Brown flutningafyrirtækin ? eða einhverja aðra ?

Eða eru þeir eitthvað tengdir einhverjum sem sjá um eitthvað ?

Manni finnst að sérstakar varúðar þurfi að framfylgja með slíkan flutning...

Og voru ekki afrit tekin og geymd hjá tölvukerfunum, manni skildist ekki...!

Hverjir bera ábyrgðina ? 

Af hverju settu þessir 2 herramenn Darling og Brown ekki bara hryðjuverkalög yfir þetta ( þessi ) fyrirtæki ?

money-down-toilet

Það gerði þeir við heila saklausa þjóð... 

Sem er látin blæða fyrir týndan pening úr mörgum bönkum, sem þó hún átti ekki sjálf...

icesave

Af hverju kærðum við ekki, á meðan tími var til ?

Góð grein um gagnaleka af síðu betri ákvörðun.is

Svo sló ég inn PWC og Alistair Darling

http://www.pwc.co.uk/eng/services/MandA_advisory.htm

Hvaða forrit eru í grunninn notuð ? Eða hvaða fyrirtæki sér um gagnagrunna okkar ?

t.d. í bankakerfinu ? rsk. ? ríkinu ? allskonar stofnunum ? 

Þetta eru nú bara einhverjar pælingar í kolli konu, sem veit minna en ekki neitt...

er það kannski PWC ?  PWC má rekja til fyrirtækissins N. Manscher sem stofnað var 1924 en svo segir á síðu PWC, en ég fann ekkert um það á googlinu...en PWC er tengt neti landa um allan heim í gegnum viðskipti og endurskoðun og saga þess nær aftur til 1849 ef að er gáð.

Ég veit ekki alveg hvað er að trufla mig með þetta annars ágæta fyrirtæki, var áður búin að koma einhverju frá mér um þetta hugarflögt mitt... 

sló upp á google; PWC og Íslandsbanki ,

PWC og Kaupþing, PWC og Landsbanki og

PWC sér um hve mörg fyrirtæki á Íslandi

og ég fór að virkilega að hugsa um hversu mörg fyrirtæki eða stofnanir í stærri geiranum ætli séu t.d. undir handleiðslu PWC eða KPMG eins og Opinberar stofnanir ? lífeyrissjóðir ? tryggingafélög ? tengt landbúnaði ? tengt fiskiðnaði ? tengt orkusviðum ? og auðvitað bönkum og fjármálamörkuðum og svo lengi mætti áfram telja...

Ég get ekki séð að hollt muni það vera, að svo gamalgróin og stór fyrirtæki sem eiga svo mikil ítök í endurskoðun og þá til væntanlegra verðmætamats fyrirtækja hverju sinni um allan heim, sjái um svo viðamikil viðskipti sem raun virðast vera.

Og hafa þá væntanlega þvílika yfirsýn yfir allt of margt í rauninni, allt inn að kjarna flestra fyrirtækja eða stofnana gagnvart tölulegum útreikningum, markaðvirði og markaðssetningum, ásamt öðru, sem jafnvel tengjist heilu landi . Gæti kallað á leik að tölum...

Og í þessum skrifuðu orðum kom upp í hendurnar á mér stórgóð grein eftir Eggert Þór Aðalsteinson sem notar meira að segja líka orðið hrunadans; um endurskoðendur og endurskoðunarfyrirtækji, ábyrgð þeirra og hagsmunatengsl við helstu stórfyrirtæki Íslands. Sem og svarar ansi mörgum spurningum, sem um huga minn voru að vandræðast...

Hvað er með PWC og Saytam ? og

Folks in PwC are trying to obfuscate and say that Lovelock & Lewes is riddle and PwC is an enigma both wrapped in a shroud of mystery.

Thank you for blowing up the myth that L&L and PwC are two
different organizations. They are one and the same.

Ákvað að síðustu, aðeins að fletta upp á þessum orðum : 

Og ári seinna...1ár frá 

og í raun óhugnanlegt hve mikið er að tapast í gegnum tölvukerfið alheimslega;

og einkennilegar umræður um kaup/sölu 

SPSP- PSI weekly news

 

josira

 

 

Athyglisverð lífsreynsla...dó fjórum sinnum...

Morning%20Butterfly%2022 

Netvarp Pressunnar: Fékk hjartastopp í World Class og dó fjórum sinnum

Í síðustu viku var Pétur Guðjónsson staddur í World Class þar sem hann æfir reglulega. Í miðjum æfingum fær hann hjartastopp en sem betur fer voru læknir og hjúkrunarfræðingar á staðnum sem björguðu lífi hans. Pétur segist hafa dáið fjórum sinnum á þeim tíu mínútum sem lífgunartilraunir stóðu yfir.

virkilega áhugavert að horfa á og hlusta á Pétur og dauðareynslu hans... 

Pétur er einn af forsvarsmönnum húmanista á Íslandi og er friðarsinni...

Húmanistahreyfingin

Heimsgangan í þágu friðar og tilveru án ofbeldis...

 

josira


Hæfileikar sem koma á óvart...

notur

Mæli með að hlusta og horfa á til enda...

Einstakur söngur ungs manns...

ég fékk allavega gæsahúð, já og reyndar af öllum hinum líka ...

Greg Pritchard

http://www.youtube.com/watch?v=P-ZjOEk4-dI&feature=fvw

10 ára söngdiva... Natalie Okri

http://www.youtube.com/watch?v=J7_k5tUeoUc

5 ára fiðlusnillingur... Elli Shoi

http://www.youtube.com/watch?v=s7ILP7bbd-g

WooW..algjörlega af guðsnáð gítarspilari...Tallan Latz... og blllúuuusssari

og aðeins meira um hann...

góðar stundir...

josira 


Enn á ný er friðarsúlan tendruð ... Imagine peace Tower ...

8img482

Og búið að kveikja á friðarljósinu, sem var draumur þeirra hjóna Johns Lennons og Yoko Ono.

Síðan er heilmikil dagsskrá í gangi í kvöld, föstudag 9. október, sem hófst k.l. 19:30

FRIÐARSÚLAN – LENNON TÓNLEIKAR, HEIMILDARMYNDIR OG FLEIRA. 

Látum litla landið verða friðartákn til framtíðar í hinum harða heimi á öllum sviðum, frá öllum hliðum...

yokoono_jpg_550x400_q95

 

Ég tek ofan fyrir litlu koninni enn og aftur...

Hér má sjá og heyra 3 útgáfur af lagi John Lennons ...

Fyrsta ; Yndislegasta útgáfa ..ever... með þeim hjónum... 

 

Annað ; Magnaður söngur Idol stjörnunnar David Archuleta;

Þriðja;  á tónleikum, Yoko spilar á píanóið...

 

Skrif mín um þegar; friðarsúlan var tendruð í fyrsta skipti þann 9 október 2007 úrdráttur;

 

Ég tek ofan fyrir Yoko Ono, elju hennar og óbilandi trú að þessi hugsjón þeirra hjóna yrði að veruleika og fyllist stolti yfir að Ísland varð fyrir valinu fyrir friðarljósið....

 

Stór dagur í landinu litla...Stærri til framtíðar en margan grunar...Friðarsúlu ætti að reisa í hverju landi...

 

Það yrði verðugt verkefni að feta í fótspor litlu hugrekku konunnar hennar Yoko Ono eða hjálpa henni að láta það verða að veruleika að í hverju landi rísi friðarsúla til framtíðar...stuðlum að friði allstaðar...

fridarsula---nordurljos-vef

Hér eru nokkrar slóðir sem vísa á friðarsúluna...

Síðan hennar Yoko Ono

 

Friðarsúlan á frímerki 9 október 2009

 

Redwood Forest wordpress

 

josira

 


Hvaðan kem ég ... Hver er ég ... Hvert fer ég ...

natures

Þetta eru eflaust spurningar sem allflestir spyrja sjálfan sig, einhvern tíma einhversstaðar og einhvern tíma á blessaðri lífsleiðinni...

Hvað er raunverulegt ?  Er yfir einhver tilgangur með lífinu ? Um hvað er tilveran ?

Endalaust er hægt að spyrja...

MillenniumTree

Mátti til með að deila með ykkur virkilega áhugaverðum myndböndum tengdu þessum hugleiðingum...

Þar er eflaust mörgum spurningum svarað hjá sumum, en munu kannski vekja upp hugleiðingar hjá öðrum...

En ég er viss um að þig mun langa til að horfa á þetta nr.1 til enda og svo það næsta osfr.

What The Bleep Do We Know (1 of 12)

http://www.youtube.com/watch?v=aUL_0E305v4

Önnur útgáfa; nokkuð skemmtileg byrjun...mæli með henni...

What the bleep do we know? Down the rabbit hole. part 1

 

http://www.youtube.com/watch?v=tSk51Lp-vHU

 cosmos

( hafðu þökk fyrir, Inga )  

josira 


Næsta síða »

Höfundur

josira
josira

Orðin... Pára með penna á óskrifað blað, orðin um hugann renna. Með suð í eyra ég skrifa það, sem ég fæ að heyra. Hvaðan þau koma veit ég ei, en í höfði mínu óma. Líkt og eilífðin, sem gefur frá sér tóna og um himnasali hljóma.

Lítil síða lítur dagssins ljós... Hér hef ég hugsað mér að skrifa um allt og ekkert ... eða bara það sem mig langar til hverju sinni ... Vertu velkomin(n) kæri ferðalangur... í heimsókn hingað, þar sem þú hefur nú fundið vegaslóðan minn litla, í netheiminum stóra ...

 

Lyngrósin Ljóðin mín

Josiraice youtube ljóð og tónlist

Rósin Eldri heimasíða, sem ég get ekki uppfært lengur, en læt hana fylgja hér með.  (Hún virkar einungis í gegnum Internet Explorer)

Light Bearer -poem - josira 

Guðrún Lilja; mánadísin, mín eldri dóttir og Ljóðin hennar

Nýjustu myndböndin

Movie

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband