Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2009

Að bera í bakkafullan lækinn...

væri að fara að skrifa um það sem dunið hefur yfir land og þjóð síðasliðna mánuði...

vangavelturnar væru og eru óendanlegar frá öllum hliðum og sviðum...

medium_sfr-fors_stettaskiptingin_16694141 hrunid

Þessa suðrænu daga á Íslandinu góða hef ég verið að velta vöngum yfir þessu einstaka og frábæra veðri sem hér hefur yljað okkur í bak og fyrir um allt land...

 island

Engu líkara, en sent af æðri máttarvöldum til að umvefja okkur með hita og birtu...sem vekur gleði, ánægju, hvatningu á meiri útveru, sem styrkir svo aftur sál og líkama og ... vermir beinin að auki...

Vellíðan eykur síðan bjartsýnina og vonin vex...Gott mál...

gledi

Ég held að landinn almennt sé búin að vera á faraldsfæti, austur, vestur norður og suður, sem aldrei fyrr...

Allavega svona eftir efni og aðstæðum og ef getan ekki mikil, þá er sælt að sitja um sólargeislana úti á svölum, í garðinum eða á göngu.

En ég veit um þó nokkra, sem ekki komast þangað sem löngun stendur til, vegna þess að það er einfaldlega orðinn of stór kosnaðarliður " eldsneytisverðið " inní ferðalags-áætluninni. Og það fer væntanlega ekki framhjá mörgum hve matarinnkaupin hafa hækkað...

En við seiglumst í gegnum sumarið, með sól í hjarta og bros á vör eftir bestu getu, hverju sinni...

Það kostar allavega ekki pening...

Ég þakka máttavöldum fyrir þessa yndislegu daga og vikur, sem við höfum fengið til uppbyggingar á sál og líkama...ég held að við höfum náð að nærast andlega, meir en okkur grunar, sem og mun hjálpa okkur á komandi mánuðum að takast á við þau verkefni sem þarf að vinna úr...

Ég er viss um, að ef sumarið hefði verið kalt, með þoku, súld, roki eða rigningu væri hugur og þróttur margra í líkingu, þannig og orðið "uppgjöf" meira sjáanlegt svo og almenn undirliggjandi reiði gagnvart ráðamönnum fyrir hægagang og ósamstillt ráð í raun...Góða veðrið gerir okkur umburðarlyndari og hefur t.d. hægt á flutningum fólks í til annara landa í leit að betra og manneskjulegra lífi.

Við verðum bara að vona að öll okkar íslendinga- og landsins mál fari að leysast á farsælan hátt, sem allra fyrst. Lán og lukka fyrir þjóðarheill hve sumar-gyðjur-goð-guðir og aðrir verndarvættir hafa verið okkur hliðholl.

Mannúð er menntun mannkyns...

josira 

( Oft hafa orðin, verið komin fram í fingurgóma hjá mér, með að tjá mig um svo margt, sem mér finnst miður fara í ákvarðanatökum ráðamanna þessa dagana, en sólin og blíðan gera mig pennalata. )


Seiðandi söng, lóu á lyngi...

cosmos   

Augnablikið...

Augnabliksins njóta skal

er sólin skín um fjallasal.

Finna takt í náttúrutónum

njóta lita í öllum blómum.

Fiðrildi fagurt, gaukur hlær

blíður blærinn, sólgylltur sær.

Seiðandi söng, lóu á lyngi

ljúflega er, sem hjartað syngi.

Fegurðin i öllu býr

allstaðar, er hana að finna.

Eins og blóm að birtu snýr

þú,sálinni þarft að sinna.

 josira

 

 

293693669_59574a7640  EagleJourney 

indiandreambackground  3664~Dream-Catcher-Posters

  

Við þurfum að læra að lifa hér og nú,

sem sönnust við okkur sjálf og allt lífríki náttúrunnar…

og uppgvöta að við erum tengd orku jarðar og alheims…

cosmic_heart

Í hjarta hvers manns var fræi sáð,

það er undir hverjum og einum komið hvort,

hvernig eða hvenær það nærist, dafnar og blómstrar…

Í þessu fræi er öll sú vitneskja er hver og einn þarfnast hverju sinni.

Því í fræinu er innsti kjarni sérhvers manns,

hver sá hinn sami er og hver tilgangur vaxtar lífsblóms hans er…

dolphines

og ...

Umvefjum þá sem okkur þykir vænt um með ást og umhyggju...

Tíminn er dýrmætur...

Ekki bíða með neitt, sem hrjáir huga hverju sinni...

Ekki þjaka hug,líkama og sál til lengri tíma að óþörfu...

Ekki bíða...lífið er núna ...í dag...

 

 

natures

 Að næra og njóta...

Að hlægja og hrjóta...

Að mála og móta...

Að þæfa og þjóta...

og.s.fr.......

Lifið heil... í lukku en ekki í krukku...

josira.


Höfundur

josira
josira

Orðin... Pára með penna á óskrifað blað, orðin um hugann renna. Með suð í eyra ég skrifa það, sem ég fæ að heyra. Hvaðan þau koma veit ég ei, en í höfði mínu óma. Líkt og eilífðin, sem gefur frá sér tóna og um himnasali hljóma.

Lítil síða lítur dagssins ljós... Hér hef ég hugsað mér að skrifa um allt og ekkert ... eða bara það sem mig langar til hverju sinni ... Vertu velkomin(n) kæri ferðalangur... í heimsókn hingað, þar sem þú hefur nú fundið vegaslóðan minn litla, í netheiminum stóra ...

 

Lyngrósin Ljóðin mín

Josiraice youtube ljóð og tónlist

Rósin Eldri heimasíða, sem ég get ekki uppfært lengur, en læt hana fylgja hér með.  (Hún virkar einungis í gegnum Internet Explorer)

Light Bearer -poem - josira 

Guðrún Lilja; mánadísin, mín eldri dóttir og Ljóðin hennar

Nýjustu myndböndin

Movie

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 18
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 122215

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband