Leita í fréttum mbl.is

Arionbanki greiðir smáaura fyrir milljónirnar ...

shake-down-money

... sem teknar hafa verið af eignarhluta íbúða, þeirra skilvísu hin síðustu ár.

Er vart að trúa því að aðeins 1 blogg er að hér finna um þessa frétt.

Stór hluti þeirra er tóku íbúðarlán hér á árum áður, hvort sem var hjá bönkum eða íbúðarlánasjóði og lögðu fjármagn sitt á móti lánunum og eða áttu kannski 50-80% í íbúðunum (húsunum) hafa tapað að miklu leyti eignarhluta sínum.

Mér finnst það EKKI Í LAGI, að hægt sé að kalla það að bjóða “afslátt” eða “veita verðlaun”  líkt og Arionbanki vill kalla gjafmildi sína, kannski með um + - 100.þús. lækkun til þeirra er náð hafa, að sýna skilvísi á lánum sínum hin síðustu ár.

Og svo á viðtakandi gjafarinnar góðu (sem er þessi líka góði afsláttur vegna skilvísinnar) að taka á móti henni með bros á vör í auðmýkt og þakka fyrir gjafmildina í skiptum fyrir eignamissinn (áður eignarhluti - peningur í fasteigninni)

LÁNA-stofnanir allar hafa eignað sér það fjármagn (milljónir) sem kaupendur íbúða áttu til og lögðu á móti lánunum og segja má að eignarhluti þessa fólks, sé horfinn, týndur og tröllum gefin eða réttara sagt hefur verið færður á silfurfati til lánadrottnanna í dulbúnum gjafaumbúðum tölulegra útreikninga þeirra.

Sögur af viðskiptum við lánastofnanir  (hagsmunasamtök heimilanna)

Hversu lengi og hversu langt ætla bankarnir og aðrar lánastofnanir að ganga í að mergsjúga almenning í þessu blessaða landi. Er ekki tími til komin, kæra fólk, að við sjálf fólkið í landinu spornum við fótum og snúum vörn í sókn og förum að sýna samstöðu með því að vera samtaka og sjánleg með mótmælum.

Ekki eðlilegt hve bankakerfið – hagkerfið hefur ráðið för ...

Erum föst enn í sömu dellunni ... ( skítnum )

Enn eiga bankar og stofnanir landann

Byrjum á því að fara fram á breytingar á þessum hagkerfis útreikningum sem öllu stjórna og stýra hér. NÚNA STRAX.

Og að stjórnvöld sýni sóma sinn í, allavega eftir öll sín sviknu loforð um SKJALDBORG UM HEIMILIN um að setja lög NÚNA um leiðréttingu lána. Lækkun á höfuðstól, lækkun á vöxtum og verðtrygginguna af.

Og ekki gengur þetta öllu lengur með allar þessar hækkanir, sem dynja hér yfir látlaust. Fólk er bara orðið dofið, heyrist varla orðið neitt í neinum, t.d. í sambandi við hinar ýmsu hækkanir; s.b.r. Hiti, rafmagn, eldsneyti, fasteignagjöld og listinn er svo endalaust langur ...

bigstockphoto_heavy_question_thoughts_2558783

  

Ég má til með að setja hér fram frásögn manns, sem ég rakst á hjá öðrum bloggara og ég er nokkuð viss um að margir munu kannast við að einhverju leiti af eigin raun.

21.5.2011 Í hvaða heimi lifir Steingrímur? - Ekki mikil eignabruni hjá venjulegu fólki!

(fengið af bloggsíðu Marinós G.Njálssonar)

Sæll Marinó og þakka þér fyrir ávallt góð skrif. Þegar ég les kommentinn frá sumumu af þínum gestum, hugsa ég til þess hvort þessir ágætu menn hafa bara yfirleitt verið á Íslandi seinustu árin. Það er með eindæmum að það skuli ávallt vera til fólk sem er tilbúið að halda því fram að hinn venjulegi Íslendingur skuli hafa eitt svo um efni fram að hann missti allt sitt í vitleysu annarra. Ef ég, samkvæmt því sem " sannur íslendingur" segir, væri í efrihluta milli-stéttarinnar svokölluðu, þá langar mig að rifja upp fyrir honum og Andrési Kristjánssyni hvernig mín upplifun á því að hafa verið í þessari millistétt.

Ég hef alltaf þurft að vinna eftirvinnu og helgarvinnu fram í eitt til að geta haft í mig og á. Þegar ég keypti mína fyrstu íbúð 1979, með víxillánum, uppáskriftum  og öðru tilheyrandi stóð ég í þeirri trú að það sem ég væri að gera, væri samkvæmt mínum efnum. Myntbreytingin 1980/81 kom svo á stað óðaverðbólgu (150%) og viti menn, þessi litla 70fm íbúð (ábyggilega stórhýsi á þeirra mælikvarða) hvarf á tveimur árum. Ég stóð ekki með neitt eftir nema skuldir og fór í þrot. Ekki gafst ég upp. Árin liðu og ég náði að koma undir mig fótunum á ný og keypti annað stórhýsi uppá litlar 85fm árið 1988.

Árið 1991, kom aftur óðaverðbólga, og viti menn. Aftur var allt af mér hirt.

Árið 1997 keypti ég mér aftur íbúð. Nú var reysnin minni og hún bara 68fm. Alltaf átti ég fyrir því sem ég var að gera samkvæmt útreikningum míns banka. Allt gekk vel og árið 2004, lét ég verða af því að kaupa mér einbýlishús, sem ég meira og minna kom upp sjálfur. Nú var ég séður og keypti fyri utan borgina. Nánr tiltekið á Reykjanesinu. Eignarhlutinn minn í húsinu var næstum því 50% eftir að ég seldi íbúðina. Þess ber að gæta að ég var ekki að taka erlent lán, heldur aðeins 17.milljónir, sem mér fannst bara nokkuð hátt. Árið 2004 voru fasteignagjöl hjá mer aðeins tæp 140.000. Fasteignafjöldin fyrir árið í fyrra voru 267.000 og höfðu hækkað um 78% á aðeins 6 árum. Launin mín höfðu staðið í stað vegna þess að í góðærinu svokallaða mátti ekk hækka eitt né neitt vegna verðbólguáhrifa.

Nú er svo komið, að ég, sem er greinilega ekki sannur Íslendingur, er að missa allt eina ferðina einn. Samt átti ég fyrir þessu öllu samkvæmt bankanum. Eina lánið sem ég tók 17. milljónir og átti að vera ekkert mál fyrir mig að standa við það. Búin að borga tæpar 8 milljónir af láninu en eftir stendur 27 milljónir. Eignarhlutinn minn úr íbúðinni sem ég seldi, 9 milljónir er horfin og bankinn að taka húsið. Ég spyr mig í dag, af hverju var ég ekki bara " sannur íslendingur"  og fór bara á féló og heimtaði styrki til að geta veirð til eins og þessir mætu menn eru að leggja til að "sannir Íslengar" séu, því greinilegt er, að þeim er illa við fólk sem vill reyna að hafa í sig og á með sómasamlegum hætti. 

Það er andskoti hart að lesa svona fullyrðingar og mér er næst því að líkja svona fólki við, eins og flestir í ríksistjórninni eru, fólk sem aldrei hafa farið út fyrir garðinn sinn og unnið ærlegt handtak, heldur setið á jötunni á meðan almenningur í þessu landi þarf að blæða út. Það er engin afsökun að hafa verið á bleyju eða pela, það er nefnilega til nóg af okkar kynslóð í þessum hremmingum án þess að teljast " sannir íslendingar" samkvæmt ofangeindum kommentum. Reynslan mín í dag er sú, að það borgar sig að eiga ekki neitt og vera bara sem mest á styrkjum frá hinu opinbera, því greinilegt er að hér má engin eiga eitt né neitt nema örfáir.  

Kveðja.  

Sigurdur Hjaltested

Hvað ætli bankarnir, séu búnir að græða á vöxtum, verðbótum og verðtrygginga lána um áraraðir. ?

því blessuð hliðarsambúðin við bankanna byrjar strax í æsku og fylgir hún víst manni lífið allt.

Nýju bankarnir fengu lánin okkar með miklum afföllum við yfirtöku þeirra. !  

Arion banki verðlaunar skilvísa (visir)

Arion banki tekur yfir íbúðalánasafn þrotabús Kaupþings (mbl)

"Íbúðalánasafnið, sem Arion banki yfirtekur, er metið á um 120 milljarða króna. Með yfirtökunni eflir Arion banki stöðu sína á íbúðalánamarkaði með íbúðalánasafn sem nemur um 200 milljörðum króna. Heildareignir bankans eftir yfirtökun nema rúmlega 900 milljörðum króna.

Samkomulagið felur í sér að Arion banki verður útgefandi sértryggðra skuldabréfa í stað Kaupþings. Sértryggðu skuldabréfin voru gefin út á árunum 2006-2008 til fjármögnunar á íbúðalánum. Arion banki mun þannig auka langtíma fjármögnun sína um rúma 120 milljarða króna. Sértryggðu skuldabréfin verða skráð í kauphöll síðar á þessu ári.

Við yfirtöku Arion banka á íbúðalánum frá Kaupþingi í október 2008 og í janúar 2010 var veittur að meðaltali 21% afsláttur af verðtryggðum lánum sem endurspeglaði meðal annars stöðu lánasafnsins og væntingar um þær afskriftir sem framkvæma þyrfti."

Lán ÍLS til heimilanna nema tæpum 600 milljörðum (vísir)

"Hefur sú fjárhæð hækkað úr rétt tæpum 380 milljörðum kr. frá árslokum 2007 eða um 220 milljarða króna á fjórum árum"

Kallar enn eftir upplýsingum um uppgjör bankanna (visir) 

“Ég hef núna fengið upplýsingar um það að það er búið að fjölga um níu þúsund á vanskilaskrá frá árinu 2008," segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins”

 

Já og enn og aftur ...

Hver á hvað og hvað er hvurs ...

Maggi þeysari með sína mögnuðu rödd, hefur sitthvað um þessi mál að segja.

Eina jákvæða frétt var ég þó að lesa;

Bjartsýni landsmanna eykst; (mbl)

Já við erum sannarlega merkilega samsett þessi þjóð.

Ekki skil ég hvernig hægt er að vera bjartsýn í

allri þessari hringavitleysu og óstjórn

sem hér viðgengst.

Og

við ætlum seint að sjá að við sitjum á gulleggi.

Guðdómlegri gjöf, sem arfleifð okkar er.

Ísland hið góða og fallega

sem allt hefur að gefa okkur.

josira

   

 

(p.s er enn og aftur í veseni með línubil, buin að sitja hér um allt of langan tima opg reyna að laga - gefst upp vona að þetta sé læsilegt, þó allt sé í belg og biðu)


mbl.is 33.000 viðskiptavinir fá afslátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

josira
josira

Orðin... Pára með penna á óskrifað blað, orðin um hugann renna. Með suð í eyra ég skrifa það, sem ég fæ að heyra. Hvaðan þau koma veit ég ei, en í höfði mínu óma. Líkt og eilífðin, sem gefur frá sér tóna og um himnasali hljóma.

Lítil síða lítur dagssins ljós... Hér hef ég hugsað mér að skrifa um allt og ekkert ... eða bara það sem mig langar til hverju sinni ... Vertu velkomin(n) kæri ferðalangur... í heimsókn hingað, þar sem þú hefur nú fundið vegaslóðan minn litla, í netheiminum stóra ...

 

Lyngrósin Ljóðin mín

Josiraice youtube ljóð og tónlist

Rósin Eldri heimasíða, sem ég get ekki uppfært lengur, en læt hana fylgja hér með.  (Hún virkar einungis í gegnum Internet Explorer)

Light Bearer -poem - josira 

Guðrún Lilja; mánadísin, mín eldri dóttir og Ljóðin hennar

Nýjustu myndböndin

Movie

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 122258

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband