Leita í fréttum mbl.is

Seinagangur og missir ...

 

5678_angry_woman_holding_computer_wires_and_a_mouse 

við vistun á bloggfærslum...Nú er ég alveg að gefast upp á að blogga...missti allt út sem ég var búin að skrifa...eina ferðina enn...kannski á ég bara að hætta þessu pári mínu...

Það er orðið svo seinvirkt...þegar ég er að vista gerist það seint og illa ...eða það gengur barasta ekki og allt hverfur á braut....arrg...ég er nú seintekin til reiði og telst víst vera ákaflega þolinmóð manneskja...en þetta reynir orðið virkilega á þolgæði mitt...

Eflaust tengist þetta orðið umferðinni hér í bloggheimum...því talvan mín er hraðvirk og fín þegar ég er að vafra um á öðrum síðum...Er ekki einhver sem kannast við eða hefur lent í þessum veseni ?

angry-woman-ani


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Einarsdóttir

Á maður bara ekki að taka sér sumarfrí í þessu eins og öðru??

Knús kveðja

Guðný Einarsdóttir, 21.5.2008 kl. 22:44

2 Smámynd: Unnur R. H.

Er allaf að lenda í þessu og þetta fer allaf jafn mikið í geðið á mér

Unnur R. H., 22.5.2008 kl. 10:20

3 Smámynd: josira

...jæja, það er gott að ég er ekki ein í bloggheiminum að lenda í þessum leiðinda hægagangi...og takk fyrir leiðbeiningarnar Henry/Promecius...

...hér eftir afrita ég skrifin og skelli á word skjal...áður en ég vista á bloggsíðunni...ef allt skyldi hverfa á braut...

josira, 22.5.2008 kl. 14:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

josira
josira

Orðin... Pára með penna á óskrifað blað, orðin um hugann renna. Með suð í eyra ég skrifa það, sem ég fæ að heyra. Hvaðan þau koma veit ég ei, en í höfði mínu óma. Líkt og eilífðin, sem gefur frá sér tóna og um himnasali hljóma.

Lítil síða lítur dagssins ljós... Hér hef ég hugsað mér að skrifa um allt og ekkert ... eða bara það sem mig langar til hverju sinni ... Vertu velkomin(n) kæri ferðalangur... í heimsókn hingað, þar sem þú hefur nú fundið vegaslóðan minn litla, í netheiminum stóra ...

 

Lyngrósin Ljóðin mín

Josiraice youtube ljóð og tónlist

Rósin Eldri heimasíða, sem ég get ekki uppfært lengur, en læt hana fylgja hér með.  (Hún virkar einungis í gegnum Internet Explorer)

Light Bearer -poem - josira 

Guðrún Lilja; mánadísin, mín eldri dóttir og Ljóðin hennar

Nýjustu myndböndin

Movie

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 10
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 122150

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband