Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Tónlist

Hera heilla mun heiminn - Je Ne Sais Quoi - eflist á eldgosamyndbandi ...

 

Hera Björk - Je Ne Sais Quoi (Volcano Version) Eurovision 2010 Iceland

Örugglega sú eina, sem fær lifandi náttúruöflin til liðs við sig, í bakgrunn á eldfimu myndbandi fyrir Eurovision 2010 ... Þarna skína tvær Dívur dásamlega saman ...

josira


Andardráttur jarðarinar ... og hljóð hennar í geimnum ...

 

Hér má sjá og skynja rythma jarðarinnar eða öndun hennar ...

og hljóð hennar (söngur) tekin upp af Geimferðastofnun Nasa

Fallegar nátturumyndir (sá Skógarfoss hinum fallega og Barnafossum bregða fyrir) undir tónlist Kevin Kern ...

Gott að staldra um stund og fara í slökun eftir þessa endalausu hringavitleysur í efnahags-og stjórnamálunum, ásamt darraðadansi náttúruaflanna ...

Leyfi að fljóta hér með, hugleiðingar mínar um ævintýri og ferðalög, sem sjást í gluggum með frostrósir (hélaðir gluggar) ásamt undirspili fagurra tóna Friðriks Karls.

(annað ljóðið mitt af tveimur, sem kom til mín á ensku)

Frost Roses. 

Frost roses in a window

come when temperature is low.

You just sit there

and watch in it slow. 

leabul1e

A world full of fairy-tale

encourages you to go.

Into magical places

let your imagination flow.

leabul1e

Your journey will take you

on the charming move.

Into the world

you have never knew.

leabul1e

As the moonlight come near

like a beautiful chrystal clear.

Is the frost roses in rime,

natures art you enjoy this time.

leabul1e

joira

 


Hæfileikar sem koma á óvart...

notur

Mæli með að hlusta og horfa á til enda...

Einstakur söngur ungs manns...

ég fékk allavega gæsahúð, já og reyndar af öllum hinum líka ...

Greg Pritchard

http://www.youtube.com/watch?v=P-ZjOEk4-dI&feature=fvw

10 ára söngdiva... Natalie Okri

http://www.youtube.com/watch?v=J7_k5tUeoUc

5 ára fiðlusnillingur... Elli Shoi

http://www.youtube.com/watch?v=s7ILP7bbd-g

WooW..algjörlega af guðsnáð gítarspilari...Tallan Latz... og blllúuuusssari

og aðeins meira um hann...

góðar stundir...

josira 


Smá til að hafa gaman af...

 

í öllum alvarleikanum...

Mátti til með að henda hér aftur inn myndbandinu með honum Rick Miller, hreint alveg magnaður að horfa á og hlusta...maðurinn er tær snilli...

Rick Miller performs Bohemian Rhapsody ;

http://www.youtube.com/watch?v=O6mZvsWHs4M&feature=player_embedded

josira

 


Michael Jackson og fylgifiskar frægðarinnar...

 

michael_jackson_gold-thumb-473x473   E_MichaelJacksonIntro_325

Nú þegar þessi magnaði listamaður hefur kvatt sitt jarðarlíf, örmagna á sál og líkama, skilur hann eftir sig spor, sem aldrei mun fenna yfir...Gullsjóð orða, sem skína og lifa munu með okkur, samtíða ferðafólki hans og síðar til ókominna kynslóða...

Dánarorsök hans er ekki enn fullkomlega ljós.

Í mörg ár hef ég kallað hann misskilda Michael...

 

Í mínum hug og hjarta var hann maður kærleika, friðar, réttlætis og mikill barna-og dýravinur...

 

Óð hans til mannkyns og náttúru jarðar bar hann til okkar gegnum tónlist sína...

 

Heal the World...   http://www.youtube.com/watch?v=beFTORlM6TU&feature=related 

peace_hands 

Michael Jackson - Earth Song

 

Manneskjur eru eins ólíkar og þær eru margar...og lífsleiðirnar margvíslegar, sem fólk fer eða lendir í...

Margir eru fyrir frægð og frama, aðrir kjósa venjulegt heimilislíf eða ganga sína leið einir...

Það er eflaust ekki öfundsvert að vera eign heimssins, eins og margar stjörnur eða þekkt fólk lendir í...

Að geta varla snúið sér við án þess að heimsbyggðin viti af því...

Og margir breytast og missa tök á raunveruleikanum...

Michael Jackson f.v. barnastjarna og síðar poppgoð var einn af þeim...

The Jackson 5 - Rockin' Robin 1972 RARE

 

Diana Ross and Michael Jackson in 1969 - RARE

 

og stutt var í leikarann..

.

young Michael Jackson acting VERY OLD

 

  

Þennan jafnaldra minn dáði ég og dýrkaði strax þegar við vorum börn og fannst mér unun að hlusta á þennan fallega og lífsglaða strák og sönginn hans...

Hann var alinn upp í showbisnessinum, strax frá unga aldri í stórum systkynahóp og bræðurnir Jackson 5 urðu heimsþekktir og síðar hans systir Janet.

I Want You Back - A Tribute to the Jackson 5

 Jackson 5-Disneyland Special

Michael var hluti af ævintýrinu sem hann lifði en einhversstaðar í lífshlutverki sínu, tapaði hann sjónar á sjálfum sér og rann saman við ævintýraveröldina...

Nokkrar ótrúlegar sögur af Michael...

http://www.mbl.is/mm/folk/frettir/2009/06/27/otrulegar_sogur_af_jackson/?ref=morenews

Michael Jackson "I've Gotta Be Me" (very rare)   endilega að hlusta á textann, hann segir svo margt...

Flest munum við eftir honum syngja eitthvað af þessum lögum...

Michael Jackson Superbowl

 

Og þegar ég heyrði textann í lagi hans hér fyrir neðan, sá ég hann í nýju ljósi...

Mín skynjun og skilnigur var sá að þarna hafi hann í raun,

verið að syngja um sjálfan sig og það sem hann þráði í sínu lífi..frelsi,ást og kærleik..

en lagið var aðallag myndarinnar Free Willy...sem við Íslendingar þekkum öll...

 Michael Jackson Will You Be There      ( saga Keiko-iceland )

( fyrir free Willy-Keiko )

 

Michael var löngu orðin brotinn andlega, með skerta sjálfsmynd og lifði í hálfgerðum einangruðum draumaheimi...

E_MichaelJackson

Og ýmsar getgátur um kynhneigð hans, heyra mátti...

Mér er ómögulegt að trúa því, sem haldið var fram um hneigð hans til barna, aðra en kærleik...

En ekki finnst mér það óhugsandi, að hugur hans hafi kannski leitað til ungra manna...

Og hafi svo verið, kann að vera, að hans líf hefði tekið aðra stefnu ef hann hefði viðurkennt það ( komið úr skápnum ) og getað lifað heill og sáttur...

Og að síðustu er hér að finna ógleymanlegan og einstakan söng okkar fremstu og bestu söngvara samtímans

í heiminum, taka sig saman og syngja ljóð og lag eftir Michael Jackson og Lionel Richie...

We Are The World USA Africa

 

Og langar mig nú, að láta sameinaðan söng okkar fjölmörgu, frábæru íslensku tónlistarmanna

Hjálpum þeim (Help them)  friðarljóð  

hljóma og óma...og tileinka minningu Michaels...

josira


mbl.is Krufningarskýsla ekki frágengin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dásemdar söngfugla par...

 

 regina_fridrik

InLoveJá við megum svo sannarlega vera stolt af Regínu, Friðrik og fylgdarfólki...þau hafa sungið sig inn í hjörtu okkar hér og úti hinum stóra heimi...Það geislar af þeim lífsgleðin og skemmtileg framkoma...

Hafið gaman af að kíkja á gömlu vinningshafana hér neðar á síðunni minni...( önnur bloggfærsla ) 

Og var að finna frábæra eurovision aðdáandasíðu hjá Dagrúnu Þórný...endilega skoðið hana...

Skoðið til gamans skemmtilega uppsetningu og upprifjun sem ég fann;

josira

mbl.is „Kom skemmtilega á óvart“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bergmálaði úr bloggheimi...

 

Fegurð raddar víða fer

ferðast á mörgum sviðum.

söng sig í tölvu mína hér

hugljúf frá öllum hliðum.

notur

Bergmál úr bloggheim

barst til eyrna minna

máttugt úr barkaseim

sent til ykkar hinna.

 

Ég varð gjörsamlega heilluð af yndislegri rödd þessa drengs,  Heart Declan Galbraith... Írskur held ég...

Mátti til með að setja myndböndin hér og deila með þessum fallega gullfundi mínum á netinu svo endilega að hlusta og njóta ...Heart...

 

Declan Galbraith - Walking in the Air

Declan - Tell Me Why - a children's tribute

Danny boy sung by Declan Galbraith

 

josira


Gjafir jarðar...andleg verslun

 

Meiriháttar verslun sem ég rakst á í Ingólfsstræti...Ætlaði ekki að hafa mig út aftur...þar má finna ýmislegt sálarfóður, yndislega steina, hugræna tónlist, og skemmtilegar gjafavörur...ég mæli með að staldra þar við og hvíla sig aðeins frá önnum dagssins...þar má einnig finna... http://www.gjafirjardar.is/

 josira

 


« Fyrri síða

Höfundur

josira
josira

Orðin... Pára með penna á óskrifað blað, orðin um hugann renna. Með suð í eyra ég skrifa það, sem ég fæ að heyra. Hvaðan þau koma veit ég ei, en í höfði mínu óma. Líkt og eilífðin, sem gefur frá sér tóna og um himnasali hljóma.

Lítil síða lítur dagssins ljós... Hér hef ég hugsað mér að skrifa um allt og ekkert ... eða bara það sem mig langar til hverju sinni ... Vertu velkomin(n) kæri ferðalangur... í heimsókn hingað, þar sem þú hefur nú fundið vegaslóðan minn litla, í netheiminum stóra ...

 

Lyngrósin Ljóðin mín

Josiraice youtube ljóð og tónlist

Rósin Eldri heimasíða, sem ég get ekki uppfært lengur, en læt hana fylgja hér með.  (Hún virkar einungis í gegnum Internet Explorer)

Light Bearer -poem - josira 

Guðrún Lilja; mánadísin, mín eldri dóttir og Ljóðin hennar

Nýjustu myndböndin

Movie

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 122228

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband