Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál

Ekki eðlilegt hve bankakerfið – hagkerfið hefur ráðið för ...

 

171593A 

hér hjá þjóðinni litlu á svo mörgum sviðum og hliðum lífssins og lífsafkomu fólkssins með útreikningum talnanna, sem svo allt of mörgu stjórna og stýra.

Hvað ætli bankarnir, séu búnir að græða á vöxtum og verðbótum lána um áraraðir. Eru þeir farnir að finna fyrir samviskubiti.! En allavega gott framtak, hjá Landsbankanum að byrja að borga eitthvað til baka og vonandi stíga hinir bankarnir sömuleiðis fram. Pínu ljós kannski að sjá í myrkri talnanna.

anabull2

Burtséð frá hruninu og afleiðingum þess, finnst mér að í marga ártugi t.d. íbúðalán almennt, ásamt öðrum bankalánum, skuldabréfum og yfirdráttum hafa borið ótrúlega háar fjárhæðir í hendur bankanna og annara fjármálafyrirtækja til baka í borgun lánanna. Stundum hef ég hreinlega efast um réttmæti þessara útreikningsformúlna.

Og þetta var ég að lesa á eyjunni.is; (sem styður sumt af þönkum mínum)

Staðfest að lánafyrirtækin beita misjöfnum aðferðum við endurútreikninga

anabull2

Ég hef reyndar aldrei skilið alla þessa tölulega útreikninga, sem viðhafðir hafa verið hér á Íslandi um allt og langan tíma, miðað við önnur lönd, t.d nágrannalönin. Von mín eftir hrunadansinn 2008 lá til þess, að í öllum uppstokkun og umbreytingum í hagkerfis– og fjármálalausnum fælust ný tækifæri og mannsæmandi viðmið til heilla afkomu fólkssins. Það hefur ekki gerst. 

anabull2

money-to-burn    

anabull2

Oft hef ég hugsað um fjármálakerfið og útreikninga í gegnum árin. Þau hafa oft á tíðum mynnt mig á, þegar maður var yngri að árum og var farin að horfa á bíómyndir og sá þegar fólk þurfti að fara til svokallaðra veðmangara, að selja hluti frá sér í nauðum oft á tíðum og fékk miklu minni peninga fyrir, en raunhæft var og eins ef hlutur var settur í pant, þurfti að borga hærri upphæð fyrir er hann var leystur út. Og fannst mér þá, þetta heldur óréttlátt viðskipti.

anabull2

Kilburne_The-Pawnbroker

anabull2

Og ef fengin var peningur að láni, þá var borgað til baka, með margföldum vöxtum. Og leit maður á veðmangara og veðlánara, sem vonda menn – hálfgerða glæpamenn, sem voru að græða á erfiðleikum annara. 

anabull2

Síðar þegar ég komst á ungdómsárin og flutti að heiman, stofnaði fjölskyldu og fór að takast á við lífið og tilveruna, líkt og aðrir, þá byrjar hliðarsambúðin við bankakerfið, sem fylgir væntanlega öllu og öllum í gegnum lífið. Hefur mér ætíð fundist útreikningar banka og stofnana minna mig alloft á veðmangarana-veðlánarana, sem maður fékk innsýn í gegnum gömlu bíómyndirnar, sem barn. 

Og lítt skil ég enn, þær reikniformúlur, sem allt byggist á. 

 

“ Hagfræðikerfiskenningalærdómsútreikningur talna sem stjórna lífi okkur, snilldar - úrlausn, eitt af mannanna verkum og stjórnað og stýrt af örfáum útvöldum manneskjum...

 

Og við auðmjúkur almúgurinn fylgir reglugerðinni samviskusamlega eftir...”

Tekið úr eldri færslu; Klækjaklóin...verðtryggingin 

Vangaveltur mínar nú eru tengdar því, að allflestir íbúðareigendur eru með einhver mismunandi lán á eignum sínum. Ætla ég ekki, að fara nánar út í þær skilgreiningar. En þeir þykja heppnir, sem voru með svokölluð hagstæð íbúðalán t.d. undir 5%vöxtum. En ekki hin svokölluðu myntkörfulán. Einnig má sjá að; Staðfest er að lánafyrirtækin beita misjöfnum aðferðum við endurútreikninga (eyjan)

MCj03825850000[1]

Langar mig bara að tjá mig um hversu ósanngjarnar mér finnst greiðslur til fjármálastofnana og banka almennt vera. Ég vil nefna hér 2 dæmi í formi t.d. venjulegra íbúðalána, sem eru og hafa verið í skilum.

Annað er ósköp venjulegt gamaldagslán tekið hjá Íbúðalánasjóði vorið 2005 kr. 9.000.000 með 4,15% vöxtum. Staða þess í dag er um 13,400,000, 6 árum síðar. Hækkunin nemur um tæpa 5 og hálfa milljón. Sem og hefur að sjálfsögu nánast þurrkað út stóran hluta þess fjármagns, sem viðkomandi íbúðareigandi átti sjálfur í útborgun íbúðarinnar.

anabull2

Hitt dæmið er íbúðalán tekið hjá Kaupþingi (Arionbanki í dag), sem tekið var undir árslok 2006, einnig kr. 9,000,000 en með 4,85% vöxtum. Í dag stendur þetta lán í um 12,200,000, hækkunin er rúmar 3 millónir á rúmum 4 árum. Þessi 2 lán, sem nefn eru hér standa í skilum og ekki hefur þurft að leita til neyðarúrræða, en alveg á mörkum þess.

anabull2

Mörg orð mín úr fyrri bloggskrifum fjalla um hugleiðingar mínar í þessa banka-og fjármálaveru og afkomu fólkssins.

anabull2

Læt fylgja hér með gamlar hugarþanka, síðan 2003 og sýnist mér við nú, vera í sömu sporum og þá. (fyrir útrás bankanna) Blekking í þjóðfélaginu 

anabull2

josira 

 

(p.s. línubilin að stríða mér, þannig að ég varð að setja litla mynd á milli)

 

  


mbl.is Endurgreiða hluta af vöxtum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

2010 ... Almúganum má blæða á meðan bankar og stofnanir græða ...

too_bad_so_sad_tshirt-p235325576082829783q08p_400 easily-debt-pay-off-bills-200X200

Er andvaka og ...

get ekki orða bundist, mér svíður í hjartanu, hve einföldum augum ég hef litið á ástandið í þjóðfélaginu ...  

Þegar svo margar fjölskyldur, öryrkjar og ellilífeyrisþegar geta vart haldið út hvern mánuð, að eiga til hnífs og skeiðar, ásamt því að reyna að borga þær föstu greiðslur sem inna þarf af hendi ... s.br. húsnæði, rafmagn, hiti, sími, sjónvarp, tryggingar og s.fr.

leabul1e

Og hve virkilega er orðið óþolandi hve hægt hlutirnir gerast hjá blessaðri ríkisstjórninni við að bæta ástandið fyrir okkur þegnana. Bara barrlómur, “ erfitt um vik, lítill sem enginn peningur og blablabla ... og á þingiðv antar meiri samstöðu flokka og manna á milli, með úrlausn mála.

leabul1e

left-brain-right-brain

leabul1e

Ég hef nú verið að vafra aðeins um netið og skoða, spá og spegluera ...

leabul1e

Og að ég, sem hélt að þjóðfélagið lægi þvílíkt á hliðinni ...

leabul1e

ja hérna, nei ekki aldeilis virðist það vera, allavega ekki hjá hinum ýmsu bönkum og stofnunum, sem eru svo samtvinnuð hinu daglega lífi okkar landsmanna ...

leabul1e

Kannski væri ráð að fá eitthvað af þessu fólki, sem kann að nota jákvæða orku peningana, til að halda um fjármálatauma ríkistjórnarinnar til að rétta halla ríkissins af og læra þá af þeim hvernig hlutirnir gerast í fjármálaheiminum.

leabul1e

Eða fá eitthvað af pening frá þessum bönkum og stofnunum til að styrkja atvinnumálin og reyna að koma þeim hjólunum af stað. Þá fara öll hin tannhjólin að snúast og vænkast þá hagur margra þjóðfélagsþegna. (lottó vinningurinn í dag er hjá þeim er halda vinnu). 

leabul1e

Samt finnst mér ekki einleikið með allan þennan pening sem er í umferð, en er lítt sjáanlegur.

Eru maðkar enn að svamla í mysunni. ?

leabul1e

Eru þessir peningar til ?

Hvaðan komu þeir ?

Hvað er verið að gera við alla þessa peninga ?

Er verið að láta þá hlaða á sig vöxtum ?

Eða er þetta enn, allt leikur að tölum, sem eru frambærilegar á hvítu blaði ?

moneypensiondrawou2 

collapse-of-iceland-in-10-easy-steps1

Ég reyni nú að vera með jákvæðar hugsanir og að heiðarleiki í fjármálum og gegnsæi, séu orðin raunveruleg, bæði í orði og á borði. Og ætla að trúa því að unnt væri, að fá aðgang að einhverju af þessu fjármagni - til að koma pening út í þjóðfélagið.

Gætum við þá ekki frekar tekið að láni peninga hér á landinu hjá þessum bönkum og stofnunum, en ekki hjá AGS. Það hlýtur að vera hagstæðara fyrir okkur öll. Hér má finna litla samantekt á þeim slóðum sem ég rataði inn á; 

2010 - Hagnaður einhverra banka og stofnana s.l. mánaða. Hér er ekki verið að tala um einhverjar milljónir...heldur milljarða...

bigstockphoto_heavy_question_thoughts_2558783

Peningamagn í umferð aldrei meira en um síðustu áramót  

Eignir verðbréfa og fjárfestingasjóða hækkuðu um 11,6 milljarða í mars  

Staða Seðlabankans ..." Heildareignastaða bankans lækkaði lítillega á árinu, en stendur þó enn í tæplega 1.200 milljörðum króna líkt og í árslok 2008. Í árslok 2009 námu erlendar eignir bankans um 41% af heildareignum. Í lok ársins á undan námu erlendar eignir bankans 47% af heildareignum."

Hvaða eignir á Seðlabankinn erlendis ?

Eru það alls skonar fjármögnunar- verðbréf eða húseignir ?

Innstæður ríkissjóðs hjá Seðlabankanum 446 milljarða kr ( þarna koma erlend lán við sögu)

(Á árinu 2008 varð hins vegar tæplega 184 milljarða króna tap á rekstri bankans fyrir endurheimtur frá ríkissjóði sem endurreistu eigið fé bankans. Þær endurheimtur námu 175 milljörðum króna).

leabul1e

(Eitthvað fór þetta nú fram hjá mér á sínum tíma .... Var Seðlabankinn sjálfur, eign ríkissins að fara á hausinn 2008. Hvernig gat hann tapað 184 milljörðum ? Í hvað fór þessi peningur ?)

money-main_Full 

Bankar; 

14,3 milljarða hagnaður Landsbanka 

Hagnaður Glitnis 38,2 milljarðar króna  

Finn ekkert um Arion banka, nema gamalt; ( Og hverjir eiga svo hann nú aftur ?)  

Afkoma Nýja Kaupþings banka (nú Arion banka) frá 22. október til ársloka 2008 Hagnaður eftir skatta 4,8 milljarða króna 

Sparisjóðir í sjöunda himni 2007 

(Efnahagsreikningar stærstu sparisjóðanna héldu áfram að tútna út á síðasta ári eins og árin á undan. Við lok síðasta árs stóðu eignir í 391 milljarði króna og höfðu vaxið um 120 milljarða á árinu eða um 45 prósent). Veit ekki alveg söguna á bakvið breytinga hjá Sparisjóðunum.

Hagnaður Íslandssjóða 

leabul1e

Í lok desember 2009 voru 16 sjóðir í rekstri hjá félaginu og nam hrein eign þeirra 89,7 milljörðum króna. Tveir sjóðir sem eru skráðir í Lúxemborg eru í stýringu félagsins og nam hrein eign þeirra 20,4 milljörðum króna í árslok 2009.

(Hafði ekkert heyrt um þessa sjóði fyrr en ég rakst á þá áðan -sýnir hvað maður fylgist lítið með þessum fjármálaheimi)

Tryggingarfélög;

Hagnaður TM 2,9 milljarðar króna 

1,2 milljarða hagnaður VÍS 

Peningarnir dansa fyrir framan augu mín, nú er ég hætt ... Kollurinn á mér meðtekur ekki allar þessar spurnigar, sem flögra um huga minn.

Og ég einfeldningurinn, sem hélt að lítill sem enginn peningur væri nú til á Litla-Stóra Íslandinu.

Gömul færsla síðan 2007 hjá mér; Eiga bankar og stofnanir-félög orðið landann ..?

leabul1e 

Nóg í bili. Þetta er svakalegt þegar manni hitnar svona í hamsi og finnur fyrir löngun að tjá sig um svo margt, fær hálfgerða ritræpu, svo að varla verður vært fyrir manni ...

leabul1e 

Nú held ég að mín sé farin í bloggfrí ...

leabul1e 

edmund_dulac_princess_and_pea

leabul1e 

josira

leabul1e

(p.s. læt þetta fara svona núna, þó eitthvað sé í belg og biðu í þessum blessuðu línubilum hér. Búin að reyna mitt besta, set lítið lauf til að reyna að skifta línubilunum...(arrg...)


Sammála að þurfi rannsókn á þessu mikla falli Sparisjóðanna ...

logo_islandi 

En eflaust verður erfitt um vik, að finna einhverja sem ekki tengjast þessum bönkum, Sparisjóðirnir voru um allt land. Og fljótt að myndast alls skonar krosstengsl og hugsanlega eitthvað meira.

Kannski þarf ótengda rannsóknarnefnd erlendis frá, ef hún skyldi nú myndi finnast.

Og alveg er synd hvernig þessir blómlegu bankar virðast hafa farið í súginn;

Sparisjóðirnir í sjöunda himni 2007 

(Efnahagsreikningar stærstu sparisjóðanna héldu áfram að tútna út á síðasta ári eins og árin á undan. Við lok síðasta árs stóðu eignir í 391 milljarði króna og höfðu vaxið um 120 milljarða á árinu eða um 45 prósent)

Skjótt skipast veður í lofti.

 

josira

 


mbl.is Vilja rannsókn á sparisjóðunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikill hluti launa fer til Lífeyrissjóða-Olíufélaga-Banka ogTryggingafélaga

ARRGGGG GAARRRG ... Búin að sitja hér og tjá mig heilan hellinn um þessar stofnanir og fyrirtæki, ég segi ekki meir...nú er þolgæði mitt á þrotum með bloggkerfið hér...

Var að klára síðustu setninguna, átti bara eftir að setja punktinn yfir iið. Nei þá hvarf allt út í buskann....Eitthvað er hér ekki eins og það á að vera. Hvað er það sem ekki má tala um ...

Þetta verður fyrsta bloggfærslan, sem ég læt vera að gera á ný, nema að litlu leiti.

Allavega umræðuefnið var hagnaður þessara fyrirtækja-stofnana á góðærisárunum.

Ekki naut almenningur neinna hlunninda eða lækkana á þeim tímum og nú eru greiðslur í hærri hæðum til þessara stofnana og fyrirtækja frá almenningi. En greiðslur sem þessar stofnanir og fyrirtæki þurfa að greiða til almennings lækka.

shake-down-money

Ekki einleikið hve stór hluti launa fer úr vösum almennings í þessi fyrirtæki-stofnanir. Og þá er ég ekki að tala t.d. um; fæði-klæði-síma-sjónvarp-hita-rafmagn-leigu-eða annan kosnað í hverjum mán.

eldri færsla min:

Kominn tími til þó fyrr hefði verið ...

að launafólk taki yfir lífeyrissjóðina og annara;

LV lækkar lífeyrisgreiðslur um 10% frá júlí 

Hrein eign lífeyrissjóðanna 1.797 milljarðar 

Fjárfestingar og tap lífeyrissjóðanna – Lára Hanna 

Exista og Lífeyrissjóðirnir - hókuspókus

 

Lífeyrissjóðir bíða með milljarða

 

27.4.2007 Mikill hagnaður lífeyrissjóða af íslenskum fjármálafyrirtækjum

 

16. 11. 07 Landsamtök Lífeyrissjóða 

 

5. maí, 2006 Lífeyrissjóðirnir hagnast á gengislækkun

 

Lífeyrissjóðina til fólksins. is on Facebook 

Lífeyrissjóðsliðurnn var full þurftarfrekur, sleppi hinum þremur að sinni.

Ýmis orð um hugan sveima, nú þegar pása gefst frá goshugsun.

Dow Jones-vísitala og hvað þýðir hún; PWC – KPMG - BG-Holding - Who really owns the FED? Og eitthvað fleira er að finna hér í hrunadansinum...

19.10.2009 Hrunadans í orðum...peningar...krosstengsl...ýmiss konar 

Hvernig tókst Goldman Sachs að verða fyrsti bankinn útúr kreppunni

með 200 milljarða hagnað ! og það strax á fyrsta ársfjórðunni árssins...

(p.s. órói náttúrunnar heldur áfram á mis mikin máta, á meðan hinir ýmsu hlutir koma í ljós, sem huldir hafa verið í fjár-óreiðu-spillingu þjóðfélagssins fyrri ára og eru nú smán saman að koma í ljós. Aðstæður eru að opnast, sem gefa greiðari leið að ósómanum...)

 

 

josira


Draumur-krosstengl stofnana-fyrirtækja-ásamt einhverju hér og þar ...

 rainbow

Þá er víst best að vinda sér í bloggfærslu, sem kæmi mér ekki á óvart að lengri verði en ég ætla mér...

Þannig var að fyrir margt löngu síðan dreymdi mér draum, Hann fjallaði um ungt fólk á framabraut, að vísu fannst mér þau að meiriparti vera þó ungir menn aðallega. Ég sá þau koma líkt og úr verksmiðju öll eins klædd með skjalatöskur. Þetta var fallegt fólk með ljúfa og kurteisa framkomu en fjarræn augu. Eins og þau væru hálf heilaþveginn og steypt í sama mót...

Fannst mér ég sjá og verða vitni af allskonar ráðstefnum og siðan vera viðstödd í vinnu þeirra, sem var einhvers skonar í formi þjónustu eða ráðgjafar í sambandi við peninga aðallega. Áttu þau mjög auðvelt að ná til fólkssins sem kom til þeirra. Hin óvenjulega mýkt þeirra í tali og umgengni við fólkið virtist ná líkt og einhverju dáleiðandi sambandi og fólkið nánast samþykktu allt það sem ungmennin lögðu til...

Allt var eitthvað svo harla gott. En samt var eitthvað bogið við þetta allt saman. Það var á einhvern máta þannig að maður skynjaði sem fólkið yrði sem viljalaus verkfæri, sem trúðu og treystu öllu sem þeim var sagt og unga fólkinu í fallegu fötunum með fallegu brosin fannst líka allt svo frábært sem það hafði fram að bjóða og leiðbeina með...

Skyndilega fór ég að hugsa hverjir væru með þessi námskeið, sem ég áætlaði að fram færu í þessum verksmiðjuhúsum og fjöldaframleiddu að virtust þetta unga fólk...

Í hverju kennslan fælist ?

Hverjir semdu kennslugögnin ?

og hver tilgangurinn væri ?

Í hag hvers kennslan lægi til ?

Og hvaðan eða hvernig ungmennin væru valin, sem væru á námskeiðunum ?

walk  

En allt í einu var ég komin á samkomu einhverra eldri-heldri manna í stórum salarkynnum og fannst mér þeir vera stjórnendurnir sem stæðu á bak við unga fólkið. Ekki heyrði ég á tal þeirra, en fannst sem þeir væru í háalvarlegum samræðum og væru að leggja á ráðin með eitthvað, en samt sá ég einhverja þeirra glotta með sjálfum sér.

Fannst mér eins og þessi félagsskapur væri mjög gamall, líkt og fyrirrennarar hefðu verið tengdir þeim er þarna voru nú...

Og þarna vakna ég ...hálfrugluð yfir þó þessum skýra draumi...en drauminn hef ég alltaf munað og þegar allt hrundi fyrir ári síðan, fór ég strax að hugsa um drauminn, en ýtti honum svo frá mér.

En eftir því sem tíminn líður finnst mér einhverja samsvörun að finna þarna á milli...

Þá er ég komin að tölum, peningum, útreikningum og þess háttar...

Þessar pælingar mínar eru þær fyrstu (djúpu held ég ) í átt að reyna að skilja eitthvað meir með þessar blessaðar tölur og útreikninga þeirra, sem öllu virðast stjórna...

Sem auðvitað eru allt mannanna verk, einhver skapaði þetta í upphafi...

skyldi maður ætla...

En þegar ég var að vinna í bloggfærslu minni um daginn með grænu -gena byltunginni poppaði upp í huga minn nafn sem enga samleið átti í greininni en hafði ég þó sett inn einhveja hluta vegna...

Ég fór eitthvað að kíkja i gær til að skoða myndböndin betur og sá þá orðið og auðvitað tók ég það út því það átti ekkert heima þarna að ég held...En get ekki neitað því að mér hálf brá að heyra í fréttunum í kvöld um húsleitir hjá þessu tiltekna fyrirtæki,sem var búið að þvælast fyrir mér í nokkra daga...Síðan fór ég að leita á mbl.í kvöld og hér er sú frétt, ja hérna hér...það liggur við að ég hefði viljað að ég hefði ekki tekið það úr í gær...

En nú sný ég mér að því sem safnaðist saman hjá mér á blaði þegar ég fór að skoða það eftir færsluna...

Og orðið sem mér datt í hug er heimsþekkt fyrirtæki á sviði ýmissa fjármálaráðgjafa, sem reyndar er hér einnig á litla Íslandi...

En það er PricewaterhouseCoopers og það hlýtur ( að standa vel og vandlega að þjálfun starfsmannanna...datt í hug draumurinn )

Fyrirmyndafyrirtækið á Íslandi  En vá, ég vissi ekki að tengslin til litla Íslands, væru síðan 1924...

PricewaterhouseCoopers hf. (PwC) er framsækið og vaxandi fyrirtæki sem á sér rætur í íslensku viðskiptalífi allt til ársins 1924. Með bakland í öflugu starfi PwC um allan heim, sérþekkingu, þekkingarmiðlun og aðferðarfræði er félagið í fremstu röð á markaðnum og hefur náð að skapa sér áhugaverða sérstöðu hérlendis.

Þetta kemur svo strax inn á eftir pwc. ; KPMG er alþjóðlegt net fyrirtækja sem veita sérfræðiþjónustu með það að markmiði að breyta þekkingu í verðmæti til hagsbóta fyrir viðskiptavini sína, starfsfólk og samfélagið.

Og einhver situr í stjórn KPMG LLP í Sviss... síðan 2007

og hér eru einhverjar slóðir tengdar KPMG

Hef alltaf haldið míg utanvið efnahagsumræður svona almennt og hef engan áhuga haft svosum að kynnast heimi fjármála eða stjórnmála, fyrr en nú nýverið...

Maður hefur fylgt bara með einhverjum hópi fólks sem kyngir því sem sett er á diskinn af ráðmönnum þjóðarinnar hverju sinni...

fly

Og hugsar, svona er þetta bara og reynir að treysta að ráðamenn hafi vilja, getu, reynslu eða menntun til að stýra. Þó svo maður viti að auðvitað undir niðri séu það hagfræðingarnir sem hljóta að skapa grunninn að hverri uppskrift, sem matreidd síðan er og borin á borð ...

Svo að öll hlutföll séu sem réttust reiknuð með t.d. næringargildi og hollustu til hliðsjónar...

eða þannig og minnir mig á nokkur orð sem ég skrifaði 2003;

og hef reyndað gripið í hérna á blogginu áður...  Heldur eru það tölur og útreikningar “snilldarlausn” sem ráðamenn þjóðarinnar hafa að leiðarljósi og hagkerfið “góða” byggist á. Blekking, sem er leikur að tölum frambærilegar á hvítu blaði. Þeir ríku verða ríkari og þeir fátæku fátækari. Þjóðin er að festast í blekkingarvef, sem hún sjálf hefur ofið sér"

Það fylgist kannski að, breyting á hugafari manns sjálfs, eins og hefur verið að gerast með mig. Það er að segja, ég er t.d. mikið farin að hugsa um mataræði mitt.

Auðvitað búin að vita það til margra ára að ég ætti að vera meira svona í hollustunni skulum við segja, til að bæta heilsufar mitt.og verða meðvitaðri um hug, sál og likama.

Við erum jú, það sem við hugsum, gerum og borðum...

Þannig að hugsanlega í undirmeðvitundinni vil ég fá orðið öðruvísi samansettan mat á þjóðardiskinn minn...og aukið vit og getu til að greina hvað sé hollt og óhollt...á því sem ég vil innbyrða...Og eflaust er það sama að gerast hjá svo mörgum orðið...

Og í mínum einfalda hug eru að vakna upp hugsanir tengdar; Tölum og öllum þessum svokölluðu allskonar útreikningum, sem virðist stjórna undirliggandi svo mikið lífi okkar...

Og þá dettur mér strax í hug tveggja nafna, vísitölutengdra, sem hafa ómað með manni í fréttum og frásögnum til margra ára...og maður hristir bara hausin og skilur ekkert hvað er verið að tala um, algjör hebreska fyrir manni...

Hvað er t.d. þessi Dow Jones-vísitala og hvað þýðir hún ;

Eftirtalin 30 fyrirtæki sem nefn eru hér fyrir neðan eru aðilar að vísitölunni.!

Hvernig er hægt að vera aðili að einhverri vísitölu ?

og hvað táknar það...?

og gerir t.d. fyrir þessi fyrirtæki...?

moneypensiondrawou2    
3M (eignarhaldsfélag) Alcoa (álframleiðandi) Altria Group (matvæla- og tóbaksframleiðandi) American International Group (tryggingafyrirtæki) American Express (greiðslukortafyrirtæki) AT&T (fjarskiptafyrirtæki) Boeing (flugvélaframleiðandi) Caterpillar (vinnuvélaframleiðandi) Citigroup (fjármálafyrirtæki) The Coca-Cola Company (drykkjarframleiðandi) DuPont (efnaframleiðandi) ExxonMobil (olíusölufyrirtæki) General Electric (eignarhaldsfélag) General Motors (bílaframleiðandi) Hewlett-Packard (tölvuframleiðandi) The Home Depot (byggingavöruverslanir) Honeywell (eignarhaldsfélag) Intel (partaframleiðandi fyrir tölvur) IBM (tölvuframleiðandi) JPMorgan Chase & Co. (fjármálafyrirtæki) Johnson & Johnson (lyfjaframleiðandi) McDonald's (veitingastaðir) Merck & Co. (lyfjaframleiðandi) Microsoft (hugbúnaðarframleiðandi) Pfizer Inc. (lyfjaframleiðandi) Procter & Gamble (hreinsivöruframleiðandi) United Technologies Corporation (eignarhaldsfélag) Verizon Communications (fjarskiptafyrirtæki) Wal-Mart (verslanir) The Walt Disney Company (skemmtanafyrirtæki)

Guessing 

Og hversvega fellur vísitala ef eitthvað kemur fyrir einhversstaðar...?

Hver eða hvað stjórnar því ? 

Og hvers hagur er ef vísitala fellur ?

eða rís ?

t.d. hjá Evolving System ; er þetta þá flott rekið fyrirtæki ? 

upp

En þessi svokallaða úrvalsvísitala  ( gamalt síðan 06 ) hvað með hana ?

Og hvað er NASDAQ vísitalan ? Nasdaq vísitalan í methæðum 

( reyndar gamlar fréttir í jan.´1999 ) hér lækkar hún t.d.í des. ´07

eitthvað umDow Jones og Nasdaq á vísindavefnum 

( þetta er sennilega það sem öllu stjórnar,( lífinu okkar) tölur og útreikningar )

er alltaf að sjá það betur og betur...

Fann reyndar ekki sögu hennar á íslensku ( hér er bjöguð þýðing google ) 

og hér er eitthvað á ensku : hér er á ísl. eitthvað 

um sögu hlutafjárviðskipta hér á landi ;

Þær umræður og fréttir af hinu og þessu tengt ofansögðu hefur liðast á milli eyrna minna gegnum árin og hefur verið algjör hebreska fyrir mér. Það eru aðrir sem skilja og hafa kunnáttu til að moða úr upplýsingaflæðinu eða því sem hulið er...

En ég finn orðið fyrir örlitlum áhuga og þess vegna eru þessar hugleiðingar mínar að myndast hér meðan ég pikka á lyklaborðið...

Einhver stór gróin fjármálafyrirtæki þarf að finna, hvernig eru þau uppsett og tengjast þau hér og erlendis ? 

En eitthvað meir um PWC ; af nógu er greinilega að taka...  

Evrópuráðgjöf PricewaterhouseCoopers

Uppspretta tækifæra - afnám hindrana... ( hljómar vel...!) 

( nóv. 1999) samruni við BDO endurskoðunar sem er af BDO international  

BDO endurskoðun

PriceWaterhouseCoopers mun stýra BG Holding

Greinilega mikið að gera hjá PWC.  á ótrúlega mörgum sviðum... 

PricewaterhouseCooper  svið1. 

PricewaterhouseCooper  svið2. og einhverjar

gamlar og nýjar kærur á PWC og KPMG

og fleiri kærur á PWC upphæðirnar eru ævintýralegar  

Fornarlömb Madoffs stefna PricewaterHouseCoopers 

og hver er Madoff...  Réttarhöld yfir PWC það er fullt af allskonar málaferlum þarna úti... 

IBM og PWC  

July 30, 2002 5:30 PM PDT

bjöguð´google ísl.

Olía og vatn

Kaup IBM af PwC Consulting endurspeglar einnig vaxandi tregðu samráð og bókhald fyrirtækja til að halda báðum greinum undir sömu fyrirtækja regnhlíf. Eftir kaupin, PwC mun halda aðeins endurskoðun þess, skatt-og lögfræðiþjónustu, auk nokkurra smærri "Business Advisory" þjónustu.

Þó fyrirtækja whistleblowers hefur lengi verið varkár þegar eitt fyrirtæki gefur bæði ráðgjafar og endurskoðun þjónustu, spurningin um sjálfstæði endurskoðanda hituð upp í kjölfar gjaldþrotum og scandals hjá Enron, Adelphia, WorldCom og Global Crossing.

Á Enron, til dæmis, ráðgjafar risastór Arthur Andersen fékk $ 37 milljónir þjónustu endurskoðun og annar $ 57 milljónir ráðgjafar. Gagnrýnendur sagði Andersen endurskoðendur voru tregir til að kastað neikvæð ljósi á fyrirtæki sem kveðið svo mikið tekjur til ráðgjafar hlið Andersen's. Andersen hefur þegar verið fundinn sekur um obstructing að SEC rannsókn á starfi sínu hjá Enron.

The verðbréfaeftirlitsins er rannsókn á búnt samráð og endurskoðun þjónustu hjá fjölda fyrirtækja, þar á meðal Arthur Andersen, Deloitte & Touche, KPMG og Ernst & Young. Bush forseti undirrituðu einnig í lögum Þriðjudagur a tröllríða "Samfélagsleg ábyrgð" umbætur pakkann, þar á meðal ákvæði sem krefst fjárhagslega endurskoðendur að vera sjálfstæð. Lögin takmarka sérstaklega magn og eðli ráðgjafar þjónustu að bókhald fyrirtæki geta selt til endurskoðunar viðskiptavini.

En Sehra Eusufzai, a spokeswoman fyrir PwC Consulting, segir að kaup IBM ekki endurspegla þrá félagsins fjarlægðar sig frá widening specter fyrirtækja scandals.

"Við höfum verið að reyna að aðskilja stjórnun og IT ráðgjafar frá endurskoðunar á tveggja og hálft ár núna," Eusufzai sagði seint Þriðjudagur síðdegi. "Við kynntum áform okkar til að skrá fyrir IPO í janúar og við voru nefnd að því, en á endanum við mynstrağur this samningur var bestur einn fyrir viðskiptavini okkar og starfsfólk okkar."

Á undanförnum árum hafa PwC, Andersen, Deloitte & Touche og KPMG þróast í helstu aðilar í þjónustu fyrirtækisins. Þessi fyrirtæki fengust um 29 prósent af tekjum sínum, eða u.þ.b. 4 milljarða, úr upplýsinga-tækni ráðgjafar og stjórnun, samkvæmt Prakesh Parthasarathy, greiningu á Fjárfestingarbanki Montgomery verðbréfa.

News.com 's Ian Fried og Rachel Konrad stuðlað að þessari skýrslu.

Nú ég er hætt að nenna skoða þetta allt saman, það er endalaust eitthvað að finna...og veit varla hversvegna ég er að þessu yfir höfuð...er eflaust búin að rugla saman linkum eða eitthvað, kemur í ljós... 

Þetta eru ekki mín áhugamál eða vettfangur hugsana minna svona almennt séð...

Ég held ég fari í langa, langa  bloggpásu núna, mjög fljótt...En áður en ég hætti að sinni, læt ég þessar pælingar að fljóta með...úfs, ég fer að henda einhverju af því sem ég hef rekist á og álpast tíl að geyma...

Ég gæti setið við tölvuna og skrifað og skrifað um svo mikla dellu að það hálfa væri nóg stundum...

Og hverjir standa t.d.á bakvið;  

http://www.doingbusiness.org/  og 

http://www.russellbedford.com/ 

eitthvað nýtt um russelbedford 

og æji þetta eru nú orðið meira krossgáturuglið hjá mér...

orðin flögra allt um kring...

mál komið til að hætta...áður en kollur konu brennur yfir...

jæja örlítið meir; Var aðeins að pæla í orðinu selur sbr. síðasta bloggi mínu...selur-seal-zeal... var bara að leika mér smá...og þá rak á fjörur mínar þessi síða;  http://www.zinnov.com/  hér er goggle-isl. þýð. og svo árangurssögur  en þeir tengja orðið zeal við zinnov, sem er reyndar í annari merkingu en ég lagði upp með...

En þetta er nýlegt Indverskt fyrirtæki með víðtækan metnað til framtíðar...Og á einhvern hátt kom draumurinn fyrrnefndi upp aftur hér...Og þjálfun starfsmannanna ( leiðbeinandana ) hjá Zinnov finnst mér ekki vera lík eins og ég upplifði í verksmiðjuhúsunum í draumnum.  

Það er spurning hvort blessaðir ráðamenn þjóðarinnar ættu bara ekki að leita ráða ( hjálpar ) hjá þeim...við að reyna að rétta af allt systemið hérna á litla Íslandi...

Hérna er innsýn hjá þeim... 

Það gengur svo hægt að stokka upp hérna í þessum gömlu úreltum kerfum okkar, sem löngu eru orðin úrbrædd..

Okkur vantar svo sárlega eittvað nýtt til styrktar uppbyggingunni...

En að öllu gamni sleppt, þá veit ég ekki hvort þetta er rétt sýn hjá mér með Zinnov...en samt finnst mér eitthvað jákvætt við þetta...

Ég er svo lengi að stauta mig framúr enskunni...Og verð að viðurkenna að ég er ekki búin að sitja og lesa allt það sem ég hef sett hér fram á ensku...

Bið forláts ef ég hef dregið rangar ályktanir, en mér fannst bara að ég ætti að setja þetta allt hingað...

angry-woman-ani

Var búin að ákveða að hætta núna, en get ekki alveg strax...Set hérna til viðbótar eitthvað sem hefði átt að vera í næsta bloggpári mínu...en fyrst ég ætla mér í einhverja bloggpásu um tíma læt ég þetta vaða. 

Og hafi þér endst þolinmæði að komast hingað, þá er meir en nóg til að lesa hér ; 

Hvernig tókst Goldman Sachs að verða fyrsti bankinn útúr kreppunni

með 200 milljarða hagnað ! og það strax á fyrsta ársfjórðunni árssins...

Afhverju var ekki strax leitað til hans af ráðamönnum okkar og þessi frábæra uppskrift fengin?

og síðan; Who really owns the FED?

The Rothschilds of London and Berlin; Lazard Brothers of Paris; Israel Moses Seif of Italy; Kuhn, Loeb and Warburg of Germany; and the Lehman Brothers, Goldman, Sachs and the Rockefeller families of New York. ?

og hvað er FED - Bandaríski seðlabankinn hér um á íslensku.

  

THE MOST IMPORTANT VIDEO ON THE INTERNET NO MORE FED RESERVE

http://www.youtube.com/watch?v=Zv0QlZHu3oc

( úps nú dettur mér draumurinn í hug þegar ég var í salarkynnunum

með heldri mönnunum...)

Secret Societies: The Bilderberg Group

http://www.youtube.com/watch?v=eDUMEEl_ajM

A History of the Bilderberg Group The Secret Society of Secret Societies,

the one whom dicates to all the others.

Flest af þessu hefur nú bara farið fram hjá mér, en þegar ég for að glugga á netinu um eitt nafn, þá hafa hin bara komið í kjölfarið. Og sé ég að það hafa farið fram margar umræður og pælingar út og suður..og eitt leiðir að öðru og hluti af allri þessari hringavitleysu er komin hér á blað til mín, eins og ormurinn ógnarlangi...

Eitthvað á íslensku;

áhugaverð lesning og samantekt á íslensku,

http://gullvagninn.blog.is/blog/hin_nyja_heimsyn/entry/882929/  

http://www.mbl.is/mm/gagnasafn/grein.html?grein_id=103966

Ags er stjórnað Af bilderberg   og einhver blanda... 

Og þessi síða spratt nú fram fyrir mig ...

kaupsamningur Prospectus og gamla KB ´05  

orð eins og KPMG, FSA, og fl vöktu athygli mína...já og best þá í lokinn að henda fram eitthvað um allar þessar helstu sammstafanir...maður veit ekkert í sinn haus stundum þegar er verið að lesa og allt í einhverjum óskiljanlegum stöfum...

staðlar; helstu skammstafanir á íslensku og á

skammstafa-leitarstöð ...

 

sæl að sinni josira 

 


Sjávarins svarta gull...

 

492092 

...Í samskiptum við þau olíuleitarfyrirtæki sem sýndu útboðinu áhuga, en sóttu hins vegar ekki um sérleyfi, kom fram að helstu ástæður fyrir því að þau sátu hjá að þessu sinni voru m.a. bágt efnahagsástand á útboðstímabilinu með tilheyrandi skorti á nýju fjármagni og mikil áhætta sem fylgir því að hefja rannsóknir á nýju svæði eins og Drekasvæðið er.

Mig minnir endilega, að olíuleitarfyrirtækjunum hafi fundist full háir skattar og gjöld vera grunnorsök minnkandi áhuga þeirra á ... ?

1975_north_sea_oil

Einhverra hluta finnst mér þó að svarta gullið okkar sé frekar að finna neðar en Drekasvæðið og nær Færeyjum...

 

josira

 


mbl.is Engin sérleyfi á Drekasvæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Myntkörfulánin ólögleg...eiga rétt á skaðabótum...

Vonargeisli kviknaði nú bara í hjarta mínu við hlustun...

cosmic_heart
 

Þetta viðtal þurfa allir sem einn að skoða,

hvert orð...of ef satt reynist...þá þarf að bregast við...NÚNA

Hér má sjá viðtal Sigmars í Kastljósi í gærkveldi við Gunnar Tómasson hagfræðings...

http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4472013/2009/09/08/1/

Gunnar Tómasson, hagfræðingur

gunnar_tomasson

 

Myntkörfulánin eru ólögleg og þeir sem tóku slík lán eiga rétt á skaðabótum vegna þeirra. Ef ekki er gert ráð fyrir þessum skaðabótum í uppgjöri skilanefndanna og kröfuhafa gömlu bankanna tapa þeir Íslendingar sem tóku myntkörfulán samtals um 200 milljörðum króna.

Þetta fullyrðir hagfræðingurinn Gunnar Tómasson, sem í aldarfjórðung starfaði fyrir Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Gunnar vill að gjaldeyrishöftin verði afnuminn strax á morgun en jafnframt að sett verði neyðarlög sem felli verð og gengistryggingarákvæði allra lána úr gildi. Sigmar ræddi við Gunnar.

Afhverju var þessi maður ekki ráðin til vinnu ( Gunnar ) strax s.l. haust af ráðamönnum. !!!

Hefði örugglega fengið undanþágu vegna aldurs...

Í svona manneskjum liggur mannauðurinn okkar...

Þarna er greinilega maður með reynslu, hugvit og verkvit...

 

josira

 


Höfundur

josira
josira

Orðin... Pára með penna á óskrifað blað, orðin um hugann renna. Með suð í eyra ég skrifa það, sem ég fæ að heyra. Hvaðan þau koma veit ég ei, en í höfði mínu óma. Líkt og eilífðin, sem gefur frá sér tóna og um himnasali hljóma.

Lítil síða lítur dagssins ljós... Hér hef ég hugsað mér að skrifa um allt og ekkert ... eða bara það sem mig langar til hverju sinni ... Vertu velkomin(n) kæri ferðalangur... í heimsókn hingað, þar sem þú hefur nú fundið vegaslóðan minn litla, í netheiminum stóra ...

 

Lyngrósin Ljóðin mín

Josiraice youtube ljóð og tónlist

Rósin Eldri heimasíða, sem ég get ekki uppfært lengur, en læt hana fylgja hér með.  (Hún virkar einungis í gegnum Internet Explorer)

Light Bearer -poem - josira 

Guðrún Lilja; mánadísin, mín eldri dóttir og Ljóðin hennar

Nýjustu myndböndin

Movie

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband