Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Ja hérna hér...

komið rúmt hálf ár, síðan ég bloggaði síðast...

og miklar breytingar orðið á ásjónu Íslandsins góða...

bæði hið innra og hið ytra...

satellite-image-of-iceland

author_icon_11024

    

Frá ári  rottunar/músarinnar 2008

í kínverskri stjörnuspeki til árs uxans 2009...

dyrahringur_040507

MOUSE -  is about awareness, paying attention to detail. 

Mouse teaches us to pay attention to the little details

which might get overlooked in our mad dash

to see the big picture, and reminds us not to overlook the obvious…

svo mörg voru þau orð…

Við ættum kannski að fara að skoða

landvættina okkar íslensku og

kanna hvort við getum ekki virkjað þá á jákvæðan hátt..

skjaldarmerki

UXINN - sem segir:

 Ég bý yfir aflinu stöðuga sem viðheldur hringrás lífsins.

Ég stend óhagganlegur á móti tilraunum andstæðingsins,

einbeittur og flekklaus.

Ég leitast við að þjóna ráðvendninni

og bera byrðar réttlætisins.

Ég hlýði lögmálum náttúrunnar –

þoka örlagahjólinu með þolinmæði.

Þannig vef ég örlög mín.

Ég er uxinn

.

DREKINN - sem segir:

Ég er eldurinn óslökkvandi,

miðpunktur allrar orku,

hetjuleg hugdirfskan.

Ég er sannleikur og ljós.

Í sveiflu minni er máttur og dýrð.

Návist mín tvístrar dimmum skýjum.

Ég hef verið valinn til að temja örlögin.

Ég er drekinn.

( tekið af síðu samuel.is )

Set til gamans einnig slóð um

merki stjórnmálamannanna okkar,

sem þar var einnig að finna.

 

Áhugavert væri að glugga í merkingu

mannsinns-bergrisans og gammsins-arnarins-( fönix )...

 

Þessi byrjunarorð mín áttu nú ekki að verða svona breiðvirk,

en svona getur hugarflugið sent mann á hina ólíklegustu staði...Woundering

 

   
angry-woman-ani
Þegar ég hef gerst pennalöt of lengi,
hefur oft einhver komið mér af stað aftur...

Að þessu sinni var það kærasti dóttir minnar,

hann Sigþór Jónsson frá Hornafirði,

Þessi flinki strákur er í Iðnskólanum í Reykjavík

í grafískri hönnun...

Og þetta fallega logo hér að ofan,

gerði hann og sendi mér og

varð það mér hvatning til að

fara að vinna í síðunni að nýju J ...

Innra með mér hafa ætíð verið einhverjar

sterkar tengingar við að sjá sverð og rós saman...

ásamt ýmsu öðru og eflaust er þannig farið með allflesta...

Ég man eftir því sem barn og unglingur

var ég oft að teikna myndir

af sverði og rós saman og langaði mig

mikið að fá mér þannig tattú...

 

En þá voru það bara vaskir sjómenn,

sem fengu sér tattú af ankerum eða meyjum...

Síðan eru liðin mörg ár og allskonar fólk e

r með tattú í dag út um allan líkamann...

Einhvern daginn, þegar ég get ákveðið mig...

fer ég af stað og læt verða af því að fá mér eitt eða fleiri...:-)

 

Í dag veit ég, að það er svo margt sem má sjá og finna, s

em leynist í ýmiss konar táknum.

og miklar og margar djúpar merkingar, sem þar liggja að baki...

Ég hef reyndar allatíð haft mikinn áhuga á allskonar táknum, s

em finna má, sjá og jafnvel dreyma...

Ég held að tákn tengist almennt manninum meir, en við höldum...

Held þar sé hinn mesta helgidóm að finna á mannsins þroskaleiðum...

að þar sé að finna mikla fræðslu og djúpan sannleik...

Hin seinni ár hafa þau dregið mig sífellt meir að sér...

Hér er ein frábær síða sem ég var að rekast á, þar sem,

sýnist mér ákaflega margt er að finna...

og hér má sjá tölur ( talnaspeki ) ásamt ( Agný-blog )

Hver dagur, er nýr, ný sköpun, núið...

Berum bjartsýni á borð í dag...

Reynum að sjá, heyra eða skynja eitthvað nýtt,

Eitthvað jákvætt, eitthvað skemmtilegt...

Eigið góðan dag sem og alla aðra...

sæl að sinni...josira


Flogin og vitja nýrra ævintýra...

 fl_horse

í daglega lífinu og einstaka sinnum í netheiminum stóra...

Er komin með youtube síðu...Verið velkomin í heimsókn... 

http://youtube.com/josiraice

gaja

Komin í bloggfrí í bili...

sendi mínar bestu óskir út til ykkar um heillaríkt og heilsugott sumar...

cosmic_heart

Og að land og þjóð verði umvafin ljósi og vernd Almættisins...

josira


Komin tími til að...

 

Religious_7143354_std

setja niður örfá orð...tíminn flýgur áfram og sumarið skartar orðið sínu fegursta...gleðjumst með...

Lífsgleði.

Margt er það sem léttir lund,
eflir gleði, veitir stund.
Frá hugarangri, þraut og pínu
leiðsögn fá frá hjarta sínu.

Fylgja eftir hjartans rómi,
svo að sálarljósið ljómi.
Lifsins njóta hér og nú,
skulum bæði ég og þú

Hafa gaman af hinu og þessu,
þrautir kveðja og ganga til messu.
Moka mold, hlaupa og hjóla
taka stökk eða skoöa njóla.

Pissa úti uppí vind,
horfa á hund elta kind.
Sparka bolta, hengja upp lak,
fara í snúsnú og á hestbak.

Horfa á daggardropa detta,
sólina skína og magann metta.
Elska engil, dansa dátt
taka allt og alla í sátt.

Læra að ganga á lífsins línum
og fylgja eftir draumum sínum.
Sýna bæði þor og dug,
njóta allt sem fangar hug.

Horfa á fallegan fjallahring,
finna fegurðina allt um kring
Opna fyrir lífsins flæði,
fagna og þakka öll þess gæði.

höf;johanna s.r. ( josira )

4938523

satellite-image-of-iceland

null

indiandreambackground

Umvefjum þá sem okkur þykir vænt um með ást og umhyggju...

Tíminn er dýrmætur...

Ekki bíða með neitt, sem hrjáir huga hverju sinni...

Ekki þjaka hug,líkama og sál til lengri tíma að óþörfu...

Ekki bíða...lífið er núna ...í dag...

hugs

peace_hands

pic_respon3

tigerhug

cat_hug

ljós inní í daginn...josira


Langaði að senda ljós inní daginn...hérlendis og erlendis...

Ljósberi ljósberi lífssins...Sólin

Kvöldsól við Akrafjall 

Akrafjall í kvöldsólardýrð og sjáið ljósáruna kringum sólina...

Vitund vaknar, á þeim degi
er ljósið þú finnur, á lífsins vegi
Vegsemd slík, verðmæt er
varðveita skalt í jarðvist hér.

heil og sæl að sinni...josira

 


Eurovision...upphitun...upprifjun

odinist-tree-Yggdrasill-cc-paganeen-200

Til þeirra sem ætla að horfa á Eurovision í kvöld...er upplagt að horfa hér á stutta samantekt á fyrrum sigurlög frá árunum 1956-2007;

 Fyrri hluti ca. 9 min. og Seinni hluti ca. 7 min

choir

Læt fylgja hér með úr Idolinu í gær svona til gamans...

David Archuleta sem ég elska að hlusta á ...með "Imagine" eftir John Lennon...

og vinningshafinn David Cook...

four_people_singing

Hér má sjá unga upprennandi söngstjörnur...

og svo áfram ísland...

eigið skemmtilegt kvöld framundan...

josira

Óska Regínu, Friðrik og fylgdarfólki til hamingju með frábæran árangur....InLove...sjáum þau fyrir okkur á laugardagskvöldið á verðlaunapallinum...Heart


Hörmungar í austri...

Hugleiðingar mínar í dag eru um þær náttúruhamfarir, sem hafa átt sér stað í austri síðustu daga...hugur minn hefur dvalið þar...en ekki hér “....  neyðaraðstoð við Íslandí hagkerfis hremmingunum... 

 burma

 

Það hafa verið skelfingar dagar í Myanmar ( Búrma ) eftir að stór fellibylur fór þar yfir þann 2 maí s.l. og tala látinna að nálgast nú óðum 134.000.þús. Hjálparstarf gengur hægt og illa vegna herstjórnarinnar ógurlegu...

Þeir eru ekkert á því að opna landið fyrir hjálparsveitir, sem víða koma að með hjálpargögn...

 

Mín ósk og von til þessa sérstaklega lands ( sjáið fegurð landssins ) er sú, að einn dag muni þessi skelfilega herstjórn vera niðurlögð fyrir fullt og allt og að lýðræði verði að veruleika og þessari þjóð hjálpað eins og unnt er.

Ég bíð hreinlega eftir því að mannréttindasamtök og allir sem getað aðstoðað sameinist með einhverjar úrlausnir...og að Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu Þjóðanna  komi þar sterk fram..

.

Eru kannski alheimsöflin að grípa inní verk mannanna...?

Þurftu þessar hörmungar að verða... til þess að einhverjar umtalsverðar breytingar verði hjá þessum þjóðum... í hugsun og gjörðum ...  

          

Læt fylgja hér með; gamlar hugleiðingar mínar;

china

Og þessir svakalegu jarðskjálftar í kína...

 

Það hefur mikið verið að gerast þar í þjóðarvitundinni á mörgum sviðum...s.l.ár

 

Hún Björk okkar hreyfði nú aldeilis við viðkvæmum málum í mars s.l. á tónleikum sínum í kína varðandi baráttu Tíbetbúa fyrir sjálfstæði sínu.

Og Olympíuleikarnir framundan þar sem þjóðir sameinast úr öllum heimsálfum í sátt og samlyndi. Og eiga samverustundir.Í frelsi og friði í íþróttakeppnum og leikjum,undir einum fána og einum kyndli

.

Kyndillinn í sjálfu sér stendur fyrir ljósi friðar og og er í rauninni svo sterkt afl til að sameina mannkyn..

.

Og vængjast þá lífssins kraftur..

.

Hjálpumst um að halda þessari sameind og samkennt áfram eftir leikana um allan heim...til framtíðar..

Hér má finna ljóð á ensku eftir mig...Light Bearer... sem túlkar huga minn...

god_particle

Er enginn söfnun í gangi hér á landinu litla fyrir til hjálpar þjóðunum í austri...

peningasöfnun, fatnaður,vatn...?

Sendum bænir okkar þangað út...

josira

p.s. er varla að halda það ut að pára her á blað og setja inn myndir...kerfið er allt i belg og biðu sama hvað ég reyni að lagfæra...kannast einhver við þetta vesen ?

 


Eftir vetur vaknar vor...

 vængjast lífssins kraftur...

vorid

Sendi mínar bestu óskir út í blogg-heima um að sumarið verði farsælt og fagurt.

josira

 


kæru vinir og vandamenn...

Kæru ( blogg )- vinir og vandamenn...nær og fjær í bráð og lengd...

imagine-peace-tower

Óska ykkur öllum gleðilegra jóla og heillaríks-og heilsugóðs nýárs,

með kæru þakklæti fyrir allt sem liðið er...Njótið hátíðar ljóss og friðar...elskið...lifið..njótið... með kærleik og fyrirgefningu í hjarta...

Það er undir viðhorfum hvers og eins komið...til hlutana hverju sinni...hvernig tekið er á málum...

josira


Ja hérna hér...

margt er það, sem finna má og sjá...

carrot-man-and-woman

Mátti til með að skella þessari náttúru-lífs-mynd hér inn. Hvort hún telst klúrin eða blygðunarsöm, er ekki mitt að dæma. Bara hafa gaman af...Það má segja að hér sjáist enn eitt verk Móðir náttúru og Skaparans...

Það er ekki seinna vænna að koma einhverjum sumarmyndum að áður en allt verður undirlagt af vetrarmyndum og jólajóla something...

Eigið góða helgi og megi ykkar hjarta, gleðinni skarta...

josira


Samskipti...

 

100_0888 

Erfiðleikarnir eru til að læra af...Oft er þar að finna dulda blessun, síðar meir......Vandamálin eru til leysa þau ...

Sameinið þar sem sundrung ríkir...Styrkið fjöldskyldutengslin, sem unnt er...Standið saman til framtíðar á öllum sviðum, frá öllum hliðum, sem unnt er...Gefið gleði þar sem sorg ríkir...Talið saman í einlægni um hvernig ykkur líður og það sem betur má fara, áar,mæður, feður, dætur, synir, systkyni, frændgarðar og vinir...

Hleypið birtu, gleði og hamingju nýrra tíma inn í lífið. Því lífið er sífelt nýtt, sem er... núið...núna. Ekki bíða og bíða eftir hinu eða þessu...eða að þetta eða hitt gerist...Lifið og njótið, kyssist og hrjótið...Gleði í hjarta, gefur framtíð bjarta...Góðra stunda, auk vinabanda og endurfunda...

Eigið góðan dag og syngið skemmtilegt lag...

josira.

p.s. Að lifa í lukku, en ekki í krukku...í þessum orðum má finna mikinn sannleik...

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

josira
josira

Orðin... Pára með penna á óskrifað blað, orðin um hugann renna. Með suð í eyra ég skrifa það, sem ég fæ að heyra. Hvaðan þau koma veit ég ei, en í höfði mínu óma. Líkt og eilífðin, sem gefur frá sér tóna og um himnasali hljóma.

Lítil síða lítur dagssins ljós... Hér hef ég hugsað mér að skrifa um allt og ekkert ... eða bara það sem mig langar til hverju sinni ... Vertu velkomin(n) kæri ferðalangur... í heimsókn hingað, þar sem þú hefur nú fundið vegaslóðan minn litla, í netheiminum stóra ...

 

Lyngrósin Ljóðin mín

Josiraice youtube ljóð og tónlist

Rósin Eldri heimasíða, sem ég get ekki uppfært lengur, en læt hana fylgja hér með.  (Hún virkar einungis í gegnum Internet Explorer)

Light Bearer -poem - josira 

Guðrún Lilja; mánadísin, mín eldri dóttir og Ljóðin hennar

Nýjustu myndböndin

Movie

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband