Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Það snjóar ... og snjóar

Mikil og langvarandi fannkoma hefur hjúpað landið hvítum vetrarfeldi undanfarnar vikur og ekki er enn vitað fyrir víst, hversu lengi það mun vara.

TERRA_090202_1255

Hér er að sjá uppl. um veður og færð um landið ;

Sjálfvirkar veðurstöðvar Vegagerðarinnar

Vefmyndavélar Vegagerðarinnar

Færð um land allt

Snjódýpt

Ýtrustu aðgát þarf að sýna víða nú um landið vegna aðstæðna.

Biðjum máttarvöld og landsins verndarvætti um vernd fyrir byggðir þær og íbúa, sem eru á hættusvæðum snjóflóða, sem og annars staðar.  

 á veðurstofu Íslands er;

  • Óvissustig vegna snjóflóða - Norðanverðir Vestfirðir, Norðurland.

  • Hættustig vegna snjóflóða - Ísafjörður.

  • Viðvörun - Búist er við stormi (meira en 20 m/s) á NV-verðu landinu. Gildir til 26.01.2012 18:00 Meira

  •  

    snjomokstur_kop

    Búum okkur vel og förum eins gætilega og unnt er á ferðum okkar á þessum erfiðu vetrarfærðar dögum. 

    Nokkrar glugga myndir mínar er hér að sjá, en þær tók ég nú um hádegisbil í Kópavoginum.

    25jan2012 002

    25jan2012 003

    25jan2012 005

    25jan2012 010

    25jan2012 013

    25jan2012 009

    25jan2012_7

    25jan2012_11

    25jan2012_13

     Öll él styttir upp um síðir.

     

    josira

     


Ægifegurð norðurljósanna ...

með dansandi litadýrð sinni, heilla og fanga manns hug og hjarta. Við Íslendingar erum ein af þeim þjóðum, sem svo lánsöm eru að fá að líta augum þessa dásamlegu dýrð himinhvolfsins við rétt skilyrði náttúrulögmálanna.

Og ekki laust við að sál manns fyllist af lotningu við andartaksins sjón og skynjun á síbreytilegri lögun og litum þessara fögru sköpunarkrafta náttúruljósanna í hvert skipti, sem maður fær að njóta þeirra.

article-1387993-0C1D1CEC00000578-655_964x525

Þessi einstaka mynd hér að ofan er tekin við Jökulsárlón af Stephane Vetter.

Myndin var valin í fyrsta sæti hjá

National Geographic 2011 í flokki "Beauty of the Night Sky"

Fegurð næturhimisins (mbl)

Nordurljos_OA_251011

Þessa sérstöku mynd tók Olgeir Andrésson við Reykjanes

Af hverju stafa norður- og suðurljósin? (vísindavefurinn)

Sjást norðurljós í kvöld ? (stjörnufræðivefurinn)

Aurora Borealis (wikipedia)

Northern lights (myndir af vefnum)

Norðurljósamyndir (af vefnum)

Norðurljósa - upplýsingavefur

Beautiful Arora

Northern Lights, Galena , Alaska. Aurora Borealis

200px-Aurora_australis_20050911

og ekki má gleyma suðurljósunum, sem minna er talað um.

Fegurð lands, ljóss og lita er allsstaðar að finna.

Hér er að sjá fallegt myndband frá Djúpavogi. 

Sólroði við Djúpavog (Andrés Skúlason)

 

595Ranga_ljos

Norðurljós á Rangárvöllum við Hótel Rangá

Litadýrð norður-og suðurljósana minna einnig á litróf regnbogans.

Regnboginn ... og lífsins verkefni (eldri bloggfærsla mín)

Hvernig myndast regnboginn ? (vísindavefurinn)

Mikið megum við, sem höfum sjón vera þakklát fyrir og að geta notið þess.

 

josira

(er búin að vera í smá veseni með línubil, hætt við að reyna fleiri lagfæringar) 


Víða liggja leiðir forsetahjónanna ...

Það hefði eflaust verið gaman, fyrir Ólaf og Doritt að enda Kaupmannahafnar - hátíðarhaldanna saman.

Olafur_Ragnar_og__Dorrit

En stundum þarf að skipta liði, því oft er forseta – dagskráin ansi þétt.

Forsetahjónin Ólafur og Doritt hafa vel verið landi og þjóð til sóma í forsetatíð sinni. Hérlendis, sem og erlendis, alþýðleg, yndisleg og víðsýn ásamt því, að hafa staðið við hlið fólksins í landinu á ögurstundum.

Góðar manneskjur, verðugir þjóðhöfðingar, sem gjarnan mættu áfram sitja í forsetastól næsta kjörtímabil. En segja má þó, að viss eigingirni felist í þeirri ósk, því þau eru jú venjulegt fólk, sem eflaust hafa löngun til, að geta verið bara þau sjálf og notið meiri tíma saman með fjölskyldum sínum, en þau hafa getað leyft sér hin síðustu ár.

Og þegar þau hjón væru ekki lengur bundin skyldum og hefðum forsetaembættisins, myndi t.d. starfsorka og geta þeirra beggja til að sinna ýmsum málefnum í þágu þjóðarinnar nýtast enn betur ef hugur þeirra og vilji lægi í þá átt.

Ýmsir atburðir úr dagskrá forseta; http://www.forseti.is/Dagskraforseta/Urdagskra2012/

josira 


mbl.is Þurfti að sleppa hátíðarkvöldverði til að mæta á heimsþing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Megi það byrja með mér – Myndbandið

 

3416

Okkar einlægi Páll Óskar, samdi lag fyrir UNICEF ásamt lagahöfundunum í Redd Lights eftir dvöl hans í Afríku.

Mynd_1077610

 

 

AFRIKA_BEGGI_047_1_JPG_800x1200_sharpen_q95

Páll Óskar annar maður eftir Afríku (viðtal-Fréttatíminn)

Páll Óskar; ég er breyttur maður ( viðtal- DV)

Kvartar aldrei framar (viðtal-DV)

Við getum breytt heiminum; Páll Óskar og Halldóra (viðtal-Visir)

Unicef (fréttir um rauða nefið)

 

m_and_d

 

 Framlag Páls Óskars og hugsun til hjálparstarfs Unicef er virðingaverð.

Og texti hans við lagið " Megi það byrja með mér " 

finnst mér vera tímalaus og eiga við á öllum sviðum lífsins í bráð og lengd.

 

m_butterfly

 

Að læra að þekkja sjálfan sig og takast á við kosti og galla sjálfs síns í gleði og sorg lífsins er mesta verkefni sérhvers manns.

 

josira

 


Janúar og þrettándagleðin ...

 

Threttandagledi-Reykjanesb09

3659_master

Síðasti dagur jóla eða þréttándin eins og við köllum hann, verður nú eitt árið enn, kvaddur í dag og í kvöld víða um land með tilheyrandi blysförum, álfabrennum, tónlist, söng, álfakóngum og drottningum ásamt álfum, púkum og jafnvel einstaka trölli, ásamt Grýlu, Leppalúða og jólasveinum.

threttandi_2001_(60)

Threttandi

Threttandinn_640_01

troll

Sagnir, þjóðtrú og siðir um þrettándann og nýjársnótt svipar oft saman, sagnir eins og að kýr öðlist mannamál og um vistaskipti álfa og huldufólks.

Threttandinn_7

trettgledi8

ff63d3d4-e5e0-4bea-891c-9197f2290a4d_MS

20110105130822650158Alfagledi3

Og llitfagrir flugeldar lýsa upp skammdegið.

Mynd_1113036

flugeldar

Og á meðan öll þessi gleði okkar fer fram, megum við ekki gleyma að gæta varúðar í meðferð flugelda og blysa, fara gætilega í hálkunni, athuga með færð og veður og alls ekki gleyma að huga að dýrunum okkar stóru og smáu líkt og á við um sérhver áramót. Flest þeirra hræðast ýlurnar og sprengingarnar í flugeldunum.

  farm-animal-set

þrettándagleði 2012 ; Dagskrá víða um land

 

Þjóðsögur og ævintýri í stafrófsröð ( af síðu snerpu)

 

regnbogalitir tunglssins

Jólatunglið er tunglið sem er í sama tunglmánuði og þrettándinn.

Það er gömul trú að sé tunglið vaxandi á jólum verði næsta ár gott en sé þessu öfugt farið og tunglið sé þverrandi megi búast við slæmu ári. Um slíka hjátrú vitna þessar gömlu vísur:


Hátíð jóla hygg þú að;
hljóðar svo gamall texti:
Ársins gróða þýðir það,
ef þá er tungl í vexti.

En ef máni er þá skerður,
önnur fylgir gáta,
árið nýja oftast verður
í harðari máta.

Saga dagana- Þjóðminjasafnið

Ferlir/Veðursteinn

"Veður hefur alltaf verið til, a.m.k. hér á landi. Forfeðurnir voru fljótir að læra á veðrið. Til eru fjölmargar sagnir af veðurlýsingum, veðurnefnum, þjóðtrú og hjátrú tengdri veðrinu, viðureignasögum, óveðurssögnum og veðrahörkum, en einnig góðviðrislýsingum, breyttu veðurfari og áhrif þess á mannlífsgróandann."

Veðursteininn á Sólheimum í Grímsnesi 

um januarmánuð á wikipediu

Mörsugur var janúar nefndur, að hluta til í gamla íslenska tímatalinu

 January-The Month of Janus

Í fornri rómverskri trú og goðafræði er Janus guð upphafs og umbreytinga. Einnig hurða, hliða, endingar og tíma.

Janus-Vatican 

 "Nú er janúar, fyrsti mánuður ársins, genginn í garð. Hann hófst með nýársdegi sem til forna var stundum kallaður áttidagur en það þýðir einfaldlega að hann er áttundi dagur jóla.

Janúarmánuður heitir eftir Janusi, rómverskum guði, sem var sérstakur fyrir þá sök að hann hafði tvö andlit. Sneri annað fram og hitt aftur en það er hagnýtt fyrir heimilisguð og vísar til þess að hann sér um heima alla og ekkert kemur honum á óvart.

Hann táknar þannig upphaf og endi alls, nútíð, fortíð og framtíð. Janus gætti dyra á híbýlum fólks og af nafni hans er enska orðið „janitor“ dregið eða dyravörður. " (af síðu námsgagnastofnunar)

Gaman er að geta þess að hér á landi er öflug og breiðvirk starfsemi til uppbyggingar og endurhæfingu með nafni Janusar.

27d983df805c02fcff4d713ee05ffd92

Hugmyndafræði merkis Janusar endurhæfingar

Fróðlegt er að vita eitthvað um aðra mánuði árssins. 

 horoscopewheel

Mánaðarnöfnin

mánuður

 hin gömlu mánaðarnöfn,

og að endingu sitthvað um stjörnumerkin

josira


Æskuljómar lands og þjóðar ...

með Ísold Ylfu í broddi fylkingar toppuðu áramótaskaupið 2011, með kraftmiklu og grípandi lokalagi sínu.

 

Texti lagsins er stórgóður og kallar á að draumurinn um hið nýja Ísland, fari að rætast. sem byggist á góðum mannlegum grunni, með kærleik í hjarta og framtíð bjarta þar sem raunsæ stjórnun, samkennd, mannfrelsi, friður og réttlæti á að ríkja, en óstjórn og svik að víkja.

Og munum eftir, að það er ungu afkomendurnir okkar og landsins æskuljómar, sem síðar munu halda um  stjórnartauma lands og lýðs.

Eldri skrif mín um litlu afleggjarana okkar

Christmas-2011-New-Year  Surprising-New-Year-2012-Wallpapers-to-Make-Awesome-Christmas-Celebration_5

Lokalagið 2011 ásamt áramótaskaupinu og eldri skaupum er hér að finna.

josira


mbl.is Leikkona, söngkona og dansari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Draumur fyrir fannfergi ?

Draumar eru eins misjafnir og mennirnir eru margir. Suma dreymir mikið á meðan aðrir segast aldrei dreyma neitt. Ég held samt að allflestum dreymi eitthvað sérhverja nótt, þó ekki sé ætíð munað eftir.

fantasy-dream-wallpaper-10

dream 

Stundum kemur fyrir, að mig dreymir það mikið, að ég vakna yfir mig þreytt. Er þá búin að vera á ferð og flugi um draumheima og farið ansi víða. Síðan koma rólegar og draumlitlar nætur. Oftast er ég minnug á hina ýmsu drauma mína. Og stundum kemur það fyrir að í gegn um þá hefur mér borist ýmis vitneskja. Stundum segi frá þeim, mínum nánustu og margt eitt hefur komið þar fram. Skemmtilega oft fæ ég t.d. að vita ef von er á nýjum meðlimum í fjölskyldunni. Jafnvel á fyrsta eða öðrum mánuði meðgöngu.

Undir morgun í gær 28 des. vaknaði ég við draum. Man ég aðeins bláendann á honum, en hann var á þá leið, að gamall bóndi, sem ég eitt sinn var ráðskona hjá í Fljótshlíðinni, Guðmundur á Kvoslæk, kom til mín og bað mig um að fara ásamt annari dóttir minni ( man ekki hvor þeirra var) austur og athuga hversu margar af kindunum hans hvítu hefðu skilað sér til byggða. (En Mundi gamli kvaddi þetta jarðlíf fyrir allmörgum árum síðan.) Fannst mér síðan, að við værum staddar mæðgurnar í réttum, þó ekki alveg viss, en þarna var allavega margt af fólki og fé saman komið.

Þegar ég var komin á ról í gærmorgun var ég eitthvað að hugsa um drauminn og ákvað að ath. með einhverja merkingu í honum og datt í hug að eitthvað hlyti það að vera í sambandi við kindurnar. Ekki fann ég draumráðningabókina mina, þannig að ég vatt mér á netið. Nafnið Guðmundur er fyrir góðu. og á síðu draumur.is er þetta að finna um sauðfé;

" Að dreyma sofandi kindur er fyrir söknuði. En ef þú átt í einhverjum erfiðleikum og þig dreymir sauðfé á beit, mun fljótlega birta til. Ein og ein kind er fyrir örðugleikum. Að rýja kindur er fyrir peningum. Margar hvítar kindur eru fyrir snjókomu."

6615_meirisnjor2

4c0ed93eYUwJwmMI

Datt mér þá í hug að kannski færi að snjóa allverulega í Fljótshlíðinni eða fyrir austan fjall. En ég sé nú, að væntanlega hefur þetta átt við Suðurlandið allt, samkvæmt fannferginu nú síðasta sólarhring hér á höfuðborgarsvæðinu. Eða jafnvel á landinu öllu.

Síðan er þá kannski spurning um hversu lengi snjórinn verður eða hvort það verði snjóléttur eða snjóþungur vetur. (náði ekki að telja féð, vaknaði áður)

Í dag varð mér eitthvað hugsað til og mundi eftir að þann 16 mars er Gvendardagur svokallaður. Spurnig hvort hinn hvíti vetrarfeldur hjúpi landið fram í miðjan mars ?

TERRA_090202_1255

En hver veit, það kemur ekki í ljós fyrr en með vorinu hvernig veturinn verður (varð) hjá okkur.

c_documents_and_settings_johanna_my_documents_my_web_sites_heimsida-bland_heimasida_rosin_fl_horse_562440

(lítið gamalt ljóð eftir mig)

Draumurinn.

Kemur kvöld, er hallar að degi
dásemd það er, satt það segi.
Svífandi um í draumalöndum,
frelsisfjötra leysi úr böndum.

Ber mig um víðann völl
veröld vitja, kot og höll
Hafið hitti, upp fjallið fór
farkostur minn, er vængjaður jór.

josira

 

 


Rúnir ... að fornu og nýju

Rune_Stones_Amozonite

Eitthvað varð mér hugsað til rúna nú og ákvað til gamans, að setja hér inn nokkrar fróðlegar slóðir, sem ég fann tengdum þeim.

Rúnir hafa fylgt okkur íslendingum, svo og öðrum þjóðum öldum saman. Að vísu hafa þó einungis tæplega hundrað rúnaristur fundist á Ísland.

Ein sú elsta rúnarista, sem fundist hefur á Íslandi frá söguöld er spýtubrot, sem fannst í Viðey 1993 og er að öllum líkindum frá 10. eða 11. öld.

runir_090107

„Hins vegar eru fjölmörg dæmi um rúnir og rúnanotkun í Íslendingasögunum, til dæmis í Egils sögu Skallagrímssonar og Sturlungasögu. Varla er hægt að draga aðra ályktun en að rúnir hafi verið álíka mikið notaðar á Íslandi á söguöld og annars staðar á Norðurlöndum.Rúnir voru að sækja á hug minn nú, þannig að ég ákvað til gamans að taka saman nokkrar slóðir tengdum þeim.“ (fengið af wikipediu)

250px-Anglosaxonrunes_svg

(Engilfrísísk rúnaröð)

Rúnir og munnleg geymd,

Af hverju hættu Íslendingar að nota rúnir

Saga rúnanna og merking þeirra

Galdratákn guðanna

Rúnir og rúnagaldrar

Á Víkingaöld notuðu menn rúnaletur og

var letrið rist á horn, tré og steina.

Myndaniðurstöður um rúnir

Í dag er eru ýmis handverk tileinkuð rúnum;

thubrunarkerti  V__kingar__na_hr_4ae586fa4ea5e_90x90  Silfurh__lsmen_m_4ae5819f21acb_90x90

Víkingahandverk ;

(hringir, hálsmen, nælur og fl.)

Töfrar rúnanna

 Rúnir og kerti

Kertasmiðjan – rúnir

Spárúnir-Betra líf

Spárúnir Töfrakvenna

Rúnaspil ýmiskonar

Runes, alphabet of mystery 

Hvernig lítur nafnið þitt út í rúnaletri  ?

MagieRunesP

 The Power of the Runes,

 fyrstu spáspilin, sem ég eignaðist fyrir rúmum áratug,

sem og eru í miklu uppáhaldi hjá mér.

josira

(smá vesen með línubilin)


Tími til kominn ...

 

að fá jákvæðar fréttir af atvinnuuppbyggingu á Vestfjörðum. Gleður mitt hjarta. Hvert og eitt starf er verðmætt.

kort_1.gif  

Eldri bloggskrif mín um þessi mál.

 

 

 

 

 

 

josira


mbl.is „Sannkölluð vestfirsk stóriðja“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

josira
josira

Orðin... Pára með penna á óskrifað blað, orðin um hugann renna. Með suð í eyra ég skrifa það, sem ég fæ að heyra. Hvaðan þau koma veit ég ei, en í höfði mínu óma. Líkt og eilífðin, sem gefur frá sér tóna og um himnasali hljóma.

Lítil síða lítur dagssins ljós... Hér hef ég hugsað mér að skrifa um allt og ekkert ... eða bara það sem mig langar til hverju sinni ... Vertu velkomin(n) kæri ferðalangur... í heimsókn hingað, þar sem þú hefur nú fundið vegaslóðan minn litla, í netheiminum stóra ...

 

Lyngrósin Ljóðin mín

Josiraice youtube ljóð og tónlist

Rósin Eldri heimasíða, sem ég get ekki uppfært lengur, en læt hana fylgja hér með.  (Hún virkar einungis í gegnum Internet Explorer)

Light Bearer -poem - josira 

Guðrún Lilja; mánadísin, mín eldri dóttir og Ljóðin hennar

Nýjustu myndböndin

Movie

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband