Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
17.6.2011
Dagur þjóðarinnar og draumar ...
Þjóðhátíðardagurinn okkar ... 17 júni
josira
![]() |
Draumur Jóns um stjórnarskrá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 15:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.6.2011
Þjóðhátíðardagurinn okkar ... 17 júni
Til hamingju kæra þjóð, með þennan fallega þjóðhátíðardag okkar íslendinga, 17 júni.
Sem einnig er fæðingardagur Jóns Sigurðssonar frá Hrafnseyri við Arnarfjörð, fræðimanns, frumherja og brautryðjanda fyrir land og þjóð, kallaður forseti " Óskabarn Íslands, sómi þess, sverð og skjöldur " Og í dag eru nú 200 ár frá því hann fæddist.
Stöndum ætíð vörð um landið okkar verðmæta, láð þess og lög.
Hér má fræðast aðeins um þann merka dag, í lífi litlu, en stórhuga þjóðarinnar 17 júni 1944.
Saga Íslenska Lýðveldissins á vef. ruv.
Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sem gildi tók 17. júní 1944
Embætti forseta var stofnað með lýðveldisstjórnarskránni
Lýðveldisstofnunin . Saga Íslenska fánans og skjaldamerkisins .
Og úr " Söngvum helguðum þjóðhátíðardegi Íslands 17. júní 1944"
Hver á sér fegra föðurland
Hver á sér fegra föðurland,
með fjöll og dal og bláan sand,
með norðurljósa bjarmaband
og björk og lind í hlíð?
Með friðsæl býli, ljós og ljóð,
svo langt frá heimsins vígaslóð.
Geym, drottinn, okkar dýra land
er duna jarðarstríð.
Hver á sér meðal þjóða þjóð,
er þekkir hvorki sverð né blóð
en lifir sæl við ást og óð
og auð, sem friðsæld gaf?
Við heita brunna, hreinan blæ
og hátign jökla, bláan sæ,
hún unir grandvör, farsæl, fróð
og frjáls - við ysta haf.
Ó, Ísland, fagra ættarbyggð,
um eilífð sé þín gæfa tryggð,
öll grimmd frá þinni ströndu styggð
og stöðugt allt þitt ráð.
Hver dagur líti dáð á ný,
hver draumur rætist verkum í
svo verði Íslands ástkær byggð
ei öðrum þjóðum háð.
Svo aldrei framar Íslands byggð
sé öðrum þjóðum háð.
Höf: Hulda skáldkona ( Unnur Benetiktsdóttir Bjarklind )
LAND MÍNS FÖÐUR
Land míns föður, landið mitt,
laugað bláum straumi,
eilíft vakir auglit þitt
ofar tímans glaumi.
Þetta auglit elskum vér,
ævi vor á jörðu hér
brot af þínu bergi er,
blik af þínum draumi.
Hvíslað var um hulduland
hinst í vestanblænum,
hvítan jökul, svartan sand,
söng í hlíðum grænum.
Ýttu þá á unnarslóð
Austmenn, vermdir frelsisglóð,
fundu ey og urðu þjóð
úti´í gullnum sænum.
Nú skal söngur hjartahlýr
hljóma' af þúsund munnum,
þegar frelsisþeyrinn dýr
þýtur í fjalli og runnum.
Nú skal fögur friðartíð
fánann hefja ár og síð,
varpa nýjum ljóma' á lýð
landsins sem vér unnum.
Hvort sem krýnist þessi þjóð
þyrnum eða rósum,
hennar sögur, hennar ljóð,
hennar líf vér kjósum.
Ein á hörpu íss og báls
aldaslag síns guðamáls
æ hún leiki,ung og frjáls,
undir norðurljósum.
Höf; Jóhannaes úr Kötlum
Síðan er hér stórgóð grein eftir, Jón Aðalstein Jónsson, sem segir allt, sem segja þarf um framtíðarsýn Íslands. Gleðilega Þjóðhátið (mig dreymir líka)

Ég vil fara að sjá að draumurinn um hið nýja Ísland, fari að rætast. sem byggist á góðum mannlegum grunni, þar sem, raunsæ stjórnun, samkennd, mannfrelsi, friður og réttlæti á að ríkja, en óstjórn og svik að víkja.
Eigið góðan dag, sem og alla aðra.
josira
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 15:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.6.2011
Draumsýn ...
Vaknaði í fyrrinótt við draum, sem situr í mér. Man ég þó einungis bláendann á honum, sem er á þessa leið;
Mannmergð er að berjast fyrir lífi sínu í ölduróti vatns eða sjó, Birtist þá stærðarinnar blóm yfir höfði þeirra, sem geislaði ljósi-ljóma frá sér. Fannst mér í augnablik svona í fjarlægð séð, að þetta væri rós, en samstundis breyttist hún í Lótusblóm. Vatn streymdi undan Lótusblóminu niður yfir fólkið. Og reyndi fólkið, sem lengst var frá, að synda að því.
Það einkennilega var, að ég sá gleði og bros færast yfir andlit fólkssins, við þetta. Líkt og óttinn, sem áður hafði heltekið þau, hefði verið svipt í burtu.
Og þarna vakna ég.
Þegar ég fer að hugsa um hvaða merking gæti legið í draumnum þá finnst mér, að sýnin hljóti að tengdist til austurlanda. Því lótusblóm eru mikil tákn (symbol) og samofin menningum landanna í austri.
Það leiddi huga mínum að hvort flóðalda-bylgja væri að fara að skella á eða yfir svæði þar, en að allflestu fólkinu yrði bjargað.
Samt finnst mér jafnvel önnur merking liggja að baki draumnum. Gæti aukin vitundarvakning verið á leiðinni til vestus frá austri, sem ljósi lýsir á lífssins veg í ölduróti hugans. ! (sem stillir strengi, gleði gefur og veitir von hið innra)
Á vissan hátt má segja, að í hinum vestræna heimi, sé undirliggjandi bylgja til breyttra lífshátta og lífsviðhorfa nú þegar hafin, sem leitt hefur til hollari og heilbrigðari lífsstíls á marga vegu.
Sem og tel ég, að megi rekja til aldagamalla austrænna hefða, sem þekking liggur í til jafnvægis hugar, sálar og líkama, sem og leiðir til vitneskju og vitundar manna um sjálfa sig og tilgang lifs síns, hverju sinni.
Að læra að þekkja sjálfan sig og takast á við kosti og galla sjálfs síns í gleði og sorg lífssins er mesta verkefni, sérhvers manns tel ég vera.
Hér má lesa um merkingu rósar, lilju og lótusblóma; (enska) Bjöguð ís. þýðing frá google;
josira
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 12:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.5.2011
Íslands náttúra ...
Langaði að deila með ykkur á þessum sólríka degi, fallegum myndum og kynningu á landinu okkar fagra.
(á ensku reyndar)
josira
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 16:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.5.2011
Mær og mynd ...
Mærin hin mjóa
mynd tók af Spóa
spratt þá upp Lóa
langt út í móa.
ég elska þegar vorið og sumarið kemur, gróandinn með græna litinn
og fuglasönginn, sem fagurlega hlómar um allt.
það yljar hug, sál og líkama.
josira
30.5.2011
Enn einir kjarasamningar í höfn ...
Vona þó að ekki munu fylgja allsskonar verðhækkanir á vöru og þjónustu i kjölfarð, líkt og ætíð hefur verið. Og kaupmáttur rýrni um leið.
Einnig á að fylgja 50 þús. kr. eingreiðasla á árinu ef um semst. (meiriháttar uppbót jöfnun ) á t.d. húsalánin, sem hækka um hundruð þúsunda á ári hverju, sí hækkandi orkuverði, eldneytishækkana og lengi má áfram telja.
Og ekki má gleyma 38.000.- eingreiðslu þann 1. mars 2014 fyrir þá sem eru í fullu starfi í janúar 2014 og hlutfallslega fyrir þá sem eru í hlutastarfi. (eða þannig)
Talað er um að kjarasamningar almennt nú séu nokkuð góðir, en
hefði ekki verið meira vit, að í eitt skipti fyrir öll að semja á öðrum grunni, t.d. að;
Lágmarks mánaðarlaun yrðu 200.000 þús.
Skattleysimörkin í 200.000 þús. þau eru nú kr. 123.419 (tala tekin á rsk.)
Afnema tekjutengingar á miðjuvæginn og þar undir.
Verðstöðvun í einhverri mynd um ákveðin tíma.
Lækka bankavexti.
Afnema verðtrygginguna.
Allavega finnst mér nú og til margra ára að þessi úrræði yrðu til bóta með afkomu og kaupmátt almennings og myndi vera góð spor í átt að útrýma fátækaragildrum, sem hér hefur varað um of langan tíma. (einnig fyrir hrun)

Læt fylgja hér með stórgóða grein, sem ég var að rekast á, eftir Ævar Rafn Kjartansson (áhugaverð skrifin, þessa kjarnyrta manns,)
josira
![]() |
SFR og ríkið sömdu í nótt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 12:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
We are all the same, we are all affected by the way
Þetta myndband segir ýmislegt undir áhrifum hvaða fótspora, við fetum okkar leið, mannkyn í dag.
Allavega ekki er annað hægt, en að hugleiða hvort ekki séu þarna nokkur sannleikskornin að finna !
Þennan fallega sunnudagsmorgun ætlaði ég nú að senda einhver falleg orð og myndir inn í daginn en þetta myndband rak á fjörur mínar, rétt í þessu og ákvað ég að leyfa þvi að fljota hér inn og opnast ..
josira
(p.s. á í mesta basli með síðueiningarnar hér á síðunni, nú um tíma, stundum hoppa þær yfir allt v/meginn. - kannast einhver viðþetta vandamál ? )
24.5.2011
Vefmyndavélar víða um Ísland ...
Gott að geta skoðað svona í beinni, hina og þessa staði eftir þörfum á landinu. t.d. veður og færð.
Var að vafra um netheima og leita að vefmyndavélum og ákvað að setja slóðirnar, sem ég fann á bloggsíðuna mína til vinstri undir Tenglar... svona til að safna þeim saman ... og hafa af því gagn og gaman ...
Vefmyndavélar Mílu
- Bláa Lónið
- Reykjavíkurtjörn
- Eyjafjallajökull frá Þórólfsfelli
- Jökulsárlón
- Gullfoss
- Austurvöllur
- Eldgos í Grímsvötnum
Á Youtube er að sjá ýmis myndbönd frá gosslóðunum ...
Læt fylgja hér með myndband um fæðingu Venusar á Austurvelli s.l. laugardag rétt áður en gosið hófst.
josira
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 23:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
finnst manni hálf óraunverulegt hér í höfuðborginni. Í vegalengdum er stutt á milli landshluta, örfáir klukkutímar, en nú er sem suðaustur, norðaustur og austurhlutar landsins, sé í fjarlægu landi. Svo ólíkar eru aðstæðurnar.
Aska og mistur liggur um á Kirkjubæjarklaustri og nágrenni og nokkrir íbúanna hafa hafa yfirgefið gossvæðið. Vonandi aðeins um stuttan tíma. (sendum bæn til æðri máttarvalda um rigningu á svæðið)
Og eins og segir á fréttavef ruv; Vetrarríki og ófærð er víða á Norðaustur-og Austurlandi. Fjallvegir eru ófærir eða þungfærir og skafrenningur og hálka víða á láglendi. Og á vef mbl; Hér hefur snjóað í marga daga á Seyðisfirði
Það má með sanni segja að við lifum í landi andstæðna, landi elds, íss og vatns...
Ég er þess fullviss að hugur og hjörtu allra landsmanna, eru með fólkinu fyrir austan og það hjálpar meir en við vitum.
josira
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 10:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.5.2011
Fréttirnar af elgosinu í Grímsvötnum ...
minntu mig á eldgosalagið með Matta Matt og Erlu Björk, þó sungið sé þar um Eyjafjallajökul.
josira
![]() |
Stærsta gos sem Ómar hefur séð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 13:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tenglar
ÝMSAR JÓLAVEFSÍÐUR
- Jólin-Þjóðminjasafnið jólasíður Þjóðminjasafnið
- jólavefur Júlla á Dalvík fullt af fróðleik um jólin
- Jólavefur Valla, sem geymir marga aðra jólavefi fjölbreytur jólavefur
- jóla-og áramótavefkort ýmis önnur vefræn tækiæriskort
BLANDAÐAR ÁHUGAVERÐAR VEFSÍÐUR
- LJÓSMYNDAKEPPNI Canon og mbl.
- VILTU VITA MEIRA Leiðsögn með lestri .. Sigríður Svavars - Leiðbeining - heilun- fyrirbænir
- ÓMAR RUN - Ljósmyndir Magnaðar myndir
- MADDÝ - Ljósmyndir Meiriháttar myndasmiður
ÝMSAR VEFMYNDAVÉLAR
- Nýjar Íslands vefmyndavélar Frábærir tenglar hérlendis og erlendis
- Vefmyndavélar - Vegagerðin - Suðausturland
- Vefmyndavélar víðs vegar um Ísland
VEÐUR - FÆRÐ - LOFTSLAG
LANDSBYGGÐIN LIFI...
- BETRI BYGGÐ UM LAND ALLT...
- LANDAKORT.IS Frábær síða um Ísland; m.a. Góðar upplýsinga-og þjónustusíður-Vefsjár sveitafélaga-Fjölbreytt efni um ferðamál og ferðalög á Íslandi.
- ICELAND WORLDWIDE Iceland, the land of the midnight sun, is becoming a favorite with those who seek adventure and freedom. Be it nature, sagas, geology or people that interest you, Iceland is the place to go
ÍSLENSK TÍMARIT ALLT FRÁ 1696 -
- FRÁ FYRSTU TÍMARITUM LANDSSINS TIL DAGSSINS Í DAG Ýmislegt að skoða ..
FRÁ A-Ö...
- TRÚARBRÖGÐ HEIMSSINS...
- VÍSINDAVEFUR H.Í Að vita meira og meira .
- ALMENNINGSBÓKASÖFN LANDSINS
- WIKIPEDIA
- BÓKASÖFN LANDSINS
TÆKNI og VÍSINDI
FJÖLBREYTTIR ÞÆTTIR...
- ÍSLAND Í DAG
- KASTLJÓS
- N4 SJÓNVARPSSTÖÐ NORÐAN HEIÐA
- GAMLA ÍNN TV SJÓNVARPSSTÖÐIN
- HRINGBRAUT SJÓNVARPSSTÖÐ
MATSELD
- MATARBLOGG SOFFÍU gómsætir réttir af öllum stærðum og gerðum...
- UPPSKRIFTIR SOLLU
- MARGAR MATAR UPPSKRIFTARSÍÐUR Eflaust eitthvað gott að finna ..
- KÖKUR OG EFTIRRÉTTIR Án hveiti sykurs og ger
- GULUR,RAUÐUR,GRÆNN OG SALT Hráfæði
HJÁLPARSTOFNANIR...
Fibromyalga...vefjagigt
Blekking í þjóðfélaginu...
Blekking í þjóðfélaginu...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 102
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 52
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2014
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði