Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Reynir líkaminn að tala til okkar í gegn um kvilla og sjúkdóma ?

meditationenergy

Verðugt umhugsunarefni með tilliti til orkustöðvanna og virkni þeirra í líkamanum. Er jafnvægi á þeim - of mikil virki eða of lítil virkni ?

Svo mörg áhugaverð skrif er að finna um þessi efni á veraldarvefnum, að ég læt fylgja hér með nokkrar slóðir fyrir þá er áhuga hafa að kynna sér þessi gömlu merku fræði um líkamann.

117

Einnig þær leiðir, sem hugsanlega er hægt að fara með því að skoða vel og vandlega hvað er að gerast í lífinu og tilverunni, sem er að orsaka t.d. stíflur í orkustöðvunum og þá hvernig hægt er að koma jafnvægi þar á. ( það neikvæða og það jákvæða ) í hverri orkustöð og hvaða líffærum þær tengjast. 

Sannað þykir t.d. að langvarandi innri tilfinninga togstreita getur valdið kvillum í líkamanum, sem síðar geta orðið af sjúkdómum, sé ekki hlustað á viðvörun líkamans ; sbr. grein af vefsíðu persona.is og af vef Landlæknis Streitan er slæm fyrir æðakerfið og lengi mætti áfram telja.

Áhugavert væri fyrir hin vestrænu læknavísindi svona almennt, að fara að skoða vel þessi fornu fræði um líkamann, það er að segja t.d. orkustöðvarnar og orkubrautirnar og nýta sér þá þá vitneskju meir.

image_035

Áran og orkustöðvarnar - eftir Tinnu Maríu Emilsdóttir á vefsíðu Orkulindar, sem útskýrir þessa hluti afar vel; og t.d.hvaða steinar og kristallar, eru notaðir til heilunar;

Hvað er góð heilsa – af hverju verðum við veik ; Guðný Ósk Diðriksdóttir og Rósa Bjarnadóttir. Hómópatar, á vefsíðu Heilsubankans

Og þessa einstöku síðu var ég að finna ; Orkustöðvar líkamans og litir þeirra ; Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir á vefsíðunni Viska og gleði, þar sem einnig að finna upplýsingar um Aura- Soma olíur

208322_194188990618819_143816408989411_425463_5161726_n   

Eitt og annað um Táknmál líkamans: (hvað  kvillar og - eða sjúkdómarí líkamanum geta verið að segja okkur) Fengið á síðu Hugveislunnar  ;

Hægri hlið líkama: Karlhlið, dynamic, ganga út frá, ráðríki, sjálfsvörn, takmarkanir, fjármál, þjóðfélagsstaða, faðir/stjórnandi;sólin,yang.

Vinstri hlið líkama: Kvenhlið, þyggjandi, viðkvæmni, umönnun, verjandi, sköpun, andleg/líkamleg málefni, tunglið,yin

Yin/Yang

null

Og að síðustu er hér grein, sem Margrét Guðjónsdóttir stjörnuspekingur skrifar í MBL. í águst 1999 Litadýrð sem lýsir innri manni, sem fjallar um áhrif lita á heilsu okkar

Eigið góða helgi :-)

josira


Er að koma úr vetrarhýðinu ...

eftir frekar erfiðar vetrarvikur ... En nú kallar vorið á mann enn á ný með fuglasöngi og hækkandi sól.

rainbow-joy

Vorið

Eftir vetur vaknar vor

vængjast af lífssins mætti.

Magnast bæði þrek og þor

þroskast af Skaparans þætti.

HeavenEarth

Var að glugga í bloggið mitt hér áðan og kom mér á óvart að sjá og lesa hversu mörg þau eru orðin, orðin mín hér og hvernig þeim ægir saman út og suður.

Og hvernig þau fara um víðan völl í allsskonar óskyldum skrifum. Hef ekki hugsað út í það áður í raun og veru fyrr, en nú, hvernig ég er út um allt í hugsun Woundering og hef stundum þörf fyrir ólíka tjáningu í gegnum skrif. Það er líka bara allt í lagi, þetta samsull og stundum blessað bull er nú meira til að fá útrás fyrir allsskonar allavega hugarþanka mína.

Orðin lenda á blaði, sem fá að geymast eða þá gleymast (er hent). Sum geyma gullkorn og önnur ekki. Og einstaka sinnum koma til mín orð, sem geyma skilaboð, sem þurfa að berast áfram. (í dag er ég hætt að henda þeim heldur geymi)

Eins og t.d. 16 september 2009:

Mannkyn stendur á þröskuldi nýrra tíma, sem birtast sem ný lífsgildi, er standa þó á fornum meiði. Dyrnar standa opnar þeim er tilbúnir eru að stíga skrefin til fulls til vitneskju sannrar tilveru þeirra, í alheimslífi. Að uppgvöta og upplifa sitt innra líf. Skuggi ytra lífs mun víkja. Hulunni verður svipt af innri sýn. Og stöðvar í heilanum verða virkjaðar að nýju Og óvirkir lyklar í DNA erfðarkeðjunni verða virkir. Og opinberast þá sannleikur týndra kynslóða, sem reynt hefur verið að dylja. Og kærleiksljósið tendrast á ný. Og í loga þess er ekkert myrkur eða skuggar ótta, sem viðhalda hinum andlegu fjötrum mannsins. Kærleikurinn er aflið, orkan, krafturinn og ljósið, sem sameinar og upplýsir tilveru og markmið Almættisins, sem öllu snýr í óendanleikanum, því hann er í okkur og við í honum.”

Hvaðan skilaboða orðin koma, veit ég ei, nákvæmlega að öðru leiti en því, að mín skynjun og skilningur er að þau berast til mín á innri sviðum, frá æðri leiðbeinendum á andlegu sviðunum. 

Hversu skrítin, asnaleg, fáranleg eða einstaklega viturleg, sem fólki finnst þau vera, þá er þau hingað komin þeim til lestrar.

thirdt5

Um þessar mundir ber huga minn að blessuðu lífinu og tilgangi þess í tilverunni svona almennt. Og fór ég að leita í eldri skrif mín um þanka mína í þá veru. Ákvað allavega fyrir mig að setja bloggslóðirnar mínar hér fram, sem ég datt niður á, svo ég þyrfti ekki að vera vafra um og leita að einhverju, sem ég var ekki viss hvað væri. Því ég hef ekki hugmynd um hvað ég hef skrifað kannski fyrir margt löngu síðan.

Það verður bara forvitnilegt fyrir mig að spá og spegulera um hvað orðin hafa að segja mér. Og ef einhverjum langar að glugga einnig í þau, sem hér á leið um, er það þeim velkomið.

gds_treeoflife 

Skaparans sköpunarverk;

Andardráttur jarðarinar ... og hljóð hennar í geimnum;

Í bæn felst fegurð hugar og hjarta;

Blogghugleiðingar mínar undir flokknum trúmál og siðferði :

Hugleiðingar um kærleikann;

Leyndardómar innri sviða; 

Sálin mín;

Friðarsúlan á Íslandi;

Ljós í huga;

Orð í draumi;

Samskipti;

Hver dagur;

Ljóðin mín;

Lífsspekin mín;

Og svona að lokum að sinni, læt ég fljóta með úr eldri bloggorðum mínum um hvernig ég sé hið nýja Ísland.;

18.4.2010 Minnir eftirminnilega á sig, Litla – Stórasta land í heimi ... 

Og örlítið meir um umrót og breytingar og er ég þá að meina um afdrif gömlu þjóðarskútunnar;

shipofdreams

“ Þó löskuð sé hún blessuð þjóðarskútan er í höfn kemur, munum við samhent lagfæra hana á ný og endurbygging hennar mun hefjast með breyttu hugarfari, áherslum og nýjungum. Brydda hana síðan andlegum auðæfum okkar, sem finnast munu í gömlum földum kistlum, lengst ofan í lestum hennar, sem opnast hafa í öllu öldurótinu. Þegar að verður gáð verða þessi andlegu verðmæti það leiðarljós, sem lýsa mun hverjum og einum og þeim er það sjá og finna eða eftir leita, frá myrkri og vonleysi gamla farvegarins og inná nýjar brautir, sem gefa von í hjarta.Við munum öðlast virðingu annara úti í hinum stóra heimi fyrir samheldnina innbyrðis og skilningur á öllu óréttlætinu sem við höfum upplifað mun aukast og hjálp mun berast til okkar.”

Sendi mínar bestu óskir um að sumarið verði okkur öllum heilaríkt og heilsugott

Sæl að sinni 

josira

Bankarnir byrjaðir að bólgna út og

blómstra á ný, (af greiðslum, sem innihalda háa vextir og verðtryggingu) á meðan almúgurinn hangir enn á horreiminni ... og hefur ekki undan að borga (greiðslurnar, sem innihalda háa vextir og verðtryggingu)

Hvernig væri að bankarnir kæmu til móts við þjóðina nú og létu af hendi einhvern aur til atvinnusköpunar, myndu hjálpa til við að koma hjólum atvinnulífssins af stað.

Það vantar fé til framkvæmda og það verður að stemma stigu við þessu atvinnuleysi, sem er að fella svo margar fjölskyldur í fjötra fátæktar þar sem eignamissir og vonleysi fylgir í kjölfar þess, ásamt því að jafnvel upplausn fjölskyldna blasir við og er það sorglegast af öllu.

Einnig ættu lífeyrissjóðirnir líka að láta fé af hendi rakna í þessi málefni. Hagnaður er einnig vel sýnilegur hjá þeim .

Nema að þetta sé enn og aftur leikur talna og útreikninga, blekking, sem er frambærileg á hvítu blaði !

Er ekki einhver von um að einhverjar lausnir til betri tíðar og blómgunar í görðum almúgans, séu í sjónmáli ! Sem og hafa byggt upp og eru hinir raunverulegu eigendur lífeyrissjóðanna og þeirra peninga, sem renna í gegnum bankanna !

familylivingpicture_1038916 

Og er ekki orðið t.d. tímabært að afnema-leggja niður klækjaklónna-verðtrygginguna víðfrægu ! Það myndi hjálpa gríðalega mörgum fjölskyldum að halda í heimili sín og yrði mikil kjarabót í afkomu þess.

Og ríkið ætti einnig að koma til móts við fólkið í landinu og lækka prósentuhlutfall sitt, sem það leysir til sín í gegnum hvern lítra af síhækkandi olíu-og bensínverði.

Tökum saman höndum, gerum okkar fallega og gjöfula land manneskjulega lífvænlegt á ný.

Hættum argi, þrasi og neikvæðni.

... Eflum vonina,  Vekjum gleðina,  Virkjum kraftinn ...

josira


mbl.is Hagnaður banka jókst um 35%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já enn og aftur ...Hver á hvað og hvað er hvurs ...

Maggi þeysari með sína mögnuðu rödd, hefur sitthvað um þessi mál að syngja ;

four_people_singing

http://josira.blog.is/blog/josira/entry/1110193/   (eldri færsla)

moneypensiondrawou2

Travel%20suitcase

money2

og hvenær skyldu öll þessi blessuðu bankamál endanlega komast upp á hreint borð !

collapse-of-iceland-in-10-easy-steps1

 

josira

 


mbl.is 32 milljarða millfærslur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Líkt og sólargeislar, sem létta lund ... eru litlu afleggjararnir okkar

 

Hér er lítð ljóð, sem kom til mín eftir að ég eignaðist mitt fyrsta barnabarn, sonarsoninn Skúla Frey, en afmælisdagur hans er í dag. Hann er aldarmótarbarn, fæddur 10 mars á því herrans ári 2000.

 

Ömmustrákur

Líkt og fögur perla,
er döggin um stund.
Líkt og sólargeisli
sem léttir lund.
Líkt og augnablikið
sem líður hjá.

Þar sé ég
brosið þitt bjarta.

Að skynja fegurð
í öllu sem er
Sælli maður er sá,
sem það sér.
Innst í hjörtum
allra það býr.
Kærleiksaflið,
sem öllu snýr.

Þar sé ég
brosið þitt bjarta.

 

Skuli_Freyr2

 

 

 

lukka_vikugomul_skuli

 

 

 

SkuliFreyr_sumar1

Og litla ljóðið var ég að reyna að þýða yfir á ensku;

  
Granny’s Boy
 

Like a beautiful pearl

is the dew for a while.

Like a refulgent sunbeam

lighten up your mind.

Like a twinkling of the eye

as it passed by.

 

There I see

your brightly smile.

 

To perceive the beauty

in everything as it is.

A happier person

is the one who its sees

Inside of everyone’s heart it is,

the charity forces, who all turns.

 

There I see

your brightly smile.

   

Þessi yndislegi og efnilegi drengur er einn af mörgum ungum afkomendum þessa lands. Einn af æskuljómunum okkar, sem erfa munu landið og taka við búi þess og stjórnun í komandi framtíð. Ég get ekki neitað því að sárt þykir manni hvernig staðan er orðin hjá þjóðarbúinu í dag og að framtíðin virðist ekki sérlega björt í bili fyrir ungu afleggjarana okkar. En sameinuð getum við eldri kynslóðirnar, enn um sinn barist fyrir réttlátari og heiðarlegri þjóðfélagi og fært meiri birtu og von í farteskið þeirra.

 

 

josira

 


Velferðarþjóðfélagið hið íslenska … ef svo má segja

 

 

Ég er satt að segja alveg við það að hætta að skilja hvernig þetta blessaða þjóðfélag er rekið og skilgreint, sem velferðarþjóðfélag. Velferðin er allavega engan vegin að skila sér að stórum hluta þjóðarinnar.

Og því miður eru æ fleiri, sem bætast í hóp þeirra, sem lifa við fátækaramörk, (fátækragildru) eins og t.d. þeir, sem standa í þeim sporum, að eiga í langvinnu atvinnuleysi, vegna veikinda, vera láglaunafólk eða eru í hópi einstæðra foreldra, öryrkja eða ellilífeyrisþega.

Hvenær kemur að því, að raunhæf og réttlát gildi til útreikninga lífsafkomu og launakjara einstaklinga, sem og fjölskyldufólks komi fram og að samstilling sé á borði, en ekki einungis í orði í þeim málum.

Er ég þá sérstaklega að tala um kjör láglaunafólksins í landinu, sem svo illa hefur gengið að bæta og lagfæra í áraraðir. Og lágmarkstekju - viðmiðin hafa ætíð verið ótrúlga lág. Síðan koma allvíða, þar að auki allskonar tekjutengdir útreikningar, sem skerða.

Og nefna vil ég, hversu mikil brenglun er, að mér finnst í gangi, varðandi ýmsa launaútreikninga hjá hálaunuðum. Er það raunsætt t.d. að innheimta 35.000 kr. fyrir tímavinnu sína, eins og talað er um að skilanefndarmenn geri hjá skilanefnd og slitastjórn Glitnis ? Gaman væri að vita hver uppskriftin er af svona góðri launatertu.

 

money_cake.jpg

 

Svo ég víki nú aftur að þeim er minna hafa, þá held ég að lágmarkslaunin á atvinnumarkaðnum í dag, séu svona almennt einhversstaðar á bilinu 150.000 – 200.000. (fyrir utan skatt)

 

easily-debt-pay-off-bills-200X200  too_bad_so_sad_tshirt-p235325576082829783q08p_400

 

Hugleiðingar mínar nú, urðu hér til vegna lesturs greinar frá Velferðarráðherra Guðbjarti Hannessyni;

Fjögurra manna fjölskylda þarf 900 þúsund til að ná neysluviðmið.

" Séu báðir foreldrar fjögurra manna fjölskyldu útivinnandi þurfa báðir aðilar að afla sér 450 þúsund króna mánaðartekna að lágmarki til að standast neysluviðmið velferðarráðuneytisins upp á 617 þúsund krónur. Sé aðeins annar aðilinn í vinnu þarf sá að hafa 910 þúsund í mánaðarlaun."

"Séu neysluviðmiðin borin saman við skýrslu Hagstofu Íslands frá desember síðastliðnum kemur einmitt í ljós að hjá þeim er lægstar tekjur hafa nema útgjöldin 114,6 prósent af tekjum. Sömuleiðis duga tekjur næstlægsta hópsins ekki heldur fyrir nauðsynlegum útgjöldum. Það þýðir að helmingur íslenskra heimila á ekki fyrir útgjöldum og nær aðeins að halda heimilinu við með skuldsetningu eða með því að ganga á sparnað sé hann fyrir hendi"

Og læt ég fylgja með hér, úrdrátt og viðmið á útreikningum á

atvinnuleysisbótum hjá Greiðslustofu Vinnumálastofnunar

 Upphæð grunnatvinnuleysisbóta reiknast í hlutfalli við bótarétt:

 

• Atvinnuleysisbætur eru 149.523 kr. á mánuði miðað við 100% bótarétt.

• Atvinnuleysisbætur eru 112.142 kr. á mánuði miðað við 75% bótarétt.

• Atvinnuleysisbætur eru 74.762 kr. á mánuði miðað við 50% bótarétt.

• Atvinnuleysisbætur eru 37.381 kr. á mánuði miðað við 25% bótarétt (lágmarksbótaréttur).

Vegna framfærsluskyldu barna yngri en 18 ára eru greiddar 5.981 kr. á mánuði með hverju barni (4% af óskertum grunnatvinnuleysisbótum).

"Launamenn: Tekjutenging atvinnuleysisbóta nemur 70% af meðaltali heildarlauna og er miðað við sex mánaða tímabil sem hefst tveimur mánuðum áður en umsækjandi varð atvinnulaus.

Réttur til tekjutengingar atvinnuleysisbóta gildir í 3 mánuði samtals frá upphafi bótatímabils ef skilyrði um tekjutengingu eru uppfyllt.

Sá sem sætir biðtíma eftir atvinnuleysisbótum á ekki rétt á tekjutengdum atvinnuleysisbótum."

og frá; Tryggingastofnun ; útreikningur lífeyris og tengdra bóta - janúar 2011

"Athugið að flestir bótaflokkarnir eru tekjutengdir og tekjur skerða bætur. Tekjur teljast allar greiðslur sem skattur er tekinn af, sem dæmi; eigin launatekjur, greiðslur frá lífeyrissjóðum, fjámagnstekjur (eigin og að hluta maka), ýmsir styrkir og fleira."

Og eins og sjá má er risagjá, sem ber þarna á milli meðallaunanna og þar undir, sem flestir lifa á og neysluviðmið Velferðarráðuneytissins, sem er í takt við raunveruleikann. Og ekki skrítið, að hver fjöldskyldan af annari eigi við alvarlegan fjárhag að stríð, sem oft leiðir til vonleysis og depurðar, missi eigna og að jafnvel upplausn heimila og fjölskyldna fylgir í kjölfarið. Og til sannsvegar má segja, að lottóvinningurinn í dag er að halda vinnu.

Læt fylgja hér með eldri bloggfærslu, því enn og aftur vil ég benda á að íslensk stjórnvöld ættu að taka sér, elsta og besta borgarstjórann í Kanada sér til fyrirmyndar, hana Hazel McCallion, en hennar motto hefur alltaf verið;

að halda fólki í vinnu og sköttum lágum.

 

 

 

... Er ekki komin tími til að úrýma fátækaramörkum og stjórna af skynsemi...

Því það er ógnarstór vandamála-og vanlíðunarbolti sem hleðst oft undarlega hratt upp, á svo víðtækan máta, sem tengist hinu daglega lífi og afkomu þess fólks, sem lifir snautt við fátækramörkin (fátækragildru) Nú þyrfti STRAX að fara í breytingar á þessu úrelta launa - útreikningakerfi hérlendis. Byrja á því að ;

Koma atvinnuhjólunum af stað, hækka grunnlaun lágtekjuhópa, hækka skattleysismörkin og afnema tekjutengingar.

Reynum að fara að byggja hér upp gott velferðarþjóðfélag, á þessari dásemdar draumaeyju, sem við búum hér á og hefur í raun okkur allt að gefa til að lifa hér í sátt og samlyndi, góðu lífi.

 

 

island

 

 

josira 

 


Drekarósin ...ýmsar slóðir ...

 

 lifsgledi_m

Hér á síðu Drekarósinnar hef ég safnað saman nokkrum áhugaverðum slóðum, þar sem finna má eitt og annað sem viðkemur næringu fyrir hug, sál og líkama ...

josira 

 


Nýarskveðja ...

 

nyarskvedja2011

 

Kæru vinir og ættingjar, nær og fjær. Með hækkandi sól og birtu í hjarta, þakka ég ykkur öllum fyrir liðnar stundir, stórar og smáar.

Og sendi ég ykkur hugheilar óskir mínar um að nýja árið verði öllum farsælt, heillaríkt og heilsugott.

Megi allir góðir draumar ykkar til framtíðarinnar rætast.

 

Josira

 


Hinar ýmsu raddir fólkssins í bloggheimum ...

Langaði að deila með ykkur röddum í bloggheimum, sem til mín bárust er ég vafraði um heima þá. Þar liggur ýmislegt á hjörtum manna og tjáning margvísleg, sem og tengjast hinum ýmsu sviðum og hliðum samfélagssins  ... Raddir fólkssins í landinu, sem ráðamenn þjóðarinnar ættu að hlusta betur eftir ...

p_geese_inside 

Samráð og ekkert annað (allir sem einn) – um olíufélögin  - Reynir Lord

Hjálp til sjálfshjálpar - félagsmálastjóri kveður sér hljóðs- Sigurbjörn Sveinsson

Það getur ekki verið hagkvæmt að reka allan þennan fjölda af lífeyrirsjóðum hér á landi -Sigurður Grétar Guðmundsson  

Þörf á opinberri rannsókn  - sala á opinberum  fyrirtækjum -Guðjón Sigþór Jensson

  

Vilja sem fyrr ekki Icesave fyrir dómstóla - Hjörtur J. Guðmundsson

  

Kannast ekki við Icesave-samkomulag/svona er þetta allt uppá borði ???? - Haraldur Haraldsson

Alveg dæmalaus vinnubrögð !   - skuldavandi þjóðarinnar - Vilborg G Hansen

  

Pappírshagnaður og gjöf Seðlabankans til Magma Energy - Lúðvík Júlíusson

  

Rannsaka galla þess að afnema verðtryggingu er þess þörf? - Tryggvi Þórarinsson

Og borga svo ... - að bankarnir hafi fengið 420 milljarða afslátt af lánum heimilanna - Eyjólfur Sturlaugsson

 

1600 milljarða afföll /svo geta þeir ekki leiðrétt skuldir íbúðarlána !!!!! - Haraldur Haraldsson

  

Ekki farin almenn leið, það á eftir að verða okkur dýrt.  - Leiðrétting skulda - Tryggvi Þórarinsson

  

Vinsamleg tilmæli til allra launþega og vinnuveitanda  -  vegna komandi jóla - Kjartan Pálmarsson

  

Reiði veldur sjúkdómum sé hún ekki losuð út - Sigurður Jón Einarsson

  

Ég á mér draum  - virkt frelsi, alvöru jafnrétti og kærleiksríkan heim. - Valdimar H Jóhannesson

 

Hvað táknar að vera sannkristinn  - Mannkynið er á sameiginlegri vegferð til aukins þroska - Sigurður Alfreð Herlufsen

Einstaklingsfrelsi? Já takk!  -  Frjálslyndir Demókratar - Sævar Már Gústavsson FD

Ályktun Öryrkjabandalags Íslands 23. október 2010  - Ekkert um okkur án okkar! - Vífill, félag einstaklinga með kæfisvefn.

                                                                          

Oftast  elska ég tímann mest þegar hann er liðinn - Steinunn Helga Sigurðardóttir

Það er verið að tala um 5000 - 6000 þúsund manns í biðröðum fyrir jólin! - Guðmundur Óli Scheving

HVAR ERU GLEÐIFRÉTTIRNAR ???  - Sólveig Austfjörð 

Hneyksli  -  Lágmarkslaunin      - Pétur H

Niðurskurður og sparnaður er afstætt, og oft eru menn á villigötum ! – Anna Ola

Fréttir vikunnar: Skemmtilegar,jákvæðar og kynæsandi. –  Erling Ólafsson

null

p.s. var að taka eftir því að flestir, sem hér eru að tjá sig eru karlkyns, bæti úr því síðar með röddum knárra kvenna ...

josira


Tími til kominn - þjóðstjórn núna ...

null
 

Tími til kominn að einhverjar umbreytingar eigi sér stað hér í þessu blessaða þjóðfélagi. Þar sem kyrrstaða ríkisstjórnarinnar í atvinnumálum og afkomu fjölskyldna og fyrirtækja hefur ríkt allt of lengi og í raun löngu komið út fyrir öll velsæmismörk hve lágt ríkisstjórnin hefur beygt almúgann.

Það er ekki annað að sjá, en að útreikningar hinna ýmsu talna í hagkerfinu “ góða” stjórni í raun enn og stýri ákvarðantökum ráðamanna á þingi og má þá nefna hér t.d. fjármálafyrirtækin, sem dafna á kostnað lántakandanna, sem er verið að mergsjúga. 

Hættum að týnast í orðaskrúði ólgandi hafi, talna og orða, sem öllu virðast stjórna.

too_bad_so_sad_tshirt-p235325576082829783q08p_400

nafnávöxtun, meðalraunávöxtun, raunávöxtun, allrahanda  ávöxtun, verðtrygging, vaxtakjör, greiðslubyrði, endurfjármögnun, uppgreiðslukosnaður, greiðslustaða, stimpilgjöld, fjármagnskosnaður, vísitölutrygging, vísitöluhækkun-lækkun, eignarstýring, fjárfesting í sjóðum, fjármálamarkaðir, áhættuþol, áhættustýringasvið, innherjar, fruminnherjar, gengisþróun...og mætti áfram telja...

 moneypensiondrawou2 shake-down-money

Þetta eru allt mannanna verk, við hljótum að geta leitað ráða hjá þjóðum sem öðruvísa vinna að uppbyggingu og jafnvægi og breytt áherslum til bjargræðis. Því ekki virðist ráðamönnum hérlendis geta ráðið við loforð sín um afkomu fjölskyldnanna í landinu. Umburðarlyndi þjóðarinnar, sem beðið hefur álengdar eftir úrlausnum mála sinna á hinum ýmsu sviðum hefur í raun verið með ólíkindum.

Tími finnst mér vera kominn til, að forseti vor taki nú af skarið strax og komi á  þjóðstjórn, þó með breyttum formerkjum þannig, að ekki einhver skilgreindur meirihluti hafi valdið. 

Heldur verði skipað og valið af kostgæfni, burtséð frá hvaða flokkum hverjir tilheyra. Í hvert sæti yrði valið af yfirvegun og útsjónarsemi um hverjir væru hæfastir í hvert verkefni fyrir sig. Og unnið yrði dag og nótt, þess vegna á vöktum ef þyrfti. Engan tíma má orðið missa. Einn sem allir og allir sem einn, til bjargræðis þjóöar og lands. 

Og þess vegna mætti kalla til fólk úr röðum hinna ýmsu starfstétta og jafnvel erlendis frá ( tengsla- og venslalausa) Eitthvað verður að fara að gerast !!!

Þannig er nú mín sýn á málið. 

Reyndar er nú komin hópur frambjóðenda, áhugasamra manna og kvenna, sem fylkja vilja liði til stjórnlagaþings. Og er það vel.  

Einnig verður spennandi að fylgjast með framgangi mála á þingi Norðurlandaráðs, sem hefst í dag. Kannski verður einhverja úrlausn þar að finna.

p.s. Og enn og aftur langar mig að segja frá hinni stjórnslyngu 89 ára Hazel McCallion, sem heldur um stjórnvölinn í Mississauga, sjöttu stærstu borg Kanada, en þar hefur hún verðið borgarstjóri í 31 ár.

Íslensk stjórnvöld ættu að taka sér, elsta og besta borgarstjórann í Kanada til fyrirmyndar ...

Hennar mottó hefur alltaf verið að halda fólki í vinnu og sköttunum lágum.

Það er eitthvað annað, en stefnan hérlendis !

josira   
mbl.is Fylgi ríkisstjórnarinnar hrynur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

josira
josira

Orðin... Pára með penna á óskrifað blað, orðin um hugann renna. Með suð í eyra ég skrifa það, sem ég fæ að heyra. Hvaðan þau koma veit ég ei, en í höfði mínu óma. Líkt og eilífðin, sem gefur frá sér tóna og um himnasali hljóma.

Lítil síða lítur dagssins ljós... Hér hef ég hugsað mér að skrifa um allt og ekkert ... eða bara það sem mig langar til hverju sinni ... Vertu velkomin(n) kæri ferðalangur... í heimsókn hingað, þar sem þú hefur nú fundið vegaslóðan minn litla, í netheiminum stóra ...

 

Lyngrósin Ljóðin mín

Josiraice youtube ljóð og tónlist

Rósin Eldri heimasíða, sem ég get ekki uppfært lengur, en læt hana fylgja hér með.  (Hún virkar einungis í gegnum Internet Explorer)

Light Bearer -poem - josira 

Guðrún Lilja; mánadísin, mín eldri dóttir og Ljóðin hennar

Nýjustu myndböndin

Movie

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 102
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband