Leita í fréttum mbl.is

Hugsjón um Haiti...

Í hjarta mínu ber ég ósk og von til þess að þær hörmungar, sem yfir Haiti hafa dunið verði til þess að alþjóðasamfélagið vakni til vitundar og samstöðu. Allt það veraldlega vafstur sem fylgir hinu daglega lífi okkar hverfur einhverveginn í fjarska, þegar svona náttúruhamfarir dynja yfir. Eitthvað hreyfist innra með manni og samkennd vaknar. Þessi mannlegi þáttur í okkur að vilja halda utan um þann er bágt á.

Hjálparsveitin okkar íslenska á heiður og þakkir skildar fyrir störf á Haiti, svo og allt það fólk sem leggur hönd til hjálpar þarna úti, þá, nú og síðar.

haiti-earthquake-pic-reuters-581841911

Haiti_jarskjlfti_4__jpg_550x400_q95

Það getur eflaust engin sett sig í spor þess fólks sem lendir í slíkum hamförum sem Haitibúar nú, nema þeir er í því lenda eða koma að björgunarstörfum.

uruknet-sjal2

Óskin og vonin sem í hjarta mínu búa um að jarðarbúar geti lifað saman í sátt og samlyndi, tengist til atburðanna á Haiti. Ef slíkar náttúruhörmungar verða ekki til að vekja okkur mannfólkið til vitundar um líf og tilveru okkar hér og sterka tengingu innbyrðis veit ég ekki hvað þarf til.

Þessi stóri jarðskjálfti dynur yfir þegar einar mestu hagkerfis-hremmingar hafa gengið yfir heimsbyggðina á s.l. mánuðum. Atburðirnir í efnahagskerfi heimssins snerta hundruð milljónir manna og lífsafkomu þeirra. Og við vitum það fullvel að þau stóru áföll tengjast öll mannanna verkum, sem stjórnast hafa að græðgi og valdabaráttu.

Má segja að þau mannlegu öfl hafi einnig stýrt lífi og lífsafkomu fólkssins á Haiti fyrir náttúruhörmungarnar. Hér má lesa lítillega um sögu eyjamanna, en valdabarátta og hervald þeirra aðkomnu, hafa ráðið ríkjum og hafa haldið almúganum í sárri fátækt um langa tíð. Hér má einnig lesa pistil um Haiti, sem Þorleifur Örn Arnarsson hefur skrifað.

Hugsjón mín Haiti til handa er sú, að í öllu þessu niðurbroti þjóðarinnar og þjáningum, felist tækifæri fyrir þjóðir heims að vakna til vitundar sinnar og tengjast í gegnum mannkærleikann, virkja samvitundina ( hugsun og gjörð )

  m_and_d 

Að þau muni starfa sameiginlega að hjálp og uppbyggingu þessa fallega, en fátæka lands. Koma lífi og lffsýn fólkssins í annan farveg. Hersstórnin harða þarf að víkja og lýðræði fólkssins að rikja.

Það sem ég er að reyna að koma frá mér er einfaldlega það, að Haiti gæti orðið að fyrirmyndar landi þar, sem þjóðir heims hafa lagst á eitt með að endurreisa þjáða þjóð, sem mein sín ber bæði af manna- og náttúruvöldum. 

Og að skilningur manna opnist meir og betur fyrir veru okkar hér og jarðlífi. Við eigum í raun hvert og eitt okkar tilverurétt og með friði, jafnrétti og meiri kærleik mun svo margt samstillast.

Ýmislegt mætti t.d. læra af því sem við köllum: Höfuð syndirnar sjö - og dyggðirnar sjö ( fengið af vísindavef HHÍ. )

josira

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

josira
josira

Orðin... Pára með penna á óskrifað blað, orðin um hugann renna. Með suð í eyra ég skrifa það, sem ég fæ að heyra. Hvaðan þau koma veit ég ei, en í höfði mínu óma. Líkt og eilífðin, sem gefur frá sér tóna og um himnasali hljóma.

Lítil síða lítur dagssins ljós... Hér hef ég hugsað mér að skrifa um allt og ekkert ... eða bara það sem mig langar til hverju sinni ... Vertu velkomin(n) kæri ferðalangur... í heimsókn hingað, þar sem þú hefur nú fundið vegaslóðan minn litla, í netheiminum stóra ...

 

Lyngrósin Ljóðin mín

Josiraice youtube ljóð og tónlist

Rósin Eldri heimasíða, sem ég get ekki uppfært lengur, en læt hana fylgja hér með.  (Hún virkar einungis í gegnum Internet Explorer)

Light Bearer -poem - josira 

Guðrún Lilja; mánadísin, mín eldri dóttir og Ljóðin hennar

Nýjustu myndböndin

Movie

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband