Leita í fréttum mbl.is

Raunsönn orð Lilju Mósesdóttur ...

LILJA_~1 

" Skuldarar hrópa á réttlæti, norrænt réttlæti "

og að koma verði í veg fyrir að bera eigi fólk út úr húsum sínum.

Þessum orðum Lilju er ég svo sannarlega sammála.

Get ekki neitað því að á síðustu dögum hef ég verið komin með æluna upp í háls yfir þessu ólgandi hafi talnanna og útreikningum þeirra, sem stjórna hér landi og þjóð … 

Allur lífsins dans virðist eilíft vera háður takti talnanna og örfárra manna er sjá um útreikning þeirra.

Við erum föst í viðjum danssins.

Þeir ríku verða ríkari og þeir fátæku,fátækari …

(Þeir ríkari þurfa ekki að standa í biðröð til að þiggja matarbita frá hjálparstofnunum eða sætta sig við hafragraut í annað hvort mál, smjörlíki oná brauð eða gamlar servíettur - kaffipoka eða krumpuð dagblöð fyrir wc pappír þegar líða fer á mánuðinn).

Hvernig  vinnur t.d. þessi blessaða ríkisstjórn eftir  útreikningum  talnanna, sem lúta að björgun fjölskyldna í landinu og stóru loforðunum um Skjaldborg Heimilanna. Örfá  orð um þau góðu loforð;

Lykilatriði er að tryggja húsnæðisöryggi fjölskyldna og einstaklinga.

Að leiðrétta með lækkun á greiðslubyrði þeirra sem verst standa þar til verðmætasköpun atvinnulífsins tekur aftur að aukast.

Skuldastaða heimila, greiðslu- og framfærslugeta verði til stöðugs endurmats sem og nauðsynlegar aðgerðir til að koma til móts við heimili í vanda.

Og hver er svo nýasta ákvörðun þessarar margumtöluðu ríkisstjórnar ;

johanna_882645 

Jú, að fylgja eftir skipun AGS um að taka af öll tvímæli um það að engar almennar afskriftir verði á skuldum almennings, sama hvaða nafni þær nefnist . Svona til að hagvöxturinn hér komist á rétt ról – svo þeir geti veitt með höfðingsskap sínum, lán sitt til okkar. Eða þannig …

Ég veit nú  ekki betur en, að almenningur er nú kannski ekki beint að kalla eftir afskriftum lána sinna, líkt og fjölmargar stofnanir og fyrirtæki hafa fengið ásamt nokkrum einstaklingum, sem hleypur á milljörðum.

Heldur t.d. að húsnæðis-og bílalánum verði komið í farsælan og sanngjarnan útreikning í farveg talnanna. Þannig að grundvöllur sé fyrir fólk að standa sínar skuldbindingar, sem það lagði upp með og  var viðráðanlegt samkvæmt greiðslugetu þess á þeim tíma, sem eignir voru keyptar.

Færa t.d. afborganir aftur fyrir um 2-3 ár (lengja lánstímabilið) án einhverra flókinna útreikninga.  Finnst mér að það ætti að vera frekar einfalt mál .

Ef þessi blessaða þjóð okkar á að eiga sér viðreisnar von, verðum við  að horfast í augu við, að sameinuð verðum við að standa saman hönd í hönd.

Lækkun bankavaxta og út með verðtrygginguna gömlu. Sem hvergi þekkist nema hérlendis, að ég best veit um. Koma hjólum atvinnulífssins af stað. Það er auðvitað grundvöllur alls mannlífssins og afkoma heimilina, sem í raun heldur öllu battiríinu gangandi <> þjóðin sjálf.

Það er engu líkara, en að stjórnvöld séu blind á að hvernig og hvert tannhjól þarf að virka svo allt snúist í öllu kerfinu.  ..Nei,nei … bara meiri skatta álögur og eignir á uppboð og annað fleira í boði talnanna.

Ég  sé nú ekki að lausn efnahagsástands felast í því. Einungis niðurbrot margra fjölskyldna. Og hver verður kosnaður ríkis og bæja þegar upp verður staðið, þurfi þeir að sjá fólki fyrir húsaskjóli og framfærslu þegar ríkisstjórnin heldur svona áfram að loka hverri dyr af annari hjá fólki.

Þetta er að verða ein hringavitleysa.

Ég vil endilega benda á bloggfærslu mína þann 13 apríl s.l. um hina stjórnslyngu 89 ára Hazel McCallion, sem heldur um stjórnvölinn í Mississauga, sjöttu stærstu borg Kanada, en þar hefur hún verðið borgarstjóri í 31 ár.

Íslensk stjórnvöld ættu að taka sér, elsta og besta borgarstjórann í Kanada til fyrirmyndar ...

Hennar mottó hefur alltaf verið að halda fólki í vinnu og sköttunum lágum.

Það er eitthvað annað, en stefnan hérlendis !

En er það endilega svo, að við þurfum lán frá AGS. Er ekki t.d. hægt að nota eitthvað af fjármagni þess er Seðlabankinn hefur hagnast um í gjaldeyrishöftunum.

eða taka lán hjá lífeyrissjóðunum okkar á  viðráðanlegum  kjörum ? (sem eru eign landsmanna)

Hrein eign lífeyrissjóðanna 1.797 milljarðar

(En þó held ég að við eigum væntanlega eftir að heyra eitthvað meir um mál lífeyrissjóðanna, held ég að ekki séu öll kurl komin til grafar á þeim bænum).

Og hvernig er með bíla-lánafyrirtækin ? Afskrifaðu ekki bankar erlendis, lán þeirra hingað ?

( p.s. finnst mér einnig eilítið undarlegt hve mörg fyrirtæki og stofnanir og jafnvel fólk víða um heim og hér heima eru farin að sýna góðar hagnaðartölur)

josira

mbl.is „Skuldarar hrópa á réttlæti“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

josira
josira

Orðin... Pára með penna á óskrifað blað, orðin um hugann renna. Með suð í eyra ég skrifa það, sem ég fæ að heyra. Hvaðan þau koma veit ég ei, en í höfði mínu óma. Líkt og eilífðin, sem gefur frá sér tóna og um himnasali hljóma.

Lítil síða lítur dagssins ljós... Hér hef ég hugsað mér að skrifa um allt og ekkert ... eða bara það sem mig langar til hverju sinni ... Vertu velkomin(n) kæri ferðalangur... í heimsókn hingað, þar sem þú hefur nú fundið vegaslóðan minn litla, í netheiminum stóra ...

 

Lyngrósin Ljóðin mín

Josiraice youtube ljóð og tónlist

Rósin Eldri heimasíða, sem ég get ekki uppfært lengur, en læt hana fylgja hér með.  (Hún virkar einungis í gegnum Internet Explorer)

Light Bearer -poem - josira 

Guðrún Lilja; mánadísin, mín eldri dóttir og Ljóðin hennar

Nýjustu myndböndin

Movie

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband