hér hjá þjóðinni litlu á svo mörgum sviðum og hliðum lífssins og lífsafkomu fólkssins með útreikningum talnanna, sem svo allt of mörgu stjórna og stýra.
Hvað ætli bankarnir, séu búnir að græða á vöxtum og verðbótum lána um áraraðir. Eru þeir farnir að finna fyrir samviskubiti.! En allavega gott framtak, hjá Landsbankanum að byrja að borga eitthvað til baka og vonandi stíga hinir bankarnir sömuleiðis fram. Pínu ljós kannski að sjá í myrkri talnanna.
Burtséð frá hruninu og afleiðingum þess, finnst mér að í marga ártugi t.d. íbúðalán almennt, ásamt öðrum bankalánum, skuldabréfum og yfirdráttum hafa borið ótrúlega háar fjárhæðir í hendur bankanna og annara fjármálafyrirtækja til baka í borgun lánanna. Stundum hef ég hreinlega efast um réttmæti þessara útreikningsformúlna.
Og þetta var ég að lesa á eyjunni.is; (sem styður sumt af þönkum mínum)
Staðfest að lánafyrirtækin beita misjöfnum aðferðum við endurútreikninga
Ég hef reyndar aldrei skilið alla þessa tölulega útreikninga, sem viðhafðir hafa verið hér á Íslandi um allt og langan tíma, miðað við önnur lönd, t.d nágrannalönin. Von mín eftir hrunadansinn 2008 lá til þess, að í öllum uppstokkun og umbreytingum í hagkerfis og fjármálalausnum fælust ný tækifæri og mannsæmandi viðmið til heilla afkomu fólkssins. Það hefur ekki gerst.
Oft hef ég hugsað um fjármálakerfið og útreikninga í gegnum árin. Þau hafa oft á tíðum mynnt mig á, þegar maður var yngri að árum og var farin að horfa á bíómyndir og sá þegar fólk þurfti að fara til svokallaðra veðmangara, að selja hluti frá sér í nauðum oft á tíðum og fékk miklu minni peninga fyrir, en raunhæft var og eins ef hlutur var settur í pant, þurfti að borga hærri upphæð fyrir er hann var leystur út. Og fannst mér þá, þetta heldur óréttlátt viðskipti.
Og ef fengin var peningur að láni, þá var borgað til baka, með margföldum vöxtum. Og leit maður á veðmangara og veðlánara, sem vonda menn hálfgerða glæpamenn, sem voru að græða á erfiðleikum annara.
Síðar þegar ég komst á ungdómsárin og flutti að heiman, stofnaði fjölskyldu og fór að takast á við lífið og tilveruna, líkt og aðrir, þá byrjar hliðarsambúðin við bankakerfið, sem fylgir væntanlega öllu og öllum í gegnum lífið. Hefur mér ætíð fundist útreikningar banka og stofnana minna mig alloft á veðmangarana-veðlánarana, sem maður fékk innsýn í gegnum gömlu bíómyndirnar, sem barn.
Og lítt skil ég enn, þær reikniformúlur, sem allt byggist á.
Hagfræðikerfiskenningalærdómsútreikningur talna sem stjórna lífi okkur, snilldar - úrlausn, eitt af mannanna verkum og stjórnað og stýrt af örfáum útvöldum manneskjum...
Og við auðmjúkur almúgurinn fylgir reglugerðinni samviskusamlega eftir...
Tekið úr eldri færslu; Klækjaklóin...verðtryggingin
Vangaveltur mínar nú eru tengdar því, að allflestir íbúðareigendur eru með einhver mismunandi lán á eignum sínum. Ætla ég ekki, að fara nánar út í þær skilgreiningar. En þeir þykja heppnir, sem voru með svokölluð hagstæð íbúðalán t.d. undir 5%vöxtum. En ekki hin svokölluðu myntkörfulán. Einnig má sjá að; Staðfest er að lánafyrirtækin beita misjöfnum aðferðum við endurútreikninga (eyjan)Langar mig bara að tjá mig um hversu ósanngjarnar mér finnst greiðslur til fjármálastofnana og banka almennt vera. Ég vil nefna hér 2 dæmi í formi t.d. venjulegra íbúðalána, sem eru og hafa verið í skilum.
Annað er ósköp venjulegt gamaldagslán tekið hjá Íbúðalánasjóði vorið 2005 kr. 9.000.000 með 4,15% vöxtum. Staða þess í dag er um 13,400,000, 6 árum síðar. Hækkunin nemur um tæpa 5 og hálfa milljón. Sem og hefur að sjálfsögu nánast þurrkað út stóran hluta þess fjármagns, sem viðkomandi íbúðareigandi átti sjálfur í útborgun íbúðarinnar.Hitt dæmið er íbúðalán tekið hjá Kaupþingi (Arionbanki í dag), sem tekið var undir árslok 2006, einnig kr. 9,000,000 en með 4,85% vöxtum. Í dag stendur þetta lán í um 12,200,000, hækkunin er rúmar 3 millónir á rúmum 4 árum. Þessi 2 lán, sem nefn eru hér standa í skilum og ekki hefur þurft að leita til neyðarúrræða, en alveg á mörkum þess.
Mörg orð mín úr fyrri bloggskrifum fjalla um hugleiðingar mínar í þessa banka-og fjármálaveru og afkomu fólkssins.
Læt fylgja hér með gamlar hugarþanka, síðan 2003 og sýnist mér við nú, vera í sömu sporum og þá. (fyrir útrás bankanna) Blekking í þjóðfélaginu
josira
(p.s. línubilin að stríða mér, þannig að ég varð að setja litla mynd á milli)
Endurgreiða hluta af vöxtum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Fjármál, Stjórnmál og samfélag, Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 22:02 | Facebook
Tenglar
ÝMSAR JÓLAVEFSÍÐUR
- Jólin-Þjóðminjasafnið jólasíður Þjóðminjasafnið
- jólavefur Júlla á Dalvík fullt af fróðleik um jólin
- Jólavefur Valla, sem geymir marga aðra jólavefi fjölbreytur jólavefur
- jóla-og áramótavefkort ýmis önnur vefræn tækiæriskort
BLANDAÐAR ÁHUGAVERÐAR VEFSÍÐUR
- LJÓSMYNDAKEPPNI Canon og mbl.
- VILTU VITA MEIRA Leiðsögn með lestri .. Sigríður Svavars - Leiðbeining - heilun- fyrirbænir
- ÓMAR RUN - Ljósmyndir Magnaðar myndir
- MADDÝ - Ljósmyndir Meiriháttar myndasmiður
ÝMSAR VEFMYNDAVÉLAR
- Nýjar Íslands vefmyndavélar Frábærir tenglar hérlendis og erlendis
- Vefmyndavélar - Vegagerðin - Suðausturland
- Vefmyndavélar víðs vegar um Ísland
VEÐUR - FÆRÐ - LOFTSLAG
LANDSBYGGÐIN LIFI...
- BETRI BYGGÐ UM LAND ALLT...
- LANDAKORT.IS Frábær síða um Ísland; m.a. Góðar upplýsinga-og þjónustusíður-Vefsjár sveitafélaga-Fjölbreytt efni um ferðamál og ferðalög á Íslandi.
- ICELAND WORLDWIDE Iceland, the land of the midnight sun, is becoming a favorite with those who seek adventure and freedom. Be it nature, sagas, geology or people that interest you, Iceland is the place to go
ÍSLENSK TÍMARIT ALLT FRÁ 1696 -
- FRÁ FYRSTU TÍMARITUM LANDSSINS TIL DAGSSINS Í DAG Ýmislegt að skoða ..
FRÁ A-Ö...
- TRÚARBRÖGÐ HEIMSSINS...
- VÍSINDAVEFUR H.Í Að vita meira og meira .
- ALMENNINGSBÓKASÖFN LANDSINS
- WIKIPEDIA
- BÓKASÖFN LANDSINS
TÆKNI og VÍSINDI
FJÖLBREYTTIR ÞÆTTIR...
- ÍSLAND Í DAG
- KASTLJÓS
- N4 SJÓNVARPSSTÖÐ NORÐAN HEIÐA
- GAMLA ÍNN TV SJÓNVARPSSTÖÐIN
- HRINGBRAUT SJÓNVARPSSTÖÐ
MATSELD
- MATARBLOGG SOFFÍU gómsætir réttir af öllum stærðum og gerðum...
- UPPSKRIFTIR SOLLU
- MARGAR MATAR UPPSKRIFTARSÍÐUR Eflaust eitthvað gott að finna ..
- KÖKUR OG EFTIRRÉTTIR Án hveiti sykurs og ger
- GULUR,RAUÐUR,GRÆNN OG SALT Hráfæði
HJÁLPARSTOFNANIR...
Fibromyalga...vefjagigt
Blekking í þjóðfélaginu...
Blekking í þjóðfélaginu...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 123107
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2014
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.