Leita í fréttum mbl.is

Skaparans sköpunarverk...

cosmos
600px-Milky_Way_2005

Mín skynjun og skilningur er, að Lögmálum lífssins stýrir og stjórnar Skaparinn, Almættið, æðri máttur, orka, kraftur, kærleikur. Allt er svo fullkomið, sem smurð vél í eilífðar lífssins hringrás, sem gengur í raun svo áreynslulaust. Og innan alls þessa rúmast sköpunin í heild sinni, þannig að hver agnarögn hefur sínu hlutverki að gegna og áhrif hefur á vöxt og þroska sjálfs síns, sem og annara agna í takti endalausrar endurnýjunar. Þar sem hver agnarögn færist í sífelldri leit sinni, nær uppruna sínum.

dn9824-1_831
 

Hljómkviða alheims í öllu er, litirnir líka tengjast hér. Átakalaust fuglinn flýgur, frjókorn upp úr moldu smýgur. Hlutverkin eru, að snúa lífshjólin, lífsorku í té lætur, sjálf sólin. Sálarljós í kjarna alls býr og kærleiksaflið öllu snýr.

hs-1994-02-c-web

Himinhvolfið með sínum fullkomnu brautum himintunglanna, sólanna og stjarnanna, sem áhrif hafa á hringrás sinni á okkar litlu jörð og öllu hennar lífríki þar á meðal okkur mannkynið, sem er fullkomið í ófullkomnleika okkar sjálfs. 

Solar-system_500

Þar af leiðandi hlýtur hver hugsun, hvert orð og hver gjörð að hafa áhrif á himinn og jörð. Og þessvegna er í raun þau mannanna neikvæðu og jákvæðu verk og öfl, sem stjórna og stýra hér á móðir jörð því lífi og þeim aðstæðum, sem við mannkyn búum við hverju sinni því við erum öll sköpunin, samtengd í samvitundinni. 

Hér á jörðu eru í raun hin bestu skilyrði til vaxtar og þroska, því hér er nóg
til alls fyrir alla og hver maður á sinn tilverurétt. Í gegnum frið og sameind mannkærleikans liggur leiðin. 

Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna

solarlagsstrakur

human-space-universe-cosmos

Magnaðar myndir að sjá, Skaparans sköpunarverk...

http://hubblesite.org/gallery/album/

og ýmis hljóð alheimssins,

Hjartsláttur sólarinnarHljóð jarðar frá gervihnetti  Hljóð Júpíters

Hljóð Neptúnusar  1ár jarðar á 40 sek. andardráttur jarðar

og The Om  Hinn titrandi ómur tilverunnar

josira


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arnar

Himinhvolfið með sínum fullkomnu brautum himin-tunglanna, sólannaog stjarnanna

Hvað er svona 'fullkomið' við þær?

Og skemmtilegt að þú minnist á Hubble.  Veistu að Hubble hefur numið ljós sem hefur verið að ferðast í +13 miljarða ára áður en það barst til okkar?  Veistu að Hubble staðfestir að alheimurinn er að þenjast út sem gefur til kynna að hann hafi einhvern tíman áður (búið að reikna það í 13.8 miljarð ár minnir mig) allur verið saman kominn í einum punkti?  Veistu að á hverri sekúndu springa tugir ef ekki hundruð stjarna út um allann heim og annar tugur eða hundruð myndast?

Ef það er eitthvað sem passar ekki við 'sköpun skaparans' þá er það himingeimurinn.

Sé að þú ert virk á Youtube, mæli þá með því að þú kíkir á efni frá AndromedasWake í þessu samhengi.  Stjörnufræðingur með mjög fróðleg myndbönd í tengslum við himingeiminn.

Arnar, 30.10.2009 kl. 13:24

2 Smámynd: josira

Kæri Arnar, stutti Dreki velkominn og takk fyrir innlitið og orð þín.

Mín skynjun á Guðdómleikann í okkar sólkerfi sem snýr að jörðinni er hversu allt er fullkomið, jaðrar við að ei megi skeika um millimetra, því þetta er allt eitt stórt klukkuverk og hvert minnsta tannhjól jafn mikilvægt og það stærsta. Og hvert um sig á sinni braut og sínum stað og sínum hraða, svo allt verkið gangi rétt.

Mín skynjun á himingeimana í heild er að alheims lífshringrás Skaparans-Sköpunin sjálf er í endalausri endurnýjun og er síbreytileg í óbreytanleika sjálfs síns í eilífðinni sem vex, þroskast. Líkt og gerist í heilbrigðri mannveru, dýri eða jurt.

hér má lesa svar vísindavefssins um hvernig og hve oft endurnýjast frumur.

 

Síðan þegar stjarna, maður, dýr eða jurt deyr verða ýmis konar efnabreytingar og hlýtur einhver hluti að samlagast alltaf einhverju öðru. Öreindir stjörnunnar sameinast einhverju úti geimnum og það jarðneska náttúrunni. Þannig að vöxtur og þensla á sér sífellt stað.

Ég þakka þér Arnar fyrir upplýsingarnar um og frá Hubble ásamt videoinu sem og ég horfði á. Magnað hve vísindin hafa þróast hratt. Ég á örugglega eftir að eyða einhverjum tíma í að vafra um á þessum slóðum. Stórkostlegt í rauninni, að við þessar smáu mannverur fáum að njóta þess orðið að sjá þennan mikilfengleika sem geymist út í óravíddum himingeimana. Það er ekki laust við að fyllast lotningu yfir þessu sköpunarverki Skaparans sem við tökum einnig þátt í.

Hér er að finna eldra blogg um upplifun mína, þegar vitund mín fór að vakna.

kveðja josira

josira, 30.10.2009 kl. 17:20

3 Smámynd: Guðný Einarsdóttir

hæ vonandi ert þú hress

Guðný Einarsdóttir, 1.11.2009 kl. 22:46

4 Smámynd: josira

Gulla mín takk fyrir innlitið og kveðjuna mín kæra. Og jú, sú gamla er bara nokkuð spræk ennþá og svona yfir heildina séð, er allt gott að frétta af mér og mínum...

Lífið gengur sinn vanagang hjá okkur þó erfitt sé á sumum sviðum. Þ.e. svona almennt tengt blessuðu þjóðfélagsástandinu....

Og mínar bestu kveðjur sendi ég austur...

josira, 3.11.2009 kl. 11:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

josira
josira

Orðin... Pára með penna á óskrifað blað, orðin um hugann renna. Með suð í eyra ég skrifa það, sem ég fæ að heyra. Hvaðan þau koma veit ég ei, en í höfði mínu óma. Líkt og eilífðin, sem gefur frá sér tóna og um himnasali hljóma.

Lítil síða lítur dagssins ljós... Hér hef ég hugsað mér að skrifa um allt og ekkert ... eða bara það sem mig langar til hverju sinni ... Vertu velkomin(n) kæri ferðalangur... í heimsókn hingað, þar sem þú hefur nú fundið vegaslóðan minn litla, í netheiminum stóra ...

 

Lyngrósin Ljóðin mín

Josiraice youtube ljóð og tónlist

Rósin Eldri heimasíða, sem ég get ekki uppfært lengur, en læt hana fylgja hér með.  (Hún virkar einungis í gegnum Internet Explorer)

Light Bearer -poem - josira 

Guðrún Lilja; mánadísin, mín eldri dóttir og Ljóðin hennar

Nýjustu myndböndin

Movie

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 122225

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband