Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Langaði að senda ljós inní daginn...hérlendis og erlendis...

Ljósberi ljósberi lífssins...Sólin

Kvöldsól við Akrafjall 

Akrafjall í kvöldsólardýrð og sjáið ljósáruna kringum sólina...

Vitund vaknar, á þeim degi
er ljósið þú finnur, á lífsins vegi
Vegsemd slík, verðmæt er
varðveita skalt í jarðvist hér.

heil og sæl að sinni...josira

 


Eurovision...upphitun...upprifjun

odinist-tree-Yggdrasill-cc-paganeen-200

Til þeirra sem ætla að horfa á Eurovision í kvöld...er upplagt að horfa hér á stutta samantekt á fyrrum sigurlög frá árunum 1956-2007;

 Fyrri hluti ca. 9 min. og Seinni hluti ca. 7 min

choir

Læt fylgja hér með úr Idolinu í gær svona til gamans...

David Archuleta sem ég elska að hlusta á ...með "Imagine" eftir John Lennon...

og vinningshafinn David Cook...

four_people_singing

Hér má sjá unga upprennandi söngstjörnur...

og svo áfram ísland...

eigið skemmtilegt kvöld framundan...

josira

Óska Regínu, Friðrik og fylgdarfólki til hamingju með frábæran árangur....InLove...sjáum þau fyrir okkur á laugardagskvöldið á verðlaunapallinum...Heart


Fiðrildi og ferðalög...

 

Í gær var mér svo mikið hugsað til fiðrilda...svo ég ákvað að skrifa pínulítið um þau hér.

speech-butterflyÉg hef ætíð verið heilluð af fiðrildum svo lengi sem ég man...

margbreytileika og litafegurð þeirra og hvernig þau þroskast og umbreytast...

Hér má finna heilmikinn fróðleik um þau á ensku.

Morning%20Butterfly%2022 

Á margan hátt geta þau táknað þroska og umbreytingu sem við mannfólkið förum í gegnum á lífsleiðinni...t.d. breytingu á lífsháttum og lífsviðhorfum...byrja upp á nýtt segjum við...finna frelsið innra með okkur, sem ber okkur á nýjar slóðir...í lífsgleði og fegurð...

Það er líklega það sem við mannkynið þörfnumst; umbreytinga...á öllum sviðum frá öllum hliðum...

Og gaman er að geta þess að það er til mjög sérstakt fjall í Sri Lanka, sem kallast;

adams-peak-4

800px-Srilanka_adams_triangle 

Fiðrildafjall ...einnig Adamsfjall og Sri Pada ;

þar sem fólk fer í pílagrímsferðir og sameinast undir mörgum trúarbragðastefnum...

2282634427_e862301b80

Og fyrir þá sem hafa áhuga á að forvitnast eitthvað um tákn ( symbol ) dýra

savetheanimals

er gaman að skoða þessa síðu...

Og til þeirra sem vilja breytingu í lífið og meiri lífsgleði er kjörið t.d

gledi

að kíkja á þessa síðu...

eigið góðan og bjartan dag.. josira

 


Hörmungar í austri...

Hugleiðingar mínar í dag eru um þær náttúruhamfarir, sem hafa átt sér stað í austri síðustu daga...hugur minn hefur dvalið þar...en ekki hér “....  neyðaraðstoð við Íslandí hagkerfis hremmingunum... 

 burma

 

Það hafa verið skelfingar dagar í Myanmar ( Búrma ) eftir að stór fellibylur fór þar yfir þann 2 maí s.l. og tala látinna að nálgast nú óðum 134.000.þús. Hjálparstarf gengur hægt og illa vegna herstjórnarinnar ógurlegu...

Þeir eru ekkert á því að opna landið fyrir hjálparsveitir, sem víða koma að með hjálpargögn...

 

Mín ósk og von til þessa sérstaklega lands ( sjáið fegurð landssins ) er sú, að einn dag muni þessi skelfilega herstjórn vera niðurlögð fyrir fullt og allt og að lýðræði verði að veruleika og þessari þjóð hjálpað eins og unnt er.

Ég bíð hreinlega eftir því að mannréttindasamtök og allir sem getað aðstoðað sameinist með einhverjar úrlausnir...og að Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu Þjóðanna  komi þar sterk fram..

.

Eru kannski alheimsöflin að grípa inní verk mannanna...?

Þurftu þessar hörmungar að verða... til þess að einhverjar umtalsverðar breytingar verði hjá þessum þjóðum... í hugsun og gjörðum ...  

          

Læt fylgja hér með; gamlar hugleiðingar mínar;

china

Og þessir svakalegu jarðskjálftar í kína...

 

Það hefur mikið verið að gerast þar í þjóðarvitundinni á mörgum sviðum...s.l.ár

 

Hún Björk okkar hreyfði nú aldeilis við viðkvæmum málum í mars s.l. á tónleikum sínum í kína varðandi baráttu Tíbetbúa fyrir sjálfstæði sínu.

Og Olympíuleikarnir framundan þar sem þjóðir sameinast úr öllum heimsálfum í sátt og samlyndi. Og eiga samverustundir.Í frelsi og friði í íþróttakeppnum og leikjum,undir einum fána og einum kyndli

.

Kyndillinn í sjálfu sér stendur fyrir ljósi friðar og og er í rauninni svo sterkt afl til að sameina mannkyn..

.

Og vængjast þá lífssins kraftur..

.

Hjálpumst um að halda þessari sameind og samkennt áfram eftir leikana um allan heim...til framtíðar..

Hér má finna ljóð á ensku eftir mig...Light Bearer... sem túlkar huga minn...

god_particle

Er enginn söfnun í gangi hér á landinu litla fyrir til hjálpar þjóðunum í austri...

peningasöfnun, fatnaður,vatn...?

Sendum bænir okkar þangað út...

josira

p.s. er varla að halda það ut að pára her á blað og setja inn myndir...kerfið er allt i belg og biðu sama hvað ég reyni að lagfæra...kannast einhver við þetta vesen ?

 


Orð í draumi...

 

DreamCatcher

Það kemur einstaka sinnum fyrir að eitt eða fleiri orð og stundum jafnvel setningar, óma í höfði mínu eftir svefn eða skjótast í gegnum hugann upp úr þurru. Oft finnst mér þau vera svo út í hött að ég læt þau, sem vind um eyru þjóta eða þá gleymi þeim...

Kannski halda þau áfram ferðalagi sínu um óséðar eða óheyrðar óravíddir og einhver annar fangar þau, sem hefur skilning og vitneskju um þau eða uppgötvar einhverjar leiðbeiningar frá þeim...

En í seinni tíð staldra þau oftar við í minni mínu og þá hef ég párað eitthvað um þau á blað svo úr verða einhverjar hugleiðingar um lífið og tilveruna eða lítið ljóð fæðist...eða pensilinn minn mótar strokur á striga sem eitthvað geyma...

 

Allsstaðar

Ef á öllum sviðum,
allsstaðar
andinn, birtu baðar.


Brátt eyðast þjóða-þjáningar,
og jarðarbúar, sem jafningar.
Jákvætt, í hendur haldast
hér, þroski þúsundfaldast.

                                                                                                                                        

Og stundum vekur áhugi minn löngun hjá mér, til að fara í leiðangur með þessum forvitnilegu orðum, ýmist huglægan eða þá ég nýti mér nútímann og fer á leitarvélarnar í netheiminum fyrir forvitnis sakir og það er oft með ólíkindum hvert þau ferðalög hafa leitt mig ...

 

Nú langar mig að segja frá orði, sem kom til mín einhvern tíma um daginn... Allavega, hefur það verið að trufla mig, svo ég settist við tölvuna áðan og sló það inn...Orðið er... PANGEA...  skrítið orð fannst mér...

 

Þetta var niðurstaðan, sem og mér finnst virkilega áhugaverð, svo ótrúlega margt sem finna má í þessu litla orði, sem vísar á móðir jörð og vekur mann sérstaklega einnig til umhugsunar um samstöðu manna og kvenna um víða veröld í dag til breyttra lífsviðhorfa og eflingu mannúðar og gagnkvæmrar virðingar menningasamfélaga. Og veitir okkur innsýn í ólik samfélög og líf og sögur fólks samtvinnast hvaðanæva úr heiminum í gegnum kvikmyndir og tónlist... 

                                                                                       

salt_pipar

Og minnir mig á setningu, sem eitt sinn ómaði í höfði mínu...sem og ég skrifaði niður...

Mikilvægi mannúðar, er menntun mannkyns...

Endilega kíktu á slóðirnar hér fyrir neðan, ef orðið Pangea hefur vakið áhuga þinn...   

http://en.wikipedia.org/wiki/Pangaea

 

Og hafi verið talað um þenna merka pangea-dag 10 mai í fréttum fór það framhjá mér...

 

http://www.pangeaday.org/takeAction.php

 

http://www.pangeaday.org/

http://travel.latimes.com/daily-deal-blog/?p=1855

 

http://afp.google.com/article/ALeqM5j5JSwQhGlsg6NEmvtbuoyWZqUAkg

storyteller..

 

athyglisverðar kenningar um þróun og vöxt jarðar...

         

Er ég var að vafra um og afla mér upplýsinga um pangea-orðið, flögraði hugur minn allt í einu til mikils manns, sem barðist fyrir réttlæti og lét lífið fyrir baráttu sína...og ég fór að rifja upp mínar barnæsku minningar um hann og það leiddi mig inn á þessar netslóðir;  

 

Þessi magnaði maður var Martin Luther King, Jr. smá uppl. um hann á íslensku; vísindavefurinn  og á ensku; wikipedia og hans frægasta ræða;

“ I Have a Dream”

er ógleymanleg þeim, sem hana hafa heyrt og finnst mér hún í rauninni tímalaus og spannar meiri sannleik en að tilheyra einu landi eða einum kynstofni...og finnst mér hún eiga hér vel við og hvatning enn á ný til; 

framtíðar...friðar...frelsis...réttlætis...mannúðar...hugsjóna...vonar...mannkærleika...til góðs...á öllum sviðum frá öllum hliðum...

Og mér varð einnig hugsað til frelsis- og friðarhöfðingjans Nelson Mandela, sem mun á þessu ári halda uppá 90 ára afmælið sitt,  smá uppl.um Nelson á íslensku; vísindavefurinn og á ensku; wikipedia

Í mörg ár hef ég borið leynda ósk í hjarta, en það er að fá að hitta þennan stórkostlega mann. 

En við eigum reyndar tvo meiriháttar daga saman. Yngri dóttir min er fædd 11 febrúar 1990 á deginum sem hann losnaði úr fangelsisvistinni og annar sonur minn á sama afmælisdag og Mandela þann 18 júli. Ég er fullt af stolti að þau skuli fá að eiga þessa daga með honum..

.

The Ubuntu Experience (Nelson Mandela Interview)

 

Skoðið hvað þetta litla orð getur verið stórt UBUNTU.

Og svona til gamans er afmælisdagur eldri sonar míns 21 september, sem er hinn alþjóðlegi friðardagur... þannig að fæðingardagar þeirra tengjast á einhvern hátt friðar-frelsis og mannúðarmálum.

Mér finnst það meiriháttar...

sæl að sinni Josira.

p.s.

var alveg að gefast upp á þessari færslu. vesen með vistun ...missti allt út ...en þolinmæði vinnur víst þrautir allar. svo nú sendi ég þetta...núna en ekki í gærkveldi þegar ég var að brölta hér..Eflaust kemur textinn eitthvað i belg og biðu ásamt myndunum.. er bara orðið allt of langt síðan ég bloggaði síðast...farin að gleyma aðeins ferlinu...en er allavega komin af stað aftur hér við tölvuna...

  

Gott að vera komin með hraðskreiðari tölvu...

 

Ekki hefði ég trúað því fyrir fáum árum síðan að ég ætti eftir að verða svolítið mikið háð þessu undratæki...tölvunni minni...Sem var upphaflega samansafn af gömlum tölvuhlutum frá öðrum fjöldskyldu-meðlimum og var raðað pent saman...Þannig hefur það síðan verið...Ef verið er að endurnýja eitthvað, einhversstaðar gengur það gamla yfir í mína tölvu, sem hefur svosem verið ágætt því við vinkonurnar höfum verið að þróast saman í hugviti, færni og hraða...Joyful...

En er haustið s.l. vék fyrir vetur konung, var tölvu-vinkonan mín kæra, að niðurlotum komin...orðin yfirfull og hæggeng...Þannig að hún fékk langt og kærkomið gott frí líkt og kanarífari... 

InLove Komin er hún endurnýjuð til baka og fékk að auki extra makeover...öll yfirfarin og að þessu sinni með nýjan harðan disk og geisladrif...er barasta sem ný, en svo hraðvirk að það horfir eiginlega til vandræða...Shocking...mín hugsun og mitt fingrapikk hefur vart við slíkum léttleika...

 

sick_computer 

Hún var orðin svo hægvirk og yfirfull...blessunin !

Scribe-books-computer 

Hægt var orðið að finna gráu hárin vaxa á meðan hún var að hugsa næstu skipun...

c_documents_and_settings_ragnhei_ur_my_documents_my_pictures_flottar_myndir_grin_tolva 

Núna er hún svo viljug að erfitt er að hemja hana...

Verð bara að æfa mig á fullu með að auka við bragsflýti mína...Whistling

En eitt verð ég að segja að ekki vildi ég vera án hennar... ( á mér þó leynda ósk um að einhvern tíma muni ég eignast fartölvu- ( semsagt færanlega tölvu. )) 

Svo ég víki nú aftur að gömlu-nýju borðtölvunni minni, þá er ég  t.d. komin með http://earth.google.com/ sem er meiriháttar...og hef verið aðeins upptekin að vafra þar um...magnað að geta farið á svipstundu um víða veröld...

Já það er bara gaman að upplifa og leyfa sér aðeins að vera til á gerfihnattaöld...

Heimsmyndin er svo sannarlega breytt frá tímum hugumdjarfra sæfara og landkönnuða, sem leituðu þess sem handan var við sjóndeilarhringinn í hættu-og háskaförum...

Og þess að geta setið á stól sínum með púða við bak og pullu undir fót...við tölvuna og fundið og séð nánast hvað svo sem hugur leitar til...og helsta váin er tölvuvírus.

 sæl að sinni...josíra

 


kæru vinir og vandamenn...

Kæru ( blogg )- vinir og vandamenn...nær og fjær í bráð og lengd...

imagine-peace-tower

Óska ykkur öllum gleðilegra jóla og heillaríks-og heilsugóðs nýárs,

með kæru þakklæti fyrir allt sem liðið er...Njótið hátíðar ljóss og friðar...elskið...lifið..njótið... með kærleik og fyrirgefningu í hjarta...

Það er undir viðhorfum hvers og eins komið...til hlutana hverju sinni...hvernig tekið er á málum...

josira


Var að búa til lítinn jólavef...

 

Í dag bjó ég til lítinn jólavef, sem þið eruð velkomin(n)að kíkja á...

http://www.simplesite.com/jolarosin

Hef lítið setið við tölvuna þessa dagana...Því blessað bakið hefur verið að stríða mér um tíma, en þetta er allt að koma...Kem svona rétt við og við í heimsókn hingað ...erfitt að sitja.

Og verið frekar langt niðri tilfinningalega vegna sérstaks missirs, sem ég hef verið að vinna mig frá. Hef þörf fyrir að skrifa um það, en ekki að svo stöddu...

En hátíð ljóss og friðar er rétt handan við hornið, svo verið velkomin(n) á nýju litlu jólasíðuna mína...það er eitt og annað þar að finna, að mestu eða nánast allt frá öðrum, sem ég safnaði saman...

animk16

En það er eitt sem mig langar að leita til ykkar með, fyrst ég er að vesenast í þessum vef-bloggsíðum mínum. Vitið þið hvernig á að skrifa texta við hlið myndar ?

ancestral-path-04854

Og svo vil ég endilega hvetja ykkur að heimsækja áhugaverðan nýjan bloggara:

hana Margréti Guðjónsdóttir, sem er með  Astro-blogg...

heartangel

Heart...Hafið það sem allra best nú og ætíð og ekki gleyma ykkur í jólastressi...Heart

josira

 


Spil og spádómar...

 

 ancestral-path-04854    llewellyn-05224

Spil geta verið hin mesta skemmtun. Fyrir alla í öllum aldurshópum, heimafyrir, á vinnustöðum, á spilamótum. Allflestir kunna gamla Olsen-Olsen, Rommy, Veiðimann, Vist  og svo áfram mætti telja...og sumir ráða í spilaspár...

 

Ég man þegar unglingsárin voru að renna upp og maður fór að vita af einhverjum spákonum, sem spáðu í venjuleg spil og fannst manni það æði spennandi. En einnig voru sumar með myndaspil, svokölluð Tarot...Gangvart þeim var ég mjög á varðbergi. Óttaðist þau á einhvern hátt...Gat ekki einu sinni hugsað mér að koma við þannig spilastokk, hvað þá að leita eftir lestri frá þeim...Samt höfðu þau einhverja dulmögnum yfir sér...Seiðandi aðdráttarafl í óttanum...Skrítið...

 

Áratugum seinna toguðu þau enn í mig og einn daginn ákvað ég að láta slag standa og skoða þau og snerta, sem og gerðist í búðinni Betra líf...Og það varð ekki aftur snúið...Ég keypti mér mín fyrstu Tarot-spil...yfir mig heilluð...og fleirri ólíkir tarot stokkar hafa bæst við síðan...Hef ég afskaplega gaman að skoða þau, spá í og spegluera, en ekki þýðir neitt fyrir mig að leggja einhverjar lagnir, mörg spil og lesa úr þeim, það eru aðrir færari en ég, sem fást við það...

 

Mér finnst gaman að draga eitt og eitt fyrir sjálfa mig og stundum fyrir aðra...Spilin eru full af leynardómum og dulrænni merkingu, sem felast t.d. í tölum Agný-blog og táknum ( symbol ). Ég hef reyndar allatíð haft mikinn áhuga á allskonar táknum, sem finna má, sjá og jafnvel dreyma...Ég held að tákn tengist almennt manninum meir, en við höldum...Held þar sé hinn mesta helgidóm að finna á mannsins þroskaleiðum...að þar sé að finna mikla fræðslu og djúpan sannleik.

 

Ég set hér til gamans hinar ýmsu slóðir um tarotspilin...Svosum engin ástæða að pára hér meir á blað að sinni, þegar svo óteljandi góðar og skilmerkilegar greinar er að finna annarsstaðar...

aleister-crowley-thoth-03687   druidcraft-02945

 gilded-00706  tarot-of-dreams-03567

 

Hér má finna allt um merkingu tákna í tarotspilum...draumum...og ýmsan annan fróðleik...gaman að fletta upp hinum ýmsu orðum ;  Tarot 1 og Tarot 2

Hér má finna  tarot á vitund.is ; ásamt spámiðli ; og Tarotnámskeið hja´Liljunni ;

  

Hér er hægt að læra í gegnum bréfaskóla ;

 

Hér fást einnig tarotspil ásamt ýmsu öðru áhugaverðu, mæli með Gjafir jarðar ;

 

Frá Ísafirði, Orkusteinn.is má finna ;  einnig upplýsingar úr,

Í Spádómsbókinni : Og hjá Félag íslenskra bókaútgefenda ,

 

Á Ensku : Hér má finna einar 600 tegundir tarotspila mörg alveg æðislega falleg...

og meira að skoða ;

http://www.tarothermit.com/infosheet.htm

 

http://www.sacred-texts.com/tarot/mathers/mtar01.htm

 

http://en.wikipedia.org/wiki/Tarot

 

Hér er líka áhugaverð síða, að ég held, sem ég var að finna : http://www.cafetarot.com/en/history.htm

 

Og á  dönsku: http://www.annabella.dk/netbutik/tarot/tarotkort.html

 

Svona í lokin til skemmtunar ; Líflínu- og spádómsnúmerið þitt 

Whistling Njótið komandi helgar úti eða inni...

Joyful Við eitthvað, sem gleður sálartetrið...

Smile Brostu til heimssins og hann brosir til baka...

josira

 


Í snjó...snjóleysi og jarðskjálftahrinu...

 

071127_1340 

Í snjó og snjóleysi rann s.l. helgi áfram og hvarf út í tímann, tímaleysið...ásamt fullu tungli og nokkrum jarðskjálftum...Ég uppgvötaði það í stóru jarðskjáltunum árið 2000 að ég einhvern  vegin virðist vera stundum tengd jörðinni á einhvern hátt...Það kemur fram í líkamanum mínum...Hversu fáranlegt sem það virðist ... En kannski er það alls ekki.

Við erum öll tengd náttúrunni og alheiminum öllum gegnum vitund okkar. Við erum kannski bara misjafnlega næm á það. Við höfum lengi vitað af eldri kynslóðinni, sem þekkir til með gigtarköst eða verk í mjöðm eða t.d. öðrum verkjum eða kvillum skulum við segja...tengt veðrinu...hæðum ...lægðum...sjáfarföllum...flóði og fjöru og fullu tungli...

Allavega, þá er lýsing á skrokknum mínum á þann veg rétt áður en skjálftahrina hefst eða t.d. skjálfti einhversstaðar í uppsiglingu, þá verð ég svo undirlögð af máttleysi, verk í fótum og upp í mjaðmir ef skjálftinn er í hærra lagi að ég verð að henda mér niður í magnleysinu...Og þegar allt er afstaðið verð ég spræk sem lækur...skrítið...Ég hef aðeins verið að stúdera þetta undanfarið og það bregst ekki ef ég hef kíkt á http://vedur.is/ þá passar þetta alltaf og... vá ...núna er ég að kikja á ný innsettan linkinn kl. 13.38 og ég sé að það hafa verið skjálftar undanfarið. Búin að vera svo undirlögð síðustu daga Og ég var að byrja á pislinum mínum um það leyti og reif mig upp úr máttleysinu til að pára þessa upplifun mína. Þetta er nú svolítið krípi...en svona er þetta bara...Ég held að við allflest finnum eitt og annað á okkur sem ekki er beint hægt að útskýra...

náði í myndina síðan hér að ofan og sé að enn hafði bæst við á meðan ég sit hér og bólgna út, friðlaus í fótunum og nú ætla að henda hætta að sinni við tölvuna og henda mér á aðeins koddann...

 ( skrítna kellan ) josira...

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

josira
josira

Orðin... Pára með penna á óskrifað blað, orðin um hugann renna. Með suð í eyra ég skrifa það, sem ég fæ að heyra. Hvaðan þau koma veit ég ei, en í höfði mínu óma. Líkt og eilífðin, sem gefur frá sér tóna og um himnasali hljóma.

Lítil síða lítur dagssins ljós... Hér hef ég hugsað mér að skrifa um allt og ekkert ... eða bara það sem mig langar til hverju sinni ... Vertu velkomin(n) kæri ferðalangur... í heimsókn hingað, þar sem þú hefur nú fundið vegaslóðan minn litla, í netheiminum stóra ...

 

Lyngrósin Ljóðin mín

Josiraice youtube ljóð og tónlist

Rósin Eldri heimasíða, sem ég get ekki uppfært lengur, en læt hana fylgja hér með.  (Hún virkar einungis í gegnum Internet Explorer)

Light Bearer -poem - josira 

Guðrún Lilja; mánadísin, mín eldri dóttir og Ljóðin hennar

Nýjustu myndböndin

Movie

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband