Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Dalai Lama friðarleiðtogi...

 

 PERSON%20Dalai%20Lama  untitled

Það hefur nú örugglega ekki farið framhjá mörgun hér á Íslandinu,

hina síðustu daga að Dalai Lama hinn merki friðarleiðtogi er hér staddur.

Mig langaði nú bara að þakka öllum þeim sem lagt hafa hönd á plóginn og

unnið að þessum stórkostlega viðburði,

Komu hins andlega leiðtoga Tíbets, Dalai Lama til landssins
.
Þessum lítilláta, en lifsglaða manni sem óbugaður um hálfrar aldar skeið
hefur barist fyrir mannréttindum og sjálfstæði þjóðar sinnar samhliða að
veita af visku sinni og lífsspeki óspart til mannkyns
Einhvern veginn var ég búin að gera mér í hugarlund, ef að hann kæmi hingað,
yrði koma hans með öðru yfirbragði, en verið hefur.
Svona getur maður verið einfaldur í hugsun...
Ég hefði viljað sjá forsetahjón okkar taka á móti honum, ásamt ríkisstjórninni.
Burt séð frá viðskiptasamninga- og vináttu sambandi við risann í austri, Kína.
Sem er auðvitað það afl, sem heldur heljartaki um Tíbet og þjóðina þar...
Það þarf alltaf að vera í gangi einhver pólítísk viðhorf...
að sitja og standa eftir skipan og hótunum annara...
Við eigum bara að vera þau, sem við getum svo vel verið...
Sameiningartákn sem önnur lönd og þjóðarleiðtogar gætu haft sem fyrirmynd..

Þar sem stjórnvöld starfa í sameiningu en ekki í sundrungu.

Þar sem réttlæti ríkir en ekki ranglæti.
Þar sem frelsi ríkir en ekki kúgun.
Þar sem kærleikur ríkir en ekki hatur.

Þar sem friður ríkir en ekki stríð.

En það var allavega gott að eitthvað af ráðamönnum þjóðarinnar

sáu að sér og buðu honum til Alþingis í dag...

Það er bæði heiður fyrir okkur, friðarþjóðina í norðri að fá hann í heimsókn.
Og hann einnig að koma og kynnast þjóðinni okkar nánar, sem hefur svo marga
sérstöðu á svo mörgum ólíkum sviðum...
Mín ósk hefði verið upplifa Dalai Lama á útifundi á okkar gamla helga stað, Þingvöllum.
Þar sem allir hefðu getað haft tækifæri til að eiga samverustund með honum.
Útgeislunin og lífsviðhorf þessa einstaka manns er slík, að það er ekki hægt annað,
en að finna fyrir samhljómi í hjartanu...nema að vera með algjört steinhjarta...
Ég var í Hallgrímskirkju í gær og upplifði sameiginlegu 7 trúarbragða-bænastundina
sem var ákaflega sterk og gott veganesti til gagnkvæmrar virðingar í
mismunandi nálgun við Guðdómleikan, sem við öll leitumst eftir að
finna innra með ökkur...
Þjóðarvitundin á eftir að vakna enn meir
inn á ljóssins leiðir í komandi framtíð...

Með kærleika og von, að vopni
munum við hjálpa okkur sjálfum og öðrum...
 
 
sæl að sinni josira...

mbl.is Dalai Lama í Alþingishúsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verndarengillinn sem færði mér vonina...

 

l_fee4bd544fcccaaad3daee4effe13d06_xibx 

Dag einn í vetur hjúfraði ég mér niður í stól,

inní stofu og var ákaflega langt niðri.

Yfirþyrmandi depurð, sorg og margþætt innri vanlíðan,

sem safnast hafði upp á töluvert löngum tíma,

var við það að yfirbuga mig... andlega og líkamlega.

 

Allt í einu fannst mér einhver standa mér við hlið,

( en ég var ein heima )

Ég hélt augunum lokuðum, en ég hafði verið grátandi.

Fannst mér ég þó horfa á bjarta veru, sem engill væri.

Skynjunin eða sýnin var mjög skýr.

 

Ég fann er hún snerti mig og á þeirri stundu var sem eitthvað

undursamlegt gerðist. Það er vart hægt að lýsa því með orðum...

vildi að ég gæti það með tónum...eða litum...

Það var sem við hefðum tjáskipti í huganum, en ekki upphátt í tali.

 

En samt þurfti ég ekkert að segja, því hún vissi allt...

Um líkama minn flæddi vellíðan, hlýja, kærleikur og það var sem öll

vanlíðanin hyrfi á brott. Ég fann að ég brosti og hjarta mitt fylltist

af þakklæti til þessarar dásamlegu veru og ég fann vonina vakna.

 

Hversu langan tíma sem þessi magnaða upplifun átti sér stað,

get ég ekkert sagt um, var það sekúnda !, mínuta ! hálftími !

Tíminn er svo afstæður... stundum er líkt og hann standi í stað eða

þá hreinlega að hann sé tímalaus...Svo allt í einu var hún farin...

en ég vissi að hún yrði mér ætíð nálæg, þyrfti ég hennar með...

 

Stuttu eftir að ég var búin að jafna mig og finna allan þennan léttleika

sem umvafði minn hug, sál og líkama, greip ég penna og blað og

skrifaði lítið ljóð, um verndarengilinn minn guðdómlega.

 

Þessa fallegu mynd hér fyrir neðan, fann ég á netinu...

angel-15  

 

Ljóshærður engill,

hún leit til mín

með tímalausum,

tindrandi augum.

 

Hún sagði ekki neitt,

því hún vissi allt

ekkert þurfti að segja.

 

Blíðlega, hún strauk

minn augnahvarm,

Sem votur var

af tárum sálar minnar.

 

Sorgin svo mikil,

máttvana ég var.

Svo buguð og brotin,

sem líflaust skar.

 

Kyssti hún mig

síðan, létt á kinn

og ljúfleika

um mig vafði.

 

Hjarta mitt fylltist

af gleði og von.

Er friðinn og kærleikann

frá henni fann.

 

Á þeirri stund

er stóð, hún hjá mér

mildi og ástúð

bar með sér.

 

Sérstök sæla

um mig rann

og raunir allar hurfu.

 

Ég viss var um það

að engill hún var.

Send af himni,

hjálp til min bar.

 

Hún sagði ekki neitt,

því hún vissi allt

ekkert þurfti að segja.

 

Hún ætíð verður

nú, mér við hlið,

englamærin bjarta.

Vekur von

og veitir styrk,

 

lífsgleði í mitt hjarta.

 

josira

 

Flest okkar hafa eflaust eitthvað fengið að heyra um engla, sem börn...

það var eitthvað blítt og gott sem fylgdi þeim frásögnum...

í gegnum barnsbænirnar og fallegu myndirnar...

verndartilfinning í hjartað...

 

print_guardian_angel_watching_over_children_bridge_litho

 

En svo dofnar oft yfir minningarnar í öllum lífshraðanum og þær fjarlægast.

Og við gleymum hversu gott er að geta leitað,

innra með okkur að ljósinu sem þar býr.

 

Sem gefur trú, von og kærleik

og tengist einhverju æðra og meira,

en við getum skilgreint eða skilið fullkomlega,

nema hver fyrir sig...

 

Ljósberi

 

Nú bið ég engla og vætti í guðdómlegri orku,

að umvefja landið okkar, vernda og blessa,

íbúa alla og náttúru þess.

Og hjálpa hverjum og einum að nálgast

sín andlegu auðævi...

 

josira

 

Við erum aldrei ein, hjálpin er nær en margur heldur...

og getur birtst á hina ýmsu vegu...

 

 


Ég legg til og mæli með...

að við Íslendingar verðum þau fyrstu með...ný og breytt lífsviðhorf hjá stjórn landssins allavega í okkar vestræna heimi með að breyta áherslum í störfum þingssins...

Myndi þá hinn hefðbundin vinnudagur á alþingi líta svona út...( eins og ég sé hann í minni framtíðarsýn...) Þegar ráðamennirnir okkar væru komnir inn í hús, væri mættur góður leiðbeinandi ( gætu vera ýmsir góðir til skiptis... ) sem myndi hefja þá vinnudaginn með hópeflis-æfingu... 

Svona til að styrkja hug, sál og líkama..  familjen_super

 

Byrjað væri á öndunaræfingum, sem væru þá einnig léttar líkamsæfingar í leiðinni og síðan myndi stundin enda á nokkurra mínútna hugleiðslu...sem myndaði jákvæða orku í húsinu og í huga og hjörtu ráðamanna okkar...

Væntanlega yrði meiri vinnufriður og samheldni í ákvarðanatökum og allt þetta tímafreka leiðindakarp yrði úr sögunni því að auðveldara væri að sameinast í úrlausn þeirra mála, sem þarf að vinna í og leysa...

Manneskjur með reynslu í slíku leiðbeinandastarfi væru t.d.

  

Guðjón Bergmann   sem gæti tekið létt jóka...

Meditation  

Gunnar Eyjólfsson   gæti kennt iðkun Qi Gong

qigong_feature 

og hæg heimatökin væru ef hún Ragnheiður nýja þingkonan, tæki þetta brautryðjandastarf að sér svona í fyrstu...og marga aðra mætar manneskjur mætti telja til leiks...

Við eigum svo mikið til af góðu kunnáttufólki, sem gætu leiðbeint svo vel með nálgun okkar innri manns...

En nú ætla ég að hætta þessu hugleiðingum mínum að sinni...

finna mér hlý föt og gera mig klára í kærleiksgönguna, sem hefst kl. 18 á austurvelli...

josira

 

 


Mér lýst nú vel á að...

Ragnheiður Ólafsdóttir þingmaður Frjálslynda flokksins sé nú komin innanborðs á þingið, alþýðukona með marga hæfileika...

Sem við ættum fylgjast vel með og fá að nýta og njóta hennar innsæis og ráða...Ég trúi því að koma hennar á þingið muni hjálpa til, á leið okkar inní nýja tímahins nýja Íslands...með breyttum viðhorfum og áherslum...

 ragnheidur_olafsdottir

Hér má sjá og heyra virkilega áhugavert viðtal við hana... 

og einnig lesa umsögn um hana hjá Sigurjóni Þórðarsyni á blogginu...

josira 


mbl.is Þingmaður og árulesari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í landslagi stjórnmálanna...þjóðaraflið og sprotinn...

 

skjaldarmerki  iceland

Ég var aðeins að velta vöngum yfir hver framtíðasýn mín væri í landslagi stjórnmálanna, eftir allt það sem er undan gengið...hvaða áherslur ætti að skoða t.d. hjá þeim hreyfingum-stjórnmálaöflum-hugsjónum, sem eru í burðaliðnum eða eru fæddar...

Ættum við að stokka alveg upp þetta hefðbundna flokkakerfi ?

hægri-vinsti-miðvængur...og hvað þetta kallast nú allt saman...

Og fá eitt afl, þverskurð af öllu samfélaginu, þar sem allir hefðu eitthvað til málanna að leggja ?

Og þá yrði þetta nýja afl að safnast saman í einn flokk væntanlega...og flokkast sem ópólitískur, eða hvað ?

Og þá yrði það einhversskonar t.d. ný-lýð-frelsis-hugsjóna-grasrótar-hreyfing...eða þannig...

Ég fór aðeins að kanna málin, hvað væri svona almennt komið í gang og eða gerjun...

Og það er á hreinu, að sáning er hafin og upp eru sprottin nú þegar nokkur fræ upp úr nýrri, grasrótinni...

Og eflaust eru þarna úti einhver fræ, sem ég fann ekki...þau koma þá síðar í ljós...

hér má sjá þau sem ég fann; ég vona að allir hlekkirnir séu á réttum stað.

  í nafni lýðræðis og réttlætis...

 framtíðarlandið...

 lýðræðishreyfingin...

 lýðveldisbyltingin... 

og að síðustu,

íslandshreyfingin

sem er þá elsta fræið í framansögðum hóp og að mér finnst, það þroskaðasta...

Ég er þó ekki að gera hin neitt minni, því öll hafa þau sitthvað í sínum kjarna að gefa...

Svo ég fór að hugsa, að nú þegar, væru farnir að myndast sjálfstæðir hópar ( flokkar )

eins og sjá má, allavega 5 hér ef ég tel rétt...ekki satt !

( vona að þeir endi svo ekki allir í gamla jarðveginum, tvístraðir vegna þess að )...

Oftast hefur verið argast og gargast yfir hverjir gerðu hvað, hverju sinni, hverjir eigna sér heiðurinn af þessu eða hinu og hverjir ætla að verða bestir næst. Meirihluti-minnihluti...Minnihluti-meirihluti.

En aftur að nýju öflunum, ef maður skoðar stefnur og markmið hjá þeim öllum, sér maður og finnur að allir hóparnir vilja miklar breytingar inn í íslenska stjórnmálalandslagið...meiriháttar umbyltingar...það eiga þeir þó sameiginlegt..vilja sá fræjunum í nýjan og frjóan jarðveg...

Því allir vilja stefna að því að bæta kjör fólksins í landinu, allt frá yngstu kynslóðinni til þeirra elstu...á öllum sviðum...frá öllum hliðum...og nýrra hugsjóna, framfara, náttúru-og umhverfismála...

Hvernig væri að reyna að sameina það besta frá þeim öllum, svo úr yrði eitt feiknastórt blómstrandi fólksins afl...

Svona eins og falleg þjóðar-sameiningar-blóma-breiða , 

Og þjóðarblómið gæti verið merki hins nýja vaknandi þjóðarafls og sprota ...

En eins og við munum var Holtasóley kosin árið 2004 sem þjóðarblóm okkar Íslendinga...

 

holtasoley_frimerki  592585120_95e51509a4

Og svona til fróðleiks um hana;

tekið af síðu Landverndar

Tilgangur verkefnisins ,,leitin að þjóðarblóminu” var að finna blóm sem hefði táknrænt gildi og yrði sameiningartákn þjóðarinnar...

Og blóm sem nýta mætti til kynningar- og fræðslustarfa bæði hér á landi og erlendis. En jafnframt var markmið verkefnisins að skapa umræður um blóm og gróður til að auka samstöðu um gróðurvernd.

Áður en leitin að þjóðarblóminu hófst var ákveðið að gera ákveðnar kröfur til þjóðarblómsins. Það þurfi að vera vel sýnilegt víða um land og einkennandi fyrir gróðurfar þess. Það þurfi að vera lengi í blóma, vera auðvelt að teikna, og vel fallið til kynningarstarfa.

Og sjáið hvað það dreifir sér vel um landið og hefur marga eiginleika sér til lífs...

Holtasóley (Dryas octopetala) er af rósaætt en ekki sóleyjarætt eins og halda mætti af nafninu. Það vex á norðurhveli jarðar. Blómin eru stór með hvítum krónublöðum sem oftast eru átta eins og viðurnafnið octopetala (8 krónublöð). Holtasóleyin kallast hárbrúða eða hármey við aldinþroskun því frævurnar eru margar og verða eins og hárbrúskar. Blöðin eru gljáandi á efra borði en hvítloðin á neðra borði. Þau eru sígræn og kallast rjúpnalauf því þau eru mikilvæg fæða rjúpunnar. Plantan er algeng um allt land bæði á láglendi og hálendi. Blómgunartími er í maí og júní. Te af blöðunum þykir gott. Tegundarnafn sitt oktopetala dregur plantan af octo (átta) og petalon (blað) en blómið hefur átta krónublöð.

Svo mörg voru þau orð...og annað sem þið getið séð af lýsingu blómsins, sem er þetta...

Tegundarnafn sitt oktopetala dregur plantan af octo (átta) og petalon (blað) en blómið hefur átta krónublöð.

Og svona til gamans eitthvað táknrænt um áttuna úr talnaspekinni, fundið af netinu... ;

gloandi_tolur_161106

Köllunartala; 8


Þessi tala leggur lið sitt öllum framkvæmdastörfum. Áhrif hennar styrkja þá, sem stjórna verslunarfyrirtækjum, iðnaðarreksti eða fjármálum, og hún er sérstaklega hliðholl þeim, sem setja sér það markmið að vinna sér stöðu, auðæfi og völd, þótt við ofurefli sé að etja. Hún veitir stefnufestu og hagsýni. En þótt hún lofi ríkulegum launum að lokum, þá er hún ekki tala skjótra og auðunninna sigra. Talan 8 táknar erfitt starf og mörg vonbriði, en sigurvonir eftir margra ára harða baráttu. Þeir, sem láta fljótt bugast, meiga ekki vænta mikils af henni, því að hún gæti orðið til þess eins, að auka áhyggjur þeirra og mistök, þegar aðrir, sem gæddir eru meiri viljaþreki, halda leið sína, þrátt fyrir öll vonbrigði og alls konar öfugsteymi.

Átta er einkennandi tala fyrir byrjun eða "nýtt upphaf" - t.d. byrjun vikunnar, ný áttund í tónlist, átta sálir um borð í Örkinni hans Nóa o.fl. Talan átta er einnig tengd setningunni "Work Smarter, Not Harder", sköpun og frumkvæði.

Talan átta er tákn björgunar og hjálpræðis, nýtt upphaf, ný tækifæri, ný framrás...

Talan átta táknar endurfæðingu eða upprisu...

Og nokkur dæmi um hjátrú í kína:

Hvítur er litur móðurmjólkur. Hann stendur fyrir hægversku, heiðarleika og lífið sjálft...

og mesta happatalan í Kína er 8. Átta á kínversku hljómar líkt og kínverska orðið yfir velmegun...

0-22sha193

Nú verð ég að fara að hægja á mínum hugsunum...það er svo auðvelt að láta sig berast á vængjum þeirra...

En samantektin úr þessum pisli, mætti einhvern vegin vera svona í færri orðum...

Væri ekki upplagt að nýta sér þann vöxt, sem kominn er af stað t.d. hjá íslandshreyfingunni

og að hin hóp-fræin myndu sameinast í þann jarðveg hvert með sína bestu eiginleika, svo upp myndi vaxa sterkur stofn sem myndu í skjóli hvers annars, bera blóm sín í fyllingu tímans...Og hafa að auki fylkingar fólks, sem stæðu vökul á vaktinni, sameinuð, fylgjandi eftir vextinum...jafnframt mætti gróðursetja með, ósýkt fræ, sem laus væru við spillingu úr gamla jarðveginum, svona til styrktar ungfræjunum... 

Og að tákn hins nýja breiðfylkingar-þjóðarafls-sprota yrði hið hvíta, átta krónublaða, þjóðarblómið Holtasóley...

semsagt 1 flokka stjórnarkerfi á Íslandinu góða...

 

bara svona smá pælingar...josira Smile

 


Tími Jóhönnu, sem forsætisráðherra runninn upp...

rikisstjorn_2009

Ég óska bæði henni og nýju ríkisstjórninni alls hins besta á komandi vikum og að þau hafi styrk og getu til þeirra erfiðu starfa, sem þeirra bíða...

Hún er ekki í öfundsverðum sporum, okkar nýja Björgunar-Ríkisstjórn...Og hreinlega spurning hversu miklu hún fær áorkað á ekki lengri tíma, sem henni er úthlutaður í bili...

Eflaust hefur þó hin fráfarna ríkisstjórn unnið meir í gömlu björgunaraðgerðunum, en við höldum á síðustu mánuðum...það hlýtur einhver uppbyggileg grunnvinna í þjóðarhag að hafa átt sér stað, þó lítt hafi hún verið sjáanleg...allavega má þakka henni fyrir vakningu og breytta þjóðarvitund...og nýjum tækifærum sem í því felast..

 

Nokkur bloggorð mín frá 12 mai 2007...

Ég er ekki pólitísk manneskja og það hefur ekki heillað mig í gegnum árin að fylgjast með fjölmiðlum og umræðum fólks í kringum kosningar.  Oftast er argast og gargast yfir hverjir gerðu hvað, hverju sinni, hverjir eigna sér heiðurinn af þessu eða hinu og hverjir ætla að verða bestir næst. Meirihluti-minnihluti...Minnihluti-meirihluti.

Af hverju getur ekki bara verið eitt gott afl eða góð samvinna hjá þeim þingflokkum sem kosnir eru. Af hverju þarf þessi sundrung svo að ríkja í svo mörgu...Sem tefur bara fyrir, þar sem úrlausna, breytinga og framkvæmda er þörf...

Að mörgu leyti finnst mér svo margt undirliggjandi líkt í stefnum flokkana, en með mismunandi túlkun og áherslum.

Er ekki verið að stefna að því að bæta kjör fólksins í landinu allt frá yngstu kynslóðinni til þeirra elstu... á öllum sviðum...frá öllum hliðum ?

 

Látum bæði hugvit og verkvit berast og gerast á jákvæðan hátt fyrir land og þjóð. Verum það leiðarljós, sem okkur er unnt að bera og vera, inn í hinn nýja tíma hnattrænnar vitundar.

Og eftir kosningar 14 mai...2007

Enn einar kosningar yfirstaðnar...og ekki urðu miklar sjáanlegar breytingar á yfirborðinu....En undir niðri er vitund þjóðarinnar að vakna og fræum hefur verið sáð, sem hlúð verður að og munu vaxa í átt til sólar með nýrri hugsjón framfara, náttúru- og umhverfismála...

cosmos

Aldrei aftur verða stjórnmál liðin með líku sniði og verið hefur...Aldrei aftur mun eitt eða fleiri ósnertanleg öfl ráða...Tími bitlinga og spillinga er liðinn...Tími umbreytinga, hreinsunar og nýrra tíma er runninn upp...Hér eftir verður allri stjórnsemi landssins vel fylgt eftir, af vökulum augum landsmanna...

 

sem allflestir bíða nú eftir að hin svifaseina seðlabankastjórn komi sér upp úr stólunum...

 

og nú er niðurtalnig 80 dagana til lögmætra kosninga landans hafin...og er kemur að kjördegi þá er það í okkar valdi, fólksins í landinu, hvaða eða hversskonar ný-stjórnaröfl ( flokka ) og- eða manna við viljum og veljum til að halda um stjórnartaumana...

 

Sem brautryðendur og frumkvöðlar framfara og nýrra tíma munu þeir mætast og mótast saman í uppbyggingu okkar nýja Íslands, sem enn á ný mun rísa úr öskunni, líkt og fuglinn fönix forðum... 

 

Við vorum fyrst að falla í alþjóða hagkerfis-hremmingunum og ég er einhvern vegin sannfærð um, að við verðum með þeim fyrstu til að standa á fætur, en ekki þau síðustu...

 

Núna þurfum við að styðja og styrkja hvort annað með auknum samskiptum og fjölskyldu- og vinatengslum í fjárhags-erfiðleikum heimilanna og atvinnuleysis...

InnerChild

blogg. 23 nóv.2007  Samskipti...

Erfiðleikar eru til að læra af...Oft er þar að finna dulda blessun, síðar meir...Vandamálin eru til að leysa þau...

Sameinið þar sem sundrung ríkir...Styrkið fjöldskyldutengslin, sem unnt er...Standið saman til framtíðar á öllum sviðum, frá öllum hliðum, sem unnt er...Gefið gleði þar sem sorg ríkir...Talið saman í einlægni um hvernig ykkur líður og það sem betur má fara, áar,mæður, feður, dætur, synir, systkyni, frændgarðar og vinir..

Hleypið birtu, gleði og hamingju nýrra tíma inn í lífið. Því lífið er sífelt nýtt, sem er... núið...núna. Ekki bíða og bíða eftir hinu eða þessu...eða að þetta eða hitt gerist...Lifið og njótið, kyssist og hrjótið...Gleði í hjarta, gefur framtíð bjarta...Góðra stunda, auk vinabanda og endurfunda...

 

gledi

Þegar búið er að hreinsa í burtu allt sem fúið er og úr sér gengið, ásamt líflausum og næringasnauðum jarðvegi...

Og við hættum að týnast í orðskrúði ólgandi hafi talna og orða,

sem öllu hafa stjórnað; sem hér má t.d. nefna, 

nafnávöxtun, meðalraunávöxtun, raunávöxtun, allrahanda  ávöxtun, verðtrygging, vaxtakjör, greiðslubyrði, endurfjármögnun, uppgreiðslukosnaður, greiðslustaða, stimpilgjöld, fjármagnskosnaður, vísitölutrygging, vísitöluhækkun-lækkun, eignarstýring, fjárfesting í sjóðum, fjármálamarkaðir, áhættuþol, áhættustýringasvið, innherjar, fruminnherjar, gengisþróun...

Þá byggjum við okkur sterkar þjóðfélags- undirstöður í nýjum og frjósömum úrvalsjarðvegi...

Og nýtum okkur orku nýrra hugsjóna og hugmynda..

MillenniumTree
        
Til uppbyggingar á nýju og manneskjulegra þjóðfélagi ...
og uppskerum sameiginlega ávaxtanna,
með réttlæti, samkennd og
raunsærri stjórnun !

Hér má t.d. finna eitthvað um það frumkvöðlastarf sem hafið er;

Upplýsingalandið, náttúra.info 

 

Nýsköpunar- og frumkvöðlasetur Háskóla Íslands

Nýsköpunarmiðstöð Íslands

Innovit, nýsköpun og stuðningur við sprotafyrirtæki 

Samtök iðnaðarins      

 

Ísland er eitt mesta velferðarríki meðal þjóða.

Við erum stolt, frjáls og dugleg þjóð sem höfum sýnt,

að á ögurstundum stöndum við ætíð saman.

Með að auki allt það stórbrotna sem landið hefur að gefa...

sæl að sinni ...josira

 

Komin með ritræpu...

0-22sha193

eftir þetta langa bloggstopp mitt...

Ég var aðeins að glugga í eldri bloggin mín og sá að þar má finna pínu samsvörun í þeim hremmingum, sem yfir landið okkar litla hefur dunið, síðan þá og já og reyndar heimsbyggðin öll er að fara í gegnum...

426655_jpg_280x210

 

   natures

Við erum öll tengd náttúrunni og alheiminum öllum gegnum vitund okkar.

Við erum kannski bara misjafnlega næm á það...

 

Ætli það sé líka oftast þannig með okkur,

að við erum ekki að taka eftir ýmsu,

sem berst til okkar...t.d. eitthvað táknrænt,

sem við áttum okkur ekki á fyrr en síðar...

16.okt. 2007;

Eiga bankar og stofnanir-félög orðið landann...?

20.sept..2007

Leikur að tölum í hagkerfinu góða...

Og þessi skrif um blekkinguna fyrir langa löngu...

Og ég held að blessuð dýrin skynja allar þessar breytingar sem í vændum voru og eru framundan...

Með umrótum náttúru og manna. Sem og við mannkyn þurfum að takast á við, með breyttun áherslum, þannig að heimsmyndin öll hljóti nýja framtíðarsýn, sem mun byggja á nýjum og fornum sannindum...

fantasy

 

Hugurinn reikaði til liðins.árs þegar frétt um, nú s.l. þriðjudag, að stór myndarlegur hnúfubakur birtist í Hafnarfjarðarhöfn...Og það minnti mig á hvalina í Akureyrarhöfn í fyrrasumar...já og reyndar má geta þess að það komu víst einar 10 tegundir hvala á Skjálfandaflóa árið 2006.

Og fór ég þá að hugsa um hvort þeir væru að færa okkur einhver skilaboð með heimsóknum sínum...

dolphines

WHALE - is the record keeper. Through the rhythm and patterns of sound Whale teaches us to hear our inner voices, to be in touch with our personal truths, and thus to know the wisdom and feel the heartbeat of the universe…

DOLPHIN - brings to us  earth wisdom. Dolphin teaches us that in attuning to the rhythms and patterns of nature we can learn true communication with the wisdom of All That Is and share this wisdom with others. It is also about learning to breathe, we forget sometimes to breathe deeply and fully. Remember that to breathe is to live.

Dolphin: symbol of Harmony, Freedom, Communication, TrustThe Dolphin can teach us much about playfulness, and harmony with others. Dolphins have a strong sense of community with each other as well as the world around them. 

Learn from the dolphin: Wisdom (Intelligence), Harmonious balance in life, Communication as a healing voice, Trust in others via community spirit…

 

Þegar ég las þetta, hvarflaði hugur minn þá til ísbjarnanna, sem  fóru að birtast í heimsókn á Íslandinu góða s.l. sumar og öll vitum við um þeirra endalok..

Funny_Polar_Bear

En ég var búin að setja inn á ýmsum stöðum á bloggið mitt myndir afhvítabjörnum...nokkru áður... 

Og hér má finna sitthvað um tákn bjarndýranna...margt mjög áhugavert, sem þeir hafa að færa okkur

 

BEAR -  teaches us about introspection.

 

Bear medicine teaches us to go within, in order to digest our experiences and to discover that we contain within ourselves the answers to all of our questions. We are our own best teacher. Then bring what we find within to the surface and share it with others.

Og fyrst ég var farin að hugsa til dýra, mundi ég eftir að hafa skrifað eitthvað um fiðrildi og fann þá grein;

10100920A~Butterfly-Chariot-Posters
 
 

22.05.2008    Fiðrildi og ferðalög...

 

... Í gær var mér svo mikið hugsað til fiðrilda...svo ég ákvað að skrifa pínulítið um þau hér. Á margan hátt geta þau táknað þroska og umbreytingu sem við mannfólkið förum í gegnum á lífsleiðinni...t.d. breytingu á lífsháttum og lífsviðhorfum...byrja upp á nýtt segjum við...finna frelsið innra með okkur, sem ber okkur á nýjar slóðir...í lífsgleði og fegurð...

 

Það er líklega það sem við mannkynið þörfnumst;

umbreytinga...á öllum sviðum frá öllum hliðum...

3664~Dream-Catcher-Posters

Og smá áframhald af síðasta bloggi...í sambandi við landvættina okkar...

 

Hvaða orku-styrk-lærdóm gætum við t.d. fengið frá gammnum; ( er átt við Griffin ? ) 

örn eða fönix...?

The Eagle represents spiritual protection, carries prayers, and brings strength, courage, wisdom, illumination of spirit, healing, creation, and a knowledge of magic. The eagle has an ability to see hidden spiritual truths, rising above the material to see the spiritual.   The eagle represents great power and balance, dignity with grace, a connection with higher truths, intuition and a creative spirit grace achieved through knowledge and hard work.   
eaglespiritm
 

En samhljóm er þar að finna og með öðrum fuglum allt frá fornum samfélögum til vorra daga...eins og fuglinn fönix

já margan lærdóm og visku er að finna frá fornu fari...á hinum ýmsu stöðum...

Og hér má finna í blogginu mínu... 24 sept. 2007 

Til heiðurs kvenþjóðinni... Sem er óðum að verða meira virk á öllum sviðum samfélagssins...

 

Við stöndum á tímamótum mannkyn allt, með svo margt...  

Við þurftum á umbreytingunum að halda, þó sárar séu...

 

Við verðum að byggja upp; nýja lífssýn, ný lífsgildi,

ný lífsviðhorf og nýja lífshætti...

 

Við erum það sem við hugsum, gerum og borðum...

 

Við stefnum nú til nýrrar framtíðar...

til friðar...frelsis...réttlætis...mannúðar...hugsjóna...

vonar...mannkærleika...og framfara til góðs...

á öllum sviðum frá öllum hliðum...

heil og sæl að sinni... josira.


Ja hérna hér...

komið rúmt hálf ár, síðan ég bloggaði síðast...

og miklar breytingar orðið á ásjónu Íslandsins góða...

bæði hið innra og hið ytra...

satellite-image-of-iceland

author_icon_11024

    

Frá ári  rottunar/músarinnar 2008

í kínverskri stjörnuspeki til árs uxans 2009...

dyrahringur_040507

MOUSE -  is about awareness, paying attention to detail. 

Mouse teaches us to pay attention to the little details

which might get overlooked in our mad dash

to see the big picture, and reminds us not to overlook the obvious…

svo mörg voru þau orð…

Við ættum kannski að fara að skoða

landvættina okkar íslensku og

kanna hvort við getum ekki virkjað þá á jákvæðan hátt..

skjaldarmerki

UXINN - sem segir:

 Ég bý yfir aflinu stöðuga sem viðheldur hringrás lífsins.

Ég stend óhagganlegur á móti tilraunum andstæðingsins,

einbeittur og flekklaus.

Ég leitast við að þjóna ráðvendninni

og bera byrðar réttlætisins.

Ég hlýði lögmálum náttúrunnar –

þoka örlagahjólinu með þolinmæði.

Þannig vef ég örlög mín.

Ég er uxinn

.

DREKINN - sem segir:

Ég er eldurinn óslökkvandi,

miðpunktur allrar orku,

hetjuleg hugdirfskan.

Ég er sannleikur og ljós.

Í sveiflu minni er máttur og dýrð.

Návist mín tvístrar dimmum skýjum.

Ég hef verið valinn til að temja örlögin.

Ég er drekinn.

( tekið af síðu samuel.is )

Set til gamans einnig slóð um

merki stjórnmálamannanna okkar,

sem þar var einnig að finna.

 

Áhugavert væri að glugga í merkingu

mannsinns-bergrisans og gammsins-arnarins-( fönix )...

 

Þessi byrjunarorð mín áttu nú ekki að verða svona breiðvirk,

en svona getur hugarflugið sent mann á hina ólíklegustu staði...Woundering

 

   
angry-woman-ani
Þegar ég hef gerst pennalöt of lengi,
hefur oft einhver komið mér af stað aftur...

Að þessu sinni var það kærasti dóttir minnar,

hann Sigþór Jónsson frá Hornafirði,

Þessi flinki strákur er í Iðnskólanum í Reykjavík

í grafískri hönnun...

Og þetta fallega logo hér að ofan,

gerði hann og sendi mér og

varð það mér hvatning til að

fara að vinna í síðunni að nýju J ...

Innra með mér hafa ætíð verið einhverjar

sterkar tengingar við að sjá sverð og rós saman...

ásamt ýmsu öðru og eflaust er þannig farið með allflesta...

Ég man eftir því sem barn og unglingur

var ég oft að teikna myndir

af sverði og rós saman og langaði mig

mikið að fá mér þannig tattú...

 

En þá voru það bara vaskir sjómenn,

sem fengu sér tattú af ankerum eða meyjum...

Síðan eru liðin mörg ár og allskonar fólk e

r með tattú í dag út um allan líkamann...

Einhvern daginn, þegar ég get ákveðið mig...

fer ég af stað og læt verða af því að fá mér eitt eða fleiri...:-)

 

Í dag veit ég, að það er svo margt sem má sjá og finna, s

em leynist í ýmiss konar táknum.

og miklar og margar djúpar merkingar, sem þar liggja að baki...

Ég hef reyndar allatíð haft mikinn áhuga á allskonar táknum, s

em finna má, sjá og jafnvel dreyma...

Ég held að tákn tengist almennt manninum meir, en við höldum...

Held þar sé hinn mesta helgidóm að finna á mannsins þroskaleiðum...

að þar sé að finna mikla fræðslu og djúpan sannleik...

Hin seinni ár hafa þau dregið mig sífellt meir að sér...

Hér er ein frábær síða sem ég var að rekast á, þar sem,

sýnist mér ákaflega margt er að finna...

og hér má sjá tölur ( talnaspeki ) ásamt ( Agný-blog )

Hver dagur, er nýr, ný sköpun, núið...

Berum bjartsýni á borð í dag...

Reynum að sjá, heyra eða skynja eitthvað nýtt,

Eitthvað jákvætt, eitthvað skemmtilegt...

Eigið góðan dag sem og alla aðra...

sæl að sinni...josira


Flogin og vitja nýrra ævintýra...

 fl_horse

í daglega lífinu og einstaka sinnum í netheiminum stóra...

Er komin með youtube síðu...Verið velkomin í heimsókn... 

http://youtube.com/josiraice

gaja

Komin í bloggfrí í bili...

sendi mínar bestu óskir út til ykkar um heillaríkt og heilsugott sumar...

cosmic_heart

Og að land og þjóð verði umvafin ljósi og vernd Almættisins...

josira


Komin tími til að...

 

Religious_7143354_std

setja niður örfá orð...tíminn flýgur áfram og sumarið skartar orðið sínu fegursta...gleðjumst með...

Lífsgleði.

Margt er það sem léttir lund,
eflir gleði, veitir stund.
Frá hugarangri, þraut og pínu
leiðsögn fá frá hjarta sínu.

Fylgja eftir hjartans rómi,
svo að sálarljósið ljómi.
Lifsins njóta hér og nú,
skulum bæði ég og þú

Hafa gaman af hinu og þessu,
þrautir kveðja og ganga til messu.
Moka mold, hlaupa og hjóla
taka stökk eða skoöa njóla.

Pissa úti uppí vind,
horfa á hund elta kind.
Sparka bolta, hengja upp lak,
fara í snúsnú og á hestbak.

Horfa á daggardropa detta,
sólina skína og magann metta.
Elska engil, dansa dátt
taka allt og alla í sátt.

Læra að ganga á lífsins línum
og fylgja eftir draumum sínum.
Sýna bæði þor og dug,
njóta allt sem fangar hug.

Horfa á fallegan fjallahring,
finna fegurðina allt um kring
Opna fyrir lífsins flæði,
fagna og þakka öll þess gæði.

höf;johanna s.r. ( josira )

4938523

satellite-image-of-iceland

null

indiandreambackground

Umvefjum þá sem okkur þykir vænt um með ást og umhyggju...

Tíminn er dýrmætur...

Ekki bíða með neitt, sem hrjáir huga hverju sinni...

Ekki þjaka hug,líkama og sál til lengri tíma að óþörfu...

Ekki bíða...lífið er núna ...í dag...

hugs

peace_hands

pic_respon3

tigerhug

cat_hug

ljós inní í daginn...josira


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

josira
josira

Orðin... Pára með penna á óskrifað blað, orðin um hugann renna. Með suð í eyra ég skrifa það, sem ég fæ að heyra. Hvaðan þau koma veit ég ei, en í höfði mínu óma. Líkt og eilífðin, sem gefur frá sér tóna og um himnasali hljóma.

Lítil síða lítur dagssins ljós... Hér hef ég hugsað mér að skrifa um allt og ekkert ... eða bara það sem mig langar til hverju sinni ... Vertu velkomin(n) kæri ferðalangur... í heimsókn hingað, þar sem þú hefur nú fundið vegaslóðan minn litla, í netheiminum stóra ...

 

Lyngrósin Ljóðin mín

Josiraice youtube ljóð og tónlist

Rósin Eldri heimasíða, sem ég get ekki uppfært lengur, en læt hana fylgja hér með.  (Hún virkar einungis í gegnum Internet Explorer)

Light Bearer -poem - josira 

Guðrún Lilja; mánadísin, mín eldri dóttir og Ljóðin hennar

Nýjustu myndböndin

Movie

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband