Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Vefurinn

Afmælisganga...

Fór í bænagönguna á afmælisdaginn minn þann 10 nóv. ásamt ungum frænda. Ákvað að fara án allra fordóma til að styðja málefnið ; að ganga saman í einingu og biðja gegn myrkrinu...sem birtist okkur í svo mörgum myndum og mynstrum...á Íslandinu í dag, svo og annarsstaðar í heiminum öllum...

baenaganga1

Án fordóma þá meina ég, að ekki eigi að skipta máli hvaðan gott kemur...þessi ganga hefði þess þess vegna getað verið í nafni hvers sem var; trúleysis eða einhverrar annarar trúarbragðastefnu...

baenaganga_biskup

Svona baráttu-eldmóður er nú eiginlega öfundsverður og ætti að vera hvatning öllum sem vantar kjark og þor til að ljá máls á sínum hugar-og hjartans málum...Hver þó sem þau eru. Öllum eru allir vegir færir, ef viljinn er fyrir hendi...segi ég nú bara...Það magnaðasta var að sjá gamla biskupinn okkar, Sigurbjörn Einarsson standa í ræðupúltinu orðinn 96 ára, ótrúlegur háaldraður baráttumaður hinnar lútersku íslenskrar kirkju, sem flest okkar hafa alist upp við.

Ég ber mína barnstrú í mínu hjarta...hún í rauninni tengist ekki neinni ákveðinni trúarstefnu...hef uppgvötað það nú á síðustu árum...

Og hefði ég verið uppá miðöldum, með minn skilning og mína skynjun á lífinu í dag og tjáð, hefði ég sennilega verið brennd á báli fyrir villutrú...

Á unglingsárunum mínum upplifði ég að einhverju leiti trúleysi. Hafði ég þó afar mikla trú sem barn, gat ekki sofnað nema segja bænirnar mínar og jesús besti vinur barnanna var minn einlægi vinur, gat talað við hann um allt sem ég þurfti…og ef mikið lá að, þá við Guð sjálfan.

En síðan missti ég trúna á Guð...hætti að trúa á einhvern persónugerðan gráhærðan öldung sem á að sitja í hásæti uppá himni og stjórna þaðan hver fer til himna eða helvítis eftir dauðan...fannst hann ekki vera lengur góður né rérttlátur heldur vondur og óréttlátur að láta allt það slæma gerast í heiminum...t.d. stríð, hungur, fátækt og allra handa óhamingju…

og ég lét minn besta barnæskuvin hverfa með trúmissinum...

Síðar breyttist skilningur minn og upplifun…Það eru mannanna verk í nafni allsskonar trúarstefna, mannanna afbakaðar túlkanir á trúarbrögðum og trúarstefnum. sem orsaka stríð og valdabaráttu sem viðhalda þessum mannlegu hörmungum…( þroskavitund viðkomandi þjóða )

það er stundum erfitt að vera umburðarlyndur og virða trúar-brögð annara og stefnur, sem margar kynslóðir manna hafa alist upp við og eru hreinlega þeim í blóð borin...sem sífellt þurfa að hefna bróður-systur-föður-móður og annara áa frændgarðs-harma...Líkt og var með víkingana forðum daga, okkar forfeðra-og mæðra hér á Íslandinu litla...Og ekki var nú fagur vegur kristninnar á miðöldum t.d í Evrópu...blóði drifinn með valdatökum í nafni Krists...sannlega ekki það sem bjó i hans boðskap á sínum tíma...Var það annars ekki friður, kærleikur og fyrirgefning...?

Og hvað skyldu vera margar kirkjur og kirkjudeildir t.d. bara hér á Íslandi í dag sem teljast til kristinnar trúar, en eru með sínar túlkanir, mismunandi áherslur og sínar stefnur sem eiga að teljast þær einu réttu...en hafa þó sömu bókina að lesa í leiðsagnar og fara eftir. Biblíuna..

Margar pælingar í litlum kolli kellu þessa stundina...

En á ögurstundum í lífi mínu síðar hafði ég samt þörf fyrir að biðja um hjálp til einhvers-eitthvað þarna úti í alheiminum…einhvers-eitthvað æðra ofar öllu…einhvers-eitthvað sem ég fann fyrir að hjartað kallaði til…Og ég held að allflestir finni í sínu hjarta, þó jafnvel sá eða sú kalli sig trúleysingja, til þarfar einhvern tíma ævi sinnar, í vanmætti sínum, til að leita til einhvers sem æðra er...

image_035 

Það er einhver innbyggð samsvörun, einhver tenging við eitthvað sem kallar, sem hefur og gefur ljós í myrkri, von, vernd, traust, trú, kærleik, og styrk, sem er svo gott að finna fyrir og vita af, að eftir hverjum stormi á lífssins ólgusjó kemur aftur logn og heiðríkja…Og að einhver tilgangur sé í þessu blessaða lífi, sem oft virðist vera svo harður skóli…

Ætli það sé ekki bara tilgangur-lífsverkefni hvers og eins að taka á kostum og löstum sjálfs sins, hverju sinni…

Hver vill sína sælu hafa, eða sinn djöful að draga…

Vinna að því að læra að þekkja sjálfan sig frá öllum hliðum á öllum sviðum…Og að lifa hér og nú í núinu, sem sannastur við sjálfan sig og í samhljómi náttúru og alheims…T.d. gera betur í dag en í gær í markmiðum sínum. Stefna frá lífi sjálfsblekkingar í átt til meiri sjálfsþekkingar og betri sjálfsræktar og mannræktar...

Hætta að dæma sjálfa sig og aðra. Læra af því neikvæða í fari okkar og annara og umbreyta í jákvæðara viðmót og viðhorf…Þegar við lærum að elska okkur sjálf, getum við ekki annað en elskað náungan og náttúruna alla og sendum þau skilaboð út í sköpunina sjálfa, alheiminn og þá samvitundina, sem endurspeglar og sendir til baka það jákvæða eða það neikvæða sem býr í hverri hugsun og gjörð…

Kannast ekki flestir við þessar svokallaðar, hefðbundnu ;            

dauðasyndirnar 7 og höfuðdyggðirnar 7 ?

( hef þó einhvern grun um að þær séu fleirri, jafnvel 12, á eftir að finna útúr því )

Það er nú heilmikið sem býr í hverju orði fyrir sig, ærið verkefni að spá og spegluera í, finna kannski út hvar maður stendur gagnvart þeim…

Grægi, Dramb, Óhóf, Öfund, Reiði, Losti og Leti...og þá Viska, Hófstilling, Hugrekki, Réttlæti, Von, Trú og Kærleikur...

Og að auki til gamans má nefna hér, að gerð var könnun á vegum Gallup árið 2000 á því hvað Íslendingar meti helst í eigin fari og annarra. Sem og reyndust vera þessi orð og mætti svosum kalla, að séu hinar íslensku höfuðdyggðir: 

Hreinskilni, Dugnaður; Heilsa, Heiðarleiki, Jákvæðni, Traust og Fjölskyldu- og vináttubönd…

Að reyna að vera, gera eða bera eru hin endalausu verkefni vor…

Josira

p.s. var söfnuð en vaknaði, varð andvaka og ákvað first svo var að pikka nokkur orð út í bloggheiminn…

 


Bænagangan...

Bænaganga... Göngum saman í einingu gegn myrkrinu 10 nóv...

baenagangan

http://www.baenaganga.com/

Crystal_Cathedral

Mig langar að hvetja alla sem einn, að fylkja liði í bænagönguna, sem hefst kl. 14 í dag við Hallgrímskirkju...Beðið verður fyrir myrkrinu í Krists nafni...

Sameinumst í göngunni, burtséð frá trúleysi og trúarbragðastefnum...

Sameinumst í vinsemd með ljós og kærleika í hug og hjarta...

 

josira

 


Lítil síða lífsseig er...

Vonina vekur lífsins ljós
lokkar og umvefur litla rós,
sem reisir sig úr rökkva í yl
og ilmandi lokar óttans hyl.

ae7aae61-d0a8-4908-828f-d584397b2ce9

Kæru bloggvinir, komin aftur ég er...

Í smá tiltekt á síðunni minni um daginn ætlaði ég að breyta og eyða örlitlu af henni, en hún hvarf út í geim svo ég ætlaði nú bara að kveðja hana endanlega.

En hún ákvað að koma aftur eftir sitt ferðalag og er lent, kannski með eitthvað forvitnilegt í farteskinu, hver veit...kemur í ljós...

Þakkir stjórnenda bloggsins sendi ég fyrir að hafa getað afstýrt eyðingu hennar og kallað hennar forritun heim aftur..

kveðja að sinni josira


Söngur...gleði...glens...gaman...

Eftir að ég uppgvötaði  www.youtube.com sem var nú bara rétt nú um daginn hefur hreinlega ný veröld opnast mér...Það sem er ekki hægt að finna þarna...Ég langar aðeins að deila með ykkur einhverju af því sem ratast hefur til mín :         

Eitt magnað hér með þríburasystrum, sem bæði syngja, dansa og eru vægast sagt LIÐAMÓTALAUSAR á stundum...GetLost...Held það sé ekki hægt að öðlast þessa fimi, þó æft væri stíft í heilsuræktinni í vetur...Verður að sjá til ENDA...

"Potato Salad" Triplets Dance!    Ross Sisters...                                                                     

 

Á mínum yngri árum þá; I just loved to; hlusta á Cat Stevens, en nafn hans í dag er Yusuf Islam, sem hann tók sér 1978 er hann gerðist islamtrúar.

1catstevens  yusif-islam 

 Cat Stevens - Peace Train (live)

Hláturinn lengir lífið LoL...Hér má sjá og heyra yndislegan fjórburahlátur...Heart 

Quadruplets lagh....fjórburahlátur... 

 

josira

 

Allsstaðar er fegurð að finna...

Tók þessa mynd í gær útí garði....

tungl25okt07 067

Vetur, sumar, vor og haust...

Allar árstíðar hafa sinn tíma, sínn tilgang, og sína  fegurð. Það er okkar skynjun og skilningur hverju sinni, hvernig við nýtum og njótum þeirra...

Nú er bara um að gera að klæða sig eftir veðri veturs konungs hér á Íslandinu...

author_icon_11024

Finna vetrarfötin...gera bílinn klárann í vetrartékk með dekkjaskiptum, frostlegi o.fl. ...birgja sig upp af kertum til að kveikja á í skammdeginu, finna hlýju teppinn og passa að nóg sé til af svissmiss kakói. Dusta rykið af bókunum sem átti að vera búið að lesa eða kaupa sér eitthvað nýtt sálarfóður. Gramsa í dótinu sínu og finna eitthvað sem hægt er að nota til föndurgerðar eða kíkja eftir einhverju sniðugu, sem hægt sé að nota sem virkjar hugmyndarflugið, þá sérstaklega fyrir þá sem ekki geta notið útiverunnar...

mislit_kerti

lát ljós þitt skína...

okt07 252

Semsagt gera eitthvað skemmtilegt fyrir hug og hönd... Joyful...

sept.07 271

Ósla snjóinn, fara á snjóþotu, skíði eða skauta, finna gleði barnssins innra með okkur í leik og starfi.

snjobretti_271102

Og ekki gleyma að leggjast í snjóinn og búa til engill með höndunum og njóta þess að horfa til himins og láta sig dreyma... 

snow%20angel

Allt er í eðli sínu hlutlaust, þar til við gefum hlutunum merkingu. Það er undir okkur sjálfum komið hvort við veljum jákvæða eða neikvæða afstöðu hverju sinni...

Frosthiti.

Sem glitrandi gimsteinabreiða
sjá glampa á hrímhvíta fold
slík fegurð frá hafi til heiða
hitar hug, en kælir hold.

josira


Tunglið, tunglið...

Ég hef ætíð heillast af tunglinu svo lengi sem ég man, þessar myndir tók ég þann 25 okt. sl...

Svo ótrúlega bjart... það var eiginlega erfitt að horfa á það...

tungl25okt07 001 

Tunglið tunglið taktu mig og berðu mig upp til skýja...

tungl_25okt07_2

Tunglið endurspeglar sífelldar breytingar, það er aldrei eins dag frá degi. en fer þó ætíð í sama hringinn. Það hefur áhrif á flóð og fjöru og þessi 28 daga hringrás tunglsins tengist sennilega    meira okkar daglegu hegðun og hugsun heldur en okkur er ljóst.  

Tunglið er talið tengast t.d. , kvenorkunni, tíðarhringnum, móðureðlinu, undirmeðvitundinni, umhyggju, innsæinu, og það sem við geymum innra með okkur t.d. tengt barnæskunni , þ.e. innra barninu.. meltingarfærunum, maga og brjóstum...

Hér má finna ýmislegt áhugavert um tunglið; frá öðrum fengið að láni ;

http://www.stjornuskodun.is/vefur/solkerfid/tunglid.html

og læt fylgja hér úr wikipedia;

The Moon () is the ruling planet of Cancer. In Roman mythology the Moon was represented by Diana, the hunter goddess. The Moon is the earth's companion satellite, though some astrologers believe that it approaches being a planet in its own right. The Moon is large enough for its gravity to affect the Earth, stabilising its orbit and producing the regular ebb and flow of the tides. The Moon is familiar to us for its different phases, waxing and waning in appearance in an unchanging cycle. The Moon orbits the earth in about 28 days, spending a fleeting 2.33 days in each of the signs of the zodiac. By a strange coincidence, the orbit of the moon syncs up with its orbit around Earth in such a manner that the same side of the moon always faces the Earth and the other side, known as the "dark side of the moon" faces towards space.

Astrologically the moon is associated with a person's emotional make-up, unconscious habits, rhythms, memories and moods, and their ability to react and adapt to those around them. It is also associated with the mother, maternal instincts or the urge to nurture, the home, the need for security, and the past, especially early experiences and childhood. The first-century poet Manilius, described the Moon or Luna, as melancholic. In medicine the moon is associated with the digestive system, stomach, breasts, the ovaries and menstruation (which does occur on a monthly cycle), and the pancreas. Despite Manilius' assignation, the moon was commonly associated with the phlegmatic humour; it ruled the animal spirits together with Mercury. In modern astrology, the moon is the ruler of the 4th house; traditionally, it ruled the 7th house, the house of partnership, and had 'joy' in the 3rd house of neighbours (associated with lunar themes of accommodation, change and the clan). The Moon is associated with Monday. Dante Alighieri associated Luna with the liberal art of grammar.

In Chinese astrology, the Moon represents Yin, the passive, receptive feminine life principle. In Indian astrology, the Moon is called Chandra or Soma and represents the mind, queenship, and mother. The north lunar node (called Rahu) and the south lunar node (called Ketu) are considered to be of particular importance, and are given an equal place alongside the seven classical planets as part of the nine navagraha. Also unique to Indian astrology is the system of 27 (or 28) lunar stations or 'mansions' called nakshatra which are believed to be of major importance in indicating the life path of the individual.

josira


Bergmálaði úr bloggheimi...

 

Fegurð raddar víða fer

ferðast á mörgum sviðum.

söng sig í tölvu mína hér

hugljúf frá öllum hliðum.

notur

Bergmál úr bloggheim

barst til eyrna minna

máttugt úr barkaseim

sent til ykkar hinna.

 

Ég varð gjörsamlega heilluð af yndislegri rödd þessa drengs,  Heart Declan Galbraith... Írskur held ég...

Mátti til með að setja myndböndin hér og deila með þessum fallega gullfundi mínum á netinu svo endilega að hlusta og njóta ...Heart...

 

Declan Galbraith - Walking in the Air

Declan - Tell Me Why - a children's tribute

Danny boy sung by Declan Galbraith

 

josira


Ekki er allt sem sýnist...öryrkjar og ellilífeyrisþegar…

 

btrfly7

Styðjum baráttu öryrkja...endilega að lesa og skrifa svo undir og láta sem flesta vita...

hér er slóðin á öryrkja-fjöryrkja undirskriftalistann, sem baráttukonunar og bloggararnir;

Ásdís Sigurðardóttir http://asdisomar.blog.is/blog/asdisomar og Heiða Björk Jónsdóttir http://fjoryrkjar.blog.is/blog/fjoryrkjar/ komu á laggirnar:

http://www.petitiononline.com/lidsauki/


og hér má fnna hugleiðingar mínar um kjör öryrkja...

Ekki er allt sem sýnist...öryrkjar og ellilífeyrisþegar...  

 josira


Fegurð starfræðinnar...

Starfræði var nú ekki mítt sterkasta fag í skólanum hér í den...Kannski var viðhorfið mitt litað neikvæðni...fannst lítið skemmtilegur þessi heimur talnanna...En eflaust er þar fegurð að finna líkt og allsstaðar annarsstaðar sé maður jákvæður og opinn fyrir...Og þegar ég rakst á þessa uppsetningu talnanna hér fyrir neðan fannst mér hún allt í einu áhugaverð og spennandi...hreinlega eins og þar væri einhvern takt ( ryþma ) að finna

 numbers

Beauty of Mathematics  

1 x 8 + 1 = 9 

12 x 8 + 2 = 98

123 x 8 + 3 = 987 

1234 x 8 + 4 = 9876

12345 x 8 + 5 = 98765 

123456 x 8 + 6 = 987654

1234567 x 8 + 7 = 9876543 

12345678 x 8 + 8 = 98765432 

123456789 x 8 + 9 = 987654321

 

1 x 9 + 2 = 11

12 x 9 + 3 = 111 

123 x 9 + 4 = 1111

1234 x 9 + 5 = 11111 

12345 x 9 + 6 = 111111

123456 x 9 + 7 = 1111111 

1234567 x 9 + 8 = 11111111

12345678 x 9 + 9 = 111111111

123456789 x 9 +10= 1111111111 

  

9 x 9 + 7 = 88 

98 x 9 + 6 = 888 

987 x 9 + 5 = 8888 

9876 x 9 + 4 = 88888 

98765 x 9 + 3 = 888888 

987654 x 9 + 2 = 8888888

9876543 x 9 + 1 = 88888888 

98765432 x 9 + 0 = 888888888 

 

Brilliant, isn't it?    And finally, take a look at this symmetry: 

  

1 x 1 = 1

11 x 11 = 121

111 x 111 = 12321 

1111 x 1111 = 1234321

11111 x 11111 = 123454321 

111111 x 111111 = 12345654321 

1111111 x 1111111 = 1234567654321

11111111 x 11111111 = 123456787654321

111111111 x 111111111=12345678987654321                                                                                 

gloandi_tolur_161106

                                                                             

Af hverju þykja tölurnar 7, 9 og 13 sérstaklega kynngimagnaðar?

 

Margt svo skemmtilegt að skoða, spá og spegluera ... endilega að kíkja á...

www.visindavefur.hi.is/svar.asp?id=6386

josira


Áhugaverðar leiðbeiningar...

 

 

 

Rakst á síðu sem er með áhugaverðar leiðbeiningar og áherslur á uppbyggilegu efni, tengt hug, sál og líkama...endilega að kíkja á :    http://www.hugbrot.is/  þar er að m.a. hægt að finna eitthvað um megrun, hugefli, sjálfstyrkingu, slökun, hamingju, minni verkir, reyklaust líf...á cd diskum...

josira


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

josira
josira

Orðin... Pára með penna á óskrifað blað, orðin um hugann renna. Með suð í eyra ég skrifa það, sem ég fæ að heyra. Hvaðan þau koma veit ég ei, en í höfði mínu óma. Líkt og eilífðin, sem gefur frá sér tóna og um himnasali hljóma.

Lítil síða lítur dagssins ljós... Hér hef ég hugsað mér að skrifa um allt og ekkert ... eða bara það sem mig langar til hverju sinni ... Vertu velkomin(n) kæri ferðalangur... í heimsókn hingað, þar sem þú hefur nú fundið vegaslóðan minn litla, í netheiminum stóra ...

 

Lyngrósin Ljóðin mín

Josiraice youtube ljóð og tónlist

Rósin Eldri heimasíða, sem ég get ekki uppfært lengur, en læt hana fylgja hér með.  (Hún virkar einungis í gegnum Internet Explorer)

Light Bearer -poem - josira 

Guðrún Lilja; mánadísin, mín eldri dóttir og Ljóðin hennar

Nýjustu myndböndin

Movie

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband