Færsluflokkur: Ljóð
24.3.2012
Hugarþankar,
Ljóð | Breytt 25.3.2012 kl. 02:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.2.2012
Regnið rennur rúðu á ...
Afl
Regn og vindur, vasklega vinna
vekja von, er stöðnun finna.
Í burtu blása, brostna drauma
og döggva á ný, lífssins strauma.
Heyrnin.
Er regnið, rennur rúðu á
gott er að geta legið þá.
Hlusta á dropa, detta á þak
þakka heyrn og breiða yfir bak.
Ef hlustað getur, á náttúruhljóð
hljómar óma, sem ljúfustu ljóð.
Læknandi mátt, hjartanu gefur
gjafmildi lífsins, aldrei sefur.
josira
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.10.2011
Kærleiksrósin ...
Kærleiksrósin
Kærleiksrós í hjarta hvers býr
brennandi ljóssins loga knýr.
Kyndilberi þeirra geisla glóða,
sem glitra á hvern vegaslóða.
Ljóð | Breytt 22.10.2011 kl. 14:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.10.2011
10 boðorð jarðarinnar ...
Langaði að deila hér þessum fallegu orðum, tileinkuðum móðir jörð.
Gaman væri ef einhver gæti þýtt þau yfir á íslensku.
Ten Commandments of Mother Earth
I. Thou shalt love and honour the Earth
for it blesses thy life and governs thy survival.
II. Thou shalt keep each day sacred to the Earth
and celebrate the turning of its seasons.
III. Thou shalt not hold thyself above other
living things nor drive them to extinction.
IV. Thou shalt give thanks for thy food,
to the creatures and plants that nourish thee.
V. Thou shalt educate thy offspring for multitudes
of people are a blessing unto the Earth
when we live in harmony.
VI. Thou shall not kill, nor waste Earths
riches upon weapons of war.
VII. Thou shalt not pursue profit at the Earths
expense but strive to restore its damaged majesty.
VIII. Thou shalt not hide from thyself or others the
consequences of thy actions upon the Earth.
IX. Thou shalt not steal from future generations
by impoverishing or poisoning the Earth.
X. Thou shalt consume material goods in moderation
so all may share the Earths bounty.
~Author Unknown~
josira
Ljóð | Breytt s.d. kl. 00:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.5.2011
Mær og mynd ...
Mærin hin mjóa
mynd tók af Spóa
spratt þá upp Lóa
langt út í móa.
ég elska þegar vorið og sumarið kemur, gróandinn með græna litinn
og fuglasönginn, sem fagurlega hlómar um allt.
það yljar hug, sál og líkama.
josira
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hér er lítð ljóð, sem kom til mín eftir að ég eignaðist mitt fyrsta barnabarn, sonarsoninn Skúla Frey, en afmælisdagur hans er í dag. Hann er aldarmótarbarn, fæddur 10 mars á því herrans ári 2000.
Ömmustrákur
Líkt og fögur perla,
er döggin um stund.
Líkt og sólargeisli
sem léttir lund.
Líkt og augnablikið
sem líður hjá.
Þar sé ég
brosið þitt bjarta.
Að skynja fegurð
í öllu sem er
Sælli maður er sá,
sem það sér.
Innst í hjörtum
allra það býr.
Kærleiksaflið,
sem öllu snýr.
Þar sé ég
brosið þitt bjarta.
Og litla ljóðið var ég að reyna að þýða yfir á ensku;
Grannys Boy
Like a beautiful pearl
is the dew for a while.
Like a refulgent sunbeam
lighten up your mind.
Like a twinkling of the eye
as it passed by.
There I see
your brightly smile.
To perceive the beauty
in everything as it is.
A happier person
is the one who its sees
Inside of everyones heart it is,
the charity forces, who all turns.
There I see
your brightly smile.
Þessi yndislegi og efnilegi drengur er einn af mörgum ungum afkomendum þessa lands. Einn af æskuljómunum okkar, sem erfa munu landið og taka við búi þess og stjórnun í komandi framtíð. Ég get ekki neitað því að sárt þykir manni hvernig staðan er orðin hjá þjóðarbúinu í dag og að framtíðin virðist ekki sérlega björt í bili fyrir ungu afleggjarana okkar. En sameinuð getum við eldri kynslóðirnar, enn um sinn barist fyrir réttlátari og heiðarlegri þjóðfélagi og fært meiri birtu og von í farteskið þeirra.
josira
Ljóð | Breytt 11.3.2011 kl. 00:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.4.2010
Heilræði mín, gef til þín ...
Fortíðin geymir minningar, nútíðin er það raunverulega, í framtíð felst áskorun og markmið...
Nálægðin nær tökum á þér þegar tíminn, tímalaus er...
Veröld okkar spannar margar víddir
Átakalaust fuglinn flýgur og frjókorn upp úr moldu smýgur...
Viljinn knýr vængi vonarinnar...
Með djörfung og dug, dafnar hugrekki í hug...
josira
Ljóð | Breytt s.d. kl. 15:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.4.2010
Sem melta mun forynjur og fépúka ...
( mynd sem landhelgisgæslan tók af eldstöðvunum í Eyjafjallajökli )
Skrattakollur eða skessa ljót
læðast nú með eld og grjót.
Gæfuleg eru ekki er að sjá
skökk og skæld ásjónu á.
Á sig minna um veröld alla
er anda frá sér gjósku salla.
Sem stakkaskiptum sífellt tekur,
torveldar sýn og jörðina þekur.
Þröngvuðu sér úr möttli jarðar
jöklana skóku, hríðar harðar.
Hreinsunareldur upp nú rís
ræskir sig er jökullinn gýs.
Göng nú opnast upp á gátt
gos nú minnir á náttúru mátt.
Melta mun forynjur og fépúka
fláræði og svikum nú skal ljúka.
Ljósgeislar ljóma um landið síðar
smán saman grænka og gróa hlíðar.
Hæðir, hólar og vatnsföllin fögur
fönguleg færast í Íslands sögur.
josira
( kannski fáum síðar, fallegt gil í Gígjökli með fögrum fossi í stað lónssins )
Ljóð | Breytt 1.5.2010 kl. 08:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mátti til með að deila með ykkur, þessu yndislega ljóði, sem fangaði augu mín, en höfundur þess er Hulda skáldkona ... ( Unnur Benetiktsdóttir Bjarklind )
Manni hlýnar nú bara um hjartarætur ...
Hver á sér fegra föðurland
Hver á sér fegra föðurland,
með fjöll og dal og bláan sand,
með norðurljósa bjarmaband
og björk og lind í hlíð?
Með friðsæl býli, ljós og ljóð,
svo langt frá heimsins vígaslóð.
Geym, drottinn, okkar dýra land
er duna jarðarstríð.
Hver á sér meðal þjóða þjóð,
er þekkir hvorki sverð né blóð
en lifir sæl við ást og óð
og auð, sem friðsæld gaf?
Við heita brunna, hreinan blæ
og hátign jökla, bláan sæ,
hún unir grandvör, farsæl, fróð
og frjáls - við ysta haf.
Ó, Ísland, fagra ættarbyggð,
um eilífð sé þín gæfa tryggð,
öll grimmd frá þinni ströndu styggð
og stöðugt allt þitt ráð.
Hver dagur líti dáð á ný,
hver draumur rætist verkum í
svo verði Íslands ástkær byggð
ei öðrum þjóðum háð.
Svo aldrei framar Íslands byggð
sé öðrum þjóðum háð.
Höf: Hulda skáldkona ( Unnur Benetiktsdóttir Bjarklind )
Eigið góðan dag, sem og alla aðra ... josira
Ljóð | Breytt s.d. kl. 13:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fæðing nýs lands ...
20 mars tvöþúsund og tíu
í titrandi tjáningu hóf að nýju
Eyjafjallajökull, að spúa eldi.
endurvakinn, síðla að kveldi.Kvöldroði hins nýlega mána
minnkaði, er loft fór að grána.
Gosmökkurinn á vorjafndægri,
vöðlast um til vinstri og hægri.
Krafturinn undir kraumar og mallar
máttugur mjakast, á logann kallar.
Klofnar þá jörðin við jöklana rönd
rösklega rifna bergssins bönd.Brátt ber við himinn bjartan bjarma
breyting er á staðhættis sjarma.
Snarbrattir klettar, klungur og gil
glóa við eldgossins sjónarspil.Snævi þakta jöklanna jörð
jarðeldar breyta í svartan svörð.
Sökkla nýsköpunar, þó má sjá
snarplega stækka, Fimmvörðu á.Ásýnd átthaga, eldstöðva verk
vísindamönnum þykja merk.
Mörgum öðrum einnig líkar
loga leiftra og hamfarir slíkar.Sjónarsviðið sjóðheitt brennur
bylgjast áfram, hraunið rennur.
Reykjabólstar til himins berast,
brak og brestir, mikið að gerast.Gætilega gestir, vanda skulu spor
stafað getur hættu, ef heillar þor.
Þroska skal sýna og virða ráð
rými víðu, vel sé að gáð.
josira
Frábært yfirlit ásamt mögnuðum myndum frá
fréttavef ruv. af eldstöðvunum á Fimmvörðuhálsi;
Og ekki gleyma að skoða nýju gossprunguna, sem sjá hér fyrir neðan;
Nýtt mynband mbl. af gosstöðvunum.
sæl að sinni
josira
Ljóð | Breytt 14.4.2010 kl. 02:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Tenglar
ÝMSAR JÓLAVEFSÍÐUR
- Jólin-Þjóðminjasafnið jólasíður Þjóðminjasafnið
- jólavefur Júlla á Dalvík fullt af fróðleik um jólin
- Jólavefur Valla, sem geymir marga aðra jólavefi fjölbreytur jólavefur
- jóla-og áramótavefkort ýmis önnur vefræn tækiæriskort
BLANDAÐAR ÁHUGAVERÐAR VEFSÍÐUR
- LJÓSMYNDAKEPPNI Canon og mbl.
- VILTU VITA MEIRA Leiðsögn með lestri .. Sigríður Svavars - Leiðbeining - heilun- fyrirbænir
- ÓMAR RUN - Ljósmyndir Magnaðar myndir
- MADDÝ - Ljósmyndir Meiriháttar myndasmiður
ÝMSAR VEFMYNDAVÉLAR
- Nýjar Íslands vefmyndavélar Frábærir tenglar hérlendis og erlendis
- Vefmyndavélar - Vegagerðin - Suðausturland
- Vefmyndavélar víðs vegar um Ísland
VEÐUR - FÆRÐ - LOFTSLAG
LANDSBYGGÐIN LIFI...
- BETRI BYGGÐ UM LAND ALLT...
- LANDAKORT.IS Frábær síða um Ísland; m.a. Góðar upplýsinga-og þjónustusíður-Vefsjár sveitafélaga-Fjölbreytt efni um ferðamál og ferðalög á Íslandi.
- ICELAND WORLDWIDE Iceland, the land of the midnight sun, is becoming a favorite with those who seek adventure and freedom. Be it nature, sagas, geology or people that interest you, Iceland is the place to go
ÍSLENSK TÍMARIT ALLT FRÁ 1696 -
- FRÁ FYRSTU TÍMARITUM LANDSSINS TIL DAGSSINS Í DAG Ýmislegt að skoða ..
FRÁ A-Ö...
- TRÚARBRÖGÐ HEIMSSINS...
- VÍSINDAVEFUR H.Í Að vita meira og meira .
- ALMENNINGSBÓKASÖFN LANDSINS
- WIKIPEDIA
- BÓKASÖFN LANDSINS
TÆKNI og VÍSINDI
FJÖLBREYTTIR ÞÆTTIR...
- ÍSLAND Í DAG
- KASTLJÓS
- N4 SJÓNVARPSSTÖÐ NORÐAN HEIÐA
- GAMLA ÍNN TV SJÓNVARPSSTÖÐIN
- HRINGBRAUT SJÓNVARPSSTÖÐ
MATSELD
- MATARBLOGG SOFFÍU gómsætir réttir af öllum stærðum og gerðum...
- UPPSKRIFTIR SOLLU
- MARGAR MATAR UPPSKRIFTARSÍÐUR Eflaust eitthvað gott að finna ..
- KÖKUR OG EFTIRRÉTTIR Án hveiti sykurs og ger
- GULUR,RAUÐUR,GRÆNN OG SALT Hráfæði
HJÁLPARSTOFNANIR...
Fibromyalga...vefjagigt
Blekking í þjóðfélaginu...
Blekking í þjóðfélaginu...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.4.): 1
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 123544
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 18
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2014
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði