Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Lífstíll

Mikilvægi mannúðar, er menntun mannkyns...

kindness

Allsstaðar

Ef á öllum sviðum,
allsstaðar
andinn, birtu baðar.

Brátt eyðast þjóða-þjáningar,
og jarðarbúar, sem jafningar.
Jákvætt, í hendur haldast
hér, þroski þúsundfaldast.

josira


Litla rósin...

 

ros

Vonina vekur lífsins ljós
lokkar og umvefur litla rós,
sem reisir sig úr rökkva í yl
og ilmandi lokar óttans hyl.

Hrakin var af lífsins vegi
og visnandi lá á þeim degi,
er daggardropi sendur var
vonina aftur til hennar bar.

Bjarmi lífs frá himnaþaki
hennar höfga endurvaki,
eilífur faðir, gjöfull gefur
lífsaflið aftur rósin hefur.

Hennar rætur rósemd fundu
fegurð lífsins aftur mundu.
myrksins ótta, þján og þraut
þróttur vonar, vék á braut.

Bænheyrð var hún, litla rós
rís hún aftur, vitund ljós
löngun hennar, nú lýsir bjart
bjargræði öðrum, ef líf er svart.

josira


Gjafir jarðar...andleg verslun

 

Meiriháttar verslun sem ég rakst á í Ingólfsstræti...Ætlaði ekki að hafa mig út aftur...þar má finna ýmislegt sálarfóður, yndislega steina, hugræna tónlist, og skemmtilegar gjafavörur...ég mæli með að staldra þar við og hvíla sig aðeins frá önnum dagssins...þar má einnig finna... http://www.gjafirjardar.is/

 josira

 


Lífsgleði...

waterhaven3 

Margt er það sem léttir lund,
eflir gleði, veitir stund.
Frá hugarangri, þraut og pínu
leiðsögn fá frá hjarta sínu.

Fylgja eftir hjartans rómi,
svo að sálarljósið ljómi.
Lifsins njóta hér og nú,
skulum bæði ég og þú

Hafa gaman af hinu og þessu,
þrautir kveðja og ganga til messu.
Moka mold, hlaupa og hjóla
taka stökk eða skoöa njóla.

Pissa úti uppí vind,
horfa á hund elta kind.
Sparka bolta, hengja upp lak,
fara í snúsnú og á hestbak.

Horfa á daggardropa detta,
sólina skína og magann metta.
Elska engil, dansa dátt
taka allt og alla í sátt.

Læra að ganga á lífsins línum
og fylgja eftir draumum sínum.
Sýna bæði þor og dug,
njóta allt sem fangar hug.

Horfa á fallegan fjallahring,
finna fegurðina allt um kring
Opna fyrir lífsins flæði,
fagna og þakka öll þess gæði.

josira


Sálarflækjur...

 image_035

Hvað er lífið! Hví þarf það að vera svo erfitt á stundum. Hversvegna þarf að upplifa

og ganga í gegnum þvílíkar þrengingar andlega og líkamlega ?

Tilfinningalega tættur, með kökk í hálsi. Hver er tilgangurinn ! Rifrildi, nöldur, jag. Engjast sundur og saman með tætta sál  Finna hvernig orð og hegðun hjá öðrum og sjálfum sér fara í mann. Taugakerfið nötrar. Finna eins og sveiflukenndar öldur skella á manni. Af hverju þetta umburðarlyndi eilíflega í garð annara ! Af hverju fæ ég ekki að vera ég sjálf ? Að finna að heitasta óskin er að vilja mega vera hamingjusamur, eiga til hnífs og skeiðar og lifa lífinu eins og maður er, sáttur við menn og dýr.

 

Af hverju ætíð að taka tillit til allra annara, en manns sjálfs ? Að vera ekki nógu sterkur og ákveðin að finna sjálfan sig og fylgja ekki eftir er sannleikurinn fer að birtast manni. Hræddur við afleiðingar þess að taka af skarið og koma fram sannur. Hve margir sem berjast í glímu við sjálfan sig. Af hverju einhver innri rödd, sem segir að maður sé ekki sáttur við þetta eða hitt. En samt vill maður halda að svo sé. Það er engin nema maður sjálfur sem kemur sér í aðstæður og kringumstæður sem skapast og viðhaldast í lífi manns. En af hverju er þetta líf svona flókið á stundum og erfitt. Til hvers? Ég er ekki fullkomin. Af hverju þessi árátta að reyna að halda öllu gangandi, særa ekki aðra ! Hvað með mig. Já hver er ég ? Af hverju er einhver þarna innra með mér, sem sífellt kemur með þessar eða hinar aðfinnslur með gerðir mínar og ákvarðanatökur.

Hver er það sem truflar mig. Einhver önnur ég ? Skyldi það vera þessi svokallaða sál. Er ég þá einhver önnur en ég er hér ?

Og hver er svo þessi sál mín. Hvaðan kemur hún ? Hver er þessi innri ég. Af hverju veit hún svo margt, en ég ekki, en samt veit ég.

Af hverju er þetta allt svona flókið, en samt ekki ?

Ég finn að við erum smán saman að samlagast. Það er á einhvern einkennilegan hátt, þó svo eðlilegt.´Eg er farin að skilja og skynja, að hún þessi hin ég, er sálin mín. Það skildi þó ekki vera einhver tilgangur með þessu lífi ! Og ef hún ,þessi hin ég er svo vitur og skynsöm. Hvenær og hvernig varð hún þannig ! Hún hlýtur að hafa safnað þessari vitneskju og viturleika á lengri tíma en á einni mannsævi ? Það er útilokað að fara í gegnum alla þessa margslungnu flóru mannslífsins og vita svo margt um alla mögulega hluti neikvæða og jákvæða á einni mannsævi. Þroskaferillinn hlýtur að taka lengri tíma og eða að vitneskjan, þroskinn og Sannleikurinn sé greyftrað í sálu manns?  Stórt er spurt en fátt um svör. Lífið áfram heldur. Sennilega koma svörin innra með hverjum og einum þegar rétti tíminn kemur.Tíminn er svo afstæður, einn dagur, sem þúsund ár og þúsund ár, sem einn dagur,hve mikin sannleik geyma ekki þessi orð! Meir en margan grunar. Allt hefur sinn tíma.Tíminn finnur sjálfan sig.

Hlutirnir koma og fara á sinum tíma, í hverfulleik lífsins

p.s. fann þessar gömlu pælingar hjá mér ( skrifaðar í nóv. 1998.)

Kannski kannast einhver við þetta Woundering  

josira


Innsti kjarni sérhvers manns...

 

 Elmoya_web_medium

 

Í hjarta hvers manns var fræi sáð, það er undir hverjum og einum komið, hvort, hvernig eða hvenær þaðnærist, dafnar og blómstrar… Í þessu fræi er öll sú vitneskja er hver og einn þarfnast hverju sinni. Því í fræinu er innsti kjarni sérhvers manns, hver sá hinn sami er og hver tilgangur vaxtar lífsblóms hans er… Umvefðu aðra í kærleik og stráðu fegurð í kringum þig,í formi hugsana og gjörða. Því orka býr í öllum hlutum ! Láttu það neikvæða hörfa undan og víkja fyrir því jákvæða...

 

josira


Fíkniefnaskútan...

 f_skutan

Mikið leið hjartanu mínu vel, þegar ég heyrði um fíkniefnaskútuna, sem var tekin á Fáskrúðsfirði með mönnum, mús og einu mesta magni eiturlyfja Íslandssögunnar, sem fundist og náðst hefur. Nánar; fréttir  : Stærsti fíkniefnafundur sögunnar          Rúmlega 60 kíló af....

Með því hefur verið afstýrt miklu flæði þessa bölvalds til áframhaldandi niðurrifs og eyðileggingar margra sálna, sem misst hafa fótfestu í lífinu. Og aldurinn færist sífellt neðar til þeirra sem ánetjast. Þessi stóri fundur fíkniefnanna er eflaust bara toppurinn á ísjakanum. Og verður vonandi til þess, að meira tengt þessu mikla þjóðfélags-meini og vandamáli eigi eftir að koma uppá yfirborðið.

Megi sem flestir og helst allir, sem fastir eru í feni fíkna, ásamt því ógæfufólki, sem tengjast sölu þess leita eftir allri þeirri hjálp, sem í boði er til afeitrunar og sjálfsstyrkingar og átt til betra lífs.

Og að öll sú neikvæða orka, sem fylgir í kjölfarið neyslu t.d. víndrykkja, eiturlyf, þunglyndi, ringulreið, gjaldþrot, vændi, hjónaskilnaðir, stefnuleysi og agaleysi feykjast á brott með breyttu lífsviðhorfi og lífsháttum...

Megi ný og björt orka umvefja þjóðfélagsvitundina, sem dvelur um borð í þjóðarskútunni  hinni íslensku, til betra lífs á öllum sviðum og öllum hliðum í lífsins ólgusjó...

josira

 

 

 


Í minningu Díönu prinsessu...

Í dag eru liðin 10 ár frá sviplegu dauðsfalli Diönu prinsessu...og heimsbyggðin grét...

charity_vzoom01

Og langar mig nú að benda á vefslóð, sem ég fann fyrir löngu síðan, þar sem lesa má skilaboð hennar til mannkyns nokkru eftir lát hennar...

http://www.spiritual-endeavors.org/channeling/diana.htm

« Fyrri síða

Höfundur

josira
josira

Orðin... Pára með penna á óskrifað blað, orðin um hugann renna. Með suð í eyra ég skrifa það, sem ég fæ að heyra. Hvaðan þau koma veit ég ei, en í höfði mínu óma. Líkt og eilífðin, sem gefur frá sér tóna og um himnasali hljóma.

Lítil síða lítur dagssins ljós... Hér hef ég hugsað mér að skrifa um allt og ekkert ... eða bara það sem mig langar til hverju sinni ... Vertu velkomin(n) kæri ferðalangur... í heimsókn hingað, þar sem þú hefur nú fundið vegaslóðan minn litla, í netheiminum stóra ...

 

Lyngrósin Ljóðin mín

Josiraice youtube ljóð og tónlist

Rósin Eldri heimasíða, sem ég get ekki uppfært lengur, en læt hana fylgja hér með.  (Hún virkar einungis í gegnum Internet Explorer)

Light Bearer -poem - josira 

Guðrún Lilja; mánadísin, mín eldri dóttir og Ljóðin hennar

Nýjustu myndböndin

Movie

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 122225

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband