Leita í fréttum mbl.is

Eldgos í Eyjafjallajökli...Freysbunga eða Limafell á Fimmvörðuhálsi...vefmyndavélar ...

kreppan_3

Beint frá Fimmvörðuhálsi; vefmyndavél frá Mílu ... ( nokkrar aðrar vélar að finna neðar á síðunni ) 

bilde1 bilde4

Eins og allflestir vita hófst eldgos í Eyjafjallajökli þann 20 mars s.l. staðsett á fimmvörðuhálsi. Þjóðin hefur fylgst grannt með fréttum af þessum atburðum og reyndar heimur allur.

Eyjafjallajökull hefur mér ætíð fundist með fegurri jöklum landssins. Hár og tignarlegur að horfa á.

2171881034_f74571bbb8

Blasti hann við sjónum mínum í 8 ár er ég bjó í Vestmannaeyjum og síðar að sjá frá öðru sjónarhorni er ég bjó á Hvolvelli í 6 ár. Og í ótöldum hestaferðum liðinna ára kringum Tindfjallajökul hef ég átt minn uppáhaldstað á þeim ferðalögum, en það er að líta Eyjafjallajökulinn sjónum ásamt fegurð Þórsmerkur frá Einhyrningsflötum.

Fyrir neðan skálann á Einhyrningsflötum, árið 2003

enhjoerning-heste-1 (Fremst eru Punktur, Yrja og Fiðringur.)

Á þessari yfirlitsmynd hér fyrir neðan, af slóðum eldgossins má sjá sterkan svip af reðurtákni, sem minnir svolítið á frjósemi landssins og fæðingu nýja fellssins á eldstöðvum Fimmvörðuhálsar sem tekur greinilega undir og er samstíga marsmánaðar kynningarátaki landans um karlmenn og krabbamein ...

loftm94b ( klikka á myndina, til að stækka )

Og finnst mér tilvalið að tileinka þessa mynd, karlmönnum landssins og pung þeirra ... ( margt má lesa úr náttúrunni :-) 

Og erum við að auki ekki kappsfull af að virkja frjósemi hugar og handar til að skapa tækifæri og atvinnu okkur til bjargar og landinu okkar fallega úr efnahagshremmingunum ...

Væri þá ekki ágætisnafn Limafell á Fimmvörðuhálsi .... á fellið -fjallið sem nú er óðum að myndast í eldgosinu ...

Ýmislegt annað felst í orðinu limur ...  hægt að finna t.d. í orðabókinni;  www.snara.is sem ég fann, en kemst ekki inná vegna þess að ég er ekki áskrifandi ...

En eitthvað meir tengt karlmennskunni ... Það má til gamans minna á FREYR í norrænu goðafræðinni og vegna þess að eldstöðvarnar eiga upptök sín á - í - eða við Goðaland ...

( Freyr stendur fyrir æði margt ! ) Það væri nú ekki slæmt að fá eitthvað af orku hans hingað í þjóðfélagið ...

Sonur Njarðar og talin mestur goða af ætt vana og mikilvægasta frjósemisgoð hinnar norrænu goðafræði. Hann ræður fyrir regni og skini sólar og þar með gróðri jarðar. Á hann er gott að heita til árs, friðar og fésælu. Hann leggur ofurást á Gerði sem er jötunmey og fær hana að lokum. Skírnismál fjalla um þann atburð. Freyr á skipið Skíðblaðni og gölturinn Gullinbursti dregur vagn hans. Bústaður hans er Álfheimur sem honum var gefinn í tannfé

Freyr er sonur sjávarguðsins Njarðar og bróðir frjósemis- og ástargyðjunnar Freyju. Hvert sem þau systkin fóru lyftu jurtir, blóm og tré krónum sínum og döfnuðu, jarðargróði þroskaðist, búfé þreifst vel og margfaldaðist og ungt fólk leiddi hugann að ástum.

Hvernig hljómar;  Freysbunga á Fimmvörðuhálsi

utsynisstadir

Hér má nálgast ýmsar upplýsingar um eldstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi og hvað er að gerast hverju sinni...

Á vefum Jarðvísindastofnunar Háskólans og Ríkisútvarpssins má lesa og sjá ýmislegt um gosið frá fyrsta degi og eru vefirnir uppfærðir reglulega. 

Ýmsar vefmyndavélar, sem beinast að gosstaðnum í Eyjafjallajökli, ásamt fréttum og ýmsum myndum frá fjölmiðlum;

http://www.evropusamvinna.is/page/jh_vefmyndavelar

Eyjafjallajökull frá Fimmvörðuhálsi 

Eyjafjallajökull frá Þórólfsfelli 

http://www.vodafone.is/eldgos

Ýmsar fréttir af Bárðarbungu ;

MBL.is - fréttir - myndir af eldgosinu

 

Mynd dagssins valinn frá NASA ...

Fréttablaðið - Vísir - gosstöðvarnar

National Geographic - Eyjafjallajokull

Berum öll þá ósk og von um að eldgosið verði okkur hliðhollt, en ekki til eyðileggingar og að ef Katla vaknar við þessar væringar, að hún muni þá vakna vært af sínum blundi, en ekki viðskotaill ...

Og bið ég þess að allir gæti ýtrustu varkárni í námd við eldfjallastöðvarnar... Mig grunar að jafnvel meiri ólga sé þarna á ferð undir, en við höldum ... 

Biðjum guðdómlega verndarvætti og engla landssins um blessunarlega vernd, mönnum, skepnum og landinu öllu til handa ...

josira

P.S  var búin að sitja hér og tjá mig um eitt og annað ( þar á meðal, tengt fyrirboðum og sýnum ) í nokkuð langri grein, þegar allt fraus og hvarf á svipstundu.

Og eina ferðina enn gleymdi ég að vista reglulega !!! Frown

Þegar hugurinn er á fleygiferð og margt þarf að rita, er athyglin ekki alveg á þeim takkanum. Manni finnst að þetta blessaða blogg umhverfi eigi að vera í lagi ...

Búin að lenda of oft í þessu. Oftast þó látið mig hafa það og byrjað að nýju að skrifa með mínu þolgæði. En ég ætla ekki að vera reið, búin að létta á spennunni  ARG, GARGGGGG.....

( p.s. Kannski ég hafi bara ekkert átt að skrifa um það sem ég ætlaði mér. Best að hugsa það þannig, þá er ég sáttari ...)

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Einarsdóttir

Er búin að berja gosið augum úr fjarlægð þetta er magnað...Er ekki allt gott að frétta af þér Hanna mín??

Guðný Einarsdóttir, 30.3.2010 kl. 08:51

2 Smámynd: josira

Takk fyrir innlitið, mín kæra ég horfi nú þessa dagana á gosið einnig úr fjarlægð, reyndar í gegnum vefmyndavélarnar   Læt það nægja að sinni ...

Allt gott er að frétta af mér og mínum  

josira, 31.3.2010 kl. 10:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

josira
josira

Orðin... Pára með penna á óskrifað blað, orðin um hugann renna. Með suð í eyra ég skrifa það, sem ég fæ að heyra. Hvaðan þau koma veit ég ei, en í höfði mínu óma. Líkt og eilífðin, sem gefur frá sér tóna og um himnasali hljóma.

Lítil síða lítur dagssins ljós... Hér hef ég hugsað mér að skrifa um allt og ekkert ... eða bara það sem mig langar til hverju sinni ... Vertu velkomin(n) kæri ferðalangur... í heimsókn hingað, þar sem þú hefur nú fundið vegaslóðan minn litla, í netheiminum stóra ...

 

Lyngrósin Ljóðin mín

Josiraice youtube ljóð og tónlist

Rósin Eldri heimasíða, sem ég get ekki uppfært lengur, en læt hana fylgja hér með.  (Hún virkar einungis í gegnum Internet Explorer)

Light Bearer -poem - josira 

Guðrún Lilja; mánadísin, mín eldri dóttir og Ljóðin hennar

Nýjustu myndböndin

Movie

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband