Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Hera heilla mun heiminn - Je Ne Sais Quoi - eflist á eldgosamyndbandi ...

 

Hera Björk - Je Ne Sais Quoi (Volcano Version) Eurovision 2010 Iceland

Örugglega sú eina, sem fær lifandi náttúruöflin til liðs við sig, í bakgrunn á eldfimu myndbandi fyrir Eurovision 2010 ... Þarna skína tvær Dívur dásamlega saman ...

josira


2010 ... Almúganum má blæða á meðan bankar og stofnanir græða ...

too_bad_so_sad_tshirt-p235325576082829783q08p_400 easily-debt-pay-off-bills-200X200

Er andvaka og ...

get ekki orða bundist, mér svíður í hjartanu, hve einföldum augum ég hef litið á ástandið í þjóðfélaginu ...  

Þegar svo margar fjölskyldur, öryrkjar og ellilífeyrisþegar geta vart haldið út hvern mánuð, að eiga til hnífs og skeiðar, ásamt því að reyna að borga þær föstu greiðslur sem inna þarf af hendi ... s.br. húsnæði, rafmagn, hiti, sími, sjónvarp, tryggingar og s.fr.

leabul1e

Og hve virkilega er orðið óþolandi hve hægt hlutirnir gerast hjá blessaðri ríkisstjórninni við að bæta ástandið fyrir okkur þegnana. Bara barrlómur, “ erfitt um vik, lítill sem enginn peningur og blablabla ... og á þingiðv antar meiri samstöðu flokka og manna á milli, með úrlausn mála.

leabul1e

left-brain-right-brain

leabul1e

Ég hef nú verið að vafra aðeins um netið og skoða, spá og spegluera ...

leabul1e

Og að ég, sem hélt að þjóðfélagið lægi þvílíkt á hliðinni ...

leabul1e

ja hérna, nei ekki aldeilis virðist það vera, allavega ekki hjá hinum ýmsu bönkum og stofnunum, sem eru svo samtvinnuð hinu daglega lífi okkar landsmanna ...

leabul1e

Kannski væri ráð að fá eitthvað af þessu fólki, sem kann að nota jákvæða orku peningana, til að halda um fjármálatauma ríkistjórnarinnar til að rétta halla ríkissins af og læra þá af þeim hvernig hlutirnir gerast í fjármálaheiminum.

leabul1e

Eða fá eitthvað af pening frá þessum bönkum og stofnunum til að styrkja atvinnumálin og reyna að koma þeim hjólunum af stað. Þá fara öll hin tannhjólin að snúast og vænkast þá hagur margra þjóðfélagsþegna. (lottó vinningurinn í dag er hjá þeim er halda vinnu). 

leabul1e

Samt finnst mér ekki einleikið með allan þennan pening sem er í umferð, en er lítt sjáanlegur.

Eru maðkar enn að svamla í mysunni. ?

leabul1e

Eru þessir peningar til ?

Hvaðan komu þeir ?

Hvað er verið að gera við alla þessa peninga ?

Er verið að láta þá hlaða á sig vöxtum ?

Eða er þetta enn, allt leikur að tölum, sem eru frambærilegar á hvítu blaði ?

moneypensiondrawou2 

collapse-of-iceland-in-10-easy-steps1

Ég reyni nú að vera með jákvæðar hugsanir og að heiðarleiki í fjármálum og gegnsæi, séu orðin raunveruleg, bæði í orði og á borði. Og ætla að trúa því að unnt væri, að fá aðgang að einhverju af þessu fjármagni - til að koma pening út í þjóðfélagið.

Gætum við þá ekki frekar tekið að láni peninga hér á landinu hjá þessum bönkum og stofnunum, en ekki hjá AGS. Það hlýtur að vera hagstæðara fyrir okkur öll. Hér má finna litla samantekt á þeim slóðum sem ég rataði inn á; 

2010 - Hagnaður einhverra banka og stofnana s.l. mánaða. Hér er ekki verið að tala um einhverjar milljónir...heldur milljarða...

bigstockphoto_heavy_question_thoughts_2558783

Peningamagn í umferð aldrei meira en um síðustu áramót  

Eignir verðbréfa og fjárfestingasjóða hækkuðu um 11,6 milljarða í mars  

Staða Seðlabankans ..." Heildareignastaða bankans lækkaði lítillega á árinu, en stendur þó enn í tæplega 1.200 milljörðum króna líkt og í árslok 2008. Í árslok 2009 námu erlendar eignir bankans um 41% af heildareignum. Í lok ársins á undan námu erlendar eignir bankans 47% af heildareignum."

Hvaða eignir á Seðlabankinn erlendis ?

Eru það alls skonar fjármögnunar- verðbréf eða húseignir ?

Innstæður ríkissjóðs hjá Seðlabankanum 446 milljarða kr ( þarna koma erlend lán við sögu)

(Á árinu 2008 varð hins vegar tæplega 184 milljarða króna tap á rekstri bankans fyrir endurheimtur frá ríkissjóði sem endurreistu eigið fé bankans. Þær endurheimtur námu 175 milljörðum króna).

leabul1e

(Eitthvað fór þetta nú fram hjá mér á sínum tíma .... Var Seðlabankinn sjálfur, eign ríkissins að fara á hausinn 2008. Hvernig gat hann tapað 184 milljörðum ? Í hvað fór þessi peningur ?)

money-main_Full 

Bankar; 

14,3 milljarða hagnaður Landsbanka 

Hagnaður Glitnis 38,2 milljarðar króna  

Finn ekkert um Arion banka, nema gamalt; ( Og hverjir eiga svo hann nú aftur ?)  

Afkoma Nýja Kaupþings banka (nú Arion banka) frá 22. október til ársloka 2008 Hagnaður eftir skatta 4,8 milljarða króna 

Sparisjóðir í sjöunda himni 2007 

(Efnahagsreikningar stærstu sparisjóðanna héldu áfram að tútna út á síðasta ári eins og árin á undan. Við lok síðasta árs stóðu eignir í 391 milljarði króna og höfðu vaxið um 120 milljarða á árinu eða um 45 prósent). Veit ekki alveg söguna á bakvið breytinga hjá Sparisjóðunum.

Hagnaður Íslandssjóða 

leabul1e

Í lok desember 2009 voru 16 sjóðir í rekstri hjá félaginu og nam hrein eign þeirra 89,7 milljörðum króna. Tveir sjóðir sem eru skráðir í Lúxemborg eru í stýringu félagsins og nam hrein eign þeirra 20,4 milljörðum króna í árslok 2009.

(Hafði ekkert heyrt um þessa sjóði fyrr en ég rakst á þá áðan -sýnir hvað maður fylgist lítið með þessum fjármálaheimi)

Tryggingarfélög;

Hagnaður TM 2,9 milljarðar króna 

1,2 milljarða hagnaður VÍS 

Peningarnir dansa fyrir framan augu mín, nú er ég hætt ... Kollurinn á mér meðtekur ekki allar þessar spurnigar, sem flögra um huga minn.

Og ég einfeldningurinn, sem hélt að lítill sem enginn peningur væri nú til á Litla-Stóra Íslandinu.

Gömul færsla síðan 2007 hjá mér; Eiga bankar og stofnanir-félög orðið landann ..?

leabul1e 

Nóg í bili. Þetta er svakalegt þegar manni hitnar svona í hamsi og finnur fyrir löngun að tjá sig um svo margt, fær hálfgerða ritræpu, svo að varla verður vært fyrir manni ...

leabul1e 

Nú held ég að mín sé farin í bloggfrí ...

leabul1e 

edmund_dulac_princess_and_pea

leabul1e 

josira

leabul1e

(p.s. læt þetta fara svona núna, þó eitthvað sé í belg og biðu í þessum blessuðu línubilum hér. Búin að reyna mitt besta, set lítið lauf til að reyna að skifta línubilunum...(arrg...)


Sammála að þurfi rannsókn á þessu mikla falli Sparisjóðanna ...

logo_islandi 

En eflaust verður erfitt um vik, að finna einhverja sem ekki tengjast þessum bönkum, Sparisjóðirnir voru um allt land. Og fljótt að myndast alls skonar krosstengsl og hugsanlega eitthvað meira.

Kannski þarf ótengda rannsóknarnefnd erlendis frá, ef hún skyldi nú myndi finnast.

Og alveg er synd hvernig þessir blómlegu bankar virðast hafa farið í súginn;

Sparisjóðirnir í sjöunda himni 2007 

(Efnahagsreikningar stærstu sparisjóðanna héldu áfram að tútna út á síðasta ári eins og árin á undan. Við lok síðasta árs stóðu eignir í 391 milljarði króna og höfðu vaxið um 120 milljarða á árinu eða um 45 prósent)

Skjótt skipast veður í lofti.

 

josira

 


mbl.is Vilja rannsókn á sparisjóðunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var forsetinn ekki bara að segja sannleikann ...

Og heldur finnst mér tekið djúft tekið á lýsingarorðum morgunblaðsmanna í inngangi greinarinnar um ummæli Ólafs.

" Forsetinn var háfleygur í orðavali að vanda "

(átti þetta að vera frekar last en lof ...eða hvað)

Hálf fáránlegt er einnig að halda því fram að þessi orð Ólafs forseta kunni að hafa kostað þjóðarbúið milljarða króna.

Varðandi þessa viðvörun forsetans, sé ég ekki betur en þetta séu lýsingar á því, sem við Íslendingar erum að heyra þessa dagana, sem og aðra frá vísindamönnum. Og þarf ekkert að fela það. Gott er að geta verið viðbúin(n) því sem þarf að takast á við hverju sinni.

Og höfum við nú Íslendingar reyndar alist upp við frá fornu fari að lifa í nágvígi náttúrunnar hér í blíðu og stríðu.

National_Park_Skaftafell

Og síðustu árin meðal annars fengið að heyra að hugsanlegt Kötlugos gæti fylgt á eftir eldgosi í Eyjafjallajökli. (sem ekkert er víst að hún fylgi endilega eftir) Hún hefur bara sína hentisemi á því. Við búum í okkar sérstaka landi elds, íss og vatns. Þannig er nú það. Kæmi mér ekkert á óvart þó annars staðar, þyrfti landsins orka að losa sig á undan.

Munurinn nú og áður fyrr er að tækni og vísindi nútímans geta séð á nokkuð öruggan máta, sé eitthvað í uppsiglingu með jarðskjálfta, eldgos eða ofan-flóð eða hlaup í ám eða jöklum.

Þar að auki eru mælitæki og myndavélar á helstu stöðum, þar sem sjást og finnast hin ýmsu merki um hvað sé í gangi hverju sinni hjá náttúruöflunum okkar. Það eitt eru breyttir tímar.

current27 

Og við skulum fylgjast bara með í rólegheitum hvað gerist með hækkandi sól og vita hvort ferðamannastraumurinn muni ekki liggja hingað sem endranær. Spurning hvort við þurfum ekki að koma sem flestum skemmtiferðaskipum hingað og helst stefna að því að eignast sjálf 1-2 eða taka á leigu með einhverjum fjárfestum. Þeir ku finnast bæði hér á landi og erlendis.

guitar-boat3

Og hvað varðar ferðalangana, sem hingað munu koma er gott fyrir þá að kynna sér sögu landssins og vita að heimsóknin er enn eftirtektarverðari fyrir það eitt, að hér er lifandi land, sem er enn í vexti og mótun.

20090630103644_gullfoss&geysir-27june_27062009_0089

josira

 


mbl.is Dýrkeypt yfirlýsing forsetans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki hægt að nýta öskuna t.d. til listmunagerðar !

Gott að heyra að hreinsunarstarf undir Fjöllunum skuli vera með miklum krafti heimamanna og hjálpenda víðsvegar að ... og að bændur bugast ei ... því viljinn knýr vængi vonarinnar ... 

Vísa hér á hugmyndir í kolli konu, um hugsanlega nýtingu gosefnanna, sem legið hafa sem leirteppi yfir sveitinni fallegu undir Eyjafjöllum...

eldri bloggfærsla mín;    Eru gosefnin kannski til góða ...

josira 
mbl.is Moka ösku á sturtuvagna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Raunsönn orð Lilju Mósesdóttur ...

LILJA_~1 

" Skuldarar hrópa á réttlæti, norrænt réttlæti "

og að koma verði í veg fyrir að bera eigi fólk út úr húsum sínum.

Þessum orðum Lilju er ég svo sannarlega sammála.

Get ekki neitað því að á síðustu dögum hef ég verið komin með æluna upp í háls yfir þessu ólgandi hafi talnanna og útreikningum þeirra, sem stjórna hér landi og þjóð … 

Allur lífsins dans virðist eilíft vera háður takti talnanna og örfárra manna er sjá um útreikning þeirra.

Við erum föst í viðjum danssins.

Þeir ríku verða ríkari og þeir fátæku,fátækari …

(Þeir ríkari þurfa ekki að standa í biðröð til að þiggja matarbita frá hjálparstofnunum eða sætta sig við hafragraut í annað hvort mál, smjörlíki oná brauð eða gamlar servíettur - kaffipoka eða krumpuð dagblöð fyrir wc pappír þegar líða fer á mánuðinn).

Hvernig  vinnur t.d. þessi blessaða ríkisstjórn eftir  útreikningum  talnanna, sem lúta að björgun fjölskyldna í landinu og stóru loforðunum um Skjaldborg Heimilanna. Örfá  orð um þau góðu loforð;

Lykilatriði er að tryggja húsnæðisöryggi fjölskyldna og einstaklinga.

Að leiðrétta með lækkun á greiðslubyrði þeirra sem verst standa þar til verðmætasköpun atvinnulífsins tekur aftur að aukast.

Skuldastaða heimila, greiðslu- og framfærslugeta verði til stöðugs endurmats sem og nauðsynlegar aðgerðir til að koma til móts við heimili í vanda.

Og hver er svo nýasta ákvörðun þessarar margumtöluðu ríkisstjórnar ;

johanna_882645 

Jú, að fylgja eftir skipun AGS um að taka af öll tvímæli um það að engar almennar afskriftir verði á skuldum almennings, sama hvaða nafni þær nefnist . Svona til að hagvöxturinn hér komist á rétt ról – svo þeir geti veitt með höfðingsskap sínum, lán sitt til okkar. Eða þannig …

Ég veit nú  ekki betur en, að almenningur er nú kannski ekki beint að kalla eftir afskriftum lána sinna, líkt og fjölmargar stofnanir og fyrirtæki hafa fengið ásamt nokkrum einstaklingum, sem hleypur á milljörðum.

Heldur t.d. að húsnæðis-og bílalánum verði komið í farsælan og sanngjarnan útreikning í farveg talnanna. Þannig að grundvöllur sé fyrir fólk að standa sínar skuldbindingar, sem það lagði upp með og  var viðráðanlegt samkvæmt greiðslugetu þess á þeim tíma, sem eignir voru keyptar.

Færa t.d. afborganir aftur fyrir um 2-3 ár (lengja lánstímabilið) án einhverra flókinna útreikninga.  Finnst mér að það ætti að vera frekar einfalt mál .

Ef þessi blessaða þjóð okkar á að eiga sér viðreisnar von, verðum við  að horfast í augu við, að sameinuð verðum við að standa saman hönd í hönd.

Lækkun bankavaxta og út með verðtrygginguna gömlu. Sem hvergi þekkist nema hérlendis, að ég best veit um. Koma hjólum atvinnulífssins af stað. Það er auðvitað grundvöllur alls mannlífssins og afkoma heimilina, sem í raun heldur öllu battiríinu gangandi <> þjóðin sjálf.

Það er engu líkara, en að stjórnvöld séu blind á að hvernig og hvert tannhjól þarf að virka svo allt snúist í öllu kerfinu.  ..Nei,nei … bara meiri skatta álögur og eignir á uppboð og annað fleira í boði talnanna.

Ég  sé nú ekki að lausn efnahagsástands felast í því. Einungis niðurbrot margra fjölskyldna. Og hver verður kosnaður ríkis og bæja þegar upp verður staðið, þurfi þeir að sjá fólki fyrir húsaskjóli og framfærslu þegar ríkisstjórnin heldur svona áfram að loka hverri dyr af annari hjá fólki.

Þetta er að verða ein hringavitleysa.

Ég vil endilega benda á bloggfærslu mína þann 13 apríl s.l. um hina stjórnslyngu 89 ára Hazel McCallion, sem heldur um stjórnvölinn í Mississauga, sjöttu stærstu borg Kanada, en þar hefur hún verðið borgarstjóri í 31 ár.

Íslensk stjórnvöld ættu að taka sér, elsta og besta borgarstjórann í Kanada til fyrirmyndar ...

Hennar mottó hefur alltaf verið að halda fólki í vinnu og sköttunum lágum.

Það er eitthvað annað, en stefnan hérlendis !

En er það endilega svo, að við þurfum lán frá AGS. Er ekki t.d. hægt að nota eitthvað af fjármagni þess er Seðlabankinn hefur hagnast um í gjaldeyrishöftunum.

eða taka lán hjá lífeyrissjóðunum okkar á  viðráðanlegum  kjörum ? (sem eru eign landsmanna)

Hrein eign lífeyrissjóðanna 1.797 milljarðar

(En þó held ég að við eigum væntanlega eftir að heyra eitthvað meir um mál lífeyrissjóðanna, held ég að ekki séu öll kurl komin til grafar á þeim bænum).

Og hvernig er með bíla-lánafyrirtækin ? Afskrifaðu ekki bankar erlendis, lán þeirra hingað ?

( p.s. finnst mér einnig eilítið undarlegt hve mörg fyrirtæki og stofnanir og jafnvel fólk víða um heim og hér heima eru farin að sýna góðar hagnaðartölur)

josira

mbl.is „Skuldarar hrópa á réttlæti“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jákvæðar fréttir af gosinu eða hvað ?

e33_00009647

Fyrst hraun er farið að renna, er þá ekki breytinga von með eldgosið svona almennt ?

Minnkar þetta svakalega öskufall þá ekki einnig í kjölfarið, sem eldstöðvarnar hafa spúð frá sér og ferðast hefur um víðan völl.

Og valdið hefur gríðarlegum áhrifum á ferðalög um nánast allan heim á liðnum dögum.

En má þó til sanns vegar segja, að hafi slegið öllum landkynningum Íslands við. 

Ætlar hinn fallegi Eyjafjallajökull kannski, að snúa vörn í sókn með okkur og létta á sér með liðlegum túrista hraunstraumi til að laða fólk að nýju til landssins !

Það yrði frábær gjöf hans til okkar og myndi það reka á brott þessar neikvæðu umræður um fyrirfram ákveðið tap ferðamála hér á landi á komandi sumri.

Svo er annað sem ég hef verið að velta vöngum yfir. Hvernig stendur á því að sífellt er verið að hamra á tapi t.d. flugfélaganna víðsvegar um lönd. Voru þeir ekki einnig að spara sér  eldneytiskosnað, ásamt því að hafa allavega á fyrstu dögum flugbannsins verið búnir að fá greiddan stóran hluta farseðlana.

Því er það ekki þannig, að flestir ferðalangar borga sína flugmiða fyrirfram. Tíðgast það ekki að öllu jöfnu þannig í dag. Þá er það væntanlega þeir sem lenda í meira tapi - vandræðum, en ekki flugfélögin.

Travel%20suitcase 

Og ekki fer mörgum sögum af öllum þeim fyrirtækjum erlendis, sem þessar tafir hafa sett í jákvæðara horf. Sbr. Lestir, rútur, leigubílar, hótel, gististaðir, veitingastaðirt, verslun og annað tengt ferðamönnum. Eitthvað hefur peningurinn ratað í þeirra vasa hlýtur að vera.

Ég spyr bara fávís konan ...

 

josira


mbl.is Hraun komið um 1 km frá gígnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bíddu nú hægur ... Steingrímur

Tvívegis hefði frestun nauðungaruppboða verið framlengd ... Jahá ... Og hvað svo í Okt.

Á þá að leggja stóran hluta venjulegra fjölskyldna, að ósekju endanlega í ógöngur, sem aðrir áttu upptök af og eiga að bera ábyrgð á, lagfæra og ganga frá eftir sig. Frá A-Ö ...

Og hvar eru stóru kosningaloforðin um SKJALDBORG um heimilin í landinu. Ég bara spyr; Hafa stjórnvöld ekki margoft dregið lappirnar og frestað hinu og þessu í úrlausnum landsmanna.

Greinilega er gamla máltækið " Það er ekki sama, hvort það er Jón eða séra Jón " í fullu gildi hér enn.

Stjórnvöld ættu nú að líta í eigin barm og skoða sig ofan í kjöl, sína vinnu, sínar tímasetningar og sín skjöl. Áður en þau tímasetja óréttlátar aftökur afkomu og lífsskilyrði lýðssins.

shake-down-money

 

josira

 


mbl.is Nauðungaruppboðum ekki frestað frekar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Andardráttur jarðarinar ... og hljóð hennar í geimnum ...

 

Hér má sjá og skynja rythma jarðarinnar eða öndun hennar ...

og hljóð hennar (söngur) tekin upp af Geimferðastofnun Nasa

Fallegar nátturumyndir (sá Skógarfoss hinum fallega og Barnafossum bregða fyrir) undir tónlist Kevin Kern ...

Gott að staldra um stund og fara í slökun eftir þessa endalausu hringavitleysur í efnahags-og stjórnamálunum, ásamt darraðadansi náttúruaflanna ...

Leyfi að fljóta hér með, hugleiðingar mínar um ævintýri og ferðalög, sem sjást í gluggum með frostrósir (hélaðir gluggar) ásamt undirspili fagurra tóna Friðriks Karls.

(annað ljóðið mitt af tveimur, sem kom til mín á ensku)

Frost Roses. 

Frost roses in a window

come when temperature is low.

You just sit there

and watch in it slow. 

leabul1e

A world full of fairy-tale

encourages you to go.

Into magical places

let your imagination flow.

leabul1e

Your journey will take you

on the charming move.

Into the world

you have never knew.

leabul1e

As the moonlight come near

like a beautiful chrystal clear.

Is the frost roses in rime,

natures art you enjoy this time.

leabul1e

joira

 


Eru gosefnin kannski til góða ...

HeavenEarth 

Við megum þakka máttarvöldunum fyrir í rauninni, hversu varfærnum höndum náttúran fer um okkur hér heima. T.d varðandi líf manna og dýra ásamt litlum skemmdum á mannvirkjum í eldgosunum á Fimmvörðuháli og Eyjafjallajökli. Hugur okkar allra er og hefur verið með fólkinu og skepnunum undir Eyjafjöllum og nágrenni þess hverja klukkustund þessa dagana og síðustu vikurnar.

Þegar hamfarirnar eru að baki og kyrrð komin á, munum við öll sem eitt leggja hjálparhönd, sem unnt er við hreinsun og lagfæringa þeirra svæða, sem öskufallið hefur hulið. Þjóðin hefur sýnt það, að á ögurstundum stendur hún ætíð saman. 

Einnig er ég viss um að sjálfboðaliðar erlendis frá, munu koma í hreinsunina, líkt og eftir eldgosið í Vestmannaeyjum. 

Um daginn ætlaði ég að pára á blað um eitthvað jákvætt í kjölfar eldgosanna. Ekkert varð úr því þá, þegar andinn kom yfir mig, þannig að nú munda ég mig í mitt fingrapikk og sendi orðin áfram nú, þarna út.

Þannig var að ég fór að hugsa um gosefnin, úr hverju þau væru. Hef lítið sem ekkert fundið á netinu, hvernig þessi aska er samansett, nema ég rak augun í orðið Andesit um daginn. Mundi það, en hef ekki enn fundið greinina þar sem á það var minnst. Og fyrst ég er andvaka og hugur minn leitar í þessar fyrrum hugsanir, þá ákvað ég að koma þessu frá mér.

En allavega þá líta þessar blessaðar hugmyndir eitthvað á þessa vegu; 

Nr.1  Fá fólk á atvinnuleysisbótum, austur í þrif og hjálp við uppbyggingu á sveitabæjunum og löndum þess. 

Nr.2  Fá landbúnaðar-vinnuvélar, sem standa og bíða eftir verkefnum austur og mannskap á þær,(sem eru á atvinnuleysisskrá með vinnuvélaréttindi). Eiga ekki bankar og stofnanir orðið fullt af vinnuvélatækjum, sem þeir hafa leyst til sín ? Ríkissjóður eða Viðlagasjóður gæti þá annars borgað laun fyrir aðra vinnuvéla-eigendur, sem eflaust eru einhverir á lausu ef þyrfti. Olíufélögin gætu svo gefið olíurnar á tækin. 

Nr.3  Sá fyrir mér þrennt í stöðunni, gagnvart öskunni, sem liggur þarna yfir öllu sem leirteppi.  

A. Moka henni til og safna á einn stað í hauga. Byrgja síðan með einhverjum netum, þannig að hún verði til friðs, sé ekki að fjúka um.

Því ég sá fyrir mér einhversskonar verkstæði-smiðju, þar sem sem mótaðir væru og og unnir mynjagripir t.d. styttur, vasar, myndir eða ker úr leir. (eða steyptir) Eitthver efni (Andesit !) notuð úr öskunni með einhveri annari blöndu. Bændurnir gætu þá unnið listmuni og selt úr þessum gosefnum, meðan landið væri að gróa upp og ná sér. 

(þyrfti að kanna hvort einhver öskuefnanna væri unnt að nota.) 

Einhversstaðar væri eflaust þá hægt, að nýta góða skemmu eða gamla hlöðu til þessa verkefnis og breyta með litlum tilkosnaði í leirmuna-verkstæði-smiðju. 

B. Og í annan stað minnir mig að ég hafi heyrt, að gosefni almennt hafa reynst bara vel til að bæta jarðveginn, þegar búið er að plægja hann saman við þann gamla. 

C. En eflaust þyrfti, að reyna að skola sem fyrst flúor efnunum úr, hvernig sem á allt er litið eða hvernig það yrði gert. Sjálfsagt væri hægt að tengja stórvirkt úðunarkerfi út á túnum og einhverjum högum. (dettur í hug vatnsúðunar-kerfi eins og eru á ökrum erlendis) 

Nr.4  Spurning væri síðan hvort skepnurnar gætu farið á góð heimili í tímabundið fóstur um tíma, á meðan að  uppbyggingu væri staðið. Og tún og hagar væru komin í gott stand að nýju. 

Þetta er innlegg mitt að sinni til sveitarinnar fallegu, bænda og búaliðs undir Eyjafjöllum. Alveg sorglegt, að hugsa til þess að bændur þurfi kannski að leggja niður þar bú sín og ævistörf.

Iceland Volcano Eruption early 70&#39;s rare footage

Verum minnug þess hvílíku grettistaki var lyft í Vestmannaeyjum eftir gosið 1973 og bærinn varð blómlegur á ný með hjálp og elju margra mætra manna og kvenna, sem með von í hjarta og dugmiklar hjálparhendur lögðust á eitt og gerðu þann draum að veruleika, að byggð hæfist þar að nýju.

Í kjölfar þessara hugmynda minna (sýnar) fór ég á netið að afla mér einhverra upplýsinga um þetta orð Andesit, sem leitaði á mig (og er þá með e í endann á ensku.) Og það kom mér skemmtilega á óvart, að frá fornu fari hefur þetta efni verið notað. (hálfgert steypuefni, eflaust með blöndu annara efna) til notkunar t.d. í byggingar og styttur.

Hof Aþenu á Acropolis hæð …

Assos_Temple_of_Athena,_andesite

Temple of Athena 

On the 700-foot-high Acropolis rests the Temple of Athena, made completely of igneous rock called andesite.  It bears a mixture of Doric and Ionic styles and dates from 530 B.C.  Elsewhere on the hill, excavators discovered a gymnasium, a treasury, baths, a theater, a necropolis, and a rectangular agora (marketplace).  Also, a Byzantine wall surrounds the acropolis.

Andesite _gray_basalt

Seated man made of andesite  Near Eastern, Anatolian, Neo-Hittite, Neo-Hittite or Aramaean, 10th–8th century B.C.

An_Egyptian_Andesite_Porphyry_Vessel

An Egyptian Andesite Porphyry Vessel Category: Egyptian  Period: Early Dynastic Date: c. 1st-3rd Dynasty, 2965-2640 B.C.

Andesite_dacite

Eagle Relief, 10th–13th century Mexico; Toltec Andesite/dacite, paint

sonnentor2

Sun Gate in Tiahuanacu Bolivia 

4000m above sea level, on the Altiplano in Bolivia, lies Tiahuanacu with the famous sun gate. No one knows for certain when this culture developed, from which culture it originated and, when and why it disappeared again. It is assumed that the Tiwanaku culture came from the Huari, a old peruvian culture. The culture site, located at the Titicaca Lake between Peru and Bolivia, was once a temple complex. The numerous images of presumed gods are proof of this. The complex and the stones are done with such a precision that it cannot be considered only a profane center.

The quarry of andesite and trachyt blocks lies 17km away!

pumapunku

og annað ævagamalt handverk úr andesite að mér skilst ...

Coatique_andesite 446px-WLA_lacma_700_andesite_sculpture

wiracocha

Í Suður-Afríku eru ýmsir nýmóðins hlutir steyptir úr andesite (örugglega ásamt einhverjum öðrum efnum)

art_and_deco_table_with_glass_top

og hugmyndir einhversstaðar annarsstaðar frá, 

fish_andesite ANDESITE_stone

Þannig að mér sýnist nú margir möguleikar búa í þessum náttúrunnar nýju Íslands gjafarefnum.

MillenniumTree cosmic_heart

Þökkum fyrir alla þá guðdómlegu ljóssins vernd, sem við höfum fengið hér á Íslandinu og höldum áfram að biðja fyrir landi og þjóð, sem og öðrum löndum og þjóðum og að alheimskærleikur og heilunarorka umvefji móðir jörð og allt hennar lífríki á þessum umbreytingartímum, sem við mannkyn erum að ganga í gegn um.

Í átt að nýjum og manneskjulegri þjóðfélögum, með auknu réttlæti, samkennd og raunsærri stjórnun, sem stuðlar einnig að mannfrelsi og friði.

josira 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

josira
josira

Orðin... Pára með penna á óskrifað blað, orðin um hugann renna. Með suð í eyra ég skrifa það, sem ég fæ að heyra. Hvaðan þau koma veit ég ei, en í höfði mínu óma. Líkt og eilífðin, sem gefur frá sér tóna og um himnasali hljóma.

Lítil síða lítur dagssins ljós... Hér hef ég hugsað mér að skrifa um allt og ekkert ... eða bara það sem mig langar til hverju sinni ... Vertu velkomin(n) kæri ferðalangur... í heimsókn hingað, þar sem þú hefur nú fundið vegaslóðan minn litla, í netheiminum stóra ...

 

Lyngrósin Ljóðin mín

Josiraice youtube ljóð og tónlist

Rósin Eldri heimasíða, sem ég get ekki uppfært lengur, en læt hana fylgja hér með.  (Hún virkar einungis í gegnum Internet Explorer)

Light Bearer -poem - josira 

Guðrún Lilja; mánadísin, mín eldri dóttir og Ljóðin hennar

Nýjustu myndböndin

Movie

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 123604

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband