Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
Þá er víst best að vinda sér í bloggfærslu, sem kæmi mér ekki á óvart að lengri verði en ég ætla mér...
Þannig var að fyrir margt löngu síðan dreymdi mér draum, Hann fjallaði um ungt fólk á framabraut, að vísu fannst mér þau að meiriparti vera þó ungir menn aðallega. Ég sá þau koma líkt og úr verksmiðju öll eins klædd með skjalatöskur. Þetta var fallegt fólk með ljúfa og kurteisa framkomu en fjarræn augu. Eins og þau væru hálf heilaþveginn og steypt í sama mót...Fannst mér ég sjá og verða vitni af allskonar ráðstefnum og siðan vera viðstödd í vinnu þeirra, sem var einhvers skonar í formi þjónustu eða ráðgjafar í sambandi við peninga aðallega. Áttu þau mjög auðvelt að ná til fólkssins sem kom til þeirra. Hin óvenjulega mýkt þeirra í tali og umgengni við fólkið virtist ná líkt og einhverju dáleiðandi sambandi og fólkið nánast samþykktu allt það sem ungmennin lögðu til...
Allt var eitthvað svo harla gott. En samt var eitthvað bogið við þetta allt saman. Það var á einhvern máta þannig að maður skynjaði sem fólkið yrði sem viljalaus verkfæri, sem trúðu og treystu öllu sem þeim var sagt og unga fólkinu í fallegu fötunum með fallegu brosin fannst líka allt svo frábært sem það hafði fram að bjóða og leiðbeina með...
Skyndilega fór ég að hugsa hverjir væru með þessi námskeið, sem ég áætlaði að fram færu í þessum verksmiðjuhúsum og fjöldaframleiddu að virtust þetta unga fólk...
Í hverju kennslan fælist ?
Hverjir semdu kennslugögnin ?og hver tilgangurinn væri ?
Í hag hvers kennslan lægi til ?
Og hvaðan eða hvernig ungmennin væru valin, sem væru á námskeiðunum ?
En allt í einu var ég komin á samkomu einhverra eldri-heldri manna í stórum salarkynnum og fannst mér þeir vera stjórnendurnir sem stæðu á bak við unga fólkið. Ekki heyrði ég á tal þeirra, en fannst sem þeir væru í háalvarlegum samræðum og væru að leggja á ráðin með eitthvað, en samt sá ég einhverja þeirra glotta með sjálfum sér.
Fannst mér eins og þessi félagsskapur væri mjög gamall, líkt og fyrirrennarar hefðu verið tengdir þeim er þarna voru nú...
Og þarna vakna ég ...hálfrugluð yfir þó þessum skýra draumi...en drauminn hef ég alltaf munað og þegar allt hrundi fyrir ári síðan, fór ég strax að hugsa um drauminn, en ýtti honum svo frá mér.
En eftir því sem tíminn líður finnst mér einhverja samsvörun að finna þarna á milli...
Þá er ég komin að tölum, peningum, útreikningum og þess háttar...
Þessar pælingar mínar eru þær fyrstu (djúpu held ég ) í átt að reyna að skilja eitthvað meir með þessar blessaðar tölur og útreikninga þeirra, sem öllu virðast stjórna...
Sem auðvitað eru allt mannanna verk, einhver skapaði þetta í upphafi...
skyldi maður ætla...
En þegar ég var að vinna í bloggfærslu minni um daginn með grænu -gena byltunginni poppaði upp í huga minn nafn sem enga samleið átti í greininni en hafði ég þó sett inn einhveja hluta vegna...
Ég fór eitthvað að kíkja i gær til að skoða myndböndin betur og sá þá orðið og auðvitað tók ég það út því það átti ekkert heima þarna að ég held...En get ekki neitað því að mér hálf brá að heyra í fréttunum í kvöld um húsleitir hjá þessu tiltekna fyrirtæki,sem var búið að þvælast fyrir mér í nokkra daga...Síðan fór ég að leita á mbl.í kvöld og hér er sú frétt, ja hérna hér...það liggur við að ég hefði viljað að ég hefði ekki tekið það úr í gær...
En nú sný ég mér að því sem safnaðist saman hjá mér á blaði þegar ég fór að skoða það eftir færsluna...
Og orðið sem mér datt í hug er heimsþekkt fyrirtæki á sviði ýmissa fjármálaráðgjafa, sem reyndar er hér einnig á litla Íslandi...
En það er PricewaterhouseCoopers og það hlýtur ( að standa vel og vandlega að þjálfun starfsmannanna...datt í hug draumurinn )
Fyrirmyndafyrirtækið á Íslandi En vá, ég vissi ekki að tengslin til litla Íslands, væru síðan 1924...
PricewaterhouseCoopers hf. (PwC) er framsækið og vaxandi fyrirtæki sem á sér rætur í íslensku viðskiptalífi allt til ársins 1924. Með bakland í öflugu starfi PwC um allan heim, sérþekkingu, þekkingarmiðlun og aðferðarfræði er félagið í fremstu röð á markaðnum og hefur náð að skapa sér áhugaverða sérstöðu hérlendis.
Þetta kemur svo strax inn á eftir pwc. ; KPMG er alþjóðlegt net fyrirtækja sem veita sérfræðiþjónustu með það að markmiði að breyta þekkingu í verðmæti til hagsbóta fyrir viðskiptavini sína, starfsfólk og samfélagið.
Og einhver situr í stjórn KPMG LLP í Sviss... síðan 2007
og hér eru einhverjar slóðir tengdar KPMG
Hef alltaf haldið míg utanvið efnahagsumræður svona almennt og hef engan áhuga haft svosum að kynnast heimi fjármála eða stjórnmála, fyrr en nú nýverið...
Maður hefur fylgt bara með einhverjum hópi fólks sem kyngir því sem sett er á diskinn af ráðmönnum þjóðarinnar hverju sinni...
Og hugsar, svona er þetta bara og reynir að treysta að ráðamenn hafi vilja, getu, reynslu eða menntun til að stýra. Þó svo maður viti að auðvitað undir niðri séu það hagfræðingarnir sem hljóta að skapa grunninn að hverri uppskrift, sem matreidd síðan er og borin á borð ...
Svo að öll hlutföll séu sem réttust reiknuð með t.d. næringargildi og hollustu til hliðsjónar...
eða þannig og minnir mig á nokkur orð sem ég skrifaði 2003;
og hef reyndað gripið í hérna á blogginu áður... Heldur eru það tölur og útreikningar snilldarlausn sem ráðamenn þjóðarinnar hafa að leiðarljósi og hagkerfið góða byggist á. Blekking, sem er leikur að tölum frambærilegar á hvítu blaði. Þeir ríku verða ríkari og þeir fátæku fátækari. Þjóðin er að festast í blekkingarvef, sem hún sjálf hefur ofið sér"Það fylgist kannski að, breyting á hugafari manns sjálfs, eins og hefur verið að gerast með mig. Það er að segja, ég er t.d. mikið farin að hugsa um mataræði mitt.
Auðvitað búin að vita það til margra ára að ég ætti að vera meira svona í hollustunni skulum við segja, til að bæta heilsufar mitt.og verða meðvitaðri um hug, sál og likama.
Við erum jú, það sem við hugsum, gerum og borðum...
Þannig að hugsanlega í undirmeðvitundinni vil ég fá orðið öðruvísi samansettan mat á þjóðardiskinn minn...og aukið vit og getu til að greina hvað sé hollt og óhollt...á því sem ég vil innbyrða...Og eflaust er það sama að gerast hjá svo mörgum orðið...
Og í mínum einfalda hug eru að vakna upp hugsanir tengdar; Tölum og öllum þessum svokölluðu allskonar útreikningum, sem virðist stjórna undirliggandi svo mikið lífi okkar...
Og þá dettur mér strax í hug tveggja nafna, vísitölutengdra, sem hafa ómað með manni í fréttum og frásögnum til margra ára...og maður hristir bara hausin og skilur ekkert hvað er verið að tala um, algjör hebreska fyrir manni...
Hvað er t.d. þessi Dow Jones-vísitala og hvað þýðir hún ;
Eftirtalin 30 fyrirtæki sem nefn eru hér fyrir neðan eru aðilar að vísitölunni.!
Hvernig er hægt að vera aðili að einhverri vísitölu ?
og hvað táknar það...?
og gerir t.d. fyrir þessi fyrirtæki...?

3M (eignarhaldsfélag) Alcoa (álframleiðandi) Altria Group (matvæla- og tóbaksframleiðandi) American International Group (tryggingafyrirtæki) American Express (greiðslukortafyrirtæki) AT&T (fjarskiptafyrirtæki) Boeing (flugvélaframleiðandi) Caterpillar (vinnuvélaframleiðandi) Citigroup (fjármálafyrirtæki) The Coca-Cola Company (drykkjarframleiðandi) DuPont (efnaframleiðandi) ExxonMobil (olíusölufyrirtæki) General Electric (eignarhaldsfélag) General Motors (bílaframleiðandi) Hewlett-Packard (tölvuframleiðandi) | The Home Depot (byggingavöruverslanir) Honeywell (eignarhaldsfélag) Intel (partaframleiðandi fyrir tölvur) IBM (tölvuframleiðandi) JPMorgan Chase & Co. (fjármálafyrirtæki) Johnson & Johnson (lyfjaframleiðandi) McDonald's (veitingastaðir) Merck & Co. (lyfjaframleiðandi) Microsoft (hugbúnaðarframleiðandi) Pfizer Inc. (lyfjaframleiðandi) Procter & Gamble (hreinsivöruframleiðandi) United Technologies Corporation (eignarhaldsfélag) Verizon Communications (fjarskiptafyrirtæki) Wal-Mart (verslanir) The Walt Disney Company (skemmtanafyrirtæki) |
Og hversvega fellur vísitala ef eitthvað kemur fyrir einhversstaðar...?
Hver eða hvað stjórnar því ?
Og hvers hagur er ef vísitala fellur ?
eða rís ?
t.d. hjá Evolving System ; er þetta þá flott rekið fyrirtæki ?
En þessi svokallaða úrvalsvísitala ( gamalt síðan 06 ) hvað með hana ?
Og hvað er NASDAQ vísitalan ? Nasdaq vísitalan í methæðum
( reyndar gamlar fréttir í jan.´1999 ) hér lækkar hún t.d.í des. ´07
eitthvað umDow Jones og Nasdaq á vísindavefnum
( þetta er sennilega það sem öllu stjórnar,( lífinu okkar) tölur og útreikningar )
er alltaf að sjá það betur og betur...
Fann reyndar ekki sögu hennar á íslensku ( hér er bjöguð þýðing google )
og hér er eitthvað á ensku : hér er á ísl. eitthvað
um sögu hlutafjárviðskipta hér á landi ;
Þær umræður og fréttir af hinu og þessu tengt ofansögðu hefur liðast á milli eyrna minna gegnum árin og hefur verið algjör hebreska fyrir mér. Það eru aðrir sem skilja og hafa kunnáttu til að moða úr upplýsingaflæðinu eða því sem hulið er...
En ég finn orðið fyrir örlitlum áhuga og þess vegna eru þessar hugleiðingar mínar að myndast hér meðan ég pikka á lyklaborðið...
Einhver stór gróin fjármálafyrirtæki þarf að finna, hvernig eru þau uppsett og tengjast þau hér og erlendis ?
En eitthvað meir um PWC ; af nógu er greinilega að taka...
Evrópuráðgjöf PricewaterhouseCoopers
Uppspretta tækifæra - afnám hindrana... ( hljómar vel...!)
( nóv. 1999) samruni við BDO endurskoðunar sem er af BDO international
PriceWaterhouseCoopers mun stýra BG Holding
Greinilega mikið að gera hjá PWC. á ótrúlega mörgum sviðum...
PricewaterhouseCooper svið1.
PricewaterhouseCooper svið2. og einhverjar
gamlar og nýjar kærur á PWC og KPMG
og fleiri kærur á PWC upphæðirnar eru ævintýralegar
Fornarlömb Madoffs stefna PricewaterHouseCoopers
og hver er Madoff... Réttarhöld yfir PWC það er fullt af allskonar málaferlum þarna úti...
IBM og PWC
July 30, 2002 5:30 PM PDT
bjöguð´google ísl.
Olía og vatn
Kaup IBM af PwC Consulting endurspeglar einnig vaxandi tregðu samráð og bókhald fyrirtækja til að halda báðum greinum undir sömu fyrirtækja regnhlíf. Eftir kaupin, PwC mun halda aðeins endurskoðun þess, skatt-og lögfræðiþjónustu, auk nokkurra smærri "Business Advisory" þjónustu.
Þó fyrirtækja whistleblowers hefur lengi verið varkár þegar eitt fyrirtæki gefur bæði ráðgjafar og endurskoðun þjónustu, spurningin um sjálfstæði endurskoðanda hituð upp í kjölfar gjaldþrotum og scandals hjá Enron, Adelphia, WorldCom og Global Crossing.
Á Enron, til dæmis, ráðgjafar risastór Arthur Andersen fékk $ 37 milljónir þjónustu endurskoðun og annar $ 57 milljónir ráðgjafar. Gagnrýnendur sagði Andersen endurskoðendur voru tregir til að kastað neikvæð ljósi á fyrirtæki sem kveðið svo mikið tekjur til ráðgjafar hlið Andersen's. Andersen hefur þegar verið fundinn sekur um obstructing að SEC rannsókn á starfi sínu hjá Enron.
The verðbréfaeftirlitsins er rannsókn á búnt samráð og endurskoðun þjónustu hjá fjölda fyrirtækja, þar á meðal Arthur Andersen, Deloitte & Touche, KPMG og Ernst & Young. Bush forseti undirrituðu einnig í lögum Þriðjudagur a tröllríða "Samfélagsleg ábyrgð" umbætur pakkann, þar á meðal ákvæði sem krefst fjárhagslega endurskoðendur að vera sjálfstæð. Lögin takmarka sérstaklega magn og eðli ráðgjafar þjónustu að bókhald fyrirtæki geta selt til endurskoðunar viðskiptavini.
En Sehra Eusufzai, a spokeswoman fyrir PwC Consulting, segir að kaup IBM ekki endurspegla þrá félagsins fjarlægðar sig frá widening specter fyrirtækja scandals.
"Við höfum verið að reyna að aðskilja stjórnun og IT ráðgjafar frá endurskoðunar á tveggja og hálft ár núna," Eusufzai sagði seint Þriðjudagur síðdegi. "Við kynntum áform okkar til að skrá fyrir IPO í janúar og við voru nefnd að því, en á endanum við mynstrağur this samningur var bestur einn fyrir viðskiptavini okkar og starfsfólk okkar."
Á undanförnum árum hafa PwC, Andersen, Deloitte & Touche og KPMG þróast í helstu aðilar í þjónustu fyrirtækisins. Þessi fyrirtæki fengust um 29 prósent af tekjum sínum, eða u.þ.b. 4 milljarða, úr upplýsinga-tækni ráðgjafar og stjórnun, samkvæmt Prakesh Parthasarathy, greiningu á Fjárfestingarbanki Montgomery verðbréfa.
News.com 's Ian Fried og Rachel Konrad stuðlað að þessari skýrslu.
Nú ég er hætt að nenna skoða þetta allt saman, það er endalaust eitthvað að finna...og veit varla hversvegna ég er að þessu yfir höfuð...er eflaust búin að rugla saman linkum eða eitthvað, kemur í ljós...
Þetta eru ekki mín áhugamál eða vettfangur hugsana minna svona almennt séð...
Ég held ég fari í langa, langa bloggpásu núna, mjög fljótt...En áður en ég hætti að sinni, læt ég þessar pælingar að fljóta með...úfs, ég fer að henda einhverju af því sem ég hef rekist á og álpast tíl að geyma...
Ég gæti setið við tölvuna og skrifað og skrifað um svo mikla dellu að það hálfa væri nóg stundum...
Og hverjir standa t.d.á bakvið;
http://www.doingbusiness.org/ og
http://www.russellbedford.com/
eitthvað nýtt um russelbedford
og æji þetta eru nú orðið meira krossgáturuglið hjá mér...
orðin flögra allt um kring...
mál komið til að hætta...áður en kollur konu brennur yfir...
jæja örlítið meir; Var aðeins að pæla í orðinu selur sbr. síðasta bloggi mínu...selur-seal-zeal... var bara að leika mér smá...og þá rak á fjörur mínar þessi síða; http://www.zinnov.com/ hér er goggle-isl. þýð. og svo árangurssögur en þeir tengja orðið zeal við zinnov, sem er reyndar í annari merkingu en ég lagði upp með...
En þetta er nýlegt Indverskt fyrirtæki með víðtækan metnað til framtíðar...Og á einhvern hátt kom draumurinn fyrrnefndi upp aftur hér...Og þjálfun starfsmannanna ( leiðbeinandana ) hjá Zinnov finnst mér ekki vera lík eins og ég upplifði í verksmiðjuhúsunum í draumnum.
Það er spurning hvort blessaðir ráðamenn þjóðarinnar ættu bara ekki að leita ráða ( hjálpar ) hjá þeim...við að reyna að rétta af allt systemið hérna á litla Íslandi...
Það gengur svo hægt að stokka upp hérna í þessum gömlu úreltum kerfum okkar, sem löngu eru orðin úrbrædd..
Okkur vantar svo sárlega eittvað nýtt til styrktar uppbyggingunni...
En að öllu gamni sleppt, þá veit ég ekki hvort þetta er rétt sýn hjá mér með Zinnov...en samt finnst mér eitthvað jákvætt við þetta...
Ég er svo lengi að stauta mig framúr enskunni...Og verð að viðurkenna að ég er ekki búin að sitja og lesa allt það sem ég hef sett hér fram á ensku...
Bið forláts ef ég hef dregið rangar ályktanir, en mér fannst bara að ég ætti að setja þetta allt hingað...
Var búin að ákveða að hætta núna, en get ekki alveg strax...Set hérna til viðbótar eitthvað sem hefði átt að vera í næsta bloggpári mínu...en fyrst ég ætla mér í einhverja bloggpásu um tíma læt ég þetta vaða.
Og hafi þér endst þolinmæði að komast hingað, þá er meir en nóg til að lesa hér ;
Hvernig tókst Goldman Sachs að verða fyrsti bankinn útúr kreppunni
með 200 milljarða hagnað ! og það strax á fyrsta ársfjórðunni árssins...
Afhverju var ekki strax leitað til hans af ráðamönnum okkar og þessi frábæra uppskrift fengin?
og síðan; Who really owns the FED?
The Rothschilds of London and Berlin; Lazard Brothers of Paris; Israel Moses Seif of Italy; Kuhn, Loeb and Warburg of Germany; and the Lehman Brothers, Goldman, Sachs and the Rockefeller families of New York. ?
og hvað er FED - Bandaríski seðlabankinn hér um á íslensku.
THE MOST IMPORTANT VIDEO ON THE INTERNET NO MORE FED RESERVE
http://www.youtube.com/watch?v=Zv0QlZHu3oc
( úps nú dettur mér draumurinn í hug þegar ég var í salarkynnunum
með heldri mönnunum...)
Secret Societies: The Bilderberg Group
http://www.youtube.com/watch?v=eDUMEEl_ajM
A History of the Bilderberg Group The Secret Society of Secret Societies,
the one whom dicates to all the others.
Flest af þessu hefur nú bara farið fram hjá mér, en þegar ég for að glugga á netinu um eitt nafn, þá hafa hin bara komið í kjölfarið. Og sé ég að það hafa farið fram margar umræður og pælingar út og suður..og eitt leiðir að öðru og hluti af allri þessari hringavitleysu er komin hér á blað til mín, eins og ormurinn ógnarlangi...
Eitthvað á íslensku;
áhugaverð lesning og samantekt á íslensku,
http://gullvagninn.blog.is/blog/hin_nyja_heimsyn/entry/882929/
http://www.mbl.is/mm/gagnasafn/grein.html?grein_id=103966
Ags er stjórnað Af bilderberg og einhver blanda...
Og þessi síða spratt nú fram fyrir mig ...
kaupsamningur Prospectus og gamla KB ´05
orð eins og KPMG, FSA, og fl vöktu athygli mína...já og best þá í lokinn að henda fram eitthvað um allar þessar helstu sammstafanir...maður veit ekkert í sinn haus stundum þegar er verið að lesa og allt í einhverjum óskiljanlegum stöfum...
staðlar; helstu skammstafanir á íslensku og á
sæl að sinni josira
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 14:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hraunnybbur hvassar sumarhverjar og harðar, en þó einhver undarleg mýkt sem myndast er fagur mosinn hjúpar...og maður skynjar hve mátturinn hrikalegur er við myndun landssins og andstæðuna hve ljúft sé að njóta náttúrunnar er allt er um garð gengið og stilla ríkir...
Ekki var á döfinni annað en að skjótast austur fyrir fjall á s.l. sunnudag í stuttan bíltúr. En svo fór að í rigningunni og þokunni var ákveðið að fara Suðurstranarveginn til baka.
Einhvern tíma er allra fyrst og fór ég mína fyrstu ferð á þessar slóðir í kjölfarið...Það kom mér þægilega á óvart að ferðast þarna um og bara nokkuð fallegt...En biður betri tíma að skoða áhugaverða staði þar síðar. hér má lesa um framkvæmd nýja vegarins...
Ég var hrifin af andstæðunum í hrauninu og fjöllin hærri en ég hélt þau væru ...
Svo er leið lá framhjá afleggjaranum til Krísuvíkurbjargs, var ákveðið að nota ferðina og skoða bergið í leiðinni, þó langt væri liðið á daginn og skyggni ekki gott...
Þessi vegaslóði er nú varla fær fólksbifreiðum. Hefði ég nú haldið að betur væri hugað að honum...
Síðan var komið að bjarginu. Ekki var neina fugla að sjá eða heyra í. Leið mér frekar ónotalega þarna, loftið þungt og daunillt, en fór ég eins nálægt brúninni og hugrekkið gaf, sem ekki var burðugt fyrir...starði ég á stórbrotið bergið og hlustaði á þungt sogið í sjónum. Setti hendina út fyrir og smelli út í loftið með myndavélinni..
Leikur að litum...önnur sýn...ýmsar kynjamyndir að sjá í berginu...
En ég einhvern vegin var bara ekki alveg samt yfir mig heilluð af þessum krafti þarna.
eins og sjá má er að hrynja úr bakkanum...
Og það sem kom mér á óvart að ekki skuli vera kaðall, stikur eða eitthvað sem ætti að vera til varúðar að fara ekki of nálægt brúninni. Því stöðugt virðist vera að hrynja þarna úr og hugsanlega holbakkar þarna undir að einhverju leiti.
Reyndar var þarna varúðarskilti rétt áður komið var inná svæðið, en því miður allt sundurskotið svo vart greindust stafir...
Í bakaleiðinni sást fé á beit, sérstakt á lit kolsvart, dökk mórautt og fallega flekkótt.
Og varð mér léttari um líkaman er bjargið fjarlægðist og suðurstrandarvegurinn nálgaðist...
Myndavélin mín varð batteríslaus og náði ég ekki að taka mynd af skiltinu sundurskotna eða af fénu fallega. Ferðinni var síðan haldið áfram sem leið lá í átt til Grindavíkur, þar áfram í gegn, inn í rökkrið og ekið var áfram þar til ljósin sáust í Höfnum og framhjá þar og að síðustu komið við í heimsókn að háskólasvæðinu Keilir, þar sem eldri hluti afkomenda minna nemur og vinnur. Vel þegnir kaffibollar, stutt spjall, koss og knús og ferðinni áfram haldið í átt til höfuðborgarinnar...
Góður dagur að kveldi komin, sem reyndist þó lengri vera en lagt var upp með...
Endilega að kíkja svo á virkilega áhugaverðar hugmyndir sem ég rakst á bloggsíðu Kjartans photo.is um íslenska hönnun og smíði lestarkerfis fyrir suðvesturhorn landssins...
Við þurfum að virkja allt það hugvit og verkvit sem býr í mannauði okkar til framfara fyrir land og þjóð...
josira
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 13:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sonur minn...
Frumburður fagur fæddist mér
með dökka lokka á kolli sér.
Dásemdar drengur, með augu blá
svo blíður og bjartur, unun að sjá.
Í September á sólríkum degi
dró lífsandann lítill eyjapeyji.
Endurvarpaði foreldranna ást
ávöxtur beggja þarna sást.
Síðla dags þann sama dag
drotting blóma sá sér hag.
Í haustblíðunni bar sín blóm
barnsfæðingunni gaf sinn óm.
Hvort um sig svo undra verð
vaxtarsprotar guðleg að gerð.
Gladíóla og gullinn drengur
Drottins líf, ljóssins strengur.
Þannig var að daginn sem sonur minn fæddist, fékk ég að vita að síðar þann sama dag, sprakk út fyrsta gladíólan mín heima við húsvegg, gul að lit, og örlitlu síðar önnur rauð að lit. Og þóttu óvenju háar.
En þetta voru mínir fyrstu vorlaukar sem ég hafði sett niður og fyrst svo langt var liðið á september átti ég ekki von á að þeir myndu blómsta.
En ég man enn hve mér þótti þetta meiriháttar yndislegar fréttir. Og beið spennt eftir að komast heim og sjá Gladíóluna.
Fannst einhvern vegin að náttúran væri að samfagna okkur foreldrunum með fæðingu sonarins...
þessa mynd tók ég fyrir 31 ári, þegar ég kom heim viku eftir fæðingu sonarins og blómstrun gladíólunnar...( þeirrar gulu og sú rauða komin af stað. )
Til gamans ; Fengið héðan og þaðan ; Gulur litur táknar persónulegan styrk og/eða visku og greind, Rauður litur stendur fyrir lífskrafti og líkamlegri heilsu. Og er ein sterkasta tengingin við lífið sjálf, táknar einnig reiði, eld, frjósemi osfrv.
Gulur er huglægur litur og tengist gáfnafari og hæfileikanum til að hugsa skýrt og rökfast. Hann er einnig tákn sólarinnar og er bjartur og hlýr litur og tengist kærleik, velvilja, góðmennsku og innsæi. Hann er einnig trúarlegur litur og stendur fyrir endurfæðingu. Hjá búddistum tengist hann auðmýkt, afneitun og nægjusemi.
Gulur litur er einhver hagstæðasti litur sem tengist manneskjunni ef hann er hreinn og bjartur. Þá er hann tákn sólarinnar, lífsins - merki um kærleika, góðvild, gáfur, djúpa visku, innsæi og stundum einlæga trúarkennd. Indíánar töldu gula litinn tákn lífs og óendanleika. Litafræði Búddista segir gult merkja auðmýkt, afneitun og nægjusemi.
Gulur litur getur staðið fyrir margt. Það fer mikið eftir í hvaða tón hann er og auðvitað skiptir samhengið máli líka. Allir litir hafa bæði jákvæða og neikvæða merkingu. Jákvæð merking þess gula tengist til dæmis sól, hamingju, von, bjartsýni, hugmyndaflugi og hlýju. Og það er jákvætt Þegar tónn gula litarins er örlítið út í rautt eða brúnt sem er litur jarðarinnar. Neikvæða hliðin er tengd hugleysi og hjá sumum öfundsýki.
Gul rós er tákn um vináttu, meðan rauðar rósir tákna ást. Guli liturinn er líka andlegur. Hann er litur goða eða í mörgum trúarbrögðum og í Asíu er hann heilagur.
Gulur er litur ljóss og vonar. Gulur dregur að sér athygli öðrum litum fremur enda virðist sjálf sólin gul í okkar augum. Gulur er jafnframt litur páskanna og vorkomunnar.
Gulur athygli / von /styrkur
Rauður er oft talinn fremstur í flokki litanna. Rauður espar og ögrar og kemur blóðrásinni á hreyfingu. Hann er litur ástríðu, munúðar og tilfýsi. Rauður er tákn gleði, fjörs, hraða og spennu. Hann sést afar vel úr fjarska og er einnig litur banns og viðvörunar. Rauður getur einnig táknað reiði og blygðu.
Rauður ástríða / hraði / spenna
Rauða litinn líta t.d. kínverjar á sem gæfumerki, en í kristni táknar hann þjáningu Krists.
Rauður litur er einnig talinn örvandi litur, sem merkir viljastyrk, lífsgleði, hreysti, raunsæi og lífsorku
Rautt er afar mikilvægur litur í hindúatrú og sá sem er oftast notaður við hátíðleg tækifæri eins og brúðkaup, fæðingu barns, veislur o.s.frv. Rauður depill er settur á ennið þegar mikilvægar hátíðir og uppákomur eiga sér stað.
Rauður litur stendur fyrir lifskrafti og líkamlegri heilsu.
Mér finnst svolítið magnað að lesa yfir táknmerkingu þessara tveggja lita, því mér finnst ég geta lesið ótrúlega son minn þarna í gegn og hans líf fram að þessu...
Það var svo fyrir örfáum árum að ég las hvað Gladíólan stendur fyrir í táknmáli blómanna.
Gladiolus - this is the flower of faithfulness and honor; the symbol of brotherhood, faithfulness to its principles and dignity of soul.
Og þýðing mín er eitthvað á þessa leið ; Gladíóla er blóm sem táknar trúfesti og heiður ( heiðarleika ), sem er tákn bræðalags, trúfesti að meginreglum þess og virðingu sálarinnar.
Annars má lesa sitthvað hér meira um Gladíólurnar. http://www.gladiolusguide.com/
Ljúflingurinn sonur minn er heiðarlegur og góður mann-og dýravinur, ásamt því að vera kærleiksríkur friðarsinni í eðli sínu og þótti mér gaman að því þegar
alþjóðlegur friðardagur var valinn 21 september.
hér má sjá hinar ýmsu slóðir til friðarsíðna...
Félag sameinuðu þjóðanna á Íslandi...
Mannréttindi og Friður hja SÞ. Skátavefurinn , Yoko Ono og Friðarsúlan
Peace one day , myndaniðurstöður friðardagssins , http://www.internationaldayofpeace.org/
International Day of Peace ( bjöguð þýðing )
josira
p.s. Svona að tilefni dagssins á þolgóða konan í stríði við huga sjálfs sins...Því hún alveg að niðurlötum komin með þetta blessaða bloggorðakerfi...
AARRRGGGarg...marg búin byrja aftur og aftur...bilin milli orða eru bara ekki að gera sig.
ljóðalínurnar eiga t.d. að vera 4 hvor um sig...Búin að gefast upp að koma þessu frá mér eins og ég vil...þannig að svona verður þessi færsla bara..
Vinir og fjölskylda | Breytt 22.9.2009 kl. 03:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.9.2009
Að vera eða gera...í kreppunni...
Á að liggja í leti um helgina ! það kostar ekkert...
eða bregða sér bæjarleið á nýja kreppu-farartækinu sem engu eyðir !
og koma við í nýja kreppu-hjólhýsinu !
eða fara bara á nýja kreppu - húsbílnum !
Kannski bara ágætt að byrja á því að kíkja á eitthvað sem kitlar hláturtaugarnar, á meðan ákvörðun er tekin...
Góða helgi...
josira
Verð að gefa Ólínu þorvarðardóttir þingmanni með meiru hrós fyrir frábæra grein,
segir allt sem segja þarf...
josira
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 12:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sagt er að fjöldskyldan sé hornsteinn íslensku þjóðarinnar.
En í raunveruleikanum er það svo sannarlega ekki. Heldur eru það tölur og útreikningar "snilldarlausn sem ráðamenn þjóðarinnar hafa að leiðarljósi og hagkerfið "góða" byggist á. Blekking, sem er leikur að tölum frambærilegar á hvítu blaði. Þeir ríku verða ríkari og þeir fátæku fátækari. Þjóðin er að festast í blekkingarvef, sem hún sjálf hefur ofið sér.Þetta er úr gömlum hugleiðingum mínum frá 2003...Og hvað hefur breyst ? þrátt fyrir allt það sem dunið hefur yfir íslensku þjóðina síðan...Margt smátt gerir eitt stórt, stendur víst einhversstaðar, en allavega nú, er varla að sjá teikn um að eitthvað smátt sé einu sinni að gerast með að hinn almenna þjóðfélagsþegn, heimili eða fyrirtæki og ekkrt sjáanlegt að séu á leiðinni að losna úr vefnum...Vefurinn virðist frekar stækka og þéttast og margir að bugast...
Því tölurnar og útreikningarir hagtölurnar góðu ráða greinilega hér ríkjum enn. Við þurfum sterkt afl strax, nú þegar, í gær...Einhvern, eitthvað sem tekur af skarið, Allavega virðist sem stjórnvöld og þingflokkar séu ekki alveg að höndla eða ráða við aðstæðurnar í þjóðfélaginu...
Fann t.d. eftir fallið mikla í haust og óstjórnina sem yfirtók allt, bæði fyrir og eftir áramót að ég vildi að í forsetaembættinu fælist sterkt og öflugt afl. Ég fann það þá, þegar þáverandi ríkisstjórn liðaðist í sundur, að ég vildi bara, að sett yrði strax þjóðarstjórn, En þó ekki með einhverjum skilgreindum meirihluta, heldur skipuð og valin af forsetanum, burtséð frá hvaða flokkum hverjir tilheyra. Heldur sé valið í hvert sæti af yfirvegun og útsjónarsemi um hverjir væru hæfastir í hvert verkefni fyrir sig. Og unnið yrði dag og nótt, þess vegna á vöktum ef þyrfti. Engann tíma mátti missa. Einn fyrir alla og allir sem einn, til bjargræðis þjóöar og lands. Og þess vegna kalla til fólk úr röðum hinna ýmsu starfstétta og jafnvel erlendis frá. Þannig er nú mín sýn á málið...
Sumir vilja að forsetaembættið sé lagt niður, en ég er ekki sammála því. En við gætum líka kallað embættið öðrum orðum ef við kjósum það frekar...
Ég fer ekki ofan af þvi, að sá eða sú sem gegnir forsetaembætti Íslands hverju sinni ætti að vera okkar þjóðhöfðingi, þjóðarráðgjafi, landsfaðir-og eða móðir og hafa meiri völd en fylgir embættinu nú. Og vera sameiningatákn fyrir þjóðina hérlendis og erlendis og vinna á sem heiðarlegastan hátt í þjóðarhag og vera hafinn yfir pólítískar stefnur.
Að forsetinn sé okkar fulltrúi, þjóðhöfðingi og sameiningartákn...
Ég varð fyrir miklum vonbrigðum er forseti okkar hann Ólafur skyldi þora að ekki taka af skarið um daginn og hlusta á þjóðina sjálfa í sambandi við icesave og nota vald sitt í hennar þágu.En ég get ekki dæmt hann fyrir sína ákvörðun að sinni fyrr, en allt er komið upp á yfirborðið með þá ákvörðun. Og þó allflestir tengja hann eða þau hjón í neikvæðri merkingju við útrásavíkingana, finnst mér samskipti þeirra meira allavega í upphafi vera tengd því að hrífast með þessum stórhuga mönnum líkt og margir aðrir sem og hverjir tóku sér far með flottu hringekjunni...
Og ekki gleymi ég því, þegar þingið fór frá svo mörgum lausum endum í jólafrí... auðvitað voru allir orðnir úrvinda af þreytu andlega og líkamlega, en þá átti bara annað teymi að halda áfram á vaktinni... Og mátturinn fór þverrandi á þessari svokallaðri björgun okkar...Ég fann fyrir reiði, sem ólgaði undir niðri hjá mér. Ég sá bara fyrir mér þegar allir lögust á eitt í sveitinni, að bjarga heyjum og helst í hús ef eitthvað var að gerast með veðrið. Eins var í fiskinum. Þar var lögð nótt við dag ef því var að skipta, að vinna aflann, svo að sem minnst færi i gúanóið. Og á vertíðunum hér áður fyrr, runnu ekki dagarnir saman, heldur vikurnar, þar til bannað var að vinna á sunnudögum. Og í sláturhúsavinnslunni þurfti líka allt að ganga sem smurð tannhjól, því hver töf kjötsins á leið til frystingar gat komið niður á gæðum.
Ég byrjaði snemma að vinna fyrir launum, líkt og flestir þegnar þessa lands. Byrjaði sem barnapía, barnung sjálf. Með barnaskólanum á veturna seldi ég vísir niðrí Austurstræti , bar út moggann áður en ég fór í skólann. Byrjaði hjá gamla ritsímanum um 11-12 ára hlaupandi með skeyti út og suður í miðbænum eftir skóla. Og beint í sveitina eftir síðasta próf á vorin. Ég vann í fiski í átta ár, síðar við matreiðslustörf, sláturhúsastörf ásamt þrifum og iðnaðarstörfum ýmisskonar...Og einhvern tíma tók ég meiraprófið og keyrði vörubíl. Þótti nokkuð dugleg, ósérhlífin og samviskusöm og reyndi ætíð eftir bestu getu, á meðan heilsan var í lagi, að skila öllum verkum eins vel af mér og ég gat. Átti svo börn og buru, einhvern tíma í öllu þessu samkrulli. Þannig að í hnotskurn var ég og er þessi venjulegi íslenski verkamaður og hefðbundna húsmóðir. Enda komin af alþýðufólki í báðar ættir og er stolt af Og vön því að verkin þarf að vinna, því ekki vinna þau sig sjálf.Ja hérna, ég ætlaði mér nú ekki að fara svona langt frá viðfangsefninu, sem ég lagði upp með...
Mér fannst bara ráðamenn þjóðarinnar einfaldlega ekki taka samtaka og sameineinuðum höndum um þjóðarreipið til björgunar og að draga þjóðarskútuna á flot aftur.
En allt á víst sinn tíma...Kannski verður öll þessi töf og oft á tíðum að manni finnst, margar rangar ákvarðanatökur ráðamanna til þess þegar upp verður staðið, að margt muni koma í ljós, sem ekki hefði orðið nema fyrir þennan seinagang og oft á tíðum illskiljanlegan forgang ýmissa mála.
En þolgæðið mitt er á þrotum og mér er nú alveg að fallast hendur og er að verða nóg boðið...
Hver forgangsröðunin er hjá ráðamönnum...
Hvað um stærstu loforðin um að slá skjaldborg um heimili og fyrirtæki og koma þjóðaskútinni á flot.
Hættum að týnast í orðaskrúði ólgandi hafi, talna og orða, sem stjórna hér öllu enn...
nafnávöxtun, meðalraunávöxtun, raunávöxtun, allrahanda ávöxtun, verðtrygging, vaxtakjör, greiðslubyrði, endurfjármögnun, uppgreiðslukosnaður, greiðslustaða, stimpilgjöld, fjármagnskosnaður, vísitölutrygging, vísitöluhækkun-lækkun, eignarstýring, fjárfesting í sjóðum, fjármálamarkaðir, áhættuþol, áhættustýringasvið, innherjar, fruminnherjar, gengisþróun...og mætti áfram telja...
þetta eru allt mannanna verk, við hljótum að geta leitað ráða hjá þjóðum sem öðruvísa vinna að uppbyggingu og jafnvægi og breytt áherslum til bjargræðis.
þessi orð fyrir neðan var ég reyndar búin að skrifa annarsstaðar en læt þau fljóta hér með...
Mér dettur í hug þegar kreista þarf kýli, verður stundum að bíða eftir að það sé tilbúið að taka á því, svo mest af greftrinum sé komin upp á yfirborðið, eða ef skera þarf mein í burtu, er það oft opið um óakveðinn tíma á meðan það er að hreinsa sig innanfrá og út. Og eftir því sem tíminn tifar, erum við meir og meir almúgurinn, að vakna til vitundar með svo margt sem við höfum látið reka á reiðanum, þar á meðal lagt traust okkar sennilega fullmikið í gegnum tíðina til ráðamanna svona almennt séð og leyft þeim að leika sér með það að eigin vild.
En þjóðin er að vakna, svefndrunginn er á förum og sjón að skýrast. Og líf að færast í dofna útlimi...Og er þjóðin mun uppgvöta sinn innri styrk, hinn andlega auð, mun hún sameinast, sem einn maður með nýjum formerkjum, breyttum áherslum til lífviðhorfa, lífshátta og sterkari en nokkru sinni fyrr. Og verður sú fyrirmynd, sem önnur ríki munu leita til og hafa að leiðarljósi. Þegar einar dyr lokast opnast aðrar.Allt sem á undan hefur gengið hefur hjálpað til að koma okkur þar, sem við erum í dag. Reynslunni ríkari, þó erfið sé hún. Og nú munum við taka þátt í mótun hins nýja Íslands, sem rísa mun úr öskunni, líkt og fuglinn Fönix förðum daga. Og væntanlega hefur þessi ferill það í för með sér að sérhver verður að vinna að sjálfum sér...
josira
Vinir og fjölskylda | Breytt 24.9.2009 kl. 01:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
...Einhver skilaboð... þannig endaði síðasta bloggfærslan mín.
Byrja nú á því að velta fyrir mér nafni fjarðarins, sem steypireyðurinn valdi. Og finn reyndar síðu strax þar sem er talað um hnúfubak sem kom í heimsókn í Steingrímsfjörð í byrjun árs 2008já og sennilega voru þeir víst tveir. Gleymdi mér aðeins við að skoða þessa fróðleiksgóðu síðu Jóns Halldórssonar á Hólavík og fullt er þarna af fallegum myndum hans..
Hér má lesa um tákn hvala-höfrunga :
Að sjá sporð á hval standa upp úr sjónum er tákn um að erfiðleikar eða mótstaða að einhverju leyti sé á bak og burt.
Hvalur eins og sjávarverur tengjast andlegum eigindum og andlegri leit. Hann getur bæði verið heillatákn og áminnig til þín að treysa innsæi þínu og treysta á almættið og allt fari vel. Stundum getur hann líka verið fyrir því að þú takist of mikið á hendur og þurfir að leita hjálpar og treysta öðrum
Hvalinn þekkjum við úr sögunum okkar og er hann einn af verndarvættum er danakonungur hugðist senda hér til Íslands en byrjaði á því að senda galdramann einn af þeim vættum sem mætti honum var hvalur. Sögu þessa er að finna í Heimskringlu.
Höfrungur táknar innsæi og andlega eiginleika. Hann stendur líka fyrir lífsgleði og forvitini og áhuga á að kynnast umheiminum. Grikkir litu á höfrunga sem sendiboða guðanna.
Hvalur eins og sjávarverur tengjast andlegum eigindum og andlegri leit. Hann getur bæði verið heillatákn og áminnig til þín að treysa innsæi þínu og treysta á almættið og allt fari vel.
WHALE - is the record keeper. Through the rhythm and patterns of sound Whale teaches us to hear our inner voices, to be in touch with our personal truths, and thus to know the wisdom and feel the heartbeat of the universe
DOLPHIN - brings to us earth wisdom. Dolphin teaches us that in attuning to the rhythms and patterns of nature we can learn true communication with the wisdom of All That Is and share this wisdom with others. It is also about learning to breathe, we forget sometimes to breathe deeply and fully. Remember that to breathe is to live.
Dolphin: symbol of Harmony, Freedom, Communication, Trust The Dolphin can teach us much about playfulness, and harmony with others. Dolphins have a strong sense of community with each other as well as the world around them.
Dolphin - Joy, Harmony, Connection with self
Dolphin - Kindness, play, savior, guide, sea power, swift, intelligence, communication, breath control,
awareness of tone.
Learn from the dolphin: Wisdom (Intelligence), Harmonious balance in life, Communication as a healing voice, Trust in others via community spirit
Whale - Creativity, Intuition
Já það er greinilega margt sem við gætum lært af þessum sérstöku dýrum.
Er það líka ekki bara málið ...Að læra af fortíðinni...Lifa í nútíðinni og skapa betri framtíð á öllum sviðum, frá öllum hliðum...
Langaði mig aðeins þá að forvitnast um Steingrím þann er fjörðurinn heitir eftir. Þetta fann ég á wikipedia ...Steingrímur trölli... hér er saga um hann og eitthvað aðeins meira hér á vestfjarðarvefnum...sem ég er að koma inná í fyrsta sinn...núna í dag.
Þarna er greinilega mjög auðvelt að gleyma sér. Skrítið að ég skuli ekki vera búin að lesa mér til um t.d. strandirnar, en þangað liggur hluti af mínum ættboga...Ég hef nú hin síðari ár haft gaman af að stúdera aðeins tengsl við landnámsmennina í gegnum íslendingabókina okkar.
Ættfræðiáhuginn vaknaði hjá mér, þegar ég fór að kynnast þessu skemmtilega ættartengslaneti. Eða kannski fylgir það bara aldrinum. Svona í leiðinni og til gamans í þessum skrifuðu orðum skaust ég inná islendingabókina, til að athuga hvort ég væri skyld trölla, sem ekki reyndist vera nema af því leyti til, að tengingar koma saman þegar
Ingveldur nokkur Álfsdóttir ( frænka úr foröld ) Fædd (935) dóttir Álfs í Dölum. rituð Yngveldur í Sturlungu. Heimildir: Sturl. kvænist Þorvaldi aurgoða Halldórssyni (0960) nefndur Þorvaldur eyrgoði í Sturlungu, en faðir hans var Halldór Þórisson Fæddur (930) sonasonur Steingríms trölla...
Og þankar mína um hversvegna hvalurinn ( steypireyðurin ) staldraði við Steingrímsfjörð ! af öllum stöðum landssins...strange...liggja skilaboð kannski í nafninu...?
Auðvitað dettur manni fyrst í hug bara einn... Steingrímur Joð vorn fjármálaráðherra ...Og ég er ekki alveg að meðtaka hans björgunarvinnu fyrir þjóð vora og land...
En er einhver annar Steingrímur sem hægt væri að finna samsvörun með ? Það er svo sannarlega annar Steingrímur, sem kemur upp í huga minn nú, sá er Hermannson.
Skyldi ekki vera hægt að leita í smiðju þessa gamalreynda sjóaða stjórnmálamanns, fyrrv. margra ráðuneyta og fv. seðlabankastjóri ?
Hvernig skyldi hann hafa tekið á öllu því, sem yfir þjóðina hefur dunið síðasta ár. ? Hefði hann getað fundið ásættanlegar úrlausnir.? Er að finna landsföður og bjarvætt í honum ?
Ég bara spyr, fávís konan...
Hef einnig verið aðeins að hugsa um nýustu landnemana okkar, sporðdrekamóðurina með ungana tuttugu, hvort við gætum fundið einhvern tilgang með veru þeirra hér ! ( sporðdrekinn tengist reyndar til arna - og eða fönix en það er meira á bakvið það en nokkur orð.
En allavega er kannski fróðlegt að ath. með töluna 21 kemur hér strax inn á Dagskrá 21 sem er alþjóðlegur samningur Sameinuðu þjóðanna undirritaður af 179 þjóðum í Rio de Janeiro árið 1992 og flokkast undir Umhverfisfræði hjá wikipedia.
Annað táknrænt með spordrekann, hann er þekktur fyrir sínar stungur...Hér þarf nú heldur betur að stingá á ýmsum þjóðfélags-kýlum til hreinsunar. Og mér dettur þá í hug þegar kreista þarf kýli, verður stundum að bíða eftir að það sé tilbúið að taka á því, svo mest af greftrinum sé komin upp á yfirborðið, eða ef skera þarf mein í burtu, er það oft opið um óakveðinn tíma á meðan það er að hreinsa sig innanfrá og út.
Og eftir því sem tíminn tifar, erum við meir og meir almúgurinn, að vakna til vitundar með svo margt sem við höfum látið reka á reiðanum, þar á meðal lagt traust okkar sennilega fullmikið í gegnum tíðina til ráðamanna svona almennt séð og leyft þeim að leika sér með það að eigin vild. En þjóðin er að vakna, svefndrunginn er á förum og sjón að skýrast. Og líf að færast í dofna útlimi...
En nú er mál að fara að hætta þessu pári að sinni...
josira
Vinir og fjölskylda | Breytt 9.9.2009 kl. 09:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Feðgar sátu klovega á hval... frétt á visir.is
Endilega að lesa fréttina og sjá myndbandið, sem er stórkostlegt að sjá og að upplifa traustið sem skepnan setur á björgunarmenna og þá sérstaklega á einn er merkilegt.
Sýnin var alveg yndislega mögnuð og gaf svo gott í hjartað. Það hlýtur að vera einhver vernd yfir okkur hér á landinu fagra. Mér fannst ég finna vonina vaxa á ný...
Hafið þökk fyrir björgunina kæru strandamenn...
Ég hef áður skrifað lítillega um heimsökn hinna ýmsu hvalategunda, sem hafa heimsótt okkur hin síðari ár og jafnvel dvalið hjá okkur um tíma...
set hér til gamans færslu um hvalina, háhyrningana og höfrungana ásamt öðru;
http://josira.blog.is/blog/josira/entry/791078/
Ég er viss um að eitthvað eru þau að færa okkur....Einhver skilaboð...
josira
p.s. búin að laga linkinn inná fréttina...
og bæti hér við myndbandi um free willi ( keikó okkar )
http://www.youtube.com/watch?v=_x3PQ5QhMJs
tekið held ég upp að hluta til hér við strendur Íslands
tileinkað björgunarmönnunum, sem hjálpuðu til með björgun steypireyðinnar
og til heiðurs söngvaranum sjálfum michael jackson.
og s
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 03:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.9.2009
Sólin ljósberi lífssins...
Ég tilheyri stór-reykjvíkursvæðinu, svo ég var í þeim forréttinahóp að geta notið þessarar einstöku veðurblíðu á suðurhorninu.
Og var ég nú pínu undrandi þegar ég sá, að enginn var búin að taka undir þessa notalegu samantekt veðurfræðingssins, hans Trausta um sumarið.
Svo ég ákvað að leyfa minni upplifun að skjótast hér fram...
Var reyndar búin að skrifa nokkur orð um okkar yndislega íslenska sumar og fannst mér því alveg
upplagt að nota þá færslu hér við :
http://josira.blog.is/blog/josira/entry/919106/
josira
p.s. en skil vel að erfitt sé að reyna vera sólarmegin í lífinu
þegar ástandið er svo sorglega erfitt hjá svo
allt of mörgum hér á þessu annars frábæra landi okkar...
Allt eru þetta mannanna verk sem skapað hafa og skaðað þjóðfélagið svo sem það er í dag...
og get ég ekki neitað því að uggur er í manni með framvindu mála...
Og hvað verður ! þegar skammdegið fer að koma og hellist yfir okkur andlega og líkamlega...
Því haustið fallega er rétt handan við hornið og síðan tekur vetur konungur við...
Við verðum að vera bjartsýn um að hann verði okkur velviljaður
og staldri stutt við og sýni okkur mildi...
Þar sem okkar smáa, en sjálfstæða stórhuga þjóð býr, sem
mótast hefur af sambýli við náttúruöflin og harðri lífsbaráttu
gegnum aldirnar. Með að veganesti reynslu og þekkingu
genginna kynslóða, sem aldrei létu deigann síga.
Að gefast ekki upp þó að á móti blási, er setning
sem allflestir Íslendingar eiga að kannast við.
En nú erum við mörg við það að bugast vegna
fjárhagsáhyggna og ansi stutt í vonleysið.
þetta er tekið úr hugleiðingum mínum er ég skrifaði fyrir nokkrum árum.
http://www.hivenet.is/rosin/blekking.htm
og er ég renni hér yfir setningarnar, sé ég að ástandið er búið að vera svo lengi undirliggjandi, að það er í raun með ólíkindum, hvað við vorum blind á hvert stefndi...
Ég finn það nú þegar ég fer að pikka hér á lyklaborðið að það er svo margt sem mig langar að tjá mig um að ég held ég hætti að vera pennalöt og fari að leyfa hugleiðingum mínum að flögra aðeins um.
josira
![]() |
Sumarið hlýtt og sólríkt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.9.2009
Ástin er...
ástin er heit
ástin er köld
ástin er sæt
ástin er súr
ástin er mjúk
ástin er hörð
ástin gefur
ástin tekur
ástin er birta
ástin er myrkur
ástin blómstrar
ástin fölnar
ástin er sæla
ástin er sorg
ástin er gleði
ástin er kvöl
ástin er einföld
ástin er margföld
ástin fagnar
ástin hafnar
ástin er réttlát
ástin er ranglát
ástin elskar
ástin hatar
ástin er von
ástin er ótti
ástin nærir
ástin særir
ástin er líf
ástin er dauði
ástin er allt
ástin er ekkert
ástin er hin eilífa hringrás
höf: josira
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 17:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tenglar
ÝMSAR JÓLAVEFSÍÐUR
- Jólin-Þjóðminjasafnið jólasíður Þjóðminjasafnið
- jólavefur Júlla á Dalvík fullt af fróðleik um jólin
- Jólavefur Valla, sem geymir marga aðra jólavefi fjölbreytur jólavefur
- jóla-og áramótavefkort ýmis önnur vefræn tækiæriskort
BLANDAÐAR ÁHUGAVERÐAR VEFSÍÐUR
- LJÓSMYNDAKEPPNI Canon og mbl.
- VILTU VITA MEIRA Leiðsögn með lestri .. Sigríður Svavars - Leiðbeining - heilun- fyrirbænir
- ÓMAR RUN - Ljósmyndir Magnaðar myndir
- MADDÝ - Ljósmyndir Meiriháttar myndasmiður
ÝMSAR VEFMYNDAVÉLAR
- Nýjar Íslands vefmyndavélar Frábærir tenglar hérlendis og erlendis
- Vefmyndavélar - Vegagerðin - Suðausturland
- Vefmyndavélar víðs vegar um Ísland
VEÐUR - FÆRÐ - LOFTSLAG
LANDSBYGGÐIN LIFI...
- BETRI BYGGÐ UM LAND ALLT...
- LANDAKORT.IS Frábær síða um Ísland; m.a. Góðar upplýsinga-og þjónustusíður-Vefsjár sveitafélaga-Fjölbreytt efni um ferðamál og ferðalög á Íslandi.
- ICELAND WORLDWIDE Iceland, the land of the midnight sun, is becoming a favorite with those who seek adventure and freedom. Be it nature, sagas, geology or people that interest you, Iceland is the place to go
ÍSLENSK TÍMARIT ALLT FRÁ 1696 -
- FRÁ FYRSTU TÍMARITUM LANDSSINS TIL DAGSSINS Í DAG Ýmislegt að skoða ..
FRÁ A-Ö...
- TRÚARBRÖGÐ HEIMSSINS...
- VÍSINDAVEFUR H.Í Að vita meira og meira .
- ALMENNINGSBÓKASÖFN LANDSINS
- WIKIPEDIA
- BÓKASÖFN LANDSINS
TÆKNI og VÍSINDI
FJÖLBREYTTIR ÞÆTTIR...
- ÍSLAND Í DAG
- KASTLJÓS
- N4 SJÓNVARPSSTÖÐ NORÐAN HEIÐA
- GAMLA ÍNN TV SJÓNVARPSSTÖÐIN
- HRINGBRAUT SJÓNVARPSSTÖÐ
MATSELD
- MATARBLOGG SOFFÍU gómsætir réttir af öllum stærðum og gerðum...
- UPPSKRIFTIR SOLLU
- MARGAR MATAR UPPSKRIFTARSÍÐUR Eflaust eitthvað gott að finna ..
- KÖKUR OG EFTIRRÉTTIR Án hveiti sykurs og ger
- GULUR,RAUÐUR,GRÆNN OG SALT Hráfæði
HJÁLPARSTOFNANIR...
Fibromyalga...vefjagigt
Blekking í þjóðfélaginu...
Blekking í þjóðfélaginu...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 19
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2014
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði