Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Næring...

 

gledi

Næring.

Lífsnæringin í því felst,
öðlast sálarfriðinn helst.
Í honum felast lífsins gildi
gleði, ást og hugarmildi

josira


Þögnin...

 

 Meditation 

Þögnin.

Í vöggugjöf, þú mikið hlaust
leyndardóma , lífsins traust.
Ef lærir þú að njóta þagnar
þráður sálarþroska dafnar.

Ef heimsins glaumi, víkur frá,
frelsi og fegurð upplifir þá.
Í sjálfsíns, andartaksins tómi,
tendrast sálinni, sá ljómi.

josira

natures image_035


Yndisleg frétt um náungakærleikann...

„Settu vatn í skál og kertið ofan í, sestu svo niður á rólegum stað og tendraðu ljósið, fyrir vonina, trúna og kærleikann,“ segir í bréfi kærleikshópsins dularfulla á Patreksfirði...

84-0507-floating-candles-1-s  white-gold-faith-hope-charity-pendant

  

light_fantasy

Við gleymum svo oft hversu gott er að geta leitað, innra með okkur að ljósi hjartans sem þar býr. Fyrir okkur sjálf og gefið af til annara.

Ljósið sem gefur trú, von og kærleik og tengist einhverju æðra og meira, en við getum skilgreint eða skilið fullkomlega, nema hver fyrir sig...

(tekið af öðrum bloggfærslum mínum;)

Að vakna...

Verndarengillinn sem færði mér vonina...

b6eb7b52617caf18

Orð mín tengd kærleikanum;

Í orðunum Trú Von og Kærleikur felst meiri sannleikur, en nokkurn grunar…

Lát trú, von og kærleik kenna þér, að lifa og njóta í lífsgleði hér…

Kærleikurinn opnar allar leiðir...

Innst í hjörtum allra það býr kærleiksaflið, sem öllu snýr...

Umvefðu aðra í kærleik og stráðu fegurð í kringum þig,

í formi hugsana og gjörða. Því orka býr í öllum hlutum !

Láttu það neikvæða hörfa undan og víkja fyrir því jákvæða...

Mikilvægi mannúðar, er menntun mannkyns...

Ást og kærleikur hafa þann mátt meir

en nokkurn mun gruna.

Græðandi, umvefur, alla í sátt

og eftir því skulum við muna.

Þegar orðin fóru að berast mér fyrir mörgum árum, stundum í formi ljóða eða...var ég ekki viss um hvernig ég ætti að skilgreina þau, lífsspeki - heilræði - spakmæli. ( en þau koma til mín sem lífsspeki ljósbera )

Ég kalla þau heilræði Hönnu hér...

Isle%20of%20Avalon

Er ekki orðið tímabært að við virkjum ljóskraft samvitundarinnar. Að við biðjum þess að heilunar-og kærleiksorka umvefji okkar fagra land, náttúru þess og þjóðina alla.

Og að ráðamenn upplifi hana og eða uppgvöti í hjörtum sínum, ásamt ráðamönnum erlendis, sem þó hafa brugðist okkur á óverðskuldugan máta, enn sem komið er. Svo allir munu finna fyrir kærleiksloganum, sem guðdómleikan geymir, sem hafin er yfir öll trúarbrögð og trúarstefnur, þar sem hann er þó að finna undir mismunandi túlkun mannanna.

Sú reiði er réttlát, sem hér hefur ríkt, hún hefur hjálpað til með hreinsun og kallað á umbreytingar í þjóðfélaginu, sem þurftu að gerast á öllum sviðum. Og við skulum öll eftir bestu getu og aðstæðum hlúa að þeim, sem minna mega sín og styrkja fjölskyldu-og vinatengsl á þessum umbrotatímum.

Og stöndum vörð um arfleifð okkar og auðlindir. 

SoulSisters

Hér má lesa um hugleiðingar mínar um komu sporðdrekamóðurinnar Náttúrunnar tal og val... og virðist sem hægt sé að lesa hér heilmikið og tengja við líðandi stund í sambandi við margt sem gerðist í þjóðfélaginu áður sem og núna. Sem og úti í hinum stóra heimi. Mannkyn allt stendur á þröskuldi nýrra tíma með breyttum áherslum á lífsgildum, lífsháttum og lífsviðhorfum.

Og hvert við stefnum í átt til breytingana, sem við þurfum að takast á við, bæði ytra sem og hið innra. Hvert um sig og í sameiningu...

Í þessum skrifuðu orðum mínum fékk ég símtal frá systir minni sem býr í Noregi. Hafði hún rekist á gamlar hugleiðingar um blekkingar í þjóðfélaginu, sem ég hafði skrifað og ákvað að hringja um leið í mig, fyrst ég kom í huga hennar. Og spjölluðum við aðeins saman um lífið og tilveruna. Spurði hún mig síðan hvort ég hefði fest á blað eitthvað nýlega tengdu tilverunni. Þannig að ég ákvað eftir ýtni hennar til að setja hér orð niður, sem komu til mín 16 september s.l. og tengjast því sem ég var að skrifa um hér að ofan þ.e. kærleikanum. ! Það er svo margt óútskýranlegt sem gerist í þessu blessaða lífi. Þarna tengdust hugar okkar systranna yfir hafið og hefði ég ekki sett þessi skilaboð hingað ef hún hefði ekki hringt...

Mannkyn stendur á þröskuldi nýrra tíma, sem birtast sem ný lífsgildi, er standa þó á fornum meiði. Dyrnar standa opnar þeim er tilbúnir eru að stíga skrefin til fulls til vitneskju sannrar tilveru þeirra, í alheimslífi. Að uppgvöta og upplifa sitt innra líf. Skuggi ytra lífs mun víkja. Hulunni verður svipt af innri sýn. Og stöðvar í heilanum verða virkjaðar að nýju Og óvirkir lyklar í DNA erfðarkeðjunni verða virkir. Og opinberast þá sannleikur týndra kynslóða, sem reynt hefur verið að dylja. Og kærleiksljósið tendrast á ný. Og í loga þess er ekkert myrkur eða skuggar ótta, sem viðhalda hinum andlegu fjötrum mannsins. Kærleikurinn er aflið, orkan, krafturinn og ljósið, sem sameinar og upplýsir tilveru og markmið Almættisins, sem öllu snýr í óendanleikanum, því hann er í okkur og við í honum.

josira

Bæti hér við nokkrum kærleiksríkum slóðum;

 

Kærleiksvefur Júlla  

Kærleikssetrið 

íslensk fræði-kærleikur frá Árnastofnun,

Kærleikssamtökin fyrir börn 

Liljan, hvað er kærleikur

 


mbl.is Gáfu kærleikskerti í skjóli nætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mátti til með að færa hér inn raddir fólksins, hjartslátt samfélagsins, þverskurð skoðana,á öllum sviðum,frá öllum hliðum...um icesave

Get ekki neitað því að blendnar tilfinningar um framtíð landssins okkar fagra þjaka hug minn og hjarta...

island

Icesave-samningarnir undirritaðir - tók hálftíma að ganga frá pappírsvinnuUndirritunin fór fram í fundarherbergi í fjármálaráðuneytinu. Hún markar kaflaskil í einhverri mestu milliríkjadeilu sem Íslendingar hafi staðið í frá lýðveldisstofnun

D.V. frétt; Hætta á þjóðargjaldþroti, segir Gunnar Tómasson hagfræðingur

Gunnars segir jafnframt að skuldahlutfall íslensku þjóðarinnar sé nánast fordæmalaust í nútímasögunni...

Practice-rm-101751-14-2

Tjáning bloggara á mbl. og vísi...um...

253 milljarða skuldbinding og Kvittað fyrir Icesave fréttir á mbl.is

Búið að undirrita Icesave samkomulagið frétt á vísir.is

Árni B. Steinarsson Norðfjörð Höfum við einhver tromp í hendi? 

Jón Snæbjörnsson Krónur. Tvöhundruðfimmtíuogþrjúsþúsundmilljónir

Páll Blöndal Á hraunið 

Baldvin Jónsson Framkvæmdavaldið sýnir vald sitt með sanni -…

Haraldur Haraldsson Kvittað fyrir Icesave/með fyrirvara um samþykki…

Bjarni Þór Sigurbjörnsson Ég míg stjórnlaust í buxurnar...

Sigurður Jónsson Kennarar á námskeið í Icesavefræðum? Hvernig á að…

Páll Vilhjálmsson Ríkisstjórnin minna virði en…

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir Núna reynir á ALÞINGI landsmanna...

Halldóra Hjaltadóttir 5.Ríkisstjórnin er samansafn þjóðníðinga!

Kolbrún Hilmars Ber er hver að baki nema staðgengil sér eigi.

Ómar Geirsson Guð fyrirgefi þeim því þeir vita ekki hvað þeir…

Gerður Pálma Hvers vegna var ekki samábyrgð valin ?

Agnar Bragi Íslendingar í lélegasta liðinu !

Jóhann Elíasson EINS OG ANNAÐ HJÁ "RÍKISSTJÓRN FÓLKSINS"..........…

Lúðvík Lúðvíksson Stjórnmálaklanið eru raunverulegir hreppa ómagar…

Óðinn Þórisson 19.10.2009

Asdis Sig Ég set því hérna smá brosefni til að létta lundina…

Birgir Viðar Halldórsson Sorglegt...

Guðmundur Jónas Kristjánsson Vinstrimenn kvítta fyrir stórkjaraskerðingu næstu…

johanna_882645 

Gunnar Waage Á mörkum hins byggilega heims

Bjarni Kristjánsson Af hverju liggur svona ofboðslega mikið á að…

Gunnar Kristinn Þórðarson Verðbætur okkar í vasa breskra skattgreiðenda

Magnús Orri Einarsson Allt upp á borði!!!!! NEI...

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir Álaug Árnadóttir gleymdi að innleiða varnir við…

molta Leiðréttum stefnuna

Egill Jón Kristjánsson Skítlegt eðli, gungur og druslur.

Sveinbjörn Ragnar Árnason Til hamingju Íslendingar=aumingjaskapur.

Benedikta E Steingrímur Joð lætur þjón sinn kvitta fyrir…

 Frederick_Hagan_Janitors_Talking_5218_38

Gunnar Th. Gunnarsson Skoðanakönnun

Ægir Óskar Hallgrímsson Kvittað fyrir ESB!!

Einar B Bragason Er þá Ísland komið á kaldan klakann ? Hvernig er… 

Sigurður Þórðarson Ólína Þorvarðar: "Þjóðinni hollt að taka að sér… 

Jóhann Pétur Pétursson Með öðrum orðum þetta gengur af Íslandi dauðu. 

Páll Blöndal Treysta ekki íhaldinu 

ÞJÓÐARSÁLIN We admit that this will kill you 

Guðmundur Friðrik Matthíasson Allir sem vettlingi geta valtið 

Haraldur Hansson Hin meðvirka Jóka Steingarms 

Þorsteinn Sverrisson Spurningar um IceSave - og ef til vill svör.... 

Björn Birgisson Nú sjá fótgönguliðar Bláhersins vonandi fram á… 

Árni B. Steinarsson Norðfjörð Verða laun opinberra starfsmanna, örorku- og… 

Halldór Örn Egilson Áskorun fremur en ósigur

saxi Ha! Hagsmunir þjóðarinnar hvað???

blommi Handleggurinn rumpaður á aftur   

peturh Að kasta frá sér    

Kristbjörn Árnason Hugmyndir að nýjum sköttum í felulitum

Erling Ólafsson Lífsgæði næstu árin. Einhver??? 

eos1944 Þar brast vonin.

annaola Ég hef tröllatrú á þessari þjóð ef hún stendur saman. :) 

  

FamilyLivingPicture

Ég langaði bara að hafa hér raddir fólksins, hinna almennu borgara...

Hef ekki enn lesið nema lítinn hluta þessara tjáningabræðra og systra minna...

En allavega má finna hér undirtón samfélagssins, gagnvart undirritun icesave samningsins...

josira 


mbl.is Kvittað fyrir Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn á ný er friðarsúlan tendruð ... Imagine peace Tower ...

8img482

Og búið að kveikja á friðarljósinu, sem var draumur þeirra hjóna Johns Lennons og Yoko Ono.

Síðan er heilmikil dagsskrá í gangi í kvöld, föstudag 9. október, sem hófst k.l. 19:30

FRIÐARSÚLAN – LENNON TÓNLEIKAR, HEIMILDARMYNDIR OG FLEIRA. 

Látum litla landið verða friðartákn til framtíðar í hinum harða heimi á öllum sviðum, frá öllum hliðum...

yokoono_jpg_550x400_q95

 

Ég tek ofan fyrir litlu koninni enn og aftur...

Hér má sjá og heyra 3 útgáfur af lagi John Lennons ...

Fyrsta ; Yndislegasta útgáfa ..ever... með þeim hjónum... 

 

Annað ; Magnaður söngur Idol stjörnunnar David Archuleta;

Þriðja;  á tónleikum, Yoko spilar á píanóið...

 

Skrif mín um þegar; friðarsúlan var tendruð í fyrsta skipti þann 9 október 2007 úrdráttur;

 

Ég tek ofan fyrir Yoko Ono, elju hennar og óbilandi trú að þessi hugsjón þeirra hjóna yrði að veruleika og fyllist stolti yfir að Ísland varð fyrir valinu fyrir friðarljósið....

 

Stór dagur í landinu litla...Stærri til framtíðar en margan grunar...Friðarsúlu ætti að reisa í hverju landi...

 

Það yrði verðugt verkefni að feta í fótspor litlu hugrekku konunnar hennar Yoko Ono eða hjálpa henni að láta það verða að veruleika að í hverju landi rísi friðarsúla til framtíðar...stuðlum að friði allstaðar...

fridarsula---nordurljos-vef

Hér eru nokkrar slóðir sem vísa á friðarsúluna...

Síðan hennar Yoko Ono

 

Friðarsúlan á frímerki 9 október 2009

 

Redwood Forest wordpress

 

josira

 


Afskriftir ... banka ... fyrirtækja ... heimila

 

Spurning í kolli konu !

 moneypensiondrawou2

Hvernig ætli " gjörningurinn" ( reiknisdæmið ) um afskriftir banka, peningastofnana og fyrirtækja fara fram ( reiknast ) Hvaða eða hvernig formúlur eru notaðar-hafðar til hliðsjónar og þá einnig gagnvart nidurfellingum skulda í stofnunum hins opinbera ?  t.d.

1. Hvernig er skuldum t.d. breytt í hlutafé ? ( landsbankinn )

2. Hvernig er skuldum breytt í hlutafé ?  ( skilanefn Kaupþings )

3. Hvernig er skuldum breytt í hlutafé ? ( 560 millj. skuld rúv. )

FamilyLivingPicture

Ég bara spyr...Er ekki hægt að nota sömu aðferðirnar til afskrifta og niðurfellingar á skuldum heimilanna ?

Hið opinbera - ríkið er það ekki óbeint við  ? Erum við bara ekki smærri útgáfur af fyrirtækum-stofnunum...fjölskyldurnar-heimilin ? og eru ráðamenn ríkisins ekki að vinna i okkar þágu ?

Allt stefnir greinilega í að þurrvinda og kreista sem mest heimilin-fjölskyldurnar af ráðamönnum...

Mesti þunginn mun lenda á almenningi

Þyngri byrðar og barna og vaxtabætur lækka 

sbr. hækkandi skattar

Kjarnafjölskyldan þarf að borga    

Skattahækkanir og gjöld kynda undir verðbólgubálinu

Var að glugga aðeins í loforðin stóru:

Samstarfsyfirlýsing ríkisstjórnar, samfylkingarinnar og vinstri grænna og

Og hversvegna eru þessir blessaðir stýrivextir ætíð svo háir hér en lágir í öðrum löndum ?

ein spurnig í kolli konu, sem varð af mörgum...

frh.

josira


Stórfundur SÁÁ ... Sláum skjaldborg um áfengis- og vímuefnameðferðuna...

Margt góðra gesta...Aðgangur ókeypis...Allir velkomnir... 

Mynd_0642103

 

josira

 


Ríkið étur upp föðurarf...

gloandi_tolur_161106

Gat eki orða bundist, eftir að hafa lesið þessa frétt á dv.is vegna 2 bræðra um föðurarf sinn og hvernig ríkið étur hann upp...

Þetta eru alveg með ólíkindum allar þær reiknisútfærslur sem lífeyrissjóðirnir og ríkið vinna eftir...Held að þar megi finna ýmsa einkennilega vankanta ef djúpt væri eftir kafað...

Ég held að það hlaupi á stærri upphæð, en mér gæti dottið í hug að nefna, sem eftirlifendur látinna lífeyrisgreiðenda fá ekki, vegna allsskonar smárra letra, viðauka og lagaflækna, en sem renna þess í stað í lífeyrissjóðskassana og-eða til ríkis...

Gott væri að fá meira gegnsæi á borð með allar þessar útreikninga, síðan ættu lífeyrisgreiðslur ekki að vera tekjutengdar eða arfur. Er hægt að fá að sjá það á blaði hversju oft er búið að skattleggja eða skera af greiðslu áður en hún kemst loksins á borð til viðtakanda ?

josira

 


Þegar allt virtist leika í lyndi...kortér fyrir hrun...og síðan ári síðar...

island

Ávarp Geirs H. Haarde forsætisráðherra á Austurvelli 17. júní 2008

Skýrsla Geirs H. Haarde forsætisráðherra um efnahagsmál á Alþingi 2. september 2008:

Svo mörg voru þau orð og ég held að ætla megi að allflestum af okkar stórhuga þjóð hafi í raun einnig haldið að allt væri harla gott...

Stefnuræða forsætisráðherra á Alþingi 2 október 2008

hrunid

En því miður reyndist svo ekki vera, sem og alþjóð veit og hefur gengið í gegnum þær þjóðarhagshremmingar, sem við þekkjum og sviptingar... money2

Og rúmlega hálfu ári eftir hrun...

Ávarp Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra á Austurvelli 17. júní 2009   

 

Stefnuræða Jóhönnu Sigurðardóttir forsætisráðherra 18. maí 2009

og nú ári eftir hrun;

Stefnuræða Jóhönnu Sigurðardóttir forsætisráðherra 5 október 2009

og Beðist afsökunar á vanrækslu og andvaraleysi;

Ræða Jóhönnu Sigurðardóttir forsætisráðherra við umræðu á Alþingi um efnahagshrun og endurreisn 6. október 2009:

Ég held í mínu hjarta að allflestir ráðamenn séu heiðarlegir og leggi allt sitt í að vinna að hag þjóðar og lands hverju sinni...

cosmic_heart

En ég skil bara ekki hversvega fólkið allt, sem á þinginu situr og er sannarlega í vinnu hjá okkur landsmönnum öllum, getur ekki komið sér saman með úrlausn mála...afkomu heillrar þjóðar...

Það verður hver og einn að að meta eftir sinni sannfæringu, hvernig allt var, fór og eða verður...

Hérna má skoða slóðir um sitthvað;   IMF ( alþjóða gjaldeyrissjóðurinn )

yfirsýn frá OECD frá 1998-2009

Ísland og IMF frá 1995-2009

IMF og nánari uppl. um Ísland

Hvernig stendur á því að svo gamalgróið og virt fyrirtæki sér ekki hvað er í gangi í islenska bankakerfinu fyrir hrun...?

Iceland’s Solvency and Liquididy are Not at Risk apríl 2006 

Hverjir standa á bakvið Moody’s Investors Servise Global Credit Research ? 

Og um Bilderberg klúbbinn 

bjöguð google- íslensk þýðing um áætlun Bilderberg 

Hver er Gordon Brown ? 

Alistar Darling og IMF 

og ég sem ætlaði ekki að skrifa meir um bullið í hugsunum mínum...

er að reyna að hætta...

josira

 


PrimaCare valdi vel...

Ég held bara áfram að senda hamingjuóskir Heart með þessari gleðilegu frétt...

Gott val hjá PrimaCare... 

Talið er að sjúkrahúsið og hótel sem byggt verður í tengslum við það geti skapað um 600-1.000 framtíðarstörf. Auk þess mun verkefnið skapa fjölda starfa á framkvæmdatímanum...

josira


mbl.is Einkasjúkrahús í Mosfellsbæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

josira
josira

Orðin... Pára með penna á óskrifað blað, orðin um hugann renna. Með suð í eyra ég skrifa það, sem ég fæ að heyra. Hvaðan þau koma veit ég ei, en í höfði mínu óma. Líkt og eilífðin, sem gefur frá sér tóna og um himnasali hljóma.

Lítil síða lítur dagssins ljós... Hér hef ég hugsað mér að skrifa um allt og ekkert ... eða bara það sem mig langar til hverju sinni ... Vertu velkomin(n) kæri ferðalangur... í heimsókn hingað, þar sem þú hefur nú fundið vegaslóðan minn litla, í netheiminum stóra ...

 

Lyngrósin Ljóðin mín

Josiraice youtube ljóð og tónlist

Rósin Eldri heimasíða, sem ég get ekki uppfært lengur, en læt hana fylgja hér með.  (Hún virkar einungis í gegnum Internet Explorer)

Light Bearer -poem - josira 

Guðrún Lilja; mánadísin, mín eldri dóttir og Ljóðin hennar

Nýjustu myndböndin

Movie

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 98
  • Frá upphafi: 123858

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband