Færsluflokkur: Vefurinn
31.1.2009
Komin með ritræpu...
eftir þetta langa bloggstopp mitt...
Ég var aðeins að glugga í eldri bloggin mín og sá að þar má finna pínu samsvörun í þeim hremmingum, sem yfir landið okkar litla hefur dunið, síðan þá og já og reyndar heimsbyggðin öll er að fara í gegnum...
Við erum öll tengd náttúrunni og alheiminum öllum gegnum vitund okkar.
Við erum kannski bara misjafnlega næm á það...
Ætli það sé líka oftast þannig með okkur,
að við erum ekki að taka eftir ýmsu,
sem berst til okkar...t.d. eitthvað táknrænt,
sem við áttum okkur ekki á fyrr en síðar...
16.okt. 2007;
Eiga bankar og stofnanir-félög orðið landann...?
20.sept..2007
Leikur að tölum í hagkerfinu góða...
Og þessi skrif um blekkinguna fyrir langa löngu...
Og ég held að blessuð dýrin skynja allar þessar breytingar sem í vændum voru og eru framundan...
Með umrótum náttúru og manna. Sem og við mannkyn þurfum að takast á við, með breyttun áherslum, þannig að heimsmyndin öll hljóti nýja framtíðarsýn, sem mun byggja á nýjum og fornum sannindum...
Hugurinn reikaði til liðins.árs þegar frétt um, nú s.l. þriðjudag, að stór myndarlegur hnúfubakur birtist í Hafnarfjarðarhöfn...Og það minnti mig á hvalina í Akureyrarhöfn í fyrrasumar...já og reyndar má geta þess að það komu víst einar 10 tegundir hvala á Skjálfandaflóa árið 2006.
Og fór ég þá að hugsa um hvort þeir væru að færa okkur einhver skilaboð með heimsóknum sínum...
WHALE - is the record keeper. Through the rhythm and patterns of sound Whale teaches us to hear our inner voices, to be in touch with our personal truths, and thus to know the wisdom and feel the heartbeat of the universe
DOLPHIN - brings to us earth wisdom. Dolphin teaches us that in attuning to the rhythms and patterns of nature we can learn true communication with the wisdom of All That Is and share this wisdom with others. It is also about learning to breathe, we forget sometimes to breathe deeply and fully. Remember that to breathe is to live.
Dolphin: symbol of Harmony, Freedom, Communication, TrustThe Dolphin can teach us much about playfulness, and harmony with others. Dolphins have a strong sense of community with each other as well as the world around them.Learn from the dolphin: Wisdom (Intelligence), Harmonious balance in life, Communication as a healing voice, Trust in others via community spirit
Þegar ég las þetta, hvarflaði hugur minn þá til ísbjarnanna, sem fóru að birtast í heimsókn á Íslandinu góða s.l. sumar og öll vitum við um þeirra endalok..
En ég var búin að setja inn á ýmsum stöðum á bloggið mitt myndir afhvítabjörnum...nokkru áður...
Og hér má finna sitthvað um tákn bjarndýranna...margt mjög áhugavert, sem þeir hafa að færa okkur
BEAR - teaches us about introspection.
Bear medicine teaches us to go within, in order to digest our experiences and to discover that we contain within ourselves the answers to all of our questions. We are our own best teacher. Then bring what we find within to the surface and share it with others.
Og fyrst ég var farin að hugsa til dýra, mundi ég eftir að hafa skrifað eitthvað um fiðrildi og fann þá grein;
22.05.2008 Fiðrildi og ferðalög...
... Í gær var mér svo mikið hugsað til fiðrilda...svo ég ákvað að skrifa pínulítið um þau hér. Á margan hátt geta þau táknað þroska og umbreytingu sem við mannfólkið förum í gegnum á lífsleiðinni...t.d. breytingu á lífsháttum og lífsviðhorfum...byrja upp á nýtt segjum við...finna frelsið innra með okkur, sem ber okkur á nýjar slóðir...í lífsgleði og fegurð...
Það er líklega það sem við mannkynið þörfnumst;
umbreytinga...á öllum sviðum frá öllum hliðum...
Og smá áframhald af síðasta bloggi...í sambandi við landvættina okkar...
Hvaða orku-styrk-lærdóm gætum við t.d. fengið frá gammnum; ( er átt við Griffin ? )
örn eða fönix...?
The Eagle represents spiritual protection, carries prayers, and brings strength, courage, wisdom, illumination of spirit, healing, creation, and a knowledge of magic. The eagle has an ability to see hidden spiritual truths, rising above the material to see the spiritual. The eagle represents great power and balance, dignity with grace, a connection with higher truths, intuition and a creative spirit grace achieved through knowledge and hard work.
En samhljóm er þar að finna og með öðrum fuglum allt frá fornum samfélögum til vorra daga...eins og fuglinn fönix
já margan lærdóm og visku er að finna frá fornu fari...á hinum ýmsu stöðum...
Og hér má finna í blogginu mínu... 24 sept. 2007
Til heiðurs kvenþjóðinni... Sem er óðum að verða meira virk á öllum sviðum samfélagssins...
Við stöndum á tímamótum mannkyn allt, með svo margt...
Við þurftum á umbreytingunum að halda, þó sárar séu...
Við verðum að byggja upp; nýja lífssýn, ný lífsgildi,
ný lífsviðhorf og nýja lífshætti...
Við erum það sem við hugsum, gerum og borðum...
Við stefnum nú til nýrrar framtíðar...
til friðar...frelsis...réttlætis...mannúðar...hugsjóna...
vonar...mannkærleika...og framfara til góðs...
á öllum sviðum frá öllum hliðum...
heil og sæl að sinni... josira.
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.1.2009
Ja hérna hér...
komið rúmt hálf ár, síðan ég bloggaði síðast...
og miklar breytingar orðið á ásjónu Íslandsins góða...
bæði hið innra og hið ytra...
Frá ári rottunar/músarinnar 2008
í kínverskri stjörnuspeki til árs uxans 2009...
MOUSE - is about awareness, paying attention to detail.
Mouse teaches us to pay attention to the little details
which might get overlooked in our mad dash
to see the big picture, and reminds us not to overlook the obvious
svo mörg voru þau orð
Við ættum kannski að fara að skoða
landvættina okkar íslensku og
kanna hvort við getum ekki virkjað þá á jákvæðan hátt..
UXINN - sem segir:
Ég bý yfir aflinu stöðuga sem viðheldur hringrás lífsins.
Ég stend óhagganlegur á móti tilraunum andstæðingsins,
einbeittur og flekklaus.
Ég leitast við að þjóna ráðvendninni
og bera byrðar réttlætisins.
Ég hlýði lögmálum náttúrunnar
þoka örlagahjólinu með þolinmæði.
Þannig vef ég örlög mín.
Ég er uxinn
.
DREKINN - sem segir:
Ég er eldurinn óslökkvandi,
miðpunktur allrar orku,
hetjuleg hugdirfskan.
Ég er sannleikur og ljós.
Í sveiflu minni er máttur og dýrð.
Návist mín tvístrar dimmum skýjum.
Ég hef verið valinn til að temja örlögin.
Ég er drekinn.
( tekið af síðu samuel.is )Set til gamans einnig slóð um
merki stjórnmálamannanna okkar,
sem þar var einnig að finna.
Áhugavert væri að glugga í merkingu
mannsinns-bergrisans og gammsins-arnarins-( fönix )...
Þessi byrjunarorð mín áttu nú ekki að verða svona breiðvirk,
en svona getur hugarflugið sent mann á hina ólíklegustu staði...
Að þessu sinni var það kærasti dóttir minnar,
hann Sigþór Jónsson frá Hornafirði,
Þessi flinki strákur er í Iðnskólanum í Reykjavík
í grafískri hönnun...
Og þetta fallega logo hér að ofan,
gerði hann og sendi mér og
varð það mér hvatning til að
fara að vinna í síðunni að nýju J ...
Innra með mér hafa ætíð verið einhverjar
sterkar tengingar við að sjá sverð og rós saman...
ásamt ýmsu öðru og eflaust er þannig farið með allflesta...
Ég man eftir því sem barn og unglingur
var ég oft að teikna myndir
af sverði og rós saman og langaði mig
mikið að fá mér þannig tattú...
En þá voru það bara vaskir sjómenn,
sem fengu sér tattú af ankerum eða meyjum...
Síðan eru liðin mörg ár og allskonar fólk e
r með tattú í dag út um allan líkamann...
Einhvern daginn, þegar ég get ákveðið mig...
fer ég af stað og læt verða af því að fá mér eitt eða fleiri...:-)
Í dag veit ég, að það er svo margt sem má sjá og finna, s
em leynist í ýmiss konar táknum.
og miklar og margar djúpar merkingar, sem þar liggja að baki...
Ég hef reyndar allatíð haft mikinn áhuga á allskonar táknum, s
em finna má, sjá og jafnvel dreyma...
Ég held að tákn tengist almennt manninum meir, en við höldum...
Held þar sé hinn mesta helgidóm að finna á mannsins þroskaleiðum...
að þar sé að finna mikla fræðslu og djúpan sannleik...
Hin seinni ár hafa þau dregið mig sífellt meir að sér...
Hér er ein frábær síða sem ég var að rekast á, þar sem,
sýnist mér ákaflega margt er að finna...
og hér má sjá tölur ( talnaspeki ) ásamt ( Agný-blog )
Hver dagur, er nýr, ný sköpun, núið...
Berum bjartsýni á borð í dag...
Reynum að sjá, heyra eða skynja eitthvað nýtt,
Eitthvað jákvætt, eitthvað skemmtilegt...
Eigið góðan dag sem og alla aðra...
sæl að sinni...josira
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 17:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
10.6.2008
Flogin og vitja nýrra ævintýra...
í daglega lífinu og einstaka sinnum í netheiminum stóra...
Er komin með youtube síðu...Verið velkomin í heimsókn...Komin í bloggfrí í bili...
sendi mínar bestu óskir út til ykkar um heillaríkt og heilsugott sumar...
Og að land og þjóð verði umvafin ljósi og vernd Almættisins...
josira
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 14:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.6.2008
Komin tími til að...
setja niður örfá orð...tíminn flýgur áfram og sumarið skartar orðið sínu fegursta...gleðjumst með...
Lífsgleði.
Margt er það sem léttir lund,
eflir gleði, veitir stund.
Frá hugarangri, þraut og pínu
leiðsögn fá frá hjarta sínu.
Fylgja eftir hjartans rómi,
svo að sálarljósið ljómi.
Lifsins njóta hér og nú,
skulum bæði ég og þú
Hafa gaman af hinu og þessu,
þrautir kveðja og ganga til messu.
Moka mold, hlaupa og hjóla
taka stökk eða skoöa njóla.
Pissa úti uppí vind,
horfa á hund elta kind.
Sparka bolta, hengja upp lak,
fara í snúsnú og á hestbak.
Horfa á daggardropa detta,
sólina skína og magann metta.
Elska engil, dansa dátt
taka allt og alla í sátt.
Læra að ganga á lífsins línum
og fylgja eftir draumum sínum.
Sýna bæði þor og dug,
njóta allt sem fangar hug.
Horfa á fallegan fjallahring,
finna fegurðina allt um kring
Opna fyrir lífsins flæði,
fagna og þakka öll þess gæði.
höf;johanna s.r. ( josira )
Umvefjum þá sem okkur þykir vænt um með ást og umhyggju...
Tíminn er dýrmætur...
Ekki bíða með neitt, sem hrjáir huga hverju sinni...
Ekki þjaka hug,líkama og sál til lengri tíma að óþörfu...
Ekki bíða...lífið er núna ...í dag...
ljós inní í daginn...josira
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 12:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.5.2008
Sitthvað sem gleður...
Við erum auðvitað stolt af okkar fólki eftir árangurinn í eurovision...En er ekki orðið tímabært að hafa keppnina tvískipta ; austur- og vestur evrópa...!
Ég verð nú hér til gamans að setja slóð á gamla gleðibankalagið hjá ICY...Hef alltaf haldið uppá það og textinn er líka nokkuð tímalaus...á vel við á Íslandi í dag...
Á þessum annars ágæta degi er upplagt að kíkja aðeins á eitthvað sem kitlar hláturtaugarnar svona í sólarleysinu...Munið þið ekki eftir funniest homevideo...hérna í den... og meira...
Og úr einu í annað þá má sjá nokkuð áhugaverða síðu: http://www.netsaga.is/ með hinum ýmsu efnisþáttum...
Sæl að sinni...josira
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 11:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.5.2008
Dásemdar söngfugla par...
Já við megum svo sannarlega vera stolt af Regínu, Friðrik og fylgdarfólki...þau hafa sungið sig inn í hjörtu okkar hér og úti hinum stóra heimi...Það geislar af þeim lífsgleðin og skemmtileg framkoma...
Hafið gaman af að kíkja á gömlu vinningshafana hér neðar á síðunni minni...( önnur bloggfærsla )
Og var að finna frábæra eurovision aðdáandasíðu hjá Dagrúnu Þórný...endilega skoðið hana...
Skoðið til gamans skemmtilega uppsetningu og upprifjun sem ég fann;
![]() |
Kom skemmtilega á óvart |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vefurinn | Breytt 24.5.2008 kl. 13:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Akrafjall í kvöldsólardýrð og sjáið ljósáruna kringum sólina...
Vitund vaknar, á þeim degi
er ljósið þú finnur, á lífsins vegi
Vegsemd slík, verðmæt er
varðveita skalt í jarðvist hér.
heil og sæl að sinni...josira
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 12:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.5.2008
Eurovision...upphitun...upprifjun
Til þeirra sem ætla að horfa á Eurovision í kvöld...er upplagt að horfa hér á stutta samantekt á fyrrum sigurlög frá árunum 1956-2007;
Fyrri hluti ca. 9 min. og Seinni hluti ca. 7 min
Læt fylgja hér með úr Idolinu í gær svona til gamans...
David Archuleta sem ég elska að hlusta á ...með "Imagine" eftir John Lennon...
og vinningshafinn David Cook...
Hér má sjá unga upprennandi söngstjörnur...
eigið skemmtilegt kvöld framundan...
josira
Óska Regínu, Friðrik og fylgdarfólki til hamingju með frábæran árangur.......sjáum þau fyrir okkur á laugardagskvöldið á verðlaunapallinum...
Vefurinn | Breytt 23.5.2008 kl. 11:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
22.5.2008
Fiðrildi og ferðalög...
Í gær var mér svo mikið hugsað til fiðrilda...svo ég ákvað að skrifa pínulítið um þau hér.

margbreytileika og litafegurð þeirra og hvernig þau þroskast og umbreytast...
Hér má finna heilmikinn fróðleik um þau á ensku.
Á margan hátt geta þau táknað þroska og umbreytingu sem við mannfólkið förum í gegnum á lífsleiðinni...t.d. breytingu á lífsháttum og lífsviðhorfum...byrja upp á nýtt segjum við...finna frelsið innra með okkur, sem ber okkur á nýjar slóðir...í lífsgleði og fegurð...Það er líklega það sem við mannkynið þörfnumst; umbreytinga...á öllum sviðum frá öllum hliðum...
Og gaman er að geta þess að það er til mjög sérstakt fjall í Sri Lanka, sem kallast;
Fiðrildafjall ...einnig Adamsfjall og Sri Pada ;þar sem fólk fer í pílagrímsferðir og sameinast undir mörgum trúarbragðastefnum...

Og fyrir þá sem hafa áhuga á að forvitnast eitthvað um tákn ( symbol ) dýra
er gaman að skoða þessa síðu...
Og til þeirra sem vilja breytingu í lífið og meiri lífsgleði er kjörið t.d
eigið góðan og bjartan dag.. josira
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 16:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.5.2008
Seinagangur og missir ...
við vistun á bloggfærslum...Nú er ég alveg að gefast upp á að blogga...missti allt út sem ég var búin að skrifa...eina ferðina enn...kannski á ég bara að hætta þessu pári mínu...
Það er orðið svo seinvirkt...þegar ég er að vista gerist það seint og illa ...eða það gengur barasta ekki og allt hverfur á braut....arrg...ég er nú seintekin til reiði og telst víst vera ákaflega þolinmóð manneskja...en þetta reynir orðið virkilega á þolgæði mitt...
Eflaust tengist þetta orðið umferðinni hér í bloggheimum...því talvan mín er hraðvirk og fín þegar ég er að vafra um á öðrum síðum...Er ekki einhver sem kannast við eða hefur lent í þessum veseni ?
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 21:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Tenglar
ÝMSAR JÓLAVEFSÍÐUR
- Jólin-Þjóðminjasafnið jólasíður Þjóðminjasafnið
- jólavefur Júlla á Dalvík fullt af fróðleik um jólin
- Jólavefur Valla, sem geymir marga aðra jólavefi fjölbreytur jólavefur
- jóla-og áramótavefkort ýmis önnur vefræn tækiæriskort
BLANDAÐAR ÁHUGAVERÐAR VEFSÍÐUR
- LJÓSMYNDAKEPPNI Canon og mbl.
- VILTU VITA MEIRA Leiðsögn með lestri .. Sigríður Svavars - Leiðbeining - heilun- fyrirbænir
- ÓMAR RUN - Ljósmyndir Magnaðar myndir
- MADDÝ - Ljósmyndir Meiriháttar myndasmiður
ÝMSAR VEFMYNDAVÉLAR
- Nýjar Íslands vefmyndavélar Frábærir tenglar hérlendis og erlendis
- Vefmyndavélar - Vegagerðin - Suðausturland
- Vefmyndavélar víðs vegar um Ísland
VEÐUR - FÆRÐ - LOFTSLAG
LANDSBYGGÐIN LIFI...
- BETRI BYGGÐ UM LAND ALLT...
- LANDAKORT.IS Frábær síða um Ísland; m.a. Góðar upplýsinga-og þjónustusíður-Vefsjár sveitafélaga-Fjölbreytt efni um ferðamál og ferðalög á Íslandi.
- ICELAND WORLDWIDE Iceland, the land of the midnight sun, is becoming a favorite with those who seek adventure and freedom. Be it nature, sagas, geology or people that interest you, Iceland is the place to go
ÍSLENSK TÍMARIT ALLT FRÁ 1696 -
- FRÁ FYRSTU TÍMARITUM LANDSSINS TIL DAGSSINS Í DAG Ýmislegt að skoða ..
FRÁ A-Ö...
- TRÚARBRÖGÐ HEIMSSINS...
- VÍSINDAVEFUR H.Í Að vita meira og meira .
- ALMENNINGSBÓKASÖFN LANDSINS
- WIKIPEDIA
- BÓKASÖFN LANDSINS
TÆKNI og VÍSINDI
FJÖLBREYTTIR ÞÆTTIR...
- ÍSLAND Í DAG
- KASTLJÓS
- N4 SJÓNVARPSSTÖÐ NORÐAN HEIÐA
- GAMLA ÍNN TV SJÓNVARPSSTÖÐIN
- HRINGBRAUT SJÓNVARPSSTÖÐ
MATSELD
- MATARBLOGG SOFFÍU gómsætir réttir af öllum stærðum og gerðum...
- UPPSKRIFTIR SOLLU
- MARGAR MATAR UPPSKRIFTARSÍÐUR Eflaust eitthvað gott að finna ..
- KÖKUR OG EFTIRRÉTTIR Án hveiti sykurs og ger
- GULUR,RAUÐUR,GRÆNN OG SALT Hráfæði
HJÁLPARSTOFNANIR...
Fibromyalga...vefjagigt
Blekking í þjóðfélaginu...
Blekking í þjóðfélaginu...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.5.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2014
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði