Færsluflokkur: Vefurinn
17.5.2008
Hörmungar í austri...
Hugleiðingar mínar í dag eru um þær náttúruhamfarir, sem hafa átt sér stað í austri síðustu daga...hugur minn hefur dvalið þar...en ekki hér .... neyðaraðstoð við Ísland í hagkerfis hremmingunum...
Það hafa verið skelfingar dagar í Myanmar ( Búrma ) eftir að stór fellibylur fór þar yfir þann 2 maí s.l. og tala látinna að nálgast nú óðum 134.000.þús. Hjálparstarf gengur hægt og illa vegna herstjórnarinnar ógurlegu...
Þeir eru ekkert á því að opna landið fyrir hjálparsveitir, sem víða koma að með hjálpargögn...
Mín ósk og von til þessa sérstaklega lands ( sjáið fegurð landssins ) er sú, að einn dag muni þessi skelfilega herstjórn vera niðurlögð fyrir fullt og allt og að lýðræði verði að veruleika og þessari þjóð hjálpað eins og unnt er.
Ég bíð hreinlega eftir því að mannréttindasamtök og allir sem getað aðstoðað sameinist með einhverjar úrlausnir...og að Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu Þjóðanna komi þar sterk fram..
.
Eru kannski alheimsöflin að grípa inní verk mannanna...?
Þurftu þessar hörmungar að verða... til þess að einhverjar umtalsverðar breytingar verði hjá þessum þjóðum... í hugsun og gjörðum ...
Læt fylgja hér með; gamlar hugleiðingar mínar;
Og þessir svakalegu jarðskjálftar í kína...
Það hefur mikið verið að gerast þar í þjóðarvitundinni á mörgum sviðum...s.l.ár
Hún Björk okkar hreyfði nú aldeilis við viðkvæmum málum í mars s.l. á tónleikum sínum í kína varðandi baráttu Tíbetbúa fyrir sjálfstæði sínu.
Og Olympíuleikarnir framundan þar sem þjóðir sameinast úr öllum heimsálfum í sátt og samlyndi. Og eiga samverustundir.Í frelsi og friði í íþróttakeppnum og leikjum,undir einum fána og einum kyndli
.
Kyndillinn í sjálfu sér stendur fyrir ljósi friðar og og er í rauninni svo sterkt afl til að sameina mannkyn..
.
Og vængjast þá lífssins kraftur..
.
Hjálpumst um að halda þessari sameind og samkennt áfram eftir leikana um allan heim...til framtíðar..
Hér má finna ljóð á ensku eftir mig...Light Bearer... sem túlkar huga minn...
Er enginn söfnun í gangi hér á landinu litla fyrir til hjálpar þjóðunum í austri...
peningasöfnun, fatnaður,vatn...?
Sendum bænir okkar þangað út...
josira
p.s. er varla að halda það ut að pára her á blað og setja inn myndir...kerfið er allt i belg og biðu sama hvað ég reyni að lagfæra...kannast einhver við þetta vesen ?
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 19:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
14.5.2008
Eftir vetur vaknar vor...
vængjast lífssins kraftur...
Sendi mínar bestu óskir út í blogg-heima um að sumarið verði farsælt og fagurt.
josira
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.5.2008
Orð í draumi...
Það kemur einstaka sinnum fyrir að eitt eða fleiri orð og stundum jafnvel setningar, óma í höfði mínu eftir svefn eða skjótast í gegnum hugann upp úr þurru. Oft finnst mér þau vera svo út í hött að ég læt þau, sem vind um eyru þjóta eða þá gleymi þeim...
Kannski halda þau áfram ferðalagi sínu um óséðar eða óheyrðar óravíddir og einhver annar fangar þau, sem hefur skilning og vitneskju um þau eða uppgötvar einhverjar leiðbeiningar frá þeim...
En í seinni tíð staldra þau oftar við í minni mínu og þá hef ég párað eitthvað um þau á blað svo úr verða einhverjar hugleiðingar um lífið og tilveruna eða lítið ljóð fæðist...eða pensilinn minn mótar strokur á striga sem eitthvað geyma...
Allsstaðar
Ef á öllum sviðum,
allsstaðar
andinn, birtu baðar.
Brátt eyðast þjóða-þjáningar,
og jarðarbúar, sem jafningar.
Jákvætt, í hendur haldast
hér, þroski þúsundfaldast.
Og stundum vekur áhugi minn löngun hjá mér, til að fara í leiðangur með þessum forvitnilegu orðum, ýmist huglægan eða þá ég nýti mér nútímann og fer á leitarvélarnar í netheiminum fyrir forvitnis sakir og það er oft með ólíkindum hvert þau ferðalög hafa leitt mig ...
Nú langar mig að segja frá orði, sem kom til mín einhvern tíma um daginn... Allavega, hefur það verið að trufla mig, svo ég settist við tölvuna áðan og sló það inn...Orðið er... PANGEA... skrítið orð fannst mér...
Þetta var niðurstaðan, sem og mér finnst virkilega áhugaverð, svo ótrúlega margt sem finna má í þessu litla orði, sem vísar á móðir jörð og vekur mann sérstaklega einnig til umhugsunar um samstöðu manna og kvenna um víða veröld í dag til breyttra lífsviðhorfa og eflingu mannúðar og gagnkvæmrar virðingar menningasamfélaga. Og veitir okkur innsýn í ólik samfélög og líf og sögur fólks samtvinnast hvaðanæva úr heiminum í gegnum kvikmyndir og tónlist...
Og minnir mig á setningu, sem eitt sinn ómaði í höfði mínu...sem og ég skrifaði niður...
Mikilvægi mannúðar, er menntun mannkyns...
Endilega kíktu á slóðirnar hér fyrir neðan, ef orðið Pangea hefur vakið áhuga þinn...
http://en.wikipedia.org/wiki/Pangaea
Og hafi verið talað um þenna merka pangea-dag 10 mai í fréttum fór það framhjá mér...
http://www.pangeaday.org/takeAction.php
http://travel.latimes.com/daily-deal-blog/?p=1855
http://afp.google.com/article/ALeqM5j5JSwQhGlsg6NEmvtbuoyWZqUAkg
storyteller..
athyglisverðar kenningar um þróun og vöxt jarðar...
Er ég var að vafra um og afla mér upplýsinga um pangea-orðið, flögraði hugur minn allt í einu til mikils manns, sem barðist fyrir réttlæti og lét lífið fyrir baráttu sína...og ég fór að rifja upp mínar barnæsku minningar um hann og það leiddi mig inn á þessar netslóðir;
Þessi magnaði maður var Martin Luther King, Jr. smá uppl. um hann á íslensku; vísindavefurinn og á ensku; wikipedia og hans frægasta ræða;
I Have a Dream
er ógleymanleg þeim, sem hana hafa heyrt og finnst mér hún í rauninni tímalaus og spannar meiri sannleik en að tilheyra einu landi eða einum kynstofni...og finnst mér hún eiga hér vel við og hvatning enn á ný til;
framtíðar...friðar...frelsis...réttlætis...mannúðar...hugsjóna...vonar...mannkærleika...til góðs...á öllum sviðum frá öllum hliðum...
Og mér varð einnig hugsað til frelsis- og friðarhöfðingjans Nelson Mandela, sem mun á þessu ári halda uppá 90 ára afmælið sitt, smá uppl.um Nelson á íslensku; vísindavefurinn og á ensku; wikipedia
Í mörg ár hef ég borið leynda ósk í hjarta, en það er að fá að hitta þennan stórkostlega mann.
En við eigum reyndar tvo meiriháttar daga saman. Yngri dóttir min er fædd 11 febrúar 1990 á deginum sem hann losnaði úr fangelsisvistinni og annar sonur minn á sama afmælisdag og Mandela þann 18 júli. Ég er fullt af stolti að þau skuli fá að eiga þessa daga með honum..
.
The Ubuntu Experience (Nelson Mandela Interview)
Skoðið hvað þetta litla orð getur verið stórt UBUNTU.
Og svona til gamans er afmælisdagur eldri sonar míns 21 september, sem er hinn alþjóðlegi friðardagur... þannig að fæðingardagar þeirra tengjast á einhvern hátt friðar-frelsis og mannúðarmálum.
Mér finnst það meiriháttar...
sæl að sinni Josira.
p.s.
var alveg að gefast upp á þessari færslu. vesen með vistun ...missti allt út ...en þolinmæði vinnur víst þrautir allar. svo nú sendi ég þetta...núna en ekki í gærkveldi þegar ég var að brölta hér..Eflaust kemur textinn eitthvað i belg og biðu ásamt myndunum.. er bara orðið allt of langt síðan ég bloggaði síðast...farin að gleyma aðeins ferlinu...en er allavega komin af stað aftur hér við tölvuna...
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 18:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
22.3.2008
Til Norge...
A naestunn...i ef eg nenni ad blogga mun eg ad henda inn myndum og sma spjalli fra Norge...Tad vantar ser islensku stafina a tetta norska lyklabordid en so what...
1,2,og 3 med dags fyrirvara skrapp eg til Stinusys i Norge en hun fekk midana a spottpris hja SAS. Verd i 11 daga og er buin ad vera her i godu yfirlaeti sidan a manudagskvold 17 mars. Merkilegt nokk og min var ekkert ad dila vid flughraedsluna...held ad tad hafi verid slegid hradamet hja SAS. 2 kl.og 6 min til Oslo fra Kef. ( meirasegja var sma hopp vid Oslo...) Eg lenti med agaetis ferdafelaga mer vid hlid, sem er vanur ad flugja ut og sudur sem var sallarolegur og timinn leid fljott vid kjaftaskraf...Takk fyrir tad...
Sudurnes... Ofar skyjum...
Solin og skyin... Yfir Oslo...
Meirihattar vedur tegar eg for fra Islandinu og fegurdin fra solinni yfirtyrmandi ofar skyjum...
Akaflega vorlegt og milt vedur fyrstu 2 dagana her i Norge
Tegar eg sa tunglid sagdi eg ad vedrid yrdi slaemt eftir 2-3 daga og gekk tad eftir...baedi her i Norge, heima a Islandinu og vidar...
Systurnar Hilma og Sara a trambolin i vorsolinni 18 mars...
en svo for ad snjoa 19-20 mars og frekar kalt a ny...Husin eru ekki med yndislega hitann okkar og mer hefur hreinlega verid kalt i beinunum nu sidustu daga...pokkud inni teppi...med kaldan nefbrodd...
Forum til Svitjodar i dag, rett vid landamaerin ca. 1 kl. keyrsla fra Moss. forum ad versla i Nordby i matinn...odyrara heldur en i Norge. I bakaleidinni komum vid til Halden og skodudum gamalt virki fra 1666, Fredriksten festning alveg otrulegt ad sja. Buin ad akveda ad skoda tad aftur einhverntima ad sumri til sidar...tvi ad tennurnar glomrudu vegna kuldans og hendurnar loppnar eins og i den, i barnaeskunni heima a Islandinu...Br...Brrr......
Alvoru gomul, tung og stor virkishurd...og hair veggir...
Sael ad sinni...Josira
hilsen fra Norge
Og svona til gamans...Eins og normonnum er lagid ...vila teir ekki fyrir sig ad gera tvofold jardgong...
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Ekki hefði ég trúað því fyrir fáum árum síðan að ég ætti eftir að verða svolítið mikið háð þessu undratæki...tölvunni minni...Sem var upphaflega samansafn af gömlum tölvuhlutum frá öðrum fjöldskyldu-meðlimum og var raðað pent saman...Þannig hefur það síðan verið...Ef verið er að endurnýja eitthvað, einhversstaðar gengur það gamla yfir í mína tölvu, sem hefur svosem verið ágætt því við vinkonurnar höfum verið að þróast saman í hugviti, færni og hraða......
En er haustið s.l. vék fyrir vetur konung, var tölvu-vinkonan mín kæra, að niðurlotum komin...orðin yfirfull og hæggeng...Þannig að hún fékk langt og kærkomið gott frí líkt og kanarífari...
Komin er hún endurnýjuð til baka og fékk að auki extra makeover...öll yfirfarin og að þessu sinni með nýjan harðan disk og geisladrif...er barasta sem ný, en svo hraðvirk að það horfir eiginlega til vandræða...
...mín hugsun og mitt fingrapikk hefur vart við slíkum léttleika...
Hún var orðin svo hægvirk og yfirfull...blessunin !
Hægt var orðið að finna gráu hárin vaxa á meðan hún var að hugsa næstu skipun...
Núna er hún svo viljug að erfitt er að hemja hana...
Verð bara að æfa mig á fullu með að auka við bragsflýti mína...
En eitt verð ég að segja að ekki vildi ég vera án hennar... ( á mér þó leynda ósk um að einhvern tíma muni ég eignast fartölvu- ( semsagt færanlega tölvu. ))
Svo ég víki nú aftur að gömlu-nýju borðtölvunni minni, þá er ég t.d. komin með http://earth.google.com/ sem er meiriháttar...og hef verið aðeins upptekin að vafra þar um...magnað að geta farið á svipstundu um víða veröld...
Já það er bara gaman að upplifa og leyfa sér aðeins að vera til á gerfihnattaöld...
Heimsmyndin er svo sannarlega breytt frá tímum hugumdjarfra sæfara og landkönnuða, sem leituðu þess sem handan var við sjóndeilarhringinn í hættu-og háskaförum...
Og þess að geta setið á stól sínum með púða við bak og pullu undir fót...við tölvuna og fundið og séð nánast hvað svo sem hugur leitar til...og helsta váin er tölvuvírus.
sæl að sinni...josíra
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fyrir margt löngu síðan páraði ég þessi orð á blað...og flugu þau um huga minn á ný... í þessum skrifuðu orðum mínum núna ...hversvegna veit ég ei...kemur í ljós...
En allavega hér og nú ... er ég um það bil að fara að skríða úr vetrarhýðinu því agnar-pínu vor í lofti er farið að kitla skynfærin... og þörf fyrir hreyfingu og löngun að finna unað og fegurð lífssins streyma um hverja frumu líkamans ... vera með í flæðinu ...
Vorið í loftinu liggur... josira
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 13:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
24.12.2007
kæru vinir og vandamenn...
Kæru ( blogg )- vinir og vandamenn...nær og fjær í bráð og lengd...
Óska ykkur öllum gleðilegra jóla og heillaríks-og heilsugóðs nýárs,
með kæru þakklæti fyrir allt sem liðið er...Njótið hátíðar ljóss og friðar...elskið...lifið..njótið... með kærleik og fyrirgefningu í hjarta...
Það er undir viðhorfum hvers og eins komið...til hlutana hverju sinni...hvernig tekið er á málum...
josira
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 10:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
12.12.2007
Var að búa til lítinn jólavef...
Í dag bjó ég til lítinn jólavef, sem þið eruð velkomin(n)að kíkja á...
http://www.simplesite.com/jolarosin
Hef lítið setið við tölvuna þessa dagana...Því blessað bakið hefur verið að stríða mér um tíma, en þetta er allt að koma...Kem svona rétt við og við í heimsókn hingað ...erfitt að sitja.
Og verið frekar langt niðri tilfinningalega vegna sérstaks missirs, sem ég hef verið að vinna mig frá. Hef þörf fyrir að skrifa um það, en ekki að svo stöddu...
En hátíð ljóss og friðar er rétt handan við hornið, svo verið velkomin(n) á nýju litlu jólasíðuna mína...það er eitt og annað þar að finna, að mestu eða nánast allt frá öðrum, sem ég safnaði saman...
En það er eitt sem mig langar að leita til ykkar með, fyrst ég er að vesenast í þessum vef-bloggsíðum mínum. Vitið þið hvernig á að skrifa texta við hlið myndar ?
Og svo vil ég endilega hvetja ykkur að heimsækja áhugaverðan nýjan bloggara:
hana Margréti Guðjónsdóttir, sem er með Astro-blogg...
...Hafið það sem allra best nú og ætíð og ekki gleyma ykkur í jólastressi...
josira
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 15:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
7.12.2007
vika liðin...
já klukkan tifar, tíminn líður og eftir engu bíður...
Ætla nú bara að halda áfram lítillega, í framhaldi af af síðustu færslu...sem var fyrir viku...
Á laugardaginn s.l. byrjaði ég á þvi að hitta gamlar júdó-dömur-gellur...í hádeginu...
Það var meiriháttar, fórum síðan saman á 50 ára afmælishátíð júdódeidar Ármanns...sem haldinn var í glæsilegum sal í Ármannsheimilinu að Laugarbóli, Laugardal. Þar var setið á áhorfendabekkjum og hlustað á sögu félagsins og skoðaðar ýmsar myndir...svolítið skrítn upplifun að setja sig inn í júdóheiminn minn gamla eftir svo mörg ár og minnið blessaða ekki alveg að virka...en bara gaman, síðan fóru fram sýningar og keppnir í aldurs-og þyngdarflokkum og var t.d. æðislegt að sjá litla smáfólkið hvað það er áhugasamt...En það er t.d. boðið uppá sameiginlega æfingatíma barna og foreldra hjá júdódeild Ármanns , gott framtak það og verðug fyrirmynd. Að síðustu var boðið uppá feikna veisluborð, sem var að svigna undan hnallþórum og öðru hnossgæti...ekki var farið á horreiminni í burtu......heldur á blístrandi bumbunni...
smáfólkið okkar, framtíðar júdómeistarar...
júdóvelta yfir " pýramítann "
Frábær dagsstund í hópi gamalla og nýrra vina...
Og er rökkrið tók við af dagsbirtunni lá leið mín niðrí Aðalstræti 16 á Hótel Reykjavik í sal er heitir Uppsalir...En þar er að finna yndislega myndlistasýningu Katrínar Snæhólm...
Það var vægast sagt afar einkennileg tilfinning að standa þar í dyragættinni, horfa yfir salinn, myndir og fólk í bjarma kertaljósa og finna kakóilminn liðast um nefið. Og þekkja ekki einu sinni listamanninn í sjón eða neinn annan...
En það breyttist á svipstundu. Katrín og hennar maður tóku elskulega á móti mér og þáði ég rjóma kakó og piparkökur eftir gott spjall og góða viðkynningu ásamt að hafa hitt nokkrar bloggvinkonur Katrínar...Þakka ég kynnin...kæru konur...
Endaði ég heimsóknina á að skoða þessi líka yndislegu mystísku málverk hennar Katrínar......Takk fyrir mig...
...hvet ég alla að skoða sýninguna...
josira
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 22:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.11.2007
Júdó...afmælishátíð og listasýning...
Heilmikið að gerast hjá mér á morgun...
Ætla að kíkja á 50 ára afmælishátíð Júdódeildar Ármanns, en fyrir ca 30 árum stundaði ég þessa frábæru íþrótt um tíma og þótti bara nokkuð liðtæk...eða þannig sko...og tók meira að segja þátt í fyrsta Íslandsmeistaramóti kvenna á Islandinu og lenti í 3 sætinu. bara gaman af því...Annars var ég alltaf kölluð Lukka í júdóinu... með úfið hár, síhlægjandi og líktist litlu lukkutrölli...
Munið þið eftir þeim ?
Eitthvað man ég eftir öðrum nöfnum, sem sumar af stelpunum voru kallaðar;
Tarsan, Mýsla, Trixý...
Gvöð hvað verður gaman að hitta liðið, ætli maður þekki ekki bara örfáa, því minnið er orðið svo gloppótt...
Og síðan verður stefnan tekin á sýninguna hennar Katrínar...
Gaman og skrítið að finna svona til gleði og tilhlökkunar fyrir morgundeginum......er ekki vön að vera að flandrast svona...út og suður...
josira
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 18:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Tenglar
ÝMSAR JÓLAVEFSÍÐUR
- Jólin-Þjóðminjasafnið jólasíður Þjóðminjasafnið
- jólavefur Júlla á Dalvík fullt af fróðleik um jólin
- Jólavefur Valla, sem geymir marga aðra jólavefi fjölbreytur jólavefur
- jóla-og áramótavefkort ýmis önnur vefræn tækiæriskort
BLANDAÐAR ÁHUGAVERÐAR VEFSÍÐUR
- LJÓSMYNDAKEPPNI Canon og mbl.
- VILTU VITA MEIRA Leiðsögn með lestri .. Sigríður Svavars - Leiðbeining - heilun- fyrirbænir
- ÓMAR RUN - Ljósmyndir Magnaðar myndir
- MADDÝ - Ljósmyndir Meiriháttar myndasmiður
ÝMSAR VEFMYNDAVÉLAR
- Nýjar Íslands vefmyndavélar Frábærir tenglar hérlendis og erlendis
- Vefmyndavélar - Vegagerðin - Suðausturland
- Vefmyndavélar víðs vegar um Ísland
VEÐUR - FÆRÐ - LOFTSLAG
LANDSBYGGÐIN LIFI...
- BETRI BYGGÐ UM LAND ALLT...
- LANDAKORT.IS Frábær síða um Ísland; m.a. Góðar upplýsinga-og þjónustusíður-Vefsjár sveitafélaga-Fjölbreytt efni um ferðamál og ferðalög á Íslandi.
- ICELAND WORLDWIDE Iceland, the land of the midnight sun, is becoming a favorite with those who seek adventure and freedom. Be it nature, sagas, geology or people that interest you, Iceland is the place to go
ÍSLENSK TÍMARIT ALLT FRÁ 1696 -
- FRÁ FYRSTU TÍMARITUM LANDSSINS TIL DAGSSINS Í DAG Ýmislegt að skoða ..
FRÁ A-Ö...
- TRÚARBRÖGÐ HEIMSSINS...
- VÍSINDAVEFUR H.Í Að vita meira og meira .
- ALMENNINGSBÓKASÖFN LANDSINS
- WIKIPEDIA
- BÓKASÖFN LANDSINS
TÆKNI og VÍSINDI
FJÖLBREYTTIR ÞÆTTIR...
- ÍSLAND Í DAG
- KASTLJÓS
- N4 SJÓNVARPSSTÖÐ NORÐAN HEIÐA
- GAMLA ÍNN TV SJÓNVARPSSTÖÐIN
- HRINGBRAUT SJÓNVARPSSTÖÐ
MATSELD
- MATARBLOGG SOFFÍU gómsætir réttir af öllum stærðum og gerðum...
- UPPSKRIFTIR SOLLU
- MARGAR MATAR UPPSKRIFTARSÍÐUR Eflaust eitthvað gott að finna ..
- KÖKUR OG EFTIRRÉTTIR Án hveiti sykurs og ger
- GULUR,RAUÐUR,GRÆNN OG SALT Hráfæði
HJÁLPARSTOFNANIR...
Fibromyalga...vefjagigt
Blekking í þjóðfélaginu...
Blekking í þjóðfélaginu...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.5.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2014
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði