Færsluflokkur: Vefurinn
9.10.2009
Varnaðarorð forseta vors...
Og þó allflestir tengja hann eða þau hjón í neikvæðri merkingju við útrásavíkingana, finnst mér samskipti þeirra meira allavega í upphafi vera tengd því að hrífast með þessum stórhuga mönnum líkt og margir aðrir sem og hverjir tóku sér far með flottu hringekjunni...
Ég má til með að leggja orð í belg...ég veit ekki betur en þau forsetahjón hafi yfir höfuð verið landi og þjóð til sóma á undanförnum árum...Vel frambærileg hérlendis og erlendis...alþýðleg, yndisleg og víðsýn...
Og held ég að við allflest gerum okkur ekki grein fyrir hversu mikið felst í starfi forseta og-eða forsetahjónanna í okkar þágu og landkynningu.
Ýmsir atburðir úr dagskrá forseta
http://forseti.is/ forsíða
Fyrri bloggfærslur mínar um forstaembættið og forsetahjónin...og úrdrættir;
6.9.2009 Við þurfum sameiningartákn...og að hjólin fari að snúast...í almannaþágu...
Fann t.d. eftir fallið mikla í haust og óstjórnina sem yfirtók allt, bæði fyrir og eftir áramót að ég vildi að í forsetaembættinu fælist sterkt og öflugt afl. Ég fann það þá, þegar þáverandi ríkisstjórn liðaðist í sundur, að ég vildi bara, að sett yrði strax þjóðarstjórn,
En þó ekki með einhverjum skilgreindum meirihluta, heldur skipuð og valin af forsetanum, burtséð frá hvaða flokkum hverjir tilheyra. Heldur sé valið í hvert sæti af yfirvegun og útsjónarsemi um hverjir væru hæfastir í hvert verkefni fyrir sig. Og unnið yrði dag og nótt, þess vegna á vöktum ef þyrfti.
Engann tíma mátti missa. Einn fyrir alla og allir sem einn, til bjargræðis þjóöar og lands. Og þess vegna kalla til fólk úr röðum hinna ýmsu starfstétta og jafnvel erlendis frá. Þannig er nú mín sýn á málið...
Ég fer ekki ofan af þvi, að sá eða sú sem gegnir forsetaembætti Íslands hverju sinni ætti að vera okkar þjóðhöfðingi, þjóðarráðgjafi, landsfaðir-og eða móðir og hafa meiri völd en fylgir embættinu nú. Og vera sameiningatákn fyrir þjóðina hérlendis og erlendis og vinna á sem heiðarlegastan hátt í þjóðarhag og vera hafinn yfir pólítískar stefnur.
Ég varð fyrir miklum vonbrigðum er forseti okkar hann Ólafur skyldi þora að ekki taka af skarið um daginn og hlusta á þjóðina sjálfa í sambandi við icesave og nota vald sitt í hennar þágu.
En ég get ekki dæmt hann fyrir sína ákvörðun að sinni fyrr, en allt er komið upp á yfirborðið með þá ákvörðun.
14.2.2009 Forsetinn er okkar fulltrúi, þjóðhöfðingi og sameiningartákn...
Í upphafi forsetatíðar Ólafs skal ég þó viðurkenna, að ég kaus hann ekki, en hann vann sig fljótlega í áliti hjá mér og hef ég kosið hann síðan...
3.2.2009 Takk...takk...okkar elskulega forsetafrú, Dorrit...
með hugmyndir þínar og innlegg til uppbyggingar í landinu okkar litla...þú ert frábær, nákvæmlega eins og þú ert...
Svo mörg voru þau orð að sinni...
josira
p.s. þurfti að hafa fyrir þssari blogggrein minn...arrggarg..stafaruglog bil í vitleysu lengivel....en þolinmæði þrautir vinnur allar...
Ólafur Ragnar í Forbes | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 11:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.10.2009
Eru BBergarnir á bakvið allt saman ?
Get ekki neitað því að lesning um þessa aðila hér fyrir neðan hafa vakið ugg með mér ef umsagnirnar reynast sannar...
Talað er um að BBergarnir hafi planað alheims-efnahagshrunið
Allt um Bbergarana og hvað þeir hafa í hyggju...
Wikipedia hyggst eyða listum um BBergarana
Og hérna er að finna líka tengt þeim
um svínaflensuna og hvernig er alið á ótta fólks gagnvart henni
og um hvort U.S.Fjár.....séu stór svik...september 2009
josira
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.10.2009
Icesave og Seðlabankinn...
Fréttir um yfirvofandi efnahagshrun Íslands á Reuters, þann Mon Mar 31, 2008 11:49am EDT
Iceland to investigate suspected market manipulation Afhverju var ekki þessi frétt skoðuð og könnuð til hlítar ? Og við almúgurinn höfðum ekki hugmynd um neitt !
og eitt og annað með icesave ; Ástarbréf Seðlabankans verstu mistökin fyrir hrun grein Gauta B. Eggertssonar haffræðings... úrdráttur ;
Stærstu mistökin eru líklega fólgin í veðlánaviðskiptum Seðlabanka Íslands sem ollu gjaldþroti hans.
Ef neyðarlögin hefðu verið skrifuð svona hefði það þýtt að allar eignir Landsbankans hefðu fyrst farið í að greiða icesave. Skaði þjóðarbúsins hefði því orðið lítill sem engin af þessum þætti hrunsins, og við stæðum væntanlega ekki ennþá í deilum við Breta og Hollendinga...
og pressuúttekt Ólafs Arnarssonar; hvernig varð seðlabankinn gjaldþrota ?
Gjaldþrot Seðlabankans stærra mál en Icesave, segir Ólafur Arnarsson hagfræðingur
Þetta eru mál sem þarf að skoða og skilgreina svo aldrei aftur komi til slíks hruns og hér hefur orðið...
Og verður þá hægt að læra af öllum þessu efnahagsforraði og ganga þannig frá að aldrei verður fallið þangað aftur...
Og síðan þarf finna allt fjármagnið sem týnt er ! Það getur ekki verið að allt hafi verið einskins nýtir pappírbleðlar ?
Þetta er miklu stærra mál en við gerum okkur greinilega fyrir...
Því fyrr sem hægt er að vita um raunverulegar ástæður t.d. ábyrgðir hver og eins er um að ræða, því fyrr kemst þjóðin til eðlilegra lífs á öllum sviðum frá öllum hliðum...
Það var talað um alþjóðlegt efnahagshrun fyrir ári síðan, en allflest lönd eru komin á flot á ný...
p.s. Er aðeins að reyna að skoða hvað er að gerast með sjálfa mig þessa dagana...
Minn áhugi hefur bara aldrei legið til stjórnmála eða efnahagsmála banka og ríkis...
Fyrr, en nú nýverið og ég er eiginlega búin að fá nóg af sjálfri mér í öllum þessum þankagangi og skrifum um þessi mál... Er að heita sjálfri mér á hverjum degi að hætta, það liggur við að það sé að verða ávanabindandi þessar pælingar í kolli mér...Reyni hvað ég get...
josira
Vefurinn | Breytt 9.10.2009 kl. 09:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Spurning í kolli konu !
Hvernig ætli " gjörningurinn" ( reiknisdæmið ) um afskriftir banka, peningastofnana og fyrirtækja fara fram ( reiknast ) Hvaða eða hvernig formúlur eru notaðar-hafðar til hliðsjónar og þá einnig gagnvart nidurfellingum skulda í stofnunum hins opinbera ? t.d.
1. Hvernig er skuldum t.d. breytt í hlutafé ? ( landsbankinn )
2. Hvernig er skuldum breytt í hlutafé ? ( skilanefn Kaupþings )
3. Hvernig er skuldum breytt í hlutafé ? ( 560 millj. skuld rúv. )
Ég bara spyr...Er ekki hægt að nota sömu aðferðirnar til afskrifta og niðurfellingar á skuldum heimilanna ?
Hið opinbera - ríkið er það ekki óbeint við ? Erum við bara ekki smærri útgáfur af fyrirtækum-stofnunum...fjölskyldurnar-heimilin ? og eru ráðamenn ríkisins ekki að vinna i okkar þágu ?
Allt stefnir greinilega í að þurrvinda og kreista sem mest heimilin-fjölskyldurnar af ráðamönnum...
Mesti þunginn mun lenda á almenningi
Þyngri byrðar og barna og vaxtabætur lækka
sbr. hækkandi skattar
Kjarnafjölskyldan þarf að borga
Skattahækkanir og gjöld kynda undir verðbólgubálinu
Var að glugga aðeins í loforðin stóru:
Samstarfsyfirlýsing ríkisstjórnar, samfylkingarinnar og vinstri grænna og
Og hversvegna eru þessir blessaðir stýrivextir ætíð svo háir hér en lágir í öðrum löndum ?
ein spurnig í kolli konu, sem varð af mörgum...
frh.
josira
Vefurinn | Breytt 9.10.2009 kl. 15:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Stjórn Öryrkjabandalags Íslands mótmælir harðlega að ríkisstjórnin áformi að halda áfram að skerða kjör öryrkja umfram aðra landsmenn, að því er segir í yfirlýsingu frá ÖBÍ, undir yfirskriftinni ekki meir, ekki meir! ... vísa ég á þessa grein í dv.is ÖBÍ krefst endurskoðunnar á fjárlögum...
Baráttuspor öryrkja hafa oft verð löng og ströng við ráðamenn og ríkisstjórnir ólíkra tímabila...Margir sigrar smáir og örlítið stærri hafa unnist í gegnum baráttudansinn...En ekki enn að fullu tekist að samstilla sporin eftir allan þennan tíma. Og virðist vera að aukin ójöfnuður sé í sjónmáli í takti og ritma danssins...Tökum saman höndum og reynum að kenna ríkisstjórninni að finna hin mannlegu spor...
Gömul grein frá mér síðan janúar 2001;
josira
Vefurinn | Breytt 9.10.2009 kl. 15:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hér má sjá myndband og aðrar upplýsingar t.d um;
Hver er Gordon Brown ? og Alistar Darling og IMF
Tekið úr fyrri færslu minni;
Hérna má skoða slóðir um sitthvað; IMF ( alþjóða gjaldeyrissjóðurinn )
yfirsýn frá OECD frá 1998-2009
Hverjir standa á bakvið Moodys Investors Servise Global Credit Research ?
bjöguð google- íslensk þýðing um áætlun Bilderberg
josira
Jóhanna gagnrýnir Brown | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vefurinn | Breytt 9.10.2009 kl. 15:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vefurinn | Breytt 9.10.2009 kl. 15:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.10.2009
Ríkið étur upp föðurarf...
Gat eki orða bundist, eftir að hafa lesið þessa frétt á dv.is vegna 2 bræðra um föðurarf sinn og hvernig ríkið étur hann upp...
Þetta eru alveg með ólíkindum allar þær reiknisútfærslur sem lífeyrissjóðirnir og ríkið vinna eftir...Held að þar megi finna ýmsa einkennilega vankanta ef djúpt væri eftir kafað...
Ég held að það hlaupi á stærri upphæð, en mér gæti dottið í hug að nefna, sem eftirlifendur látinna lífeyrisgreiðenda fá ekki, vegna allsskonar smárra letra, viðauka og lagaflækna, en sem renna þess í stað í lífeyrissjóðskassana og-eða til ríkis...
Gott væri að fá meira gegnsæi á borð með allar þessar útreikninga, síðan ættu lífeyrisgreiðslur ekki að vera tekjutengdar eða arfur. Er hægt að fá að sjá það á blaði hversju oft er búið að skattleggja eða skera af greiðslu áður en hún kemst loksins á borð til viðtakanda ?
josira
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 17:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.10.2009
Stöndum vörð um loft, láð og lög...
( loft, land og sjó )
Já alltaf er maður að fræðast...var að lesa...
Viðskiptavildin og Enron-Ísland, grein á dv.is 6. mars 2009.
Sem eykur að ég held skilning og sjón mína á ástandið hér á Íslandi...Mér fannst þetta góð og yfirgripsmikil grein...
Síðan las ég á pressan.is grein, þar sem Paul Rawkins sérfræðingur hjá lánshæfismatsfyrirtækinu Fitch Ratings ( sem gefur okkur lægstu einkunn í fjárfestingaflokki )...varar við slitum við AGS (alþjóða gjaldeyrissjóðinn ) ( alveg rugluð í þessum skammstöfunum, hélt það væri IMF )og sagði að, ef Ísland myndi ganga burt frá áætluninni á þessu stigi myndi það loka fyrir aðgang að fjárhagsaðstoð utan frá og flækja til muna efnahagsbatann og samskipti landsins við umheiminn. !
Og að hann fengi ómögulega séð hvernig Ísland kæmi til með að koma stöðugleika á gengi krónunnar og afnema gjaldeyrishöft án þess að njóta fjárhagsaðstoðar að utan.
Bídduuu,,núuu við...
Hagkerfishremmingarnar, MUNUM við yfirstíga þó erfitt verði...
Þá er einkennilegt að þessir háu herrar, sem eru búnir að halda okkur nánast í gíslingu s.l. mánuði með sínum útreikningum og loforði með lán sitt til okkar...
Og að við göngum fyrst frá greiðslu icesave reikningana, sem allir eru ekki á eitt sáttir með að gera, ásamt einu og öðru, sem hangir á spítunni...
Hvernig eru þeir að meta okkur ! Og landið okkar stóra...
Hvað eiga þeir með að gefa lægstu einkunn í fjárfestingaflokki ?
Eru þeir kannski viljandi að halda öðrum frá trausti og trúverðuleika okkar ?
Þetta er eitt verðmætasta land í heimi og nýtur algjörrar sérstöðu á svo mörgum sviðum og frá mörgum hliðum og er að auki með magnaðan mannauð, sem hér býr...
Eða eru þeir bara ekki að ásælast landið, byggð ból og auðlindir þess ?
Mér finnst nú frekar að þeir séu hægt og rólega að herða hálsólina, svo vitin lokist og máttleysið yfirbugi þrótt og baráttuvilja...
Því vinur er vinur í raun og tekur í hönd hins hjálparvana án þess að setja upp einhver óréttlát skilyrði...
Og það sama gerir læknir er hann reynir að bjarga mannslífi...
Því þegar hinum hjálparvana og þeim sjúka, vex ásmegin, skýrist sjón, vonin vaknar, þróttur eykst, vilji ræður för, batinn eykur bjartsýni, viðhörf bætast, úrræði og úrlausnir munu birtast...
Og allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi, stendur einhversstaðar...
Ég fæ ekki i séð að þessir menn ( stofnanir ) séu að rétta okkur hjálparhönd nema síður sé...
Paul Rawkins sagði að, ef Ísland myndi ganga burt frá áætluninni á þessu stigi myndi það loka fyrir aðgang að fjárhagsaðstoð utan frá og flækja til muna efnahagsbatann og samskipti landsins við umheiminn...
p.s. það er alveg ljóst að blessaður maðurinn þekkir ekki þjóðina litlu, sem er að vakna til vitundar um sjálfa sig á ný og skynjar kannski þarna örlitla dulda ( kúgun-hótun ) sem hún er ekki til í að kaupa öllu lengur...
Ég hef óskað þess frá byrjun að Noregur hefði strax staðið okkur þétt við hlið í upphafi hremmingana og með styrkum höndum hjálpað okkur til að komast upp úr hjólförunum, sem við festumst í þannig að hjólin hefðu farið að snúast í rétta átt, sem allra fyrst...
En ekki bundist með skilyrðum AGS-IMF...
Og með rússalánið...u.h.ummmm...er ekki alveg að treysta hvað liggur það að baki; vinsemd eða dulin eignartaka...
Og þetta með gjaldeyrishöftin...ég skil heldur ekki það reiknisdæmi !
HALLLÓ...en það skyldi þó ekki vera til aðrar þjóðir sem væru til í að rétta okkur hjálparhönd, með trú og traust á að við munum aftur ná þeim styrk, þor, vilja og getu til að vera þau sem við erum í raun og veru ;
Ísland sem er eitt mesta velferðarríki meðal þjóða, þar sem hin smá, en stórhuga þjóð býr, sem mótast hefur af sambýli mið máttarvöldin og harða lífsbaráttu gegnum aldirnar. Með að veganesti reynslu og þekkingu genginna kynslóða, sem aldrei létu deigan síga. Og eru meðal upplýstustu og menntuðustu þjóða, miðað við höfðatölu í heimi í dag og standa framarlega á ýmsum sviðum á heimsvísu. Og geta á svo margan hátt verið leiðandi fyrirmynd annara þjóða..
Og að virðingavert væri að vera raunsannur vinur slíkarar þjóðar...
Það hljóta einhverjir að vera þarna úti, sem hafa trú á okkur, án óréttlátra klafa, skulbindinga eða jafnvel lymskulegra yfirráða og hafa vilja og getu til að hjálpa, hjálparinnar vegna...
Kannski ættum við t.d. að leita til Kína eða Indlands...Væri ekki upplagt að semja um einhver skipti ? Við gætum kennt þeim eitt og annað t.d. í sambandi við jarðboranir og orkumálin...
Að gefast ekki upp þó á móti blási,
er setning sem við Íslendingar eigum allflestir að kannast við...
Munum, að á Íslandi er allt ef að er gáð...
Stöndum vörð um loft, láð og lög...
Eflum vonina, Vekjum gleðina, Virkjum kraftinn
josira
Ef ég reyni að hreinsa hug minn frá samsæriskenningum um ESB og valdatafli þeirra til að ná yfirráðum landanna og hlunnindum þeirra, þá hvarflar hugur minn til EES...
Það var margt jákvætt sem við fengum með því að ganga þar inn...
Fylgst með ESB úr stúkusætinu EES, viðtal við Gerhard Sabathil
( reyndar gamalt viðtal )
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 15:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Skýrsla Geirs H. Haarde forsætisráðherra um efnahagsmál á Alþingi 2. september 2008:
Svo mörg voru þau orð og ég held að ætla megi að allflestum af okkar stórhuga þjóð hafi í raun einnig haldið að allt væri harla gott...
Stefnuræða forsætisráðherra á Alþingi 2 október 2008
En því miður reyndist svo ekki vera, sem og alþjóð veit og hefur gengið í gegnum þær þjóðarhagshremmingar, sem við þekkjum og sviptingar...
Og rúmlega hálfu ári eftir hrun...
Ávarp Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra á Austurvelli 17. júní 2009
Stefnuræða Jóhönnu Sigurðardóttir forsætisráðherra 18. maí 2009
og nú ári eftir hrun;
Stefnuræða Jóhönnu Sigurðardóttir forsætisráðherra 5 október 2009
og Beðist afsökunar á vanrækslu og andvaraleysi;
Ég held í mínu hjarta að allflestir ráðamenn séu heiðarlegir og leggi allt sitt í að vinna að hag þjóðar og lands hverju sinni...
En ég skil bara ekki hversvega fólkið allt, sem á þinginu situr og er sannarlega í vinnu hjá okkur landsmönnum öllum, getur ekki komið sér saman með úrlausn mála...afkomu heillrar þjóðar...
Það verður hver og einn að að meta eftir sinni sannfæringu, hvernig allt var, fór og eða verður...
Hérna má skoða slóðir um sitthvað; IMF ( alþjóða gjaldeyrissjóðurinn )
yfirsýn frá OECD frá 1998-2009
Hvernig stendur á því að svo gamalgróið og virt fyrirtæki sér ekki hvað er í gangi í islenska bankakerfinu fyrir hrun...?
Icelands Solvency and Liquididy are Not at Risk apríl 2006
Hverjir standa á bakvið Moodys Investors Servise Global Credit Research ?bjöguð google- íslensk þýðing um áætlun Bilderberg
og ég sem ætlaði ekki að skrifa meir um bullið í hugsunum mínum...
er að reyna að hætta...
josira
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tenglar
ÝMSAR JÓLAVEFSÍÐUR
- Jólin-Þjóðminjasafnið jólasíður Þjóðminjasafnið
- jólavefur Júlla á Dalvík fullt af fróðleik um jólin
- Jólavefur Valla, sem geymir marga aðra jólavefi fjölbreytur jólavefur
- jóla-og áramótavefkort ýmis önnur vefræn tækiæriskort
BLANDAÐAR ÁHUGAVERÐAR VEFSÍÐUR
- LJÓSMYNDAKEPPNI Canon og mbl.
- VILTU VITA MEIRA Leiðsögn með lestri .. Sigríður Svavars - Leiðbeining - heilun- fyrirbænir
- ÓMAR RUN - Ljósmyndir Magnaðar myndir
- MADDÝ - Ljósmyndir Meiriháttar myndasmiður
ÝMSAR VEFMYNDAVÉLAR
- Nýjar Íslands vefmyndavélar Frábærir tenglar hérlendis og erlendis
- Vefmyndavélar - Vegagerðin - Suðausturland
- Vefmyndavélar víðs vegar um Ísland
VEÐUR - FÆRÐ - LOFTSLAG
LANDSBYGGÐIN LIFI...
- BETRI BYGGÐ UM LAND ALLT...
- LANDAKORT.IS Frábær síða um Ísland; m.a. Góðar upplýsinga-og þjónustusíður-Vefsjár sveitafélaga-Fjölbreytt efni um ferðamál og ferðalög á Íslandi.
- ICELAND WORLDWIDE Iceland, the land of the midnight sun, is becoming a favorite with those who seek adventure and freedom. Be it nature, sagas, geology or people that interest you, Iceland is the place to go
ÍSLENSK TÍMARIT ALLT FRÁ 1696 -
- FRÁ FYRSTU TÍMARITUM LANDSSINS TIL DAGSSINS Í DAG Ýmislegt að skoða ..
FRÁ A-Ö...
- TRÚARBRÖGÐ HEIMSSINS...
- VÍSINDAVEFUR H.Í Að vita meira og meira .
- ALMENNINGSBÓKASÖFN LANDSINS
- WIKIPEDIA
- BÓKASÖFN LANDSINS
TÆKNI og VÍSINDI
FJÖLBREYTTIR ÞÆTTIR...
- ÍSLAND Í DAG
- KASTLJÓS
- N4 SJÓNVARPSSTÖÐ NORÐAN HEIÐA
- GAMLA ÍNN TV SJÓNVARPSSTÖÐIN
- HRINGBRAUT SJÓNVARPSSTÖÐ
MATSELD
- MATARBLOGG SOFFÍU gómsætir réttir af öllum stærðum og gerðum...
- UPPSKRIFTIR SOLLU
- MARGAR MATAR UPPSKRIFTARSÍÐUR Eflaust eitthvað gott að finna ..
- KÖKUR OG EFTIRRÉTTIR Án hveiti sykurs og ger
- GULUR,RAUÐUR,GRÆNN OG SALT Hráfæði
HJÁLPARSTOFNANIR...
Fibromyalga...vefjagigt
Blekking í þjóðfélaginu...
Blekking í þjóðfélaginu...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.12.): 7
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 123182
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 16
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2014
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði