Færsluflokkur: Vísindi og fræði
19.12.2011
Súðvíkingar eru skynsamir ...
í uppbyggingu og afkomu byggðar sinnar. Ég tek ofan fyrir þeim.

![]() |
Sex milljóna hagnaður í Súðavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 13:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.12.2011
Pæling ... dæling ... mæling ...
Nokkur þankabrot um óróa á jarðskjálftamælum þessa dagana.
Eru niðurdælingar í gangi í Hellisheiðavirkjun ?
Ef svo er vitum við fyrir víst, hvort þessir manngerðu skjálftar geti ekki kallað á eitthvað meir, en við óskum eftir ?
Og er öruggt að niðurdæling brennisteinsvetnissins og annara efna komist ekki í tæri við það vatn, sem safnast síðan saman og nýtist sem neysluvatn ?
Hér er ýtarlegt yfirlit um grunnvatn á höfuðborgarsvæðinu.
eldri bloggfærsla mín;
16 okt. 2011; Manngerðir jarðskjálftar hérlendis og erlendis
Af vef veðurstofunnar;
Í september mældust margar skjálftahrinur við Hellisheiðarvirkjun í kjölfar þess að teknar voru í notkun nýjar niðurdælingarholur við virkjunina. Um 1500 skjálftar mældust, flestir litlir, um og innan við einn, en stærri skjálftar mældust einnig. Stærstu skjálftarnir fundust í Hveragerði og sá stærsti, 3,4 stig, sem varð 23. september, fannst einnig á höfuðborgarsvæðinu. Frumniðurstöður úrvinnslu benda til þess að skjálftarnir raðist á a.m.k. 2-3 sprungur og að stefna þeirra sé austan við norður. Skjálftar hafa áður mælst við borun og prófun á borholum síðustu misseri en aldrei annar eins fjöldi og nú. Fáir jarðskjálftar mældust úti á Reykjaneshrygg. Á Reykjanesskaga var mesta virkni á Krýsuvíkursvæðinu, yfir hundrað skjálftar, og aðallega fyrstu vikur mánaðarins.
Í október við Húsmúla í Henglinum mældust tæplega eitt þúsund jarðskjálftar. Flestir þeirra komu fram í skjálftahrinum dagana 2.-9., 15.-16. og 25.-26. október. Tveir stærstu jarðskjálftarnir þar voru að stærð 4 þann 15. október kl. 09:03 og kl. 09:45 og fundust þeir vel víða um sunnan- og vestanvert landið. Nokkrir aðrir skjálftar í þessum hrinum fundust einnig, aðallega í Hveragerði. Meginþorri jarðskjálftanna núna hefur framkallast vegna niðurrennslis á affallsvatni úr Hellisheiðarvirkjun í borholur á svæðinu.
Í nóvember (reyndar í síðustu viku, áður en hrinan i gær og dag koma fram) Á Suðurlandsundirlendi mældust þrír smáskjálftar og sex við Ingólfsfjall. Átta smáskjálftar mældust á Krosssprungunni, einn við Geitarfell og tveir við Hengil. Við Húsmúla voru staðsettir 128 skjálftar, allir undir Ml 2 að stærð.
Nýr upplýsingavefur Orkustofnunar um smáskjálfta vegna niðurdælingar ( hér er t.d. ekki að sjá neinar dagsetningar á niðurdælingu á affallsvatni !)
Talsmaður neytenda; Bótaábyrgð vegna ótímabærra jarðskjálfta
Ég vona að ráðamenn hér séu með á hreinu, að það sé og verði í lagi með þessar blessaðar niðurdælingar og að þær séu ekki að hrófla við náttúruöflum eða eyðileggingu vatns.
josira
Vísindi og fræði | Breytt 18.12.2011 kl. 00:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.10.2011
Regnboginn ... og lífsins verkefni
Nú í hádeginu var ég stödd úti og sá líka þennan fallega regnboga yfir borginni og augnablik sást hann tvöfaldur. Ekki var ég með myndavél við hönd til að fanga þessa fegurð fasta.
Regnbogar hafa alla tíð heillað mig og stórkostlegt litróf þeirra.
Litir eru í öllu í kringum okkur. Og tengjast daglegu lífi okkar.
Hvaða liti veljum við á veggi og á húsgögn á heimilum okkar...
Hvaða liti viljum hafa í fatnaði okkar dag frá degi...
Heilla okkur einhver litasamsetning fæðunnar, sem við snæðum...
Eru einhverjir litir sem við þolum bara alls ekki...
Gaman er að fræðast um eitt og annað tengt regnboganum og litum hans.
Sumir sjá og skynja orð og hluti í litum
sbr. systurnar Ingibjörg og Ásdís ásamt Bubba, sem semur lögin sín í litum.
og litir regnbogans tengjast orkustöðvum mannsins.
Hvað getum við lært af líkama okkar
Rainbow Healing Meditation By Paolo
Somewhere Over The Rainbow - Ray Charles
Regnbogafáninn og hinsegin dagar
Regnbogafáninn er eign allra sem berjast fyrir mannréttindum hvar sem er í heiminum.
Regnbogabörn eru fjöldasamtök áhugafólks um eineltismál.
Markmið samtakanna er meðal annars að gera börnum kleift
að lifa án félagslegs áreitis og ofbeldis frá jafningjum sínum.
Gott getur verið að nota steina eða ilmolíunudd til heilunar,
sem og áhrif hafa á orkustövarnar
Ára mannsins séð með nýustu tækni
Litadýrð sem lýsir innri manni - litameðferð
Og að síðustu, það sem dregur mig að sér nú, gagnvart orkustöðvunum
er þetta myndband, sem ég reyndar var að finna nú í þessum rituðu orðum !
Sem og leiðir mann til Egyptalands, sem löngum hefur heillað mig.
Your Glands are the Chakras
" Allt er gott í hófi "
" Að læra að þekkja sjálfan sig og takast á við kosti og galla sjálf síns,
í gleði og sorg lífssins er eitt mesta verkefni sérhvers manns."
En nú er nóg komið að sinni og viða búið að fara undir
áhrifum regnbogans. Samspil hans og mannsins víða liggja.
Af nógu er af að taka, því regnboginn er t.d. einnig víða að finna
sem tákn í draumum og mörgum helstu trúarbrögðum heims.
Hljómkviða alheims í öllu er,
litirnir líka tengjast hér.
Átakalaust fuglinn flýgur,
frjókorn upp úr jörðu smýgur.
Hlutverkin eru, að snúa lífshjólin
lífsorku í té lætur, sjálf sólin.
Sálarljós í kjarna alls býr
og kærleiksaflið öllu snýr.
josira
(ps. smá lagfæringar og ákvað í leiðinni að bæta við tenglum)
Vísindi og fræði | Breytt 27.10.2011 kl. 10:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.10.2011
Fegurð frumna
og marslungin verkefni þeirra. Frá minnstu frumu til líkama. Allar frumur eru komnar út frá öðrum frumum. Mannslíkaminn er gerður úr milljörðum frumna og það eru um 200 mismunandi tegundir af frumum í líkamanum og frumurnar hafa frumulíffæri .Það er heillandi heimur að skoða og læra um frumurnar.
Við eðlilegar aðstæður lifir hver fruma sjálfstæðu lífi. Þær eru af ýmsum gerðum, hver með sitt útlit og hlutverk. Og líkt og hver manneskja í hnotskurn þá fæðast þær, anda, nærast, þurfa orku, fjölga sér og að lokum deyja. Alveg ótrúlega magnað í raun, hve vinnuferlið er mikið og fullkomið hjá einni heilbrigðri frumu, sem segja má, að sé lítil efna-verksmiðja.
Introduction to Cells - Meiriháttar myndband um frumur
Discovery Video - Cells
Frumur eru smæstu, lifandi byggingareiningar lífvera.
Sífelld endurnýjun frumna á sér stað á hverri einustu sekúntu í líkamanum.
Milljarðar örsmárra frumna mynda vefi af mismunandi gerðum. Vefirnir mynda síðan líffæri og líffærin mynda síðan mannslíkamann. Það er í þessum frumum, vefjum og líffærum sem undirstöðu allrar líkamsstarfsemi er að finna allt frá þeirri einföldustu til þeirra flóknustu, frá meltingu til ljóðrænnar hugsunar. ( úr bókinni Maðurinn í málum og myndum)
Hér má sjá að taugafrumur og alheimurinn virðast skemmtilega lík að uppbyggingu !
Hér er unnt að sjá og fá smá innsýn í meistaraverkið; mannslíkamann.
Incredible Human Machine (2/9)
Incredible Human Machine (3/9)
Incredible Human Machine (4/9)
Fleirri myndbönd er að finna á youtube
Mannslíkaminn er oft kallaður meistaraverk sköpunarinnar, sem er ekkert skrítið svo ótrúlega flókinn, undraverður og fullkominn, sem hann er. Það er fegurð að finna í öllu sem lifir og finnst mér fruman þar einstök, því ekkert líf er án hennar. Ef væri ég tónlistarmaður myndi ég semja henni/þeim verðugt verk. En fyrst svo er ekki, þá kannski eiga eftir að fæðast einhverjar pensilstrokur á striga eða ljóðabrot síðar frá mér, til frumunnar fögru.
Hvert spor, hver hugsun, hver gjörð, áhrif hefur á alheim og jörð ...
Ef við erum það sem við hugsum, borðum og gerum,
þá ættu allar athafnir andlegar og líkamlegar,
jákvæðar jafn og neikvæðar að hafa einhver áhrif á
hverja frumu líkamans og þá væntanlega einnig
umhverfi og aðstæður myndi ég halda.
Og samkvæmt þessum hugleiðingum mínum, væri það þá ákaflega hollt og gott fyri hug, sál og líkama, (semsagt frumurnar okkar) að vera sem best í jafnvægi, jákvæðnis-og gleðinnar megin í lífinu, hreyfa líkamann (fá súrefni í blóðið) og velja okkur næringargott fæði.
Og hvar skyldi nú blessuð þjóðin/þjóðarsálin vera stödd, svona miðað við þær uppskriftir, sem ráðamenn þjóðarinnar hafa matreitt og borið fram á borð síðustu mánuði og sagt okkur að innbyrða.
Stuðlar t.d. samsetti þjóðardiskurinn, að hollustu, jafnvægi, jákvæðni og lífsgleði - ég bara spyr
josira
p.s nú fer ég að muna hvers vegna ég hætti alltaf að blogga með einhverju millibili... helmingurinn af tímanum fer í að jafna bil milli texta og mynda og síðueiningarnar eru á flakki út og suður. Held ég fari í bloggpásu aftur um einhvern óákveðinn tíma.
Magnað að horfa á þessi myndbönd. Sem sýna og segja frá fornum leyndardómsfullum borgum, sem fundist hafa, ofanjarðar, neðanjarðar og í sjó.
Og vekur upp spurningar um, að mannkynssagan sé í raun ekki alveg eins og hún er sögð (talin) vera.
Gobekli Tepe, eru um það bil 12.000 ára gamlar óútskýranlegar byggingar, sem grafnar voru upp í Tyrklandi.
Derinkuyu, er ótrúleg neðanjarðarborg í Tyrklandi þar sem talið er að um 20.000 þús manna hafa búið.
Yonaguni er talin vera um 8000 - til 10.000 þúsund ára gömul neðansjávarborg, sem fannst við Japansstrendur og er byggð úr gríðarlega stórum steinblokkum, sem minna á pýramita
Og hér er fræðandi síða um 10 leyndardómsfyllstu staði jarðarinnar, sem fundist hafa og vitað er um.
Já það er margt óvænt, áhugavert, sumt óútskýranlegt og eða hulið leyndardómum, sem hægt er að rekast á, þegar er verið vafra um í hinum stóru netheimum.
Og ætíð er gaman að fá að fræðast bæði um gamla og nýja hluti.
josira
(ps. er að lenda í því, að bloggsíðueiningarnar mínar virðast vera stundum með sjálfsstæðan vilja, t.d. er hægri einingin að hverfa úr sínum stað í tíma og ótíma og yfir hinum megin. Kannast einhver við svona síðueiningaflakk ? )
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 17:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Í menningarheimum víðsvegar um veröldina hafa drekaflugur margar táknrænar (symbol) merkingar og eru t.d. táknberar um ljós og kærleika, jákvæðni, hamingju, sköpunarkraft, frelsi, yfirsýn, aðlögunarhæfni og umbreytingu.
Og er nákvæmlega það, sem við þurfum svo mikið á að halda hér og nú í lífsgildum okkar á þessu blessaða landi, sem við elskum og sem hefur í raun allt að gefa okkur.
En stjórnsýsla og ákvarðanatökur ráðamanna í gegn um árin, hafa um of dregist frá þessum góðu mannlegu gildum og virðast færast meir og meir yfir í fjármálaheiminn ( heim talnanna,sem í raun virðast öllu stjórna
Stöldrum við og hugsum aðeins um heimsókn litlu drekaflugunar og hvað felst í skilaboðum hennar til okkar.
Drekaflugan tengist vindi/lofti (breytingar - afl og kraftur lífsins) og vatni, (undirmeðvitundin-tilfinningar)
Dragonfly is the essence of the winds of change, the messages of wisdom and enlightenment; and the communication from the elemental world. Dragonfly medicine beckons you to seek out the parts of your habits which need changingog frá wikipediu
Tákn vatns er að finna í öllum samfélögum og trúarbrögðum. Hér er einnig ágæt slóð
Þegar mökun Drekaflugna stendur yfir mynda þær hjarta, sem og er tákn um ást og kærleik.
Drekaflugan táknar getu okkar og styrk til að umbreyta okkur sjálfum og hjálpar okkur til aukins skilnings á dýpri merkingu lífsins.bjöguð þýðing google; tekið af þessari ágætu síðu ; http://dragonflysymbolism.org/
Ég hef alltaf haft áhuga og ánægju af því að skoða, spá og spegluera hvað blessuð dýrin hafa að segja okkur og hef nokkrum sinnum párað niður orð um það;
Fiðrildi -skyld drekaflugu
Nátúruvísindi, stjörnuspeki og náttúruhamfarir
Eigið góðan dag, sem og alla aðra.
josira
p.s. þar sem drekaflugan tengist vindi/lofti og vatni, vil ég biðja máttarvöldin að umvefja jörðina okkar með heilunar-og kærleiksorku sinni og draga úr vindstyrk fellibylja og milda aðrar náttúruhamfarir, sem eiga sér stað víða um jörðina og hjálpa okkur mannkyni að stuðla að friði.
![]() |
Drekafluga á sveimi á Kambsvegi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 17:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Afstaða stjarnanna fyrir og eftir t.d. stóra jarðskjálfta, flóð og eldgos eru verðug verkefni að skoða, spá og spegluera í. Við gætum eflaust lært enn meir af náttúrinni og skilaboðum hennar til okkar á svo margvíslegan máta og jafnvel til viðvörunar í tíma áður en slík vá gerast.
Þessi fræði ættu auðvitað að skarast saman í námi. Eins og t.d. í Náttúruvísundum ætti að bætast við undirflokka hennar, stjörnuspeki og hafa saman með; jarðeðlisfræði og stjörnufræði.
Þá myndu jarðeðlisfræðingar, stjarnvísindamenn og stjörnuspekingar vinna saman og gætu borið bækur sínar og vitneskju saman, jöfnum höndum og þá í samvinnu og sameiningu komið fram áríðandi viðvörum til þeirra staða eða landa, sem hætta væri á að eitthvað færi að gerast.
Einnig væri athugandi að hin vestrænu læknavísindi tækju upp stjörnuspeki í sínu námi, því vitað er frá fornu fari, að afstaða stjarnanna hverju sinni hafa áhrif á hegðun og líðan mannanna jafnt, sem og annara lífvera hér á móðir jörð.
440 árum fyrir krist, mælti Hippocrates, Læknir á vitneskju um stjörnuspeki hefur ekki rétt á að kalla sig lækni Hippócrates var forngrískur læknir, oft kallaður faðir læknisfræðinnar og er Hippókratesareiðurinn (lækniseiðurinn) kenndur við hann.
Allt um Hippokrates (bjöguð þyðing af google) og síðan ákaflega stutt á íslensku.
josira
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 22:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Verðugt umhugsunarefni með tilliti til orkustöðvanna og virkni þeirra í líkamanum. Er jafnvægi á þeim - of mikil virki eða of lítil virkni ?
Svo mörg áhugaverð skrif er að finna um þessi efni á veraldarvefnum, að ég læt fylgja hér með nokkrar slóðir fyrir þá er áhuga hafa að kynna sér þessi gömlu merku fræði um líkamann.
Einnig þær leiðir, sem hugsanlega er hægt að fara með því að skoða vel og vandlega hvað er að gerast í lífinu og tilverunni, sem er að orsaka t.d. stíflur í orkustöðvunum og þá hvernig hægt er að koma jafnvægi þar á. ( það neikvæða og það jákvæða ) í hverri orkustöð og hvaða líffærum þær tengjast.
Sannað þykir t.d. að langvarandi innri tilfinninga togstreita getur valdið kvillum í líkamanum, sem síðar geta orðið af sjúkdómum, sé ekki hlustað á viðvörun líkamans ; sbr. grein af vefsíðu persona.is og af vef Landlæknis Streitan er slæm fyrir æðakerfið og lengi mætti áfram telja.
Áhugavert væri fyrir hin vestrænu læknavísindi svona almennt, að fara að skoða vel þessi fornu fræði um líkamann, það er að segja t.d. orkustöðvarnar og orkubrautirnar og nýta sér þá þá vitneskju meir.
Áran og orkustöðvarnar - eftir Tinnu Maríu Emilsdóttir á vefsíðu Orkulindar, sem útskýrir þessa hluti afar vel; og t.d.hvaða steinar og kristallar, eru notaðir til heilunar;
Hvað er góð heilsa af hverju verðum við veik ; Guðný Ósk Diðriksdóttir og Rósa Bjarnadóttir. Hómópatar, á vefsíðu Heilsubankans
Og þessa einstöku síðu var ég að finna ; Orkustöðvar líkamans og litir þeirra ; Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir á vefsíðunni Viska og gleði, þar sem einnig að finna upplýsingar um Aura- Soma olíur
Eitt og annað um Táknmál líkamans: (hvað kvillar og - eða sjúkdómarí líkamanum geta verið að segja okkur) Fengið á síðu Hugveislunnar ;
Hægri hlið líkama: Karlhlið, dynamic, ganga út frá, ráðríki, sjálfsvörn, takmarkanir, fjármál, þjóðfélagsstaða, faðir/stjórnandi;sólin,yang.
Vinstri hlið líkama: Kvenhlið, þyggjandi, viðkvæmni, umönnun, verjandi, sköpun, andleg/líkamleg málefni, tunglið,yin
Og að síðustu er hér grein, sem Margrét Guðjónsdóttir stjörnuspekingur skrifar í MBL. í águst 1999 Litadýrð sem lýsir innri manni, sem fjallar um áhrif lita á heilsu okkar
Eigið góða helgi :-)
josira
Vísindi og fræði | Breytt 17.5.2011 kl. 20:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég vil endilega vekja athygli á áhugaverðu námskeiði, þar sem Dr. Erwin Häringer og Margret Demleitner frá Þýskalandi, munu fjalla um algenga erfiða sjúkdóma, sem eflaust margir kannast við, svo sem ;
Vírussjúkdóma eins og inflúensuvírusa og sjúkdóma í kjölfar þeirra, t.d. lungnasjúkdóma, (samanburður við) Spænsku veikina (H1N1), R.S.-vírus, Streptococcus aureus, Einkirningasótt (mononucleosis infectiosa), Staphylococcus aureus MRSA, Gigtarsjúkdóma og breytileika þeirra.
Og hvernig t.d. unnt sé að vinna á þeim með náttúrulegum aðferðum. Góð og gagnleg vitneskja fyrir alla. Bæði heima fyrir og í heilsugeiranum ...
Dr. Erwin Häringer er doktor í þremur fögum, heimilislækningum, lífeðlisfræði og heimspeki. Hann er starfandi heimilislæknir í Munchen og hefur allt frá 1967 unnið að rannsóknum á áhrifum ilmolía úr jurtum. Hann hefur haldið fjölda fyrirlestra f.h. læknafélagsins í Bæjaralandi og hefur verið ráðgjafi samtaka og fyrirtækja í Þýskalandi á sviði plöntu- og jurtafræði.
---
Hann hefur kennt læknanemum bæði heimilislækningar og meðfram ilmolíufræði. Hann fer um Evrópu og kennir einnig þar á sjúkrahúsum. Hann er eftirsóttur fyrirlesari. Hann hefur m.a. ritað fjölda vísindarita um liti og ilm, þar á meðal um litaljósalækningar. Hann var einn af stofnendum Forum Essenzia og hefur verið þar heiðursfélagi. Hann hefur verið kennari Lífsskólans Arómatherapyskóla Íslands frá 1999 og byggist kennsla skólans á þekkingu hans.
Margret Deimleitner er sérfræðingur í náttúrulækningum með lokapróf í naturpractic, með ilmolíumeðferð sem sérsvið. Hún er iðjuþjálfi og hefur starfað í 26 ár við háskólasjúkrahúsið í Munchen bæði sem iðjuþjálfi og ilmolíufræðingur. Hún hefur nú látið af störfum þar og vinnur sjálfstætt um alla Evrópu við kennslu og fyrirlestra. Hún hefur gefið út bók um efnafræði ilmolía ásamt prófessor í efnafræðum. Hún var einn af stofnendum Forum Essenzia, sem eru þýsk ilmolíumeðferðarsamtök. Hefur hún verið aðstoðarformaður frá upphafi en hefur nú látið af störfum þar. Margret hefur mikla reynslu í gæðavottun ilmolía.
---
Margret og Dr. Erwin hafa lagt grunninn að þeirri kennslu sem nú fer fram í Lífsskólanum um ilmolíumeðferð sem byggist á nýjustu rannsóknum. Sjúkdómafræðikennslan byggir á reynslu þeirra og nýjustu vísindarannsóknum.
---
Námið fer fram í Lífsskólanum - Aromatherapyskóli Íslands
12. og 13. mars 2011 frá kl 9 til 17 báða dagana
að Vesturbergi 73, 111 RvK, s: 5577070 Lifsskolinn@simnet.is
Virkilega verðugt að skoða allt það sem hjálpar til við forvarnir og lækninga, á þessum pestum og vírusum, sem sífellt eru að aukast og eflast.
josira
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 03:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.3.2011
Tengja hvítblæði dótturinnar við rafmagnið: Skilmálunum breytt eftir greiningu svo að lítið bar á.
Þessi fyrirsögn greinar í Pressunni í dag vakti áhuga minn, enn og aftur á kvillum og sjúkdómum, sem tengjast eða réttara sagt rekja megi til rafmagns. Sem og hefur verið rannsakað og viðurkennt til margra ára erlendis. En hægt gengur hérlendis. Finnst mér að Geislavarnir ríkissins og orkufyrirtækin hér ættu að rannsaka þessar neikvæðu hliðar rafmagnssins til hlítar.
Stjórnvöld þurfa einnig að vera á vaktinni með allar niðurstöður varðandi þessar alvarlegu hliðarverkanir rafmagns. Því þá þarf að kanna með staðsetningu bygginga, t.d. leikskóla, skóla, sjúkrahúsa og íbúðahverfa, með tilliti til spennistöðva og jafnvel jarðarára. Til að fyrirbyggja ýmisskonar heilsuvandamál og alvarlega sjúkdóma.
Við íslendingar ættum auðvitað að standa fremstir á sviði rannsókna á þessum sviðum. Þar sem raforkuverin okkar og framleiðsla rafmagns fléttast inn í lokkar daglega líf á margvíslegan máta.
Eldri skrif mín um rafmengun rafsegulsvið (það sem ég fann á íslensku)
Og hér má lesa á ensku, slóðir, sem ég fann áðan á netinu:
Childhood leukaemia risk doubles within 100 metres of high voltage power lines
Too much EMRis bad for your health.
Childhood leukemia
Cancers
Miscarriage & adverse pregnancy outcomes
CataractsSterility
Alzheimer's disease
Chemical sensitivity
Chronic fatigue
Multiple sclerosis
Heart disease
Other effects include;
dizziness, tingling, buzzing in the ears, confusion, memory loss, and brain damage.
At one time, it was believed that low-level magnetic fields were not harmful, but scientists now agree that ELF fields are indeed hazardous to human health. They are now considered probable carcinogens,
and have been
linked to cases of childhood leukemia, lymphoma and other health conditions.It concludes that the existing standards for public safety are completely inadequate to protect your health. The report includes studies showing evidence that electromagnetic fields can:
-Affect gene and protein expression (Transcriptomic and Proteomic Research)
-Have genotoxic effects RFR and ELF DNA damage
-Induce stress response (Stress Proteins)
Mér finnst þetta vera háalvarleg mál og ætti að setja í forgang með rannsóknir á þessu öllu og virkja t.d. þá menn, sem hafa á liðnum árum verið að mæla og hanna tæki og tól til hjálpar fólki, til samstarfs við Geislavarnir ríkissins og orkufyrirtækin.
josira
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 14:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tenglar
ÝMSAR JÓLAVEFSÍÐUR
- Jólin-Þjóðminjasafnið jólasíður Þjóðminjasafnið
- jólavefur Júlla á Dalvík fullt af fróðleik um jólin
- Jólavefur Valla, sem geymir marga aðra jólavefi fjölbreytur jólavefur
- jóla-og áramótavefkort ýmis önnur vefræn tækiæriskort
BLANDAÐAR ÁHUGAVERÐAR VEFSÍÐUR
- LJÓSMYNDAKEPPNI Canon og mbl.
- VILTU VITA MEIRA Leiðsögn með lestri .. Sigríður Svavars - Leiðbeining - heilun- fyrirbænir
- ÓMAR RUN - Ljósmyndir Magnaðar myndir
- MADDÝ - Ljósmyndir Meiriháttar myndasmiður
ÝMSAR VEFMYNDAVÉLAR
- Nýjar Íslands vefmyndavélar Frábærir tenglar hérlendis og erlendis
- Vefmyndavélar - Vegagerðin - Suðausturland
- Vefmyndavélar víðs vegar um Ísland
VEÐUR - FÆRÐ - LOFTSLAG
LANDSBYGGÐIN LIFI...
- BETRI BYGGÐ UM LAND ALLT...
- LANDAKORT.IS Frábær síða um Ísland; m.a. Góðar upplýsinga-og þjónustusíður-Vefsjár sveitafélaga-Fjölbreytt efni um ferðamál og ferðalög á Íslandi.
- ICELAND WORLDWIDE Iceland, the land of the midnight sun, is becoming a favorite with those who seek adventure and freedom. Be it nature, sagas, geology or people that interest you, Iceland is the place to go
ÍSLENSK TÍMARIT ALLT FRÁ 1696 -
- FRÁ FYRSTU TÍMARITUM LANDSSINS TIL DAGSSINS Í DAG Ýmislegt að skoða ..
FRÁ A-Ö...
- TRÚARBRÖGÐ HEIMSSINS...
- VÍSINDAVEFUR H.Í Að vita meira og meira .
- ALMENNINGSBÓKASÖFN LANDSINS
- WIKIPEDIA
- BÓKASÖFN LANDSINS
TÆKNI og VÍSINDI
FJÖLBREYTTIR ÞÆTTIR...
- ÍSLAND Í DAG
- KASTLJÓS
- N4 SJÓNVARPSSTÖÐ NORÐAN HEIÐA
- GAMLA ÍNN TV SJÓNVARPSSTÖÐIN
- HRINGBRAUT SJÓNVARPSSTÖÐ
MATSELD
- MATARBLOGG SOFFÍU gómsætir réttir af öllum stærðum og gerðum...
- UPPSKRIFTIR SOLLU
- MARGAR MATAR UPPSKRIFTARSÍÐUR Eflaust eitthvað gott að finna ..
- KÖKUR OG EFTIRRÉTTIR Án hveiti sykurs og ger
- GULUR,RAUÐUR,GRÆNN OG SALT Hráfæði
HJÁLPARSTOFNANIR...
Fibromyalga...vefjagigt
Blekking í þjóðfélaginu...
Blekking í þjóðfélaginu...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 24
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2014
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði