Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2010

Fann jarðskjálftann, ónotalegur dynkur ...

527100A

Er í Kópavoginum.

Vona að stillt veður og fallegt gos, séu ekki að fara að breytast.

 josira


mbl.is Jarðskjálfti við gosstöðvarnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nóg komið af hörmulegu hernaðarbrölti ...

Og villimannalegum vinnubrögðum bandarískra hermannanna ... Hversu lengi á að líða þeim þetta ... ásamt öllum öðrum, sem að stríðum stuðla ...

Og heldur nöturlegt finnst mér, að ráðamenn íslensku þjóðarinnar á sínum tíma, hafi lýst stuðningi við innrás Bandaríkjahers í Írak, þeir Davíð og Halldór, í óþökk nánast heillrar þjóðar, sem er þekkt fyrir friðarbaráttu á alheimsvísu.

Hvað er hægt að gera til að stöðva þessi hryllilegu stríð, sem gengdarlaust ganga víðsvegar um veröldina ... Vegna valda- og peningagræðgi ásamt margra kynslóða hefnda ... Allt eru þetta mannanna verk oftast í nafni trúarinnar ... sem bitna mest og sárast á saklausu fólki ...

Munum við mannkyn mögulega ná því þroskastigi, að vaxa frá því dýrslega eðli, sem býr innra með okkur ... Áður en allt verður um seinan. Jörðin okkar byltir sér aldrei meir en nú. Er að reyna að losa um þessa neikvæðu orkustrauma, sem um hana liggja, sem skapast hafa, að einhverju leyti frá okkur mannkyni í gegn um hugsanir og gjörðir ...

Declan - Tell Me Why - a children's tribute

We Are The World - Michael Jackson Lionel Richie Cindy Lauper Steve Wonder Bruce Springsteen...

Michael Jackson - The Earth Song

Hjálpum þeim (Help them)  Yndislegur samsöngur og samhugur íslenskra sönngvara til hjálpar okkar minnstu bræðrum og systrum ...

John Lennon - Imagine  ( þarf að tvíklikka á myndbandið svo það komi )

Dag einn fyrir mörum árum síðan varð ég fyrir sterkri upplifun eða uppljómun um lífið og tilveruna, á nokkuð hverstaklegum stað...við eldhúsborðið heima hjá mér á miðjum degi...

Og því fylgdi samsvörun í minni sál eða samhljómun...Langaði bara að deila þessari reynslu minni, hér með þér ...

josira


mbl.is Bandaríski herinn tjáir sig um myndbandið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Torkennilegir hlutir á sveimi yfir eldstöðvunum ! ...UFO ?

Langaði til gamans að benda fólki á að skoða þessi myndbönd af eldstöðvunum á Fimmvörðuhálsi og kíkja eftir einhverju óvanalegu ! 

Við vitum að það eru óteljandi flugvélar af öllum stærðum og gerðum ásamt öllum þyrlunum, búnar að vera þarna á ferð og flugi á hinum ýmsu tímum sólarhringssins, en sumt sem glampar á þarna fer einnig ansi hratt, hverfur og birtist á víxl uppúr þurru ? þyrlurnar þekkjast reyndar vel þarna ...

Það væri áhugavert að fleiri skoðuðu og gæfu álit sitt um hvort hugsanlega eitthvað annað, en bara flugvélar eða þyrlur séu á sveimi þarna ?

( Um að gera að stækka videoið með því að klikka á ferningin niðri í horniu til hægri )

Ultimate UFO Collection-Iceland Volcano March 2010

Iceland Volcano cam ufo Captured 2 april 2010 ( hér fyrir neðan )

Boomerang UFO and PROBES in Volcano Smoke Iceland 2010 ( hér fyrir neðan )

Um leið og ég sá þennan boomerang líkan hlut, datt mér í hug ljósið sem ég sá frá Kópavogi séð í átt að Keilir - Keflavík, þann 4 feb. sl. á blá heiðskýrum himni http://josira.blog.is/blog/josira/entry/1028527/ ( hann var þó ekki alveg þannig í laginu ) en svo bjartur að sjá, sem glóandi gullinn ...

Ég hef nú ekkert sérstaklega verið mikið að spá og spegluera í þessum hlutum, UFO svona almennt séð, og að einhverjar litlar gráar verur fylgi þar með, en loka þó aldrei á neitt ...það er svo margt sem við vitum ei ...

ljos_a_himni_sudurnes

josira

 


Hver á sér fegra föðurland ... Hulda skáldkona

Mátti til með að deila með ykkur, þessu yndislega ljóði, sem fangaði augu mín, en höfundur þess er Hulda skáldkona ... ( Unnur Benetiktsdóttir Bjarklind )

Manni hlýnar nú bara um hjartarætur ... Heart

 

island 

Hver á sér fegra föðurland

 

Hver á sér fegra föðurland,

með fjöll og dal og bláan sand,

með norðurljósa bjarmaband

og björk og lind í hlíð?

Með friðsæl býli, ljós og ljóð,

svo langt frá heimsins vígaslóð.

Geym, drottinn, okkar dýra land

er duna jarðarstríð.

                   

leabul1e

Hver á sér meðal þjóða þjóð,

er þekkir hvorki sverð né blóð

en lifir sæl við ást og óð

og auð, sem friðsæld gaf?

Við heita brunna, hreinan blæ

og hátign jökla, bláan sæ,

hún unir grandvör, farsæl, fróð

og frjáls - við ysta haf.

                  

leabul1e

Ó, Ísland, fagra ættarbyggð,

um eilífð sé þín gæfa tryggð,

öll grimmd frá þinni ströndu styggð

og stöðugt allt þitt ráð.

Hver dagur líti dáð á ný,

hver draumur rætist verkum í

svo verði Íslands ástkær byggð

ei öðrum þjóðum háð.

Svo aldrei framar Íslands byggð

sé öðrum þjóðum háð.

                    

leabul1e

Höf:  Hulda skáldkona ( Unnur Benetiktsdóttir Bjarklind )

leabul1e

Eigið góðan dag, sem og alla aðra ... josira

 


Nýlegar myndir og lítið ljóð ... á fimmvörðuhálsi

bildeAsiLarusson

Fæðing nýs lands ...

20 mars tvöþúsund og tíu

í titrandi tjáningu hóf að nýju

Eyjafjallajökull, að spúa eldi.

endurvakinn, síðla að kveldi.

leabul1e

Kvöldroði hins nýlega mána

minnkaði, er loft fór að grána.

Gosmökkurinn á vorjafndægri,

vöðlast um til vinstri og hægri.

leabul1e

Krafturinn undir kraumar og mallar

máttugur mjakast, á logann kallar.

Klofnar þá jörðin við jöklana rönd

rösklega rifna bergssins bönd.

leabul1e

Brátt ber við himinn bjartan bjarma

breyting er á staðhættis sjarma.

Snarbrattir klettar, klungur og gil

glóa við eldgossins sjónarspil.

leabul1e

Snævi þakta jöklanna jörð

jarðeldar breyta í svartan svörð.

Sökkla nýsköpunar, þó má sjá

snarplega stækka, Fimmvörðu á.

leabul1e

Ásýnd átthaga, eldstöðva verk

vísindamönnum þykja merk.

Mörgum öðrum einnig líkar

loga leiftra og hamfarir slíkar.

leabul1e

Sjónarsviðið  sjóðheitt  brennur

bylgjast  áfram, hraunið rennur.

Reykjabólstar til himins berast,

brak og brestir, mikið að gerast.

leabul1e

Gætilega gestir, vanda skulu spor

stafað getur hættu, ef heillar þor.

Þroska skal sýna og virða ráð

rými víðu, vel sé að gáð.

leabul1e

josira

 

nyja_sprungan_ur_lofti

 

 

Frábært yfirlit ásamt mögnuðum myndum frá

fréttavef ruv. af eldstöðvunum á Fimmvörðuhálsi;

Og ekki gleyma að skoða nýju gossprunguna, sem sjá hér fyrir neðan;

Nýtt mynband mbl. af gosstöðvunum.

 

sæl að sinni

josira 


Fegurð fæðinga nýrra fjalla, fanga hug og til þín kalla ...

526351_HalldorKolbeins 

Á Fimmvörðuhálsi.

bildeOskarFridriksson

Var að vafra um á youtube og er þar að finna fjölmörg myndbönd - video af eldgosinu í Eyjafjallajökli ... Ekki er hægt að neita því, að magnað er að sjá mörg þeirra.

Heillandi, en hættulegur kraftur og er sem segull á sjón ...

Spennandi sköpun, sem skelfir þó ...

 

josira

 


« Fyrri síða

Höfundur

josira
josira

Orðin... Pára með penna á óskrifað blað, orðin um hugann renna. Með suð í eyra ég skrifa það, sem ég fæ að heyra. Hvaðan þau koma veit ég ei, en í höfði mínu óma. Líkt og eilífðin, sem gefur frá sér tóna og um himnasali hljóma.

Lítil síða lítur dagssins ljós... Hér hef ég hugsað mér að skrifa um allt og ekkert ... eða bara það sem mig langar til hverju sinni ... Vertu velkomin(n) kæri ferðalangur... í heimsókn hingað, þar sem þú hefur nú fundið vegaslóðan minn litla, í netheiminum stóra ...

 

Lyngrósin Ljóðin mín

Josiraice youtube ljóð og tónlist

Rósin Eldri heimasíða, sem ég get ekki uppfært lengur, en læt hana fylgja hér með.  (Hún virkar einungis í gegnum Internet Explorer)

Light Bearer -poem - josira 

Guðrún Lilja; mánadísin, mín eldri dóttir og Ljóðin hennar

Nýjustu myndböndin

Movie

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 122351

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband