Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
En eflaust verður erfitt um vik, að finna einhverja sem ekki tengjast þessum bönkum, Sparisjóðirnir voru um allt land. Og fljótt að myndast alls skonar krosstengsl og hugsanlega eitthvað meira.
Kannski þarf ótengda rannsóknarnefnd erlendis frá, ef hún skyldi nú myndi finnast.
Og alveg er synd hvernig þessir blómlegu bankar virðast hafa farið í súginn;
Sparisjóðirnir í sjöunda himni 2007
(Efnahagsreikningar stærstu sparisjóðanna héldu áfram að tútna út á síðasta ári eins og árin á undan. Við lok síðasta árs stóðu eignir í 391 milljarði króna og höfðu vaxið um 120 milljarða á árinu eða um 45 prósent)
Skjótt skipast veður í lofti.
josira
![]() |
Vilja rannsókn á sparisjóðunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Og heldur finnst mér tekið djúft tekið á lýsingarorðum morgunblaðsmanna í inngangi greinarinnar um ummæli Ólafs.
" Forsetinn var háfleygur í orðavali að vanda "
(átti þetta að vera frekar last en lof ...eða hvað)
Hálf fáránlegt er einnig að halda því fram að þessi orð Ólafs forseta kunni að hafa kostað þjóðarbúið milljarða króna.
Varðandi þessa viðvörun forsetans, sé ég ekki betur en þetta séu lýsingar á því, sem við Íslendingar erum að heyra þessa dagana, sem og aðra frá vísindamönnum. Og þarf ekkert að fela það. Gott er að geta verið viðbúin(n) því sem þarf að takast á við hverju sinni.
Og höfum við nú Íslendingar reyndar alist upp við frá fornu fari að lifa í nágvígi náttúrunnar hér í blíðu og stríðu.
Og síðustu árin meðal annars fengið að heyra að hugsanlegt Kötlugos gæti fylgt á eftir eldgosi í Eyjafjallajökli. (sem ekkert er víst að hún fylgi endilega eftir) Hún hefur bara sína hentisemi á því. Við búum í okkar sérstaka landi elds, íss og vatns. Þannig er nú það. Kæmi mér ekkert á óvart þó annars staðar, þyrfti landsins orka að losa sig á undan.
Munurinn nú og áður fyrr er að tækni og vísindi nútímans geta séð á nokkuð öruggan máta, sé eitthvað í uppsiglingu með jarðskjálfta, eldgos eða ofan-flóð eða hlaup í ám eða jöklum.
Þar að auki eru mælitæki og myndavélar á helstu stöðum, þar sem sjást og finnast hin ýmsu merki um hvað sé í gangi hverju sinni hjá náttúruöflunum okkar. Það eitt eru breyttir tímar.
Og við skulum fylgjast bara með í rólegheitum hvað gerist með hækkandi sól og vita hvort ferðamannastraumurinn muni ekki liggja hingað sem endranær. Spurning hvort við þurfum ekki að koma sem flestum skemmtiferðaskipum hingað og helst stefna að því að eignast sjálf 1-2 eða taka á leigu með einhverjum fjárfestum. Þeir ku finnast bæði hér á landi og erlendis.
Og hvað varðar ferðalangana, sem hingað munu koma er gott fyrir þá að kynna sér sögu landssins og vita að heimsóknin er enn eftirtektarverðari fyrir það eitt, að hér er lifandi land, sem er enn í vexti og mótun.
josira
![]() |
Dýrkeypt yfirlýsing forsetans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gott að heyra að hreinsunarstarf undir Fjöllunum skuli vera með miklum krafti heimamanna og hjálpenda víðsvegar að ... og að bændur bugast ei ... því viljinn knýr vængi vonarinnar ...
Vísa hér á hugmyndir í kolli konu, um hugsanlega nýtingu gosefnanna, sem legið hafa sem leirteppi yfir sveitinni fallegu undir Eyjafjöllum...
eldri bloggfærsla mín; Eru gosefnin kannski til góða ...
josira
![]() |
Moka ösku á sturtuvagna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.4.2010
Raunsönn orð Lilju Mósesdóttur ...
" Skuldarar hrópa á réttlæti, norrænt réttlæti "
og að koma verði í veg fyrir að bera eigi fólk út úr húsum sínum.
Þessum orðum Lilju er ég svo sannarlega sammála.
Get ekki neitað því að á síðustu dögum hef ég verið komin með æluna upp í háls yfir þessu ólgandi hafi talnanna og útreikningum þeirra, sem stjórna hér landi og þjóð
Allur lífsins dans virðist eilíft vera háður takti talnanna og örfárra manna er sjá um útreikning þeirra.
Við erum föst í viðjum danssins.
Þeir ríku verða ríkari og þeir fátæku,fátækari
(Þeir ríkari þurfa ekki að standa í biðröð til að þiggja matarbita frá hjálparstofnunum eða sætta sig við hafragraut í annað hvort mál, smjörlíki oná brauð eða gamlar servíettur - kaffipoka eða krumpuð dagblöð fyrir wc pappír þegar líða fer á mánuðinn).
Hvernig vinnur t.d. þessi blessaða ríkisstjórn eftir útreikningum talnanna, sem lúta að björgun fjölskyldna í landinu og stóru loforðunum um Skjaldborg Heimilanna. Örfá orð um þau góðu loforð;
Lykilatriði er að tryggja húsnæðisöryggi fjölskyldna og einstaklinga.
Að leiðrétta með lækkun á greiðslubyrði þeirra sem verst standa þar til verðmætasköpun atvinnulífsins tekur aftur að aukast.
Skuldastaða heimila, greiðslu- og framfærslugeta verði til stöðugs endurmats sem og nauðsynlegar aðgerðir til að koma til móts við heimili í vanda.
Og hver er svo nýasta ákvörðun þessarar margumtöluðu ríkisstjórnar ;

Jú, að fylgja eftir skipun AGS um að taka af öll tvímæli um það að engar almennar afskriftir verði á skuldum almennings, sama hvaða nafni þær nefnist . Svona til að hagvöxturinn hér komist á rétt ról svo þeir geti veitt með höfðingsskap sínum, lán sitt til okkar. Eða þannig
Ég veit nú ekki betur en, að almenningur er nú kannski ekki beint að kalla eftir afskriftum lána sinna, líkt og fjölmargar stofnanir og fyrirtæki hafa fengið ásamt nokkrum einstaklingum, sem hleypur á milljörðum.
Heldur t.d. að húsnæðis-og bílalánum verði komið í farsælan og sanngjarnan útreikning í farveg talnanna. Þannig að grundvöllur sé fyrir fólk að standa sínar skuldbindingar, sem það lagði upp með og var viðráðanlegt samkvæmt greiðslugetu þess á þeim tíma, sem eignir voru keyptar.
Færa t.d. afborganir aftur fyrir um 2-3 ár (lengja lánstímabilið) án einhverra flókinna útreikninga. Finnst mér að það ætti að vera frekar einfalt mál .
Ef þessi blessaða þjóð okkar á að eiga sér viðreisnar von, verðum við að horfast í augu við, að sameinuð verðum við að standa saman hönd í hönd.
Lækkun bankavaxta og út með verðtrygginguna gömlu. Sem hvergi þekkist nema hérlendis, að ég best veit um. Koma hjólum atvinnulífssins af stað. Það er auðvitað grundvöllur alls mannlífssins og afkoma heimilina, sem í raun heldur öllu battiríinu gangandi <> þjóðin sjálf.
Það er engu líkara, en að stjórnvöld séu blind á að hvernig og hvert tannhjól þarf að virka svo allt snúist í öllu kerfinu. ..Nei,nei bara meiri skatta álögur og eignir á uppboð og annað fleira í boði talnanna.
Ég sé nú ekki að lausn efnahagsástands felast í því. Einungis niðurbrot margra fjölskyldna. Og hver verður kosnaður ríkis og bæja þegar upp verður staðið, þurfi þeir að sjá fólki fyrir húsaskjóli og framfærslu þegar ríkisstjórnin heldur svona áfram að loka hverri dyr af annari hjá fólki.
Þetta er að verða ein hringavitleysa.
Ég vil endilega benda á bloggfærslu mína þann 13 apríl s.l. um hina stjórnslyngu 89 ára Hazel McCallion, sem heldur um stjórnvölinn í Mississauga, sjöttu stærstu borg Kanada, en þar hefur hún verðið borgarstjóri í 31 ár.
Íslensk stjórnvöld ættu að taka sér, elsta og besta borgarstjórann í Kanada til fyrirmyndar ...
Hennar mottó hefur alltaf verið að halda fólki í vinnu og sköttunum lágum.
Það er eitthvað annað, en stefnan hérlendis !
En er það endilega svo, að við þurfum lán frá AGS. Er ekki t.d. hægt að nota eitthvað af fjármagni þess er Seðlabankinn hefur hagnast um í gjaldeyrishöftunum.eða taka lán hjá lífeyrissjóðunum okkar á viðráðanlegum kjörum ? (sem eru eign landsmanna)
Hrein eign lífeyrissjóðanna 1.797 milljarðar
(En þó held ég að við eigum væntanlega eftir að heyra eitthvað meir um mál lífeyrissjóðanna, held ég að ekki séu öll kurl komin til grafar á þeim bænum).
Og hvernig er með bíla-lánafyrirtækin ? Afskrifaðu ekki bankar erlendis, lán þeirra hingað ?
( p.s. finnst mér einnig eilítið undarlegt hve mörg fyrirtæki og stofnanir og jafnvel fólk víða um heim og hér heima eru farin að sýna góðar hagnaðartölur)
josira
![]() |
Skuldarar hrópa á réttlæti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.4.2010
Jákvæðar fréttir af gosinu eða hvað ?
Fyrst hraun er farið að renna, er þá ekki breytinga von með eldgosið svona almennt ?
Minnkar þetta svakalega öskufall þá ekki einnig í kjölfarið, sem eldstöðvarnar hafa spúð frá sér og ferðast hefur um víðan völl.
Og valdið hefur gríðarlegum áhrifum á ferðalög um nánast allan heim á liðnum dögum.
En má þó til sanns vegar segja, að hafi slegið öllum landkynningum Íslands við.
Ætlar hinn fallegi Eyjafjallajökull kannski, að snúa vörn í sókn með okkur og létta á sér með liðlegum túrista hraunstraumi til að laða fólk að nýju til landssins !
Það yrði frábær gjöf hans til okkar og myndi það reka á brott þessar neikvæðu umræður um fyrirfram ákveðið tap ferðamála hér á landi á komandi sumri.
Svo er annað sem ég hef verið að velta vöngum yfir. Hvernig stendur á því að sífellt er verið að hamra á tapi t.d. flugfélaganna víðsvegar um lönd. Voru þeir ekki einnig að spara sér eldneytiskosnað, ásamt því að hafa allavega á fyrstu dögum flugbannsins verið búnir að fá greiddan stóran hluta farseðlana.
Því er það ekki þannig, að flestir ferðalangar borga sína flugmiða fyrirfram. Tíðgast það ekki að öllu jöfnu þannig í dag. Þá er það væntanlega þeir sem lenda í meira tapi - vandræðum, en ekki flugfélögin.
Og ekki fer mörgum sögum af öllum þeim fyrirtækjum erlendis, sem þessar tafir hafa sett í jákvæðara horf. Sbr. Lestir, rútur, leigubílar, hótel, gististaðir, veitingastaðirt, verslun og annað tengt ferðamönnum. Eitthvað hefur peningurinn ratað í þeirra vasa hlýtur að vera.
Ég spyr bara fávís konan ...
josira
![]() |
Hraun komið um 1 km frá gígnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.4.2010
Eru gosefnin kannski til góða ...
Við megum þakka máttarvöldunum fyrir í rauninni, hversu varfærnum höndum náttúran fer um okkur hér heima. T.d varðandi líf manna og dýra ásamt litlum skemmdum á mannvirkjum í eldgosunum á Fimmvörðuháli og Eyjafjallajökli. Hugur okkar allra er og hefur verið með fólkinu og skepnunum undir Eyjafjöllum og nágrenni þess hverja klukkustund þessa dagana og síðustu vikurnar.
Þegar hamfarirnar eru að baki og kyrrð komin á, munum við öll sem eitt leggja hjálparhönd, sem unnt er við hreinsun og lagfæringa þeirra svæða, sem öskufallið hefur hulið. Þjóðin hefur sýnt það, að á ögurstundum stendur hún ætíð saman.
Einnig er ég viss um að sjálfboðaliðar erlendis frá, munu koma í hreinsunina, líkt og eftir eldgosið í Vestmannaeyjum.
Um daginn ætlaði ég að pára á blað um eitthvað jákvætt í kjölfar eldgosanna. Ekkert varð úr því þá, þegar andinn kom yfir mig, þannig að nú munda ég mig í mitt fingrapikk og sendi orðin áfram nú, þarna út.
Þannig var að ég fór að hugsa um gosefnin, úr hverju þau væru. Hef lítið sem ekkert fundið á netinu, hvernig þessi aska er samansett, nema ég rak augun í orðið Andesit um daginn. Mundi það, en hef ekki enn fundið greinina þar sem á það var minnst. Og fyrst ég er andvaka og hugur minn leitar í þessar fyrrum hugsanir, þá ákvað ég að koma þessu frá mér.
En allavega þá líta þessar blessaðar hugmyndir eitthvað á þessa vegu;
Nr.1 Fá fólk á atvinnuleysisbótum, austur í þrif og hjálp við uppbyggingu á sveitabæjunum og löndum þess.
Nr.2 Fá landbúnaðar-vinnuvélar, sem standa og bíða eftir verkefnum austur og mannskap á þær,(sem eru á atvinnuleysisskrá með vinnuvélaréttindi). Eiga ekki bankar og stofnanir orðið fullt af vinnuvélatækjum, sem þeir hafa leyst til sín ? Ríkissjóður eða Viðlagasjóður gæti þá annars borgað laun fyrir aðra vinnuvéla-eigendur, sem eflaust eru einhverir á lausu ef þyrfti. Olíufélögin gætu svo gefið olíurnar á tækin.
Nr.3 Sá fyrir mér þrennt í stöðunni, gagnvart öskunni, sem liggur þarna yfir öllu sem leirteppi.
A. Moka henni til og safna á einn stað í hauga. Byrgja síðan með einhverjum netum, þannig að hún verði til friðs, sé ekki að fjúka um.
Því ég sá fyrir mér einhversskonar verkstæði-smiðju, þar sem sem mótaðir væru og og unnir mynjagripir t.d. styttur, vasar, myndir eða ker úr leir. (eða steyptir) Eitthver efni (Andesit !) notuð úr öskunni með einhveri annari blöndu. Bændurnir gætu þá unnið listmuni og selt úr þessum gosefnum, meðan landið væri að gróa upp og ná sér.
(þyrfti að kanna hvort einhver öskuefnanna væri unnt að nota.)
Einhversstaðar væri eflaust þá hægt, að nýta góða skemmu eða gamla hlöðu til þessa verkefnis og breyta með litlum tilkosnaði í leirmuna-verkstæði-smiðju.
B. Og í annan stað minnir mig að ég hafi heyrt, að gosefni almennt hafa reynst bara vel til að bæta jarðveginn, þegar búið er að plægja hann saman við þann gamla.
C. En eflaust þyrfti, að reyna að skola sem fyrst flúor efnunum úr, hvernig sem á allt er litið eða hvernig það yrði gert. Sjálfsagt væri hægt að tengja stórvirkt úðunarkerfi út á túnum og einhverjum högum. (dettur í hug vatnsúðunar-kerfi eins og eru á ökrum erlendis)
Nr.4 Spurning væri síðan hvort skepnurnar gætu farið á góð heimili í tímabundið fóstur um tíma, á meðan að uppbyggingu væri staðið. Og tún og hagar væru komin í gott stand að nýju.
Þetta er innlegg mitt að sinni til sveitarinnar fallegu, bænda og búaliðs undir Eyjafjöllum. Alveg sorglegt, að hugsa til þess að bændur þurfi kannski að leggja niður þar bú sín og ævistörf.
Iceland Volcano Eruption early 70's rare footage
Verum minnug þess hvílíku grettistaki var lyft í Vestmannaeyjum eftir gosið 1973 og bærinn varð blómlegur á ný með hjálp og elju margra mætra manna og kvenna, sem með von í hjarta og dugmiklar hjálparhendur lögðust á eitt og gerðu þann draum að veruleika, að byggð hæfist þar að nýju.
Í kjölfar þessara hugmynda minna (sýnar) fór ég á netið að afla mér einhverra upplýsinga um þetta orð Andesit, sem leitaði á mig (og er þá með e í endann á ensku.) Og það kom mér skemmtilega á óvart, að frá fornu fari hefur þetta efni verið notað. (hálfgert steypuefni, eflaust með blöndu annara efna) til notkunar t.d. í byggingar og styttur.
Hof Aþenu á Acropolis hæð
On the 700-foot-high Acropolis rests the Temple of Athena, made completely of igneous rock called andesite. It bears a mixture of Doric and Ionic styles and dates from 530 B.C. Elsewhere on the hill, excavators discovered a gymnasium, a treasury, baths, a theater, a necropolis, and a rectangular agora (marketplace). Also, a Byzantine wall surrounds the acropolis.
Seated man made of andesite Near Eastern, Anatolian, Neo-Hittite, Neo-Hittite or Aramaean, 10th8th century B.C.

An Egyptian Andesite Porphyry Vessel Category: Egyptian Period: Early Dynastic Date: c. 1st-3rd Dynasty, 2965-2640 B.C.

Eagle Relief, 10th13th century Mexico; Toltec Andesite/dacite, paint
Sun Gate in Tiahuanacu Bolivia
4000m above sea level, on the Altiplano in Bolivia, lies Tiahuanacu with the famous sun gate. No one knows for certain when this culture developed, from which culture it originated and, when and why it disappeared again. It is assumed that the Tiwanaku culture came from the Huari, a old peruvian culture. The culture site, located at the Titicaca Lake between Peru and Bolivia, was once a temple complex. The numerous images of presumed gods are proof of this. The complex and the stones are done with such a precision that it cannot be considered only a profane center.The quarry of andesite and trachyt blocks lies 17km away!
og annað ævagamalt handverk úr andesite að mér skilst ...
Í Suður-Afríku eru ýmsir nýmóðins hlutir steyptir úr andesite (örugglega ásamt einhverjum öðrum efnum)
og hugmyndir einhversstaðar annarsstaðar frá,
Þannig að mér sýnist nú margir möguleikar búa í þessum náttúrunnar nýju Íslands gjafarefnum.
Þökkum fyrir alla þá guðdómlegu ljóssins vernd, sem við höfum fengið hér á Íslandinu og höldum áfram að biðja fyrir landi og þjóð, sem og öðrum löndum og þjóðum og að alheimskærleikur og heilunarorka umvefji móðir jörð og allt hennar lífríki á þessum umbreytingartímum, sem við mannkyn erum að ganga í gegn um.
Í átt að nýjum og manneskjulegri þjóðfélögum, með auknu réttlæti, samkennd og raunsærri stjórnun, sem stuðlar einnig að mannfrelsi og friði.
josira
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 05:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
ARRGGGG GAARRRG ... Búin að sitja hér og tjá mig heilan hellinn um þessar stofnanir og fyrirtæki, ég segi ekki meir...nú er þolgæði mitt á þrotum með bloggkerfið hér...
Var að klára síðustu setninguna, átti bara eftir að setja punktinn yfir iið. Nei þá hvarf allt út í buskann....Eitthvað er hér ekki eins og það á að vera. Hvað er það sem ekki má tala um ...
Þetta verður fyrsta bloggfærslan, sem ég læt vera að gera á ný, nema að litlu leiti.
Allavega umræðuefnið var hagnaður þessara fyrirtækja-stofnana á góðærisárunum.
Ekki naut almenningur neinna hlunninda eða lækkana á þeim tímum og nú eru greiðslur í hærri hæðum til þessara stofnana og fyrirtækja frá almenningi. En greiðslur sem þessar stofnanir og fyrirtæki þurfa að greiða til almennings lækka.
Ekki einleikið hve stór hluti launa fer úr vösum almennings í þessi fyrirtæki-stofnanir. Og þá er ég ekki að tala t.d. um; fæði-klæði-síma-sjónvarp-hita-rafmagn-leigu-eða annan kosnað í hverjum mán.
eldri færsla min:
Kominn tími til þó fyrr hefði verið ...
að launafólk taki yfir lífeyrissjóðina og annara;
LV lækkar lífeyrisgreiðslur um 10% frá júlí
Hrein eign lífeyrissjóðanna 1.797 milljarðar
Fjárfestingar og tap lífeyrissjóðanna Lára HannaExista og Lífeyrissjóðirnir - hókuspókus
Lífeyrissjóðir bíða með milljarða
27.4.2007 Mikill hagnaður lífeyrissjóða af íslenskum fjármálafyrirtækjum
16. 11. 07 Landsamtök Lífeyrissjóða
5. maí, 2006 Lífeyrissjóðirnir hagnast á gengislækkun
Lífeyrissjóðina til fólksins. is on Facebook
Lífeyrissjóðsliðurnn var full þurftarfrekur, sleppi hinum þremur að sinni.
Ýmis orð um hugan sveima, nú þegar pása gefst frá goshugsun.
Dow Jones-vísitala og hvað þýðir hún; PWC KPMG - BG-Holding - Who really owns the FED? Og eitthvað fleira er að finna hér í hrunadansinum...
19.10.2009 Hrunadans í orðum...peningar...krosstengsl...ýmiss konar
Hvernig tókst Goldman Sachs að verða fyrsti bankinn útúr kreppunni
með 200 milljarða hagnað ! og það strax á fyrsta ársfjórðunni árssins...
(p.s. órói náttúrunnar heldur áfram á mis mikin máta, á meðan hinir ýmsu hlutir koma í ljós, sem huldir hafa verið í fjár-óreiðu-spillingu þjóðfélagssins fyrri ára og eru nú smán saman að koma í ljós. Aðstæður eru að opnast, sem gefa greiðari leið að ósómanum...)
josira
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mannskepnan er æði smá er kemur að náttúruhamförum jarðarinnar. Hér má skoða, spá og spegulera í nokkurð áhugaverð mynbönd um vöxt og þroska móðir náttúru ...
Og í leiðinni beinar útsendingar vefmyndavéla Mílu og Vodafone af eldstöðvunum í Eyjafjallajökli ...
Frá Mílu;
Eyjafjallajökull frá Þórólfsfelli , Eyjafjallajökull frá Valahnjúki og
Eyjafjallajökull frá Hvolsvelli
Vefmyndavél Vodafone frá Þórólfsfelli
Ýmislegt má hér finna af fréttum - ljósmyndum - og videoupptökum;
josira
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvað er Íslandið góða, að reyna að segja heiminum öllum með ösku sinni, sem berst nú um víðann völl með háloftavindum og beinir allra augum hingað !
Og er búin að raska ferða tilhögun milljóna manna um allan heim ! Sjáanlegra verður landið vart !
Með gjöf sinni til jarðarbúa og sem allflestir vilja hafna !
Í myndlíkingu sé ég það þannig, að í öskunni, sem erlendis fer búi dulbúin gjöf ef þannig má að orði komast. Sem er í rauninni hluti af hinu nýja Íslandi. Landið er að minna á sig og milljónir manna að auki þeirra, sem hingað hafa komið, sem ferðamenn eða þekkja það gegnum efnahagshremmingarnar eða icesave munu nú ætíð vita hvar Ísland er. Og þess vegna verður nafn Íslands afar stórt í samvitund mannanna.
Allt sem á undan hefur gengið hefur hjálpað til að koma okkur þar, sem við erum í dag. Reynslunni ríkari, þó erfið sé hún. Og nú munum við taka þátt í mótun hins nýja Íslands, sem rísa mun úr öskunni, líkt og eldfuglinn Fönix forðum daga.
Því þegar þjóðin mun uppgvöta sinn innri styrk, hinn andlega auð, mun hún sameinast, sem einn maður með nýjum formerkjum, breyttum áherslum til lífviðhorfa, lífshátta og sterkari, en nokkru sinni fyrr. Og verður sú fyrirmynd, sem önnur ríki munu leita til og hafa að leiðarljósi.
Til
friðar...frelsis...réttlætis...mannúðar...hugsjóna...vonar...mannkærleika og framfara til góðs...á öllum sviðum frá öllum hliðum ... Þannig sjónum sé ég nýja Ísland fyrir mér.
Við stöndum á tímamótum mannkyn allt, með svo margt...
Við þurftum á umbreytingunum að halda, þó sárar séu og hafa verið síðustu árin. Því við stefnum nú til nýrrar framtíðar, með breyttun áherslum, þannig að heimsmyndin öll hljóti nýja framtíðarsýn, sem einnig mun byggja á fornum sannindum.
Þar sem okkar smáa, en sjálfstæða stórhuga þjóð býr, sem mótast hefur af sambýli við náttúruöflin og harðri lífsbaráttu gegnum aldirnar. Með að veganesti reynslu og þekkingu genginna kynslóða, sem aldrei létu deigann síga. Að gefast ekki upp þó að á móti blási, er setning sem allflestir Íslendingar eiga að kannast við.
Og þó útlitið sé frekar svart og kalt núna, bæði varðandi þjóðarmálefnin og vegna yfirstandandi náttúruhamfara, munu koma betri tímar og ný ráð. Náttúran nú hefur verið að taka þátt í öllu þessu umróti, sem þarf til að velta úr sessi gömlum úreltum stjórnarkerfum og spillingu um allan heim. Gildi lífssins breytast í návígi náttúruhamfara.
Við megum þakka máttarvöldunum fyrir, í rauninni hversu varfærnum höndum náttúran fer um okkur hér heima. T.d varðandi líf manna og dýra, ásamt litlum skemmdum á mannvirkjum. Hugur okkar allra er með fólkinu og skepnunum undir Eyjafjöllum og nágrenni þess hverja klukkustund þessa dagana. Þegar hamfarirnar eru að baki og kyrrð komin á, munum við öll sem eitt, leggja hjálparhönd við hreinsun og lagfæringa þeirra svæða sem öskufallið hefur hulið.
Einnig er ég viss um að sjálfboðaliðar erlendis frá, mun koma í hreinsunina, líkt og eftir eldgosið í Vestmannaeyjum.
Og örlítið meir um umrót og breytingar og er ég þá að meina um afdrif gömlu þjóðarskútunnar;
Þó löskuð sé hún blessuð þjóðarskútan er í höfn kemur, munum við samhent lagfæra hana á ný og endurbygging hennar mun hefjast með breyttu hugarfari, áherslum og nýjungum. Brydda hana síðan andlegum auðæfum okkar, sem finnast munu í gömlum földum kistlum, lengst ofan í lestum hennar, sem opnast hafa í öllu öldurótinu. Þegar að verður gáð verða þessi andlegu verðmæti það leiðarljós, sem lýsa mun hverjum og einum og þeim er það sjá og finna eða eftir leita, frá myrkri og vonleysi gamla farvegarins og inná nýjar brautir, sem gefa von í hjarta.
Við munum öðlast virðingu annara úti í hinum stóra heimi fyrir samheldnina innbyrðis og skilningur á öllu óréttlætinu sem við höfum upplifað mun aukast og hjálp mun berast til okkar.
Hér má lesa til gamans stórgóða grein eftir Sigurð Sigurðarsson og umsagnir erlendra fjölmiðla um Ísland í dag ... og Mögnuð mynd NASA af gosmekkinum ásamt myndbandi af eldingun í gosmekkinum...
Úr eldri bloggskrifum mínum ; Haförn í Hvalfjarðarsveit 5 nóvember... (skilaboð til þjóðarvitundarinnar)...
Eru gæsirnar farfuglarnir - með skilaboð - leiðbeiningar til okkar ? vegna þjóðarástandsins...
josira
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hér ma sjá nokkrar myndir, sem voru á netinu,
af hinum hriklegu eldsumbrotum í Eyjafjallajökli.
Teknar í námunda við jökulinn og frá Vestmannaeyjum.
Bein útsending úr vefmyndavél mílu á Hvolsvelli.
Bein útsending úr vefmyndavél vodafone á Þórólfsfelli.
Frá hlaðinu í Hlíð undir Eyjafjöllum klukkan þrjú í dag.
"Ljósin á bænum sjást þarna en það var á tímabili þar sem ég sá þau ekki,"
segir Sigurgeir L Ingólfsson í viðtali á visir.is
Biðjum máttarvöld og verndarvætti
að vaka yfir og vernda land og þjóð
á þessum umbrota og breytingatímum.
josira
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tenglar
ÝMSAR JÓLAVEFSÍÐUR
- Jólin-Þjóðminjasafnið jólasíður Þjóðminjasafnið
- jólavefur Júlla á Dalvík fullt af fróðleik um jólin
- Jólavefur Valla, sem geymir marga aðra jólavefi fjölbreytur jólavefur
- jóla-og áramótavefkort ýmis önnur vefræn tækiæriskort
BLANDAÐAR ÁHUGAVERÐAR VEFSÍÐUR
- LJÓSMYNDAKEPPNI Canon og mbl.
- VILTU VITA MEIRA Leiðsögn með lestri .. Sigríður Svavars - Leiðbeining - heilun- fyrirbænir
- ÓMAR RUN - Ljósmyndir Magnaðar myndir
- MADDÝ - Ljósmyndir Meiriháttar myndasmiður
ÝMSAR VEFMYNDAVÉLAR
- Nýjar Íslands vefmyndavélar Frábærir tenglar hérlendis og erlendis
- Vefmyndavélar - Vegagerðin - Suðausturland
- Vefmyndavélar víðs vegar um Ísland
VEÐUR - FÆRÐ - LOFTSLAG
LANDSBYGGÐIN LIFI...
- BETRI BYGGÐ UM LAND ALLT...
- LANDAKORT.IS Frábær síða um Ísland; m.a. Góðar upplýsinga-og þjónustusíður-Vefsjár sveitafélaga-Fjölbreytt efni um ferðamál og ferðalög á Íslandi.
- ICELAND WORLDWIDE Iceland, the land of the midnight sun, is becoming a favorite with those who seek adventure and freedom. Be it nature, sagas, geology or people that interest you, Iceland is the place to go
ÍSLENSK TÍMARIT ALLT FRÁ 1696 -
- FRÁ FYRSTU TÍMARITUM LANDSSINS TIL DAGSSINS Í DAG Ýmislegt að skoða ..
FRÁ A-Ö...
- TRÚARBRÖGÐ HEIMSSINS...
- VÍSINDAVEFUR H.Í Að vita meira og meira .
- ALMENNINGSBÓKASÖFN LANDSINS
- WIKIPEDIA
- BÓKASÖFN LANDSINS
TÆKNI og VÍSINDI
FJÖLBREYTTIR ÞÆTTIR...
- ÍSLAND Í DAG
- KASTLJÓS
- N4 SJÓNVARPSSTÖÐ NORÐAN HEIÐA
- GAMLA ÍNN TV SJÓNVARPSSTÖÐIN
- HRINGBRAUT SJÓNVARPSSTÖÐ
MATSELD
- MATARBLOGG SOFFÍU gómsætir réttir af öllum stærðum og gerðum...
- UPPSKRIFTIR SOLLU
- MARGAR MATAR UPPSKRIFTARSÍÐUR Eflaust eitthvað gott að finna ..
- KÖKUR OG EFTIRRÉTTIR Án hveiti sykurs og ger
- GULUR,RAUÐUR,GRÆNN OG SALT Hráfæði
HJÁLPARSTOFNANIR...
Fibromyalga...vefjagigt
Blekking í þjóðfélaginu...
Blekking í þjóðfélaginu...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.5.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 13
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
2014
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði