Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2009

Kóróna landssins...eftir Ómar Ragnarsson

 

 island

Langaði bara að minna á okkar yndislega og magnaða land, sem hefur í raun, okkur allt það að gefa, sem við ætíð þörfnumst hér.

Finnst mér þessi orð hans Ómars með fegurstu ljóðaóðum til landssins okkar. Njótið lesturssins. Vildi að ég gæti einnig boðið uppá þann stórkostlega söng og það fallega lag sem er við textann.

 

Kóróna landssins

Svíf ég af sæ
mót suðrænum blæ
upp gljúfranna göng
gegn flúðanna söng.
Þar færir hver foss
fegurðarhnoss
og ljúfasta ljóð
um land mitt og þjóð.

Allvíða leynist á Fróni þau firn
sem finnast ekki´í öðrum löndum:
Einstæðar dyngjur og gígar og gjár
með glampandi eldanna bröndum.
Við vitum ekki´enn að við eigum í raun
auðlind í hraunum og söndum,
sléttum og vinjum og auðnum og ám
og afskekktum sæbröttum ströndum.

Því Guð okkur gaf
gnægð sinni af
í sérhverri sveit
sælunnar reit.

Í ísaldarfrosti var fjallanna dís
fjötruð í jökulsins skalla
uns Herðubreið þrýsti sér upp gegnum ís,
öskunni spjó og lét falla.
Er frerinn var horfinn var frægð hennar vís, - 
svo frábær er sköpunin snjalla.
Dýrleg á sléttunni draumfögur rís
drottning íslenskra fjalla.

Að sjá slíkan tind
speglast í lind
og blómskrúðið bjart
við brunahraun svart.

Beygðir í duftið dauðlegir menn
dómsorði skaparans hlíta.
Framliðnar sálir við Öskjuvatn enn
sig ekki frá gröf sinni slíta.
Tunglfarar upplifa ósköpin tvenn:
Eldstöð og skaflana hvíta.
Alvaldsins sköpun og eyðingu í senn
í Öskju þeir gerst mega líta.

Höll íss og eims, -
upphaf vors heims, -
djúp dularmögn,
dauði og þögn.

Endalaus teygir sig auðnin, svo víð, -
ögrun við tækniheim mannsins.
Kaga við jökul með kraumandi hlíð
Kverkfjöll í hillingum sandsins.
Ísbreiðan heyr þar sitt eilífa stríð
við eldsmiðju darraðardansins.
Drottnandi gnæfa þau, dæmalaus smíð,
djásnið í kórónu landsins.

Seytlar í sál
seiðandi mál:
Fjallanna firrð,
friður og kyrrð.

Á Þingvöllum aðskiljast álfurnar tvær.
Við Heklu´er sem himinninn bláni.
Í Kverkfjöllum glóðvolg á íshellinn þvær.
Í Öskju er jarðneskur máni.
Ísland er dýrgripur alls mannkynsins
sem okkur er fenginn að láni.
Við eigum að vernda og elska það land
svo enginn það níði né smáni.

Seytlar í sál
seiðandi mál:
Fjallanna firrð,
friður og kyrrð,
íshvelið hátt,
heiðloftið blátt,
fegurðin ein
eilíf og hrein.

Höfundur:
Ómar Ragnarsson

author_icon_11024
josira
 
 

Hvað er með þetta Moody's matsfyrirtæki...

Var að rekast á gamla færslu, frá s.l. nóv. sem ég hafði ekki sett út, læt hana flakka nú óbreytta...

Hvað hefur þetta blessaða fyrirtæki með að gera að meta eftir sinni vissu hverju sinni hvernig hin og þessi fyrirtæki, stofnanir eða heilu löndin standi í lánshæfi og öðru. Hvað hangir á spítunni ! Hver tapar og hver græðir á einhverjum tölum á blaði ! Hvernig eru þeir að meta okkur ! Fyrirtækin okkar og landið okkar verðmæta...

{c7df9478-f318-4f8b-8cf7-2805b9b33333}_natturuperlur

Hvað eiga þeir með að gefa lægstu einkunn í lánshæfi? Er verið að lækka, svo á endanum komi hingað einhverjir erlendir risar og kaupi hin og þessi fyrirtæki og jafnvel stofnanir t.d OR til að komast hingað inn í landið með klærnar...Eru þeir eða einhverjir á þeirra snærum ekki bara að ásælast landið, byggð ból og auðlindir þess ?

orkuveitan 

Þetta gamla Moody's hefur bara verið eitthvað að trufla mig um töluvert langan tíma. Þoli ekki orðið hvernig öllu virðist enn vera stjórnað af einhverju neti talna sem mannleg öfl skapa og stjórna með á hinum ýmsu sviðum frá öllum hliðum...

Læt hér fylgja með einhverjar uppl. úr wikipedia.org um félagið...

Moody's Corporation (NYSEMCO) is the holding company for Moody's Investors Service which performs financial research and analysis on commercial and government entities. The company also ranks the credit-worthiness of borrowers using a standardized ratings scale. The company has a 40% share in the world credit rating market.

Moody's was founded in 1909 by John Moody. Top institutional owners of Moody's include Berkshire Hathaway and Davis Selected Advisers.

Criticism

See also: Credit rating agency#CriticismCredit rating agencies such as Moody's have been subject to criticism in the wake of large losses in the Asset backed security collateralized debt obligation (ABS CDO) market that occurred despite being assigned top ratings by the CRAs. For instance, losses on $340.7 million worth of ABS collateralized debt obligations (CDO) issued by Credit Suisse Group added up to about $125 million, despite being rated Aaa by Moody's.[6]

Abusive business practices

Moody's has also been accused of "blackmail". In one example the German insurer Hannover Re was offered a "free rating" by Moody's. The insurer refused. Moody's continued with the "free ratings", but over time lowered its rating of the company. Still refusing Moody's services, Moody's lowered Hannover's debt to junk, and the company in just hours lost $175 million in market value. [7]

"As the housing market collapsed in late 2007, Moody's Investors Service, whose investment ratings were widely trusted, responded by purging analysts and executives who warned of trouble and promoting those who helped Wall Street plunge the country into its worst financial crisis since the Great Depression. A McClatchy investigation has found that Moody's punished executives who questioned why the company was risking its reputation by putting its profits ahead of providing trustworthy ratings for investment offerings." [8]

josira 

 


mbl.is Lánshæfi OR í ruslflokki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er í gangi með BLOGGIÐ...

 

HALLÓ, HALLÓ... hó hvað er í gangi með bloggið hérna, allar myndirnar mínar horfnar og stillingarnar á síðunni út og suður ??? Tók einnig eftir því áðan að nokkrar síður eru úti-horfnar-lokaðar í ath. við fréttina um " Bólusetning án endurgjalds " Eru einhverjir fleirri þarna úti að lenda í einhverjum vandræðum líka. !!!

Ég er bara að hugsa hver kemst inná síðuna mína eða gefur sér leyfi til þess og breytir öllum stillingunum á henni, Dálkarir eru t.d. allir breyttir meira og minna í uppröðun...Ég get kannski skilið með að eitthvað forrit hjá mbl. sem hefur eitthvað með myndirnar að gera ( geymsluhólf !) hafi eitthvað klikkað, en er ekki alveg að kaupa að útlitsstillingarnar breytist eitthvað sjálfkrafa...

josira


Í fræðslu felst forvörn...

learning%20community

Ég hafði almennlega ekki gert mér grein fyrir, hversu mikið, ólíkt og víðtækt forvarnastarf er unnið hér á landi, fyrr en ég fór að kynna mér það. Stöðugt þarf vinna að og sinna forvörnum svo árangri skili. Auðvelt er að nálgast upplýsingar um þau verðugu verkefni sem í forvörnum felast t.d. á netheiminum, því stóra veraldarbókasafni. Forvarnir eru ein sú öflugasta leið til að ná til allra aldurshópa með miðlun fræðsluefnis og leiðbeininga, sem leiða til meiri vitneskju um ábyrgð, yfirsýn og öryggi á ólíkum málefnum. Almennar forvarnir á hinum ýmsu sviðum þjóðfélagsins eru orðnar þekktar í dag og notaðar víða á markvissan hátt.

  

dk_women

Í fræðslu felst forvörn, sem er dýrmæt vitneskja til framtíðarinnar...

Hér má finna nokkrar áhugaverðar og fróðlegar vefslóðir sem ég hef safnað saman;

butterfly_animation2

Þjóð gegn þunglyndi  

SAMAN-hópurinnVímulaus æska 

Að hætta að reykja  

Áfengis- og vímuvarnaráð-Gallup

Lýðheilsustöð  

butterfly_animation2

Blátt áfram - Björt framtíð 

Börn og barnauppeldi 

Landssamtökin heimili og skóli 

Barnaheilll 

Unglingar og ungmenni- hitt húsið

Fyrir foreldra unglinga 

butterfly_animation2

Landlæknir 

Doktor.is 

Ráðgjöf krabbameinsfélagsins  

Hjartaheill

Rauði krossinn 

butterfly_animation2

Forvarnir á heimilum og vinnustöðum 

Sjóvá-Almennar - Forvarnarvefur

Vís-Forvarnir 

Slysavarnir  

butterfly_animation2

Vímuvarnarvefurinn  

Götusmiðjan  

Forvarnardeild SÁÁ 

Geðspeki-Geðrækt

Geðorðin 10

Hugarafl

Fræðslumiðstöð í fíknivörnum

Sjálfshjálparhópar 

Höndin - um meðvirkni

p.s. og ef einhver hefur ábendingu um áhugaverðar slóðir, tengdar forvörnum, endilega að skilja eftir í gestabókinni og ég bæti þeim við...:-)

josira


Ísland er samt það besta þrátt fyrir allt...

 

Var að hugsa um þetta magnaða og einstaka land okkar og hve mikinn fjársjóð það hefur að geyma. Hér er allt til alls ef að er gáð...

Náttúra Íslands...                             Falleg myndbönd frá youtube...

http://www.youtube.com/watch?v=S0KuZS9JzOU&feature=related

 

Pálmi Gunnarson syngur Ísland er land þitt...

 

josira

 

 


Ljóssins ljómi...

 
spiritual

Innsigluð í vitund okkar er þráin, í leit að sannleika lífssins...

Vegur sannleikans leiðir okkur, að uppruna okkar..

Vitund vaknar, á þeim degi er ljósið þú finnur, á lífsins vegi...  

Ljóssins ljómi, frelsi gefur, góðvild í hjarta, og veginn vefur...

MillenniumTree

josira

 

Höfundur

josira
josira

Orðin... Pára með penna á óskrifað blað, orðin um hugann renna. Með suð í eyra ég skrifa það, sem ég fæ að heyra. Hvaðan þau koma veit ég ei, en í höfði mínu óma. Líkt og eilífðin, sem gefur frá sér tóna og um himnasali hljóma.

Lítil síða lítur dagssins ljós... Hér hef ég hugsað mér að skrifa um allt og ekkert ... eða bara það sem mig langar til hverju sinni ... Vertu velkomin(n) kæri ferðalangur... í heimsókn hingað, þar sem þú hefur nú fundið vegaslóðan minn litla, í netheiminum stóra ...

 

Lyngrósin Ljóðin mín

Josiraice youtube ljóð og tónlist

Rósin Eldri heimasíða, sem ég get ekki uppfært lengur, en læt hana fylgja hér með.  (Hún virkar einungis í gegnum Internet Explorer)

Light Bearer -poem - josira 

Guðrún Lilja; mánadísin, mín eldri dóttir og Ljóðin hennar

Nýjustu myndböndin

Movie

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband